Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Qupperneq 26
42 FÖSTUDAGUR 25. MARS 1988. Jarðarfarir Sólrún Vilhjálmsdóttir, Hringbraut 89, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 26. mars kl. 14. Kristín Teitsdóttir frá Móum lést 12. mars. Útförin hefur farið fram. Georg Skæringsson, Skólavegi 32, Vestmannaeyjum, sem andaðist í Vífilsstaðaspítala miðvikudaginn 16. mars, verður jarðsunginn frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum kl. 14 laugardaginn 26. mars. Ólöf K. Guðbrandsdóttir lést 21. mars. Hún fæddist 2. maí 1919 að Jörfa í Haukadal, Dalasýslu, dóttir hjónanna Ingibjargar Daðadóttur og Guðbrandar Árnasonar. Ólöf giftist Ólafi Hólm Theodórssyni en hann lést árið 1972. Þau eignuðust einn son saman. Áður hafði Olöf eignast eina dóttur. ÚtfÖr hennar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30. Vilborg Einarsdóttir ljósmóöir er lát- in. Hún var fædd að Grjótnesi á Melrakkasléttu 29. júlí 1928. Hún ólst upp í Garði í Núpasveit hjá foreldr- um sínum, Einari Benediktssyni og Kristínu Björnsdóttur. Hún lauk námi í Ljósmæðraskóla íslahds árið 1956 og úr Nýja hjúkrunarskólanum haustið 1977 og eftir það var starfs- vettvangur hennar að mestu á kvennadeild Landspítalans og mörg hin síðari ár var hún aðstoðardeild- arstjóri á sængurkvennagangi B. Vilborg eignaðist eina dóttur. Útför Vilborgar verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag kl. 15. Andlát Sigríður Ósk Einarsdóttir, Meðal- holti 4, Reykjavík, lést í Borgarspítal- anum 24. mars. Jóhanna Þ. Einarsdóttir, Hverfis- götu 16, andaðist í Landspítalanum miðvikudaginn 23. mars. Tilkyimingar Unglingamót í pílukasti Laugardaginn 2. apríl munu íslenska Pílukastsfélagiö og félagsmiðstöðin Frostaskjól gangast fyrir móti í pílukasti í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli, Frosta- skjóli 2. Fyrirkomulag: Tvímenningsmót, spilað verður 501. Mótið hefst kl. 10 stundvíslega, dregið verður úr skráðum þátttakendum í riðla á staðnum. Allir unglingar á aldrinum 13-16 ára (f '71-74) hafa rétt til þátttöku. Mótágjald er kr. 250 á einstakling. Verðlaun verða farands- bikar, auk þess sem verðlaunapeningar verða veittir fyrir 4 efstu saetin. Ýmis aukaverðlaun. Þátttaka tilkynnist í Frostaskjól, s. 622120 eða til Emils, s. 84853. Mun Kvennalistinn upplýsahverjir fengu lánin í Útvegsbanka? Gísli Svanbergsson, Reykjavík, spyr: - Mun Kvennalistinn beita sér fyrir því, til dæmis á Alþingi, að þjóðin fái að vita hverjir fengu það fé sem ríkið þarf nú að greiða vegna gjaldþrots Útvegsbankans? Ég held að almenn- ingur eigi kröfu á að vita hverjir það eru sem fá að vaða inn í bankana og ganga þaðan aftur út án þess að borga. Almenningur er síðan látinn greiða skuldir þessara aðila. Guðrún: „Ég efast ekki um að það verði leitað eftir því hvert þetta fé fór. Ég held að þetta mál og nokkur önnur mál, sem hafa verið á dagskrá á undanfomum árum, hafi orðið til þess að almenningur sé sér betur meðvitandi um að hann á rétt á að fá að fylgjast betur með hvernig fjár- munum hans er vanð. í raun held ég að aimenningur á íslandi geri vax- andi kröfur um lýöræði og aukið svigrúm til þess að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi og sitt eigið líf og þar með hvemig skattfé hans er ráð- stafað.“ r Verður Kvennalistinn opnaður ... CREDA r PR. Iíúöin. hf. Kársnesbraut 106 kóp, S. 641418 / 41375 Menning Er hægt að oska nokkurs frekar? Ríma eftir Þorkel Sigurbjömsson var fysta verkið á tónleikum Sinfó- níuhljómsveitar íslands í gær- kvöldi. Þetta mun vera nokkurra ár gamalt stykki og hafa verið leik- ið hér áður. Undirritaður kom samt af fjöllum. Ósköp er þetta þó hugguleg og rólega samansett mús- ík. En ekki er hún nú tilþrifamikil og virtist ekki gefa hljómsveit og stjórnanda stór tækifæri til að bregða á leik. Það verður reyndar að segjast eins og er að þessir tónleikar, und- ir stjóm Páls Pampichlers Pálsson- ar, vom ekki sérlega innblásnir af músíkalskri andagift. Miðjuverkið, C-moll píanókonsert Mozarts, með Tónlist Leifur Þórarinsson Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur sem einleikara, virkaði ósköp hlut- laus og óspennandi. Anna Guðný, sem þarna mun hafa leikið í fyrsta sinn með SÍ á opinberum tónleik- um, er mjög nákvæmur og öruggur píanisti. En hún hefur ekki þann sjarma og tilfinningaskala sem þarf til að leika þetta viðkvæma drama. Stjórnandinn hefur ekkert í það heldur, það heyrði maður strax í upphafi, á fyrsta frasa. Lokaverkið á þessum tónleikum var fyrsta sinfónía Sjostakóvíts, verkið sem sá mikli snillingur sló í gegn með 19 ára gamall. Þessi sin- fónía er eitt af undraverkum músíksögunnar þar sem Birtingur segir frá ótrúlegum ævintýrum og uppákomum. En því miður var leikur hljómsveitarinnar, þó hann væri fullur af réttum nótum, ótrú- lega áhugalaus og hallærislegur. Þetta var semsé „lesið í gegn“ og alls ekki með neinni virðingu og vinsemd, hvaö þá hlýju og sak- leysi. Semsé atvinnupuð á versta stigi. Er hægt að óska nokkurs frekar? LÞ Anna Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari. fyrir að karlmenn geti fengið póli- tískan frama þar? Guðrún: „Það er svo skrítið að það var eiginlega engin ásókn í að vera með okkar meðan við vorum dúll- andi í kringum 5 prósent. í sambandi við framann þá er það grundvallar- regla hjá okkur að við stundum valddreifingu og ég held að engin kona vænti sér sérstaks frama innan Kvennalistans heldur skynji hún sig fyrst og fremst sem hönd á plógi.“ -gse Eram á móti stóriðju Hjörtur Aðalsteinsson, Reykjavík, spyr: - Hvaö hefur Kvennalistinn, efhann kemst til valda, hugsað sér að gera í atvinnumálum? Þá á ég fyrst og fremst við væntanlegt álver í Straumsvík. Danfríður: „Við erum algjörlega á móti stóriðju. Þess vegna erum við á móti nýju eða stækkuðu álveri í Straumsvík og hvar sem er. Við telj- um að álver sé ekki góður kostur fyrir okkur; álver skapar ekki það mörg ný atvinnutækifæri né heldur er það arðbært fyrir okkur, svo ég tali ekki um mengunina sem þessu fylgir. Erlendar skuldir hlaðast upp vegna þeirra stóriðjuvera sem við höfum byggt upp. Við viljum frekar leggja áherslu á léttan iðnað, svo sem matvælaiðnað. Slíkt getum við byggt upp með það hreina land sem við ennþá höfum. Við teljum það frum- skilyrði að nýta það eins og við getum.“ - Eruð þið með einhvem smáiðnað í huga? Danfríður: „Við viljum hlúa fyrst og fremst að undirstöðuatvinnuveg- um okkar, landbúnaði og sjávarút- vegi. í fiskiræktinni höfum við mikla möguleika. Ég kem aftur að okkar hreina landi. Hér höfum við getað ræktað upp sjúkdómalausa fiski- stofna og það eru horfur á að við getum selt seiði til eldis á erlendan markað. Það er annað sem ég vil minnast á, það er í sambandi við yl- rækt. Þar eru margir ónotaðir möguleikar. Það hafa verið gerðar ýmsar tilraunir með til dæmis að lýsa upp gróðurhús til að lengja ræktunartímann. Ég veit að erlendis er fólk tilbúið til að kaupa dýrari matvæli vitandi það aö þau koma úr ómenguðu umhverfi." Bætt eftiriit með innfluttu grænmeti Guðmundur Ingólfsson spyr: - Hver er afstaða ykkar til innflutn- ings á grænmeti? Ætlar Kvennalist- inn að upplýsa fólk um hvernig málum er háttað í þessu tilliti, svo og hvað er íslenskt, sem er mun minna mengað? Danfríður: Það kom í ljós í umfjöll- un á þingi um þetta mál að það er ekki eftirlit með þessum innflutn-' ingi. Það er nyög slæmt því við vitum ekki hvert er upprunadand þeirrar vöru sem við erum að kaupa og hvar grænmetið hefur verið. ræktað. Hjá heilbrigðisráðuneytinu er á döfmni löggjöf um aukið og bætt eftirlit með matvælum, þ.e. lög um hollustu- vemd og eftirlit. HeUbrigöisráðherra sagði að innaii árs yrði þetta eftirlit komið í gagnið. Eftir slysið í Sovétríkjunum er auð- vitað mjög mikilvægt að fylgst sé vel með öUum matvælum, ekki bara grænmetinu heldur einnig niður- soðnum vömm. Skordýraeitur er víða notað í miklum mæli og því er brýnt að herða þetta eftirlit. Það er auövitað fuU þörf á að upp- lýsa fólk en við höfum ekki rætt þaö beint að hefja einhveija herferð. Það er um að gera að skapa þá hugarfars- breytingu í þjóðfélaginu aö fólk kaupi fyrst og fremst íslenskt og styðji þar með íslenskan iðnað.“ -StB Dagvistarmálin ekki gefin upp á bátinn Steingerður Steinarsdóttir, Reykjavík, spyr: - Þið voruð þekktar fyrir það á sín- um tíma að hugsa ekki um annað en dagvistarmálin. Nú ríkir algert neyð- arástand í þeim málum. Er Kvenna- listinn endanlega búinn að gefast upp á að gera eitthvað í dagvistarmálum? Danfríður: „Við erum alls ekki búnar að gefast upp á dagvistarmál- unum. Við vitum að þetta er ein af frumforsendunum fyrir því að fólk geti lifað í okkar þjóðfélagi þar sem þörf er á tveimur fyrirvinnum í flest- um tilfellum. Við höfum nýlega lagt fram frumvarp til laga um tímabund- ið átak í uppbyggingu dagvistar- heimila fyrir börn. í frumvarpinu gerum við ráð fyrir að stofnaður verði sérstakur sjóður, byggingarsjóður dagvistarheimila, þar sem til kemur framlag frá ríkis- sjóði og atvinnurekendum. Með því viljum við hraða uppbyggingu dag- vistarheimila þannig að fólk geti vitað af bömum sínum á öruggum stað meðan það er í vinnu. Reyndar leggjum við líka áherslu á það að almennur vinnutími fólks í landinu styttist því það er ekki góður kostur fyrir böm að vera í dagvist heilan, langan vinnudag eins og nú er.“ -ata Hæni laun og minni vinna Bryndís Þorsteinsdóttir, Reykja- vík, spyr: - Hvað ætlar Kvennalistinn að gera til að bæta hag einstæðra foreldra? Guðrún: „Það eru fyrst og fremst launin, mikið vinnuálag og lélegur aðbúnaður barna í þjóöfélaginu sem þarf að bæta. Við höfum lagt fram frumvarp um lágmarkslaun en flest- ar einstæðar mæður eru í lægstu tekjuhópunum. Það kom fram á ráðstefnu félags- málastjóra 1986 að um 25% fjöl- skyldna í landinu eru á fátæktar- mörkum og stærsti hópurinn er einstæðar mæður. Ég held að með því að minnka vinnuálagið og greiða hærri laun, þannig að fólk geti lifað á dagvinnu sinni, gefist því meiri tími til samvista. Lenging kennslutíma, svo og við- vera bama í grunnskólum, öraggari dagvistarþjónusta og lenging fæðing- arorlofs era atriði sem myndu bæta hag einstæðra mæðra mjög. Þetta era einmitt mál sem við höfum tekið á.“ -StB Hamingjuóskir Árni Ólafsson, Hafnarfirði, spyr: - Þarsemákveðintímamóterunúna í íslenskum stjómmálum, félags- hyggjuafl er orðið stærsta stjórn- málaaflið, þá langar mig að forvitnast um viðbrögð annarra póli- tískra afla gagnvart þessu: Danfríður: „Viðbrögðin hafa helst verið þau að okkur hefur verið óskað til hamingju. En það er rétt að hafa það í huga að hér er einungis um að ræða skoðanakönnun. Nú, svo höf- um við, eins og aðrir, lesið í dag- blöðum það sem aðrir hafa haft um þetta að segja. Hins vegar verðum við mjög varar við þessi merkistíð- indi að í fyrsta skiptj skuli stjórn- málaafl fara upp fyrir fylgi Sjálfstæð- isflokksins sem hefur .verið stærsti flokkurinn allt til þessa. Þar um höf- um við heyrt mikið frá samstarfs- mönnum okkar á þingi. Þetta er ótvíræð vísbending um að fólk er til- búið til að sýna konum meira traust og kannski er þetta einnig vísbend- ing til annarra flokka um að endur- skoða afstöðu sína á ýmsum sviðum.“ -JBj Af hverju fá aldraðir ekki útborgað á sama tíma og aðrir? Hjördís Guðmundsdóttir, Reykja- vík, spyr: - Ég hef hvergi heyrt að það sé á oddinum hjá neinum þingmanni að aldraöir fái laun sín um mánaðamót eins og hver annar þegn. Aldraðir þurfa að greiða sínar skuldir um mánaðamót eins og aðrir. Það kemur sér því afskaplega illa að ellilífeyrir- inn sé borgaður út um miðjan mánuðinn. Hefur Kvennalistinn það á sinni stefnuskrá að fá þessu breytt? Guðrún: „Ég skal kynna mér þetta hjá Tryggingastofnun og athuga það.“ - Ég er nú alveg hissa á ykkur, kven- fólkinu, að hafa ekki haft það á oddinum að við aldraðir fáum okkar laun um mánaðamót því að allir gjalddagar era miðaðir við að fólk fái útborgað þá: Guðrún: „í stjórnarmyndunarvið- ræðunum í vor settum við það sem skilyrði að ekki bara hinir lægst launuðu í þjóðfélaginu, sem hafa tekjur af vinnu sinni, heldur einnig aldraðir og öryrkjar, fengju þá fram- færslu sem nægði þeim til að mæta útgjöldum heimilisins. En ég skal kanna það sem þú bendir á.“ -gse Heildarstefna í áfengismálum Borghildur Hjartardóttir, Kópa- vogi, spyr: - Viljið þið ekki sjá til þess að bjór- frumvarpið verði feflt? Guðrún: „Ég held að það sé afar brýnt fyrir okkur íslendinga að móta heildarstefnu í áfengismálum. Við tölum um og höfum áhyggjur af fíkniefnavanda unglinganna og vilj- um ekki að unglingamir leiðist út í drykkju á sterkum vínum. Margir trúa á neyslu bjórsins sem léttari tegund áfengis. Það er mikill tví- skinnungur í áfengismálum hér. Þeir sem ferðast til útlanda geta fengið keyptan bjór og einnig mun vera hægt fyrir þá sem vilja að fá keyptan bjór hérlendis. Samt leyfum við hann ekki í landinu. Það besta sem við gætum gert er að móta heildaráfeng- isstefnu í landinu þar sem við fóram eftir ráöleggingum Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar og takmörk- um aðgengi og framboð á áfengi, sérstaklega hvað varðar ungt fólk en séum ekki að taka á einu og einu máli í senn. Ég mun ekki styðja bjór- frumvarpið, hinsvegar finnst mér eðlilegt að fylgja gömlum hefðum og hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um áfengismál.“ .sme Eram ekki hræddar við ákvarðanir Ágúst Þórhallsson, Húsavík, spyr: - ÞorirKvennalistinnaðveraíríkis- stjórn og taka ákvarðanir? Guðrún: „Já, við erum hvergi hræddar en við önum ekki út í neina vitleysu. Við tökum svo margar ákvarðanir á dag að þú getur ekki rennt grun í það en við erum ekkert hræddar við að taka ákvarðanir." - Myndi fylgi ykkar ekki minnka ef þið færuð í ríkisstjóm? Guðrún: „Það fer allt eftir hvernig ákvarðanir við tækjum og hvað við myndum framkvæma." -SMJ Yfirstjóm fískeldismála Friðrik Sigurðsson, Reykjavík, spyr: Ég starfa fyrir hagsmunasamtök fiskeldisstöðva í landinu. Fiskeldi er ein af þeim atvinnugreinum sem tal- ið er að eigi mikla framtíð fyrir sér á íslandi en við höfum veriö uggandi um yflrstjórn fiskeldismála. Sem stendur er yfirstjómin hjá land- búnaðarráðuneytinu en okkar hagsmunasamtök hafa óskað eftir því að þetta verði fært yfir í sjávarút- vegsráðuneytið. Hefur Kvennalist- inn skoðun á því hvar þessi atvinftugrein getur best átt heima í stjórnkérfmu? Danfriður: „Við höfum ekki fjallað um þetta sérstaklega en þetta er sannarlega umhugsunarvert þar sem verið er að byggja upp nýja at- vinnugrein. Kvennalistinn þarf að taka á málinu en enn sem komið er hefur það ekki beinlínis komið til okkar kasta og því hefur það ekki verið rætt sérstaklega." -ata Styðjum ekki NATO Anna Kristjónsdóttir, Reykjavik, spyr: - MunKvennalistinngreiðaatkvæði með aöild að NATO ef til þess kæmi? Guðrún: „Eins og þú veist þá erum við friöarsinnar og sem slíkir álitum við ekki aö öryggi okkar né nokkúrra annarra sé borgið, hvorki með hem- aöarbandalagi né vopnum. Ég býst við því að við myndum athuga hvemig slík tillaga yröi fram borin og athuga hana í því samhengi. Sam- kvæmt þeirri stefnu, sem við höfum í friðarmálum, get ég þó ekki séð að við styðjum hemaðarbandalag.‘‘ -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.