Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. 7 Viðtalið Fréttir „Er af þeirvi góðu kynslóð sem verður fertug í ár“ Nafn: Steini Þorvaldsson Aldur: 39 Staða: Formaður Verslun- armannafélags Arnessýslu „Ég er af þeirri góöu kynslóð sem verður fertug í ár, fæddur annan nóvember 1948,“ segir Steini Þorvaldsson, formaður Verslmiarmannafélags Ámes- sýslu og verslunarstjóri í vara- lilutaverslun Kaupfélags Árnesinga. Steini vakti atfiygli í kjaradeilu verslunarmanna, sem er nýafstaðin, en hann leiddi samningana fyrir hönd verslun- armanna eftir að Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur datt út. „Eigum þrjá hesta“ „Hestamennskan er það áhuga- mál sem ég sinni mest fyrir utan félagsstörfln. Fjölskyldan er með hesthús þar sem við eigum þrjá hesta. Hesthúsið eigum við í sam- einingu meö tengdamóöur minni og mági. Alls erum við með níu hesta í húsi. Þetta sport er fyrst ogfremst mérogfjölskyldu minm til ánægju en við keppum ekki. Upp á síðkastið hefur maður ann- ars farið allt of sjaldan á bak vegna samningamálanna. „Félagsmálin taka drjúgan tíma“ Félagsmálin taka mjög dijúgan tima. Eg var um tíma starfandi í stjórn Þroskahjálpar á Suðurl- andi en hætti þar fyrir þremur árum. I verslunarmannafélaginu hef ég veriö virkur síðan 1972 en formaður þess í þrjú ár. Þessilota var ströng og maður er feginn að þetta skuli vera búið. Auk þess er ég tiltölulega sáttur viö niður- stöðuna. Það var gaman að vinna með þvi fólki sem ég kynntist í kringum samningana og sam- staðan var góð á öllu landinu. „Ætlum út með Lyon Air“ Steini er fæddur á Akranesi árið 1948. Níu ára gamall flutti hann með foreldrum sínum á Narfastaði í Melasveit en tjórum árum síðar flutti hann til Kópa- vogs. „Ég stoppaði bara fipgur ár í bænum. Þá var ég búinn að fá nóg af stressinu og fór að vinna á Selfossi. Það er svo miklu ró- legra úti á landi. Ég kunni vel við mig á Selfossi og settist þar að," segir Steini. Kona hans, Sigríður Ólafsdótt- ir, sem er verslunarmaður, er fædd og uppalin á Selfossi. Hún var reyndar formaður Verslun- armannafélags Árnessýslu í þijú ár á undan Steina. Þau eiga þtjú börn: Ólaf sem er 21 árs nemi í Háskóla íslands, Þorvald Inga sem er 16 ára og yngst er 8 ára dóttir, Kristín Laufey. En hvað ætlar íjölskyldan að gera í sum- arfríinu? Við hjónin ætlum aö sjálfsögöu að fljúga með Lyon Air til Lúxem- borgar og keyra svo suöur til Ítalíu meö yngsta bamið." -JBj Offjárfesting í útgerð í fyira: Gamall vandi effir harðæri fyni ára Útgerðin jók fjárfestingar sínar meira en aðrar atvinnugreinar í fyrra. Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri sagði í ræðu sinni á aðalfundi bankans að það hlyti aö vekja menn til umhugsunar þegar fyrir liggur að afkastageta fiskiflotans er svo mikil að verulega þarf að takmarka nýt- ingu hans með veiðikvótum. Halldór Ásgrímsson tók í sama streng í um- ræðum á Alþingi um vantraust á ríkisstjórnina. „Hjá einstaka fyrirtækjum er eflaust um offjárfestingu að ræða en það er ekki hægt að draga alla út- gerðina undir sama hatt,“ sagöi Sveinn Hjörtur Hjartarson hjá Land- sambandi íslenskra útvegsmanna. „Þessi aukning á fjárfestingu hefur ýmsar skýringar. í fyrsta lagi hefur dregið mjög úr fjárfestingu útgerðar- innar á undanfórnum árum vegna slæmrar afkomu. Það má því segja að umbæturnar nú hafi verið vegna uppsafnaös vanda. Á síðasta ári hafði flotinn síöan eitthvað meira umleik- is. Það er því kannski ekki óeðlilegt að einhverjar sveiflur verði í fjárfest- ingunni. í öðru lagi hafa verið að koma 4il landsins að undanfornu mjög fullkomin skip með fullvinnslu- búnaði. Nokkur slík skip geta átt stóran hluta í þeim rúmum 4 mill- jörðum sem varið var til fjárfestingar í útgerð á síðasta ári. í þriðja lagi má benda á aö heildarfjárfestingin í útgerðinni er um 40 milljarðar. Fjár- festingin í fyrra þýðir því ekki nema 10 prósent endurnýjun, sem verður að teljast eðlileg." - Útgerðin er nú rekin með tapi, samkvæmt útreikningum Þjóðhags- stofnunar. Má ekki rekja eitthvað af því tapi til fjármagnsbyrðar af fjár- festingum frá því í góðærinu í fyrra? Reistu menn sér ekki hurðarás um öxl í góðærinu? „Vissulega fylgja sumum af þeim skipum sem komu hingað þung lán en þau leggjast ekki flöt á alla útgerð- ina. Þessi sömu skip eru hins vegar fullkomin”og geta margfaldað afla- verðmætið og eru því bæði hagkvæm og arðbær,“ sagði Sveinn Hjörtur. -gse • • TOFRAVELARNAR TROPIC eru sambyggðar þvottavélar og þurrkarar frá Zerowatt. Því nefnum við þær töfravélar að frá upphafi hefur ekki ein einasta bilun komið fram í Tropic vélunum sem seldar hafa verið hér á landi. Ótrúlegt en satt! Nokkrir kostir: Þvottavél + þurrkari í einni og sömu vél (B-H-D) 60sm x 85sm x 60sm Þvær allt að 7 kg í einu (tveir þvottar jafngilda þremur í venjulegri þvottavél) Þvær og þurrkar 4 kg á 60 mínútum 400-1000 snúninga 28 þvottakerfi Engin gufumyndun Sparneytin mm |> n SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910-68 1266

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.