Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 44
F R É T T A S K O T I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórrt - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 MANUDAGUR 9. MAÍ 1988. Kjaradeilur: Vestmanna- eyjadeilan er ennþá óleyst Enn gengur ekki saman með verkalýðsfélögunum í Vestmanna- evjum og viðsemjendum þeirra. Sáttafundir voru um helgina og þar kom fram tilboð frá atvinnurekend- um sem gerir ráð fyrir að áfanga- hækkunin sem koma á 1. júní og hluti af áfangahækkun 1. september komi nú þegar til útborgunar og að samningarnir gildi frá 1. mai síðast- ‘liðnum til 1. mai á næsta ári. Eyjamenn eru lítt hrifnir af þessu boði og segja að lægstu laun yrðu með því 33.400 krónur á mánuði sem sé of lítið. í gær munaði litlu að upp úr slitn- aði á samningafundi en svo varð ekki og hefur annar fundur verið boðaður hjá sáttasemjara í dag. Ekkert hefur mjakast í kjaradeil- unni í Álverinu en formleg vinnu- stöðvun hófst þar síðastliðinn föstu- dag. Það tekur hálían mánuð að stöðva starfsemina og er það álit manna aö lítið gerist í samningamál- unum fyrr en nær dregur algerri stöðvun. -S.dór Ungfrú Evrópa: Magnea í fjórða sæti íslensk stúlka. Magnea Magnús- dóttir, varð í fjóröa sæti í keppninni Ungfrú Evrópa sem haldin var á Sik- iley á laugardaginn. ítölsk stúlka, Michela Rocco, var kjörin ungfrú Evrópa. Magnea hreppti annað sætið í keppninni um fegurðardrottningu íslands 1987. Hún hefur dvalið á Sik- iley síðan um páska. Magnea er úr Revkjavík og ,er afgreiöslustúlka í tískuvöruverslun. -JBj LOKI Er ekki vissara að vera með hjálm ef maður ávarpar pólitíið? Kærði lögreghimenn fyrir fantaskap og handtöku: Lammn, barinn og svrvirtur Tveir lögreglumenn hafa verið kærðir fyrir fantaskap og hand- töku. Það var aðfaranótt sunnu- dags að maður um þrítugt var i leigubil á leið til vinnu. Bílstjóri leigubílsins er fyrrverandi eigin- kona raannsins. Á Kringlumýrar- braut var ökumaöur leigubílsins tekinn fyrir of hraðan akstur. Lög- reglubíllinn hafði ekki kveikt aðal- ljós þegar leigubíllinn var stöðvað- ur. Sá sem kærði sat í leigubílnum á meðan lögreglan ræddi við öku- manninn. Manninum þótti verk lögreglunnar ganga seint enda orð- inn of seinn til vinnu. Þá gekk hann út og gaf sig á tal við ökumann lög- reglubílsins. Fann að því að lög- reglan væri að stöðva vegfarendur fyrir umferöarlagabrot, á sama tíma bryti lögreglan umferöarlög, það er að hafa ekki kveikt aðalljós heldur aðeins blikkljósin. Lögreglumanninum þótti þessar aðfmnslur ekki eiga rétt á sér. Hann stökk út úr bifreiðinni og réðst aö manninum. Skellti honum af krafti utan í bílinn og síðan í götuna og hóf að sparka í manninn og handjárnaði hann síðan. Lög- reglumanninum þótti ekki nóg komið heldur fór með „bráðina“ í lögreglubíiinn. Á leið til lögreglustöðvarinnar hélt lögreglumaðurinn áfram að sparka í manninn og berja hann. Auk þess var hann kallaður ýms- um ljótum nöfnum, svo sem drullu- sokkur, aumingi og hóruungi. í miðjum barsmíöunum stundi sá handtekni upp að þetta væri þá allt satt sem sagt væri um lögregl- una. Lögreglumaðurinn svaraði að bragöi að það væri það og á efdr fylgdi fast högg. Þegar sá handtekni var færður fyrir varðstjóra var hann fyrst spurður hvort hann hefði áður koraið við sögu lögregl- unnar svaraði hann réttilega neit- andi. Svo virtist sem varðstjóran- um líkaði ekki svarið og spurði aft- ur sömu spurningar. Hann fékk sama svar. Varðstjórinn talaði við lögreglu- mennina í einrúmi, annan í einu. Sá handtekni neitaði að tala við varðstjórann nema á sama hátt og lögreglumennimir höfðu gert. Það fékkst ekki. Þá setti sá handtekni fram skilyrði, annaðhvort yrði hann settur í fangageymslu eöa sleppt. Varðstjórinn tók síðari kostinn. Þegar lögreglumaöurinn, sem hafði gengiö hvað „vaskleg- ast“ fram, hóf að losa handjárnin sagði sá handtekni, viltu kalla mig hóruunga hér eins og í bílnura? Það var auðsótt mál. Eftir að hafa losnað frá lögreglu hélt maðurinn rakleiðis á slysa- deild Borgarspítalans og fékk þar áverkavottorð. Sem betur fer er maðurinn ekki alvarlega slasaður en ber þess greinilega merki að hafa fengið fantalega meðferð. Maðurinn hefur kært framferði lögreglumannanna. -sme Það var sumarstemning í Sundlauginni á Akureyri um helgina. Enda engin furða, hitinn á Akureyri komst í sext- án stig. Þessir laugargestir, sem reyndar eru úr Hafnarfirði, spókuðu sig í sólinni með stíl. Enn er snjór í Hlíðarfjalli og þar var opið um helgina en svo virðist sem Akureyringar hafi lagt skíðin á hilluna 1. maí, fáir fóru nefnilega i fjallið. DV-mynd GK Veðrið á morgun: Allhvöss sunnanátt Á morgun verður allhvöss sunnanátt meö rigningu sunnan- og vestanlands en bjart veður norðan- og austanlands. Hiti verður á bilinu 4-7 stig. Böðvar Bragason: Læt kanna þetta mál „Ég og þessi umræddi maður rædd- um saman í gær. Ég óskaði strax eft- ir upplýsingum um málið og hef fengið þær. Þetta verður tekið fyrir á daglegum fundi sem ég á með æðstu yfirmönnum embættisins," sagði Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík. Eins og fram kemur í frétt hér á síðunni hafa lögreglumenn verið kærðir fyrir fantaskap og handtöku. Böövar sagði að það yrði ekki fyrr enn eftir fund yfirmanna embættis- ins sem hann gæti tjáð sig frekar um þetta mál. -sme Selfoss: Ölvaður öku- maður skemmir lögreglubíl Lögreglunni á Selfossi barst til- kynning um að ekið væri á ofsahraða í gegnum bæinn um kl. 5.40 aðfara- nótt sunnudags. Lögreglan hóf eftir- för og reyndi að stöðva ökumanninn sem ók á 125 km hraða. Fjórum sinn- um komst lögreglan upp að bílnum en þá sveigði ökumaður alltaf til vinstri og á lögreglubílinn. Þegar komið var austur að Hellu tókst að stöðva bílinn. Ökumaðurinn neitaði að yflrgefa bílinn og varð lög- reglan að brjóta hliöarrúðuna og ná manninum út með valdi. Farþegi í bíinum var mikiö ölvaður og ökumaður töluvert. Engin slys urðu á mönnum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er lögreglubíllinn mikið skemmdur og að minnsta kosti öll hægri hliðin ónýt. Tveir aörir ökumenn voru teknir fyrir ölvun viö akstur aðfaranótt laugardags. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.