Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 34
46
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988.
LífsstOl
Stelpur geta líka
unnið í byggingarvinnu"
Á föstudag var síöasti kennslu-
dagur hjá 9. bekk. Samræmdu
prófunum er lokið en eftir eru
skólaprófin.
En hvað ætla krakkarnir að gera
í sumar og hvernig eru atvinnu
möguleikar fyrir þennan aldurs-
hóp? Og hvaö tekur við þegar
grunnskólanum lýkur? Seljaskóli
var heimsóttur og nokkrir krakkar
teknir tali.
Samræmdu prófin frekar létt
Krakkarnir sem heita Inga
Dagmar, Sif og Jón Ingi voru öll
sammála uw að samræmdu prófin
hefðu verið frekar létt. „Ég er til
dæmis viss um að prófm voru
þyngri í fyrra,“ sagði Jón, „alla
vega voru krakkarnir mikið
hræddari við prófrn, heldur en nú.“
„En fyrsta hlustunaræfmgin í
dönskuprótinu var erfið,“ sagði
inga Dagmar og hin tóku undir.
„Við vorum minnsta kosti, heppn-
ari heldur en krakkarnir úti á landi
sem fengu senda auða spólu í
enskuprótið," sagði Jón.
Fórum í Grillió
- En iivað gerðu krakkarnir til
að halda upp á lok samræmdu próf-
anna?
„Margir fóru út að boröa í hóp-
um, en ekkert á vegum skólans,“
sagði Inga. „Ég fór með nokkrum
krökkum á Ítalíu og við fengum
okkur Pizzu.“
„ Ég og fjórar vinkonur mínar
lórum í Grillið, alveg meiri háttar
flott. Við fengum góðan mat og fina
þjónustu,“ sagði Sif.
Jón var ekki eins flottur á þvi og
stelpurnar ög borðaði heima og fór
síðan á bíó.
„Það er nú eitt við að vera ungl-
ingur, þegar við förum inn á veit-
ingastaði er sjaldgæft að við fáum
almennilega þjónustu eins og ann-
að fólk, sagði Inga og hin bættu við
„Okkur er oftast sagt að hafa hægt
um okkur og helst vera úti.“
„Og svo fer maður niður í mið-
bæ,“ sagði Inga. „Annars var fín
stemmning í bænum á fimmtudag-
inn, þegar samræmdu prófunum
lauk. Það voru engin meiri háttar
læti, minnsta kosti ekki nóg til að
fjölmiðlar hefðu gaman af.“
„ Þaö var vist eitthvað verra á
föstudag og laugardag," sagði Jón.
Vantar unglinga-
skemmtistaði
Þegar minnst var á unglinga-
Jón Ingi Sigvaldason: „Skemmti-
staðir fyrir unglinga í vöruskemm-
Stuttu siðar gaf Jón skákina.
skemmtistaði tóku krakkarnir
heldur betur við sér:
„Það er enginn almennilegur
staður fyrir unglinga og þess vegna
hópast allir niður í bæ,“ sagði Sif
og Jón bætti við: „Ef það heitir
imglingaskemmtistaður er ein-
hverjum ömurlegum pakkhúsum
breytt í skemmtistað. Ég vildi að
við hefðum svona mini-Evrópu eða
eitthvað álíka.“
Engin aðstaða
til skemmtana
- En hvað með félagslífiö í skólan-
um?
„ Við höfum afskaplega lélega
aðstöðu hér í skólanum," sagði
Inga og bætti við, „Salurinn sem
við höfum er eiginlega bara lítið
hol hér í miðjum skólanum. Ef við
höldum einhverjar stærri hátiðir,
eins og árhátíð, verðum við að
leigja sal úti í bæ, sem er vitanlega
mikið dýrara fyrir skólafélagið.“
Útvarp FM 103,3
í vetur var haldin spurninga-
keppni í grunnskólunum. Krakk-
arnir urðu að fá lánaðan salinn í
Ölduselsskóla. Það verða þau alltaf
að gera ef eitthvað meira stendur
til. Það er ekkert svið í skólanum
og alveg vonlaust að vera með leik-
sýningar eða kvikmyndasýningar.
„Það er mikil gróska i skákinni,"
sagði Jón og bætti við, „skáklið
Seljaskóla er bæði íslandsmeistari
og Norðurlandameistari."
„Borðtennis og handbolti er líka
vinsælt,“ sagði Sif, „og við höfum
mjög gott íþróttahús. Iþróttahúsið
hér er sennilega stærsta íþróttahús
við skóla hér á landi.
„Það er bara verst hvað erfitt er
að komast að, því svo mörg félög
æfa hérna, þetta er til dæmis
heimavöllur Í.R.,“ sagði Jón, „og
varla laus tími allan sólarhring-
inn.“
„Svo vorum við með útvarpstöð
eina helgi,“ sagði Inga, „Það var
ofsalega gaman. FM 103,3,“ söngl-
aði hún og hin hlógu.
Pokadýr og kerrutæknar
Aðspurður sagðist Jón vera bú-
inn að fá loforð um vinnu í sumar.
„Ég var í byggingarvinnu í fyrra-
Sif Jónsdóttir: „Hef ekki fengið
vinnu.“
sumar og fæ vinnu við það sama,“
sagði Jón, „það er best borgað í
byggingarvinnu eða einhverju
álíka.“
„Það er alveg vonlaust fyrir stelp-
ur að fá vinnu við byggingar,
haldið’i að það sé nú viðhorf," sagði
, Inga, „þetta er alveg fáranlegt."
„ Þú verður nú að viðurkenna
það að strákar eru mikið sterkari
en stelpur á þessum aldri, allt að
fjórum sinnum sterkari,“sagði Jón.
Upphófust nú miklar umræður
um líkamlega burði karla og
kvenna. Inga lauk þeim með einni
setningu.
„Ég skyldi leggja á mig allar
byrðar heimsins til að sanna að ég
gæti unnið i byggingarvinnu eins
og strákar," sagði hún og þar með
var málið útrætt.
„Ég er ekki byrjuð að leita að
vinnu fyrir alvöru," sagði Sif, „en
ég fæ áreiðanlega eitthvaö. Að
minnsta kosti í bæjarvinnunni."
Minnsta kosti 40 þúsund
á mánuði
„Ég fæ vinnu hjá Póstinum við
að bera út, ég var þar um jólin,“
sagði Inga, „það er alveg ágætt, en
kaupið mætti vera hærra.“
„Hve hátt?“ spurði Jón.
„Að minnsta kosti 40 þúsund á
mánuði,“ svaraði Inga.
-Og hvemig gengur að láta sum-
arhýruna endast?
„Ég á ennþá peninga frá því
fyrrasumar," sagði Sif og bætti við,
“Ég á ennþá peninga síðan ég
fermdist."
„Ég var búinn með sumarkaupið
mitt í fyrra áður en skólinn byrj-
aði,“ sagði Jón. „Ég fer lítið út að
skemmta mér og þá sjaldan ég fer
fæ ég peninga hjá foreldrum mín-
um.“
„Nokkrir krakkar vinna með
skólanum," sagði Sif, „aðallega í
sjoppum og stórmörkuðum."
Mjög skemmtilegur tími
„Þessi tími hér í skólanum hefur
veriö alveg frábær,” sagði Inga og
hin tóku undir og bættu við„ Fínir
kennarar, góður andi meðal krak-
kanna þótt þetta sé svona stór
skóli.“
Eftir þennan vetur skiptist þessi
glaði hópur og fer í sitt hverja átt-
ina. Inga Dagmar ætlar í M.H., Sif
í Versló og Jón í Fjölbrautaskólann
við Ármúla. „Af því þar er besta
iþróttabrautin,“ sagði Jón að lok-
um.
-JJ
Inga Dagmar Karlsdóttir: „Stelpur
geta unnið í byggingarvinnu."