Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SÍMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:- PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 700 kr. Verð í lausasölu virka daga 65 kr. - Helgarblað 80 kr. Seinheppni Seðlabankans Það er kunnara en frá þurfi að segja að íslenskur atvinnurekstur á í vök að verjast. Einkum úflutningsat- vinnuvegirnir, sem hafa búið við ranga gengisskráningu upp á síðkastið sem hefur í rauninni skákað þeim úr leik í samkeppni við erlenda aðila. Talsmenn atvinnu- lífsins benda á að meðan framleiðslukostnaður hér innanlands hækkar dag frá degi er genginu haldið föstu og bilið milli tekna og útgjalda eykst jafnt og þétt. Til- raunir til að halda verði í skeíjum eru vonlausar ef framleiðslan á að standa undir sér. Þetta er einn þáttur vandans. Annar er sá að vaxta- kostnaður og svokallaður fj ármagnskostnaður verður sífellt stærri baggi á öllum atvinnurekstri. Verðtrygging lána er þungur baggi í mikilli verðbólgu, einkum þegar verðbólgan hér á landi er langt umfram verðbólgu í öðrum löndum. Samkeppnisaðstaðan verður ójöfn og óþolandi við slíkar aðstæður. Þetta gildir um innlendu lánin, en erlendu lánin skapa líka vanda. íslenskum fyrirtækjum hefur í vaxandi mæli verið gefmn kostur á að taka erlend lán og þau hafa þurft á því að halda. Segja má að kosturinn við fastgengisstefnuna sé sá að þessi lán hækka ekki meðan genginu er haldið föstu. En að sama skapi hlýtur afleið- ing af gengisfellingu að verða sú að lánin verða þyngri í afborgun þegar fleiri krónur þarf til að borga hverja einingu af hinni erlendu mynt. En genginu hefur ekki alltaf verið haldið föstu og mikill munur hefur verið á ferð þess upp eða niður, eftir tegund gjaldeyris. Þá hefur verið hlutverk Seðla- bankans að stýra þessum lántökum og gefa mönnum ráð um það hvaða gjaldeyristegund rétt sé að veðja á. Þegar nú er enn og aftur farið að ræða um nýja gengis- fellingu, hlýtur sú spurning að vakna hvaða áhrif hún hafi á lánabyrði okkar erlendis. í fróðlegri samantekt í DV á föstudaginn kemur fram að lengst af voru langflest af erlendum lánum íslend- inga bundin dollar. Það var á þeim tíma sem dollarinn var hátt skráður og íslendingar supu seyðið af því. Var þá söðlað um og mönnum ráðlagt að binda lánin við evrópska mynt. Það var eins og við manninn mælt að þá tók Evrópumyntin við sér, markið og pundið styrkt- ist dag frá degi, en dollarinn dalaði. Þegar skuldbreyting útgerðarinnar var framkvæmd á árinu 1984 tók Ríkisábyrgðasjóður þá ákvörðun að yfirtaka lán útgerðarinnar og veitti í staðinn lán sem voru miðuð við lánskjaravísitölu. Það mun hafa verið gert samkvæmt ráðleggingu frá Seðlabankanum. Sam- kvæmt upplýsingum frá skrifstofu Landssambands íslenskra útvegsmanna hækkaði þessi lánskjaravísitala um 123% meðan hinir svokölluðu SDR gjaldmiðlar hækkuðu ekki nema um 65%. Á síðasta ári hækkaði lánskjaravísitalan um 22% en SDR aðeins um 1%. Sömu sögu er að segja af japanska yeninu. Fjármála- póhtík Seðlabankans leiddi lántakendur á villigötur með sama hætti. Þegar allt er talið saman er óhætt að fullyrða að fjár- málavit Seðlabankans og annarra þeirra, sem hafa gert tilraunir til að stýra erlendum lántökum milli gjaldeyr- istegunda, hafi ekki verið borið í trogum. Seinheppnin hefur ekki riðið við einteyming. Þó er athyglisvert að fjörutíu próent erlendra lána á vegum ríkissjóðs eru í dollurum. Það hefur borgað sig á fastgengisöld. En hver er þá hissa á því þótt ríkisstjórnin tregðist við að fella gengið á doharnum þegar hagsmunir ríkissjóðs eru mestir í því að halda gengi dollarans háu? Ellert B. Schram Jafnstaða jafngildir ekki jafnrétti: RétUcetið er elst allra deiluefna Allir stjórnmálaflokkar telja sig vera boöbera réttlætisins. Menn líta bara réttlætið mismunandi augum og í raun eru flest réttlætis- mál pólitísk ágreiningsefni. Mjög fá þeirra eru hafin yfir pólitískar deilur jafnvel í háborgum lýðræð- isins. Spurningin um réttlæti og alveg sérstaklega jafnrétti er mjög heimspekilegs eðlis. Ekki ætla ég í þessum kjallara að reyna að leggja mikið af mörk- um til skýringar á hugtakinu jafnrétti, en algjör ruglingur virðist ríkja á milli hugtakanna jafnrétti og jafnstaða og er það ákaflega bagalegt og kemur oft í veg fyrir að fólk sjái kjarna margra deilu- efna. í brothættu lýðræðisþjóðfélagi skiptir meginmáli að upplýsinga- miðlun á milli þegnanna sé hindr- unarlaus og að fólk deili ekki um fleiri mál en eru raunveruleg deilu- efni, ærið nóg er af þeim samt. Allt of oft deilir fólk vegna misskiln- ings, en sum samtök virðast gera í því að rugla fólk í ríminu og þá væntanlega til að ná pólitískum markmiðum og e.t.v. stundum vegna þekkingarskorts eða ann- arra ástæðna sem ég þori ekki að setja á blað. Mishár orkukostnaður Mikill munur er á upphitunar- kostnaði á íslandi, og meginskýr- ingin er ekki vegna misréttis eins og margir halda fram. Samtök um jafnrétti og félagshyggju hafa t.d. marg sinnis kallað mismuninn misrétti sem verði að leiðrétta. Undirskilið er að löggjafinn eða stjórnvöld eigi að grípa inn í málin og jafna orkukostnaðinn. Hér er augljóslega um að ræða skort á jafnstöðu en ekki jafnrétti endilega. Sum sveitarfélög hafa fyrir löngu skattlagt borgara sína til þess að geta ráðist í hitaveituframkvæmdir sem eru misjafnlega arðsamar af ýmsum ástæðum. Aðrir hafa ekki gert slikt hið sama eða eru þannig í sveit settir að líkur á jarðvarma eru litlar. Þaö er jafnrétti, ef allir þjóðfé- lagsþegnar hafa sama rétt gagnvart t.d. Jarðborunum ríkisins til að fá borað eftir heitu vatni eftir sann- gjarnri gjaldskrá. Ef Stefáni Valgeirssyni og Halldóri Ásgríms- syni tækist að fá í gegn sérstaka skattlagningu á Hitaveitu Reykja- víkur til þess að greiða niður orkukostnað annarra, er það miklu nær því aö vera óréttlæti en jafn- rétti þótt stefnt sé að jafnstöðu. Það þyrfti að kenna sumum söguna af litlu gulu hænunni. Enginn efast um að það var hún sem átti að borða brauðið en ekki hundurinn, kötturinn og svínið, vegna þess að hún ein hafði til þess unnið. Þegar litla gula hænan borðaði brauöið, dugði lítið fyrir svínið að æpa: „Misrétti." - Ef farið yrði út í sérstakan auð- lindaskatt, sem leggja mætti á heitt vatn í Reykjavík, verður að skatt- leggja náttúruauðlindir á íslandi allar án tillits til staðsetningar eða eiginleika. Visst réttlæti gæti falist í því, en þá verður að gæta þess að skattlagningin leiði ekki til óhag- kvæmni í rekstri þjóðfélagsins. Þá yrði að skattleggja öll gróðurhúsin og fiskeldisstöðvamar sem njóta jarövarma. Síðan koma allar laxveiöiárnar. Maður sér fyrir sér Stefán Val- KjaHarinn Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur geirsson tala fyrir sérstökum laxveiðihlunnindaskatti á fundi á Húsavík! Síðan koma náttúrlega fiskimiðin, sauðfjárbeit á afrétti, sumarbústaðalönd, veiðivötn, vatnsorkan o.fl. Þaö mætti spyrja jafnréttisspekingana hvernig stríð við Persaflóa getur aukið misrétti á íslandi? Jafnrétti í atvinnumálum Alvarlegastur er hugtakarugling- urinn í atvinnumálum. Flest svið íslenskra atvinnumála ganga út frá því að jafnstaða sé ekki markmið heldur hið gagnstæða, þ.e. að mis- jöfn staða fyrirtækja „grisji skóg- inn“ eða skilji hafra frá sauðum, vegna þess að engin önnur leið hefur fundist betri til að stjórna fjölda fyrirtækja. Frumskógarlögmálin eru ekki til að hæðast að þeim. Enginn gerir ágreining um grisjunarkenning- una í verslun, iðnaði og almennri þjónustu, en landbúnaður hefur komist upp með hið gagnstæða að nokkru leyti og að sjálfsögðu á kostnað neytenda og skattborgara. Margir talsmenn landbúnaðarins hafa krafist hærri framleiðslu- kvóta fyrir tiltekin héruð á kostnað annarra vegna þess að þau hafi svo góða aðstöðu á annan hátt. Þetta felur í sér kröfu um jafnstöðu á grundvelli misréttis, þ.e. góð jörð og vel staðsett má ekki fá að njóta sín. En slíkar aðgerðir eru kallaðar jafnréttismál. Af sama toga eru kröfur um jöfnunarverð á mjólk og fóðurkostnaö fyrir loðdýrabú- skap. Refabússtefnan er komin í strand einu sinni enn, en eftir er að sjá að nýleg ijárframlög stjórnvalda til refabúanna hafi ekki einmitt farið til refabúa, sem eiga ekki starfs- grundvöll nema með „fyrirtækja- sósíalisma" sem er í raun nýtt afbrigði af pilsfaldakapítalisma. Það er varasamt að blanda saman jafnrétti einstaklinga og fyrirtækja. Rannsóknaréttur kynjaskipt- ingar Mjög hefur verið áberandi í mál- flutningi kvenréttindatalsmanna að yfirleitt er átt við jafnstöðu þótt rætt sé um jafnrétti. Gengið er út frá því að jafnstaða milli karla og kvenna í atvinnumálum sé mark- mið í sjálfu sér og allt annað sé misrétti og svo er hamraö á því. Auðvitað er jafnrétti kynjanna verðugt markmið sem sanngjarnir íslendingar eiga að geta sameinast um. En megnið af yfirþyrmandi og sífiölgandi yfirlýsingum um mis- rétti á milli kynjanna er án nægi- legs rökstuðnings og það er eins og að ríkisfiölmiölarnir hleypi hráum og illa unnum könnunum af þessu tagi gagnrýnislaust á öldur ljósvakans. Það er eins og enginn geti ráðið við tilteknar fréttakonur, sem minna nokkuð á spánska skáldsagnapersónu á horuðum hesti. Mér sýnist að megnið af könnunum um þessi efni varði al- mennt stöðu og kjör ófaglærðs láglaunafólks, sem í sumum grein- um er að meirihluta til konur. Fiskvinnslan á í stórkostlegum vandræðum af mörgum ástæðum vegna þess aö hún er í mörgum til- vikum ósamkeppnishæf viö er- lendan fiskiðnað eða gagnvart hráefnisöflun vegna ferskfisksölu. Það er með öllu ósannað mál að störf kvenna í fiskvinnslu séu nú lægri en ella vegna þess að um konur sé að ræða. í sumum grein- um fiskvinnslu hafa konur meiri tekjur en karlar. Hið sama má segja um verksmiðjuiðnað af ýmsu tagi. Ef launamisrétti ríkir, má sjá það á því að jafnhæfir einstaklingar njóta ekki sömu launa. Það sannar ekki neitt aö konur í bönkum hafi að meðaltali lægri laun en karlarí bönkum, staðan er ekki jöfn, en ósannað er að jafnrétti sé brotið. Yfirgnæfandi fiöldi hjúkrunarfor- stjóra er konur. Er það til marks um misrétti? Á fundi félagsmálaráðherra ný- lega voru lagðar fram tillögur um ákveðnar kynjakvótareglur í ríkis- stofnunum og að konur skuli ganga fyrir körlum í ábyrgðarstöður ef kynjahlutfall er ekki „í lagi“. Hér væri augljóslega um að ræða að koma á laggirnar misréttisreglu sem bitnaö getur á einstaklingum til að ná einhverjum tilteknum kynjapólitískum markmiðum. Ég held aö slíkt kippi grundvellinum undan jafnréttisbaráttu kvenna, sem er góður málstaður, og sann- gjörnum konum á sem öðrum að vera annt um hann og láta ekki óforsjálar valkyrjur afvegaleiða sig. Þótt til séu karlrembusvín af báð- um kynjum er engin ástæða fyrir konur að taka það til fyrirmyndar, og vinnubrögð rannsóknaréttarins forna eða „inquisisjónarinnar" leiddu til ófarnaðar. Það er í meira lagi vafasamt að ætla sér aö reka erindi réttlætisins eins og kross- fararriddarar og hugsanlegt órétt- læti liðinna kynslóða á ekki að bitna á einstaklingum nútíðar. Jónas Bjarnason „Margir talsmenn landbúnaðarins hafa krafist hærri framleiðslukvóta fyrir tiltekin héruð á kostnað annarra vegna þess að þau hafi svo góða að- stöðu á annan hátt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.