Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 18
18 .MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. á öllum blað- sölustöðum Einhell vandaöar vörur Loftpressur Margar stærðir. Afar hagstætt verð. T.d. 300 Itr. kr. 27.750. Ske|jungsbúðin Síðumúla 33 símar 681722 og 38125 VÖRtl- BilSQÚRAR! H.M.F. og NUMMI sturtutjakkar SUNFAB stimpildælur. HAMWORTHY tannhjóladælur. NORDHYDRAUUK og HAM- WORTHY stjórnlokar. Loft- og rafmagnsstjórnbúnaður. Drifsköft - margar gerðir. Viðgerðar- og varahlutaþjónusta. ÍANDVEiARHF SMIOJUÆGI66, KÓFAVOGI, S 9176600 Fréttir i>v Flestir þeirra sem tóku þátt í námskeiöunum. DV-myndir Ásta Óskarsdóttir Fiskvinnslunámskeið á Tálknafirði: Ekki bara fiskur - heldur matvælí Arrna Óskaisdóttir, DV, TáLaiafiröi: Fiskvinnslunámskeið voru haldin hér á Tálknafirði í apríl og sóttu það 35 manns úr Hraðfrystihúsi Tálkna- íjarðar og saltverkunarhúsinu Þórsbergi h/f. Námskeiðunum var slitið í sameiginlegu kaffisamsæti sem haldið var í Dunhaga kvöldið 26. apríl. Pétur Þorsteinsson forstjóri afhenti viðurkenningar fyrir hönd Hraðfrystihússins og Kristín Magn- úsdóttir framkvæmdastjóri fyrir hönd Þórsbergs. Pétur Þorsteinsson stýrði samsæt- inu og kom af stað líflegum umræð- um um námskeiðin og tóku margir til máls. Hér á eftir fer það helsta, sem kom fram í máh þeirra. Fínar ábendingar Svandís Leósdóttir: „Það sem mér er efst í huga eftir námskeiðin er að vita hvað verður um vöruna eftir að hún fer úr höndunum á mér og á leiðarenda. Einnig fundust mér ábendingar um líkamsbeitinu við vinnuna mjög þarfar en það eru í raun atriði, sem fólk hefði þurft að læra fyrir löngu. Ég er líka fegin umræðum um öryggi á vinnustað og ég mæli með því að æfmgar verði hafðar til að þjálfa fólk í að bregðast rétt við ef til dæmis bruna bæri að höndum.“ Aðalsteinn Magnússon: „Fínar ábendinganrm vandaðri vinnubrögð og starfsaðferðir. Einnig voru um- ræður um hópbónusinn mjög þarfar og samskipti á vinnustað í tengslum við hann en þó fmnst mér hálfkjána- legt að kenna hópi úr hópnum. Þessar umræður eru nauðsynlegar fyrir alla.“ Guðný Antonsdóttir: „Þetta var mjög gott námskeið. Maður fékk ábendingar um hvað maður er með í höndunum. Matvæli, en ekki bara fisk. Sædís Magnúsdóttir: „Ég er sam- mála Guðnýju. Maður gerir sér betur grein fyrir hvað maður er með í höndunum og þess vegna verður viss hugarfarsbreyting. ‘ ‘ Inga Jóhannesdóttir, Viggó Ólafs- son og Kristín Magnúsdóttir: „Það voru orð í tíma töluð ábendingar um hvernig ætti að taka á móti nýju starfsfólki. Kynna það fyrir öðru starfsfólki, sýna því vinnustaðinn og kenna því vinnubrögðin. Allt of al- gengt er að því sé bara bent á að þarna eigi það að vinna, - með þess- um, svona gerum við og það látið nægja.“ Fjölnir Lúðvíksson og Hreiðar Sig- urðsson: „Alltof lítið var rætt um saltfiskvinnslu. Að öðru leyti mjög gott.“ Hafa góð áhrif Þó nokkuð var rætt um áhrif hóp- bónuskerfisins og skoðanir ýmsar. Fólk var almennt sammála um að námskeiðin hefðu haft góð áhrif en töldu að allir, þar á meðal verkstjór- ar, hefðu þurft að taka þátt í þeim umræðum. Pétur Þorsteinsson sagði að miklar mannabreytingar gætu haft áhrif til hins verra. Stöðugra vinnuafl leiddi til betri afkomu fyrir húsið. Ævar Jónasson verkstjóri benti á að hóp- bónuskerflð væri á margan hátt réttlátara, þar sem fólk fengi sama kaup fyrir sömu vinnu. Það er, að allir vinna sama tímafjölda til að fá sömu launin. Emil Guðjónsson verk- stjóri kom af stað fjörugum umræð- um um vinnustaðaleikfmú og voru bæði konur og karlar mjög hlynnt því að fá slíkar æfingar á vinnu- staði. Allir voru mjög jákvæðir vegna námskeiðanna og töldu sig hafa lært margt nytsamlegt. Voru líka sam- mála um að ýmsar ábendingar um atriði, sem fólk í raun vissi, yrðu til þess að valda hugarfarsbreytingu sem væri nauðsynleg. Það er - við erum að vinna með matvæli en ekki bara fisk. Stefntað stóriiátíð um verslunar- mannahelgi Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Bandaríska stórhljómsveitin „Toto“ verður á meðal þeirra sem munu skemmta á stórhátíð sem haldin verður á Melgeröismelum í Eyjafirði um verslunarmanna- helgina í sumar. Það er fyrirtækið F)ör hf. sem stendur að hátíðinni og gæti hér verið í uppsiglingu stærsta útihá- tíö landsmanna um verslunar- mannahelgina. Ómar Pétursson, fram- kvæmdastjóri hátíöarinnar, segir að öruggt sé að „Toto“ muni koma á hátíðina og komi hljóm- sveitin sennilega í beinu flugi frá Bandaríkjunum. „Toto“ hefur um árabil veriö geysilega vinsæl víða um heim og m.a. hér á landi Nú standa yfir samningavið- ræður við innlenda skemmti- krafta um aö koma fram á hátíðinni. Allt bendir til þess aö akureyrska hljómsveitin Skriðjö- klar láti gamminn geysa og þá hefur verið rætt við „Sniglaband- ið“, „Stuðkompaníið" og „Sálina hans Jóns míns“. Fleira veröur á boðstólum, s.s. íslandsmót í sand- spyrnu og vegleg fj ölskylduhátíð, Hestamannafélögin í Eyjafirði hafa byggt upp mjög góða aðstöðu á Melgerðismelum og hefur verið samiö við þaö um afnot af svæö- inu. Þá hefur hið volduga hljóm- flutningskerfi Reykjavikurborg- ar verið leigt og ættu þau mál því að geta orðið í góöu lagi. Stöð 2 væntanleg á alla Vestfirði Reyrrir Trauslason, DV, Flateyri: Stöð 2 er væntanleg til allra þeirra staða semekkiná sending- um hennar. Gert er ráð fyrir að allir þéttbýlisstaöir á Vestfjörð- um nái sendingum stöðvarinnar innan 18 mánaöa. Sem stendur eru það aðeins ísfirðingar sem njóta þjónustu stöðvarinnar. Að sögn Sighvats Blöndal markaðsstjóra hefur þegar veriö tekin ákvöröun um að setja upp senda á öllum þéttbýlisstöðum á Vestfjöröum og mun endanleg ákvörðun um forgangsröð verða tekin fyrir maílok. Sighvatur sagði að Bolungarvík yrði vænt- anlega fyrst og síðan yrði haldið á vesffir úr. í dag nær Stöð 2 til 93% af þjóðinni en Ríkissjón- varpið 98%. Frá vinstri. Ævar Jonasson verkstjóri, Emil Guðjónsson verkstjóri, Kristín Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og Pétur Þorsteinsson forstjóri. '0l Skilvísi er nokkuð sem innrætt hefur verið íslenskum neytendum. Margirfyllast nag- andi áhyggjum ef þeir geta ekki greitt gí- róseðlana sína á réttum tíma og búast við hinu versta. Sumir ganga svo langt að slá víxil fyrir greiðslunni einungis til að vera skilvísir. Það er hins vegar ekki besti kosturinn ef til greiðsluvandræða kemur. Það er ódýr- ara að láta reikninga danka en taka víxil ef um stuttan tíma er að ræða. Meira um þetta í Lífsstíl á morgun Sniglaparís, snú-shú og drullu- mall er ennþá með því vinsælla sem krakkar stunda í frímínútum í barnaskólum í dag. Lífsstíll kannaði það um daginn hvað krakkar gerðu helst í frímínútum og ennfremur hvað þau ætluðu sér að gera í sumar. Margir ætluðu að fara í sveit, nokkrir ætluðu til útlanda en flestir virtust ætla að nota sumarfríið til að fara í útilegu með foreldrum sínum. Lesið um þetta og fleira í Lífsstíl á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.