Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Qupperneq 37
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988.
49
Sviðsljós
Madonna reynir leiksviðið
Söngkonan Madonna er ekki búin
að gefast upp á að verða fræg leik-
kona þó brösuglega haíi gengið
hingað til. Hún hefur leikið í nokkr-
um kvikmyndum sem flestar teljast
misheppnaðar og leikur hennar er
Úr einu atrið leikritsins, sem Madonna leikur í á Broadway, það er Joe
Mantegna sem leikur þarna á móti henni. Símamyndir Reuter
Þrír af keppendum
i Míss Universe
fegurðarsam-
keppninni, sem
framferiTaipei,
höfuðborg Taiwan,
stilltu séruppfyrir
Ijósmyndara. Frá
vinstri eru Anna
Margrét Jónsdótt-
ir, 22 ára.frá
íslandi, Bente
Bruniand, 21 árs,
frá Noregi og Isa-
bel Bedushi, 18
ára, frá Brasilíu.
Sú fyrsta sinnar
tegundar á íslandi
Aima Ingólfsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Reyklaus skemmtun var haldin í
Samkvæmispáfanum á Egilsstöðum
fyrir skömmu og var hún sú fyrsta
sinnar tegundar á íslandi. Skemmt-
unin var nefnilega haldin í vínveit-
ingahúsi og lék hljómsveit fyrir
dansi.
Hófst gleðin á því að borin var fram
þríréttuð máltíð fyrir þá gesti sem
kusu að njóta þess að borða góðan
mat í hreinu andrúmslofti og voru
það nokkuð margir sem reyndu það.
Að borðhaldi loknu þyrptust gestir,
sem ekki reyktu, inn í húsið og stig-
inn var dans í fersku lofti. Fólki
fannst þetta skemmtileg nýbreytni
og hafði orð á því hvað sæist vel á
milli manna og barinn var alltaf
sýnilegur.
Best var að enginn vogaði sér að
kveikja í vindlingi innandyra og sýn-
ir það árangur þeirrar fræðslu, sem
átt hefur sér stað á undanfórnum
árum, að reykingamaðurinn tekur
tilht til þeirra sem ekki reykja, að
minnsta kosti í ríkara mæli en áður
fyrr. Við skulum aðeins vona að
framhald verði á og að reyklausar
skemmtanir verði það sem koma
skal.
ekki talinn upp á marga fiska.
Fyrsta mynd hennar þótti þokka-
leg, Desperately seeking Susan, enda
var hlutverk Madonnu ekki allt of
stórt og krafðist ekki mikils af hen'ni.
Síðan hafa komið myndir eins og
Shanghai Surprise sem þótti vonlaus
og Who’s that girl sem þótti ekki of
góð heldur. En Madonna lætur sér
ekki segjast og er nú farin að leika á
sviði á Broadway.
Það þykir ekki á færi nema allra
bestu leikara að leika á sviði, allra
síst á Broadway, svo Madonna ræðst
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur. En hver veit nema leýndir
leikhæfileikar leynist í henni eftir
allt og það verður að gefa henni tæki-
færi til þess að sanna sig (eða af-
sanna). Verkið sem hún leikur í á
Broadway er eftir David Mamet og
ber heitið „Speed-The-Plow“. Aöal-
leikarar á móti henni eru Joe
Mantegna og Ron Silver.
Þess má geta í framhjáhlaupi að
Madonna er búin að taka upp sinn
upprunalega háralit aftur og hefur
því sem næst kolsvart hár.
Skúli Fjalldal ræðir við islensku listakonuna Margréti Nielsen.
íslensk málverkasýning
í „Selinu" í Óöinsvéum
Júlía Imsland, DV, Óðinsvéum:
I tilefni af 25 ára afmæli Islendingafélagsins í Odense hélt myndhstakonan
Margrét Nielsen málverkasýningu í Selinu. Margrét er íslensk og maður
hennar, Arne Nielsen forstjóri, var fyrsti íslenski konsúllinn í Odense. Mál-
verkin eru öh frá íslandi. Lástakonan, sem varð 80 ára 25. apríl sl., hefur
hlotið margar viðurkenningar fyrir myndir sínar og málverk en hún hefur
sýnt víða um Evrópu. Margrét og Arne Nielsen eru fyrstu heiðursfélagar
íslendingafélagsins í Odense.
Konukvöld
(Ladies night)
fóstudagskvöldið
D. maí
Húsið opnað
kl. 20
Dregið úr seldum miðum
Sú heppna
hlýtur ferðavinning
með Arnarflugi
til Hamborgar
Krúttmagarnir
frá Akureyri
sjá um að halda
iippi jjörinu.
A ðgöngumidaverð
með fordrykk og mat
aðeins kr. 2000,-
Karlmenn fá ekki inngöngu
N fyrr en eftir miðnætti
Það var ekki reykjarmökkur yfir þessu borði né öðrum borðum í Samkvæm-
ispáfanum á Egilsstöðum þegar reyklaus skemmtun var haldin þar fyrir
skömmu. DV-mynd Anna I.
Brautarholti 20
Pantid bord tímanlega
símar 29098 og 23335