Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Page 2
24
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
Iþróttir
Knattspymuúrslit víðs vegar í Evrópu um helgina:
Vestur-Þýskaland - knattspyma:
Bremen
fékk skell
á heimavelli
- Schalke og FC Homburg fallin í 2. deild
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi:
Werder Bremen, sem fyrir nokkru
tryggöi sér vestur-þýska meistara-
titlinn í knattspyrnu, fékk skell á
heimavelli gegn Hamburger SV í
vestur-þýsku úrvalsdeildinni á laug-
ardaginn var en einni umferö er
ólokiö í deildinni sem lýkur um
næstu helgi. Lokatölur leiksins uröu
1^1 og komu þessi úrslit verulega á
óvart því gengi Hamburger SV hefur
veriö allt annað en glæsilegt á keppn-
istimabilinu. Eins og úrslitin gefa til
kynna voru leikmenn Werder Brem-
en langt frá sínu besta.
• Eftir leikina á laugardag var
ljóst að Schalke og FC Homburg
myndu falla í 2. deild. Schalke tapaði
á útivelli fyrir Köln, 3-1. Tony
Schumacher, markvörður Schalke,
lék þarna gegn gömlu félögunum sín-
um í Köln og hefur þaö óneitanlega
ekki verö skemmtileg reynsla fyrir
hann að falla í 2. deild eftir tap gegn
fyrri félögum en Schumacher varöi
mark Kölnar um 15 ára skeið.
• FC Homburg náöi aöeins jöfnu á
heimavelli gegn Bochum en liöiö var
hvort sem er fallið í 2. deild fyrir leik-
inn eftir tveggja ára setu í úrvals-
deildinni. Bochum berst hins vegar
fyrir tilverurétti sínum í úrvalsdeild-
inni ásamt nokkrum öðrum liöum
en þriöja neösta liðið keppir í úrslita-
keppni við liö í 2. deild um lausa
sætiö í úrvalsdeildinni.
• Lothar Mattháus skoraöi bæöi
mörk Bayern Munchen í 2-1 sigri
gegn Stuttgart á ólympíuleikvangin-
um í Munchen. Þetta var síðasti
heimaleikur Matthaus með Bayern
Munchen en á næsta keppnistímabili
leikur hann með ítalska liöinu Inter
Milan. Leikmenn Bayern Múnchen
léku einum færri mestan hluta leiks-
ins því Mark Hughes var rekinn af
leikvelli á 18. mínútu leiksins.
• Stuttgart Kickers tryggöi sér
úrvalsdeildarsæti með 3-0 sigri gegn
Blau Weiss Berlin en keppnin í 2.
deild er gífurlega spennandi en sex
liö hajfa möguleika aö vinna sér sæti
í úrvalsdeildinni.
• Úrslit leikjanna á laugardag
uröu þessi:
Bremen-Hamburg..............1-4
Dortmund-Leverkusen.........2-2
Frankfurt-Hannover..........3-3
Homburg-Bochum..............1-1
Núrnberg-Kaiserslautern.....3-2
Bayern-Stuttgart............2-1
Köln-Schalke................3-1
Mannheim-Uerdingen..........2-2
Gladbach-Karlsruhe..........2-2
• Staöa efstu og neðstu liða:
Bremen........33 21 8 4 57-21 50
Bayern........33 21 4 8 79^2 46
Köln..........33 17 12 4 54-28 46
Stuttgart.....33 16 7 10 68-48 39
Núrnberg......33 13 11 9 44-37 37
Bochum.......33 9 10 14 44-51 28
Karlsruhe....33 9 10 14 36-54 28
Kaiserslautern .33 10 7 16 48-60 27
Mannheim.....33 7 13 13 34-49 27
Homburg......33 7 10 16 36-65 24
Schalke......33 8 7 18 47-80 23
Celtic bikarmeistari
Glasgow Celtic varö skoskur bik-
armeistari í knattspyrnu á laugar-
dag er liðið sigraði Dundee Unlted
2-1 úrslitaleik á Hampden Park í
Glasgow að viðstöddum 74 þúsund
áhorfendum. Celtic er því tvöfaldur
meistari en liöið vann einnig
skoska meistaratitilinn - sannkall-
aö glæsilegt keppnistimabil en 11
ár eru síðan aö liðiö vann tvöfald.
• Frank McAvennie skoraði
bæði mörk Celtic eftir Dundee Un-
ited haföi náð forystu á 48. mínútu
með raarki frá Kevin Gallacher.
McAvennie jafnaði leikinn 75. mín-
útu og á lokasekúndum leiksins
var McAvennie aftur á ferðinni eft-
ir hornspyrnu frá Joe Miller.
-JKS
Frakkland - knattspyma:
Monaco stefnir
á meistaratitilinn
Fátt viröist ætla aö koma í veg fyr-
ir að Mónakó vinni franska meist-
aratitlinn að þessu sinni. Um helgina
vann Mónakó nágranna sína í Nice,
1-0. Mónakó hefur fimm stiga forystu
á Bordeaux en þremur umferöum er
ólokið.
O Bordeaux vann á heimavelli
Matra Racing og skoraöi franski
landsliösmaðurinn Jose Toure eina
mark leiksins úr vítaspyrnu í síðari
hálfleik. Montpellier, sem hefur
komið mjög á óvart í deildinni, vann
stórsigur á Lens, 4-0, og er í þriöja
sæti. Montpellier skoraði öll mörkin
á 22. mínútna leikkafla í síöari hálf-
leik.
O Mikil barátta er á botninum og
berjast nokkur liö við falldrauginn.
LE Havre, sem er í neðsta sæti, vann
mikilvægan sigur á heimavelli gegn
Laval, 2-1, og skoraði tékkneski
landsliðsmaöurinn Ladislav Vizek
sigurmark LE Havre. Nantes vann
stórsigur á Cannes og skoruðu er-
lendir leikmenn öll mörk liðsins. Mo
Johnston og Frankie Vercauteren
skoruðu sín tvö mörkin hvor.
O Úrslit leikjanna í 1. deild:
Bordeaux-Matra Racing........1-0
Toulose-Marseille............1-0
Montpellier-Lens.............4-0
Toulon-St. Etienne...........1-1
Saint Germain-Auxerre........1-1
Cannes-Nantes.............. 1-4
Niort-Metz...................1-0
LE Havre-Laval...............2-1
Lille-Brest..................2-0
Monaco-Nice..................1-0
-JKS
• Júrgen Klinsmann,, Stuttgart hefur verið iðinn við kolann i vetur og er marka-
hæstur í úrvalscleildinni með 19. Klinsmann, sá hvitklæddi á myndinni, sést hér á fullri ferð í leik í deildinni fyrir
skemmstu.
Ítalía-knattspyma:
AC Milan varð
7. tiilllnn
íhöfn
ítalskur meistari
- enn eitt tapið hjá Napoli á heimavelli
AC Milan með knattspyrnumann
ársins í Evrópu, Ruud Gullit, í broddi
fylkingar tryggöi sér í gær ítalska
meistaratitilinn í knattspyrnu. AC
Milan geröi 1-1 jafntefli við Como á
útivelli en á sama tíma tapaði Napoli
á heimavelli fyrir Sampdoria, 1-2.
Engu heföi breytt þó að Napoli hefði
farið meö sigur af hólmi. 28 þúsund
áhorfendur á San Siro leikvanginum
í Como fögnuöu sigri AC Milan í
deildinni innilega. Antonio Virdis
skoraði mark AC Milan eftir send-
ingu frá Ruud Gullit en Salvatore
Giunta jafnaði fyrir Como í upphafi
seinni hálfleiks.
• Allt hefur gengið á afturlöppun-
um hjá Napoli í síðustu leikjum liðs-
ins og leikurinn í gær var engin und-
antekning. Andrea Carnevale náöi
forystu fyrir Napoli en Pellegrini og
Gianluca tryggðu Sampdoria sigur.
• Úrslit í 1. deild:
Ascoli-Cesena................0-0
Como-AC Milan................1-1
Empoli-Pescara...............3-2
Inter-Avellino...............1-1
J u ventus-Fiorentina........1-2
Napoli-Sampdoria.............1-2
Pisa-Torino..................2-0
Roma-Verona..................1-0
• Lokastaöa fimm efstu liða:
Milan.........30 17 11 2 43-14 45
Napoli........30 18 6 6 55-27 42
Roma..........30 15 8 7 39-26 38
Sampdoria.....30 13 11 6 41-30 37
Inter.........30 11 10 9 42-35 32
-JKS
• Ruud Gullit á stóran þátt í meistaratitli AC Milan en í vetur hefur hann
farið á kostum i ítölsku deildinni.
hjá Club
Briigge
Kristján Berriburg, DV, Belgía:
Club Brúgge vann 7. meist-
aratitilinn i sögu félagsins í
gær en síðast var liðið meist-
ari 1980. í næstsíðustu um-
ferðinni vann Club Brúgge lið
Winterslag, 3-0, á heimavelti
og brutust að vonum mikil
fagnaöarlæti út meðal stuðn-
ingsmanna félagsins en þeir
fylltu leikvanginn.
• Einni umferð er ólokið og
ræðst ekki fyrr enn í lokaum-
ferðinni hvaða lið falla í 2.
deild. Winterslag á að leika
gegn Lokeren á heimavelli og
verður Winetrslag að hafa
sigur til að halda sér í 1. deild
en Lokeren nægir jafntefli
• Úrslit í 1. deild:
Antwerpen-St Triuden...3-1
Kortrijk-Standard.....1-0
Racing Jet-Cercle Briigge..l~l
Mechelen-Anderlecht....3-0
Charleroi-Beveren......3-1
Lokeren-Ghent.........3-1
Club Brúgge-Winterslag ...3-0
FC Liege-Waregem......1-1
Molenbeek-Beerschot....1-2
SvSss
Luzern, lið Sigurðar Grét-
arssonar, tapaöi fyrir
Lausanne, 4-2, um helgina og
er í fimmta sæti í keppninni
um svissneska meistaratitil-
inn.
-JKS