Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Blaðsíða 4
26 MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988. rþróttir Verðlaunin skiptust jafiit í Hafharfirði ^ ... *-•>»• „. « • v.. ... , AS?-...... »— ~~ - ■■ v. . .. • ., ^ -v V '«***»• -'•><** .... .,í------* ; .. «.» *í •■ . '•V* . **■>.* z, .«— „j .- . ■• .• ;■' * ' _■ ^ -*■■*.- - ■* - - ■ ■'Z*. ssí .'~ay' '■* y. •^'~ «>«* •» • Fjórar af fimm hryssum sem fengu 1. verðlaun. Frá vinstri: Kristbjörg Eyvindsdóttir með Hrafntinnu, Gunnar Arnarson með Iðu, Sigurbjörn Bárðarson með Eiðu og Helgi Eggertsson með Þrumu. (DV mynd E.J.) Einungis fjóriraf hundraði í 1. verðlaun - Um 160 kynbótahross voru dæmd á héraðssýningu kynbótahrossa í Víðidal um helgina Mikil héraðssýning kynbóta- hrossa var haldin í Víðidalnum í Reykjavík um helgina. Dæmd voru um það bil 160 kynbótahross á þremur dögum. Mótið var opið fyr- ir öll kynbótahross á landinu. Þor- kell Bjarnason hrossaræktarráðu- nautur og aðstoðarmenn hans hófu dóma síðdegis á fimmtudag, héldu áfram á föstudag og kláruðu verkið síðla á laugardag. Tölva var notuð við útreikninga og því var hægt að hafa sýningu á efstu hrossum strax að loknum dómum á laugardegin- um. Þvi miður reyndust fæst hross- anna standa undir því að vera köll- uð kynbótahross því einungis sex hross fengu 8.00 eða meira í aöal- einkunn og því 1. verðlaun. Fimm hryssur 6 vetra eða eldri fengu 1. verðlaun og einn stóðhestur. Þær hryssur sem stóðu efstar í flokki sex vetra og eldri voru: Þruma frá Selfossi með 8.08 í aðaleinkunn, Eiða frá Skáney með 8.06, Iða frá Völlum með 8.04, Nótt frá Sauðár- króki með 8.01 og Hrafntinna frá Auðsholti með 8.00 í aðaleink- unn. • í flokki fimm vetra hryssa stóð efst Perla frá Álftanesi með 7.88 í aðaleinkunn, Von frá Reykjavik var önnur með 7.84 og Fiöla frá Stóru-Ásgeirsá var með 7.83 í aðal- einkunn. • í flokki fjögurra vetra hryssa stóð efst Gerpla frá Högnastöðum meö 7.75 í aöaleinkunn, Fluga frá Valshamri var með 7.71 og Snælda frá Kirkjubæ með 7.65 í aðaleink- unn. Einn stóðhestur fékk 1. verð- laun Einungis einn stóðhestur, Seifur frá Sauðárkróki, fékk 1. verðlaun. Hann var í flokki stóðhesta sex vetra og eldri og fékk 8.02 í aðal- einkunn. Hörður frá Kolkósi fékk 7.89 og Víkingur frá Viðvík 7.88 í aðaleinkunn. • Léttir frá Ey stóð efstur í flokki fimm vetra stóðhesta með 7.77 í aðaleinkunn. Fjalar frá Hafsteins- stöðum fékk 7.76 og Áll frá Kýr- holti 7.59 í aðaleinkunn. • Fjögurra vetra stóöhestarnir voru alls tólf sem þykir nokkuð mikið. Greinilegt að hestamenn taka ræktun og kynbætur alvar- lega. Fjórir hestanna tólf voru ein- ungis byggingardæmdir. Efstur í fjögurra vetra flokki var Gjafar frá Reykjavík með 7.84 í aðaleinkunn. Hann náði þó 1. verðlaunum fyrir byggingu eða 8.00. Þjálfi frá Keldudal var annar með 7.83 og Hrafnfinnur frá Kvíarhóli fékk 7.66 í aðaleinkunn. „Því ekki að leyfa mönnum að koma“ Þrátt fyrir að Þorkeli Bjarnasyni hrossaræktarráðunaut hafi ekki þótt mikið til hrossanna koma þá hefur hann þá skoöun að allir eigi rétt á því að fá hrossin sín dæmd. „Því ekki að leyfa þeim að koma. Hrossaeigendur segja sem svo: Við vitum ekki hvar við stöndum og leitum því til sérfræðinga. Menn eru aö leita að áliti. Það er ekki hægt að banna þeim það. Allir eiga sama rétt með hrossin sín. En menn verða einnig að taka mark á dómunum. Það þýðir ekki að vera að dæma hross ef menn hugsa svo að ekkert mark sé á dómunum tak- andi. Ýmsir leita aftur til okkar með hrossin sín og vilja fá hærri dóm. Þaö er eðlilegt. Hross bæta við sig. Mörg hross eru með 7.90 í einkunn og yfir og því nálægt 1. verðlaunum. Það er mannlegt að vilja fá hrossin sín í L.verðlaun," sagði Þorkell Bjarnason að lokum. -E.J. átta í töltkeppninni svo og fjór- ganginum. Verðlaun dreifðust nokkuð í flokki fullorðinna. Elsa Magnús- dóttir sigraöi töltkeppnina á Skag- fjörð og varð þriðja í fjórgangi. Atli Guömundsson sigraði fjórgang á Þyt og varð í öðru sæti í töltkeppn- inni. Hann varö einnig í þriðja sæti í gæðingaskeiði á Grámi. The- ódór Omarsson varð annar í fjór- gangi á Strumpi og þriðji í tölt- keppninni. Bertha G. Kvaran sigr- aði fimmgang á Kolgrími, varð önnur í hlýönikeppninni á Hugin og í þriðja sæti í hindrunarstökki á sama hesti. Guðmundur Einars- son varð annar í fimmgangi á Kópi og vann hlýðnikeppnina á Ljúfi. Páll Ólafsson varð þriðji í fimm- gangi á Ljúfi. Sveinn Jónsson sigr- aði gæðingaskeiöið á Sálmi en Friö- rik Ólafsson var annar á Blossa. Sigurður Ævarsson sigraði í hindr- unarstökki á Sókratesi og Friðrik Ólafsson varö annar. Glæsilegasti hestur mótsins var valinn Þytur, sem Atli Guömundsson sat, stiga- hæsti knapinn var Guðmundur Einarsson og vann hann einnig skeiðtvíkeppni. Theodór Ómarsson vann íslenska tvíkeppni en Bertha G. Kvaran ólympíska tvíkeppni. • Sindri Sigurðsson gerði það gott með Hraunar í flokki barna, 12 ára og yngri, og vann fjóra gull- peninga. Hann vann töltkeppnina, fjórgang og íslenska tvíkeppni og varð stigahæstur knapa. Ragnar E. Ágústsson varð annar á Njáli, bæði í töltkeppninni og fjórgangi íþróttamót Sörla í Hafnarfirði var haldið á velli félagsins í Kaldárseli í síðustu viku í ákaflega góðu veðri. Mótinu var dreift á þrjá daga, aðal- lega til að unglingarnir fengju næði til að athafna sig. Reyndar var í fyrsta skipti þar keppt í þremur unglingaflokkum: 12 ára og yngri, 13-15 ára og 16-18 ára. Þátttaka var nokkuð góð enda margir glæsilegir gæðingar hjá Sörla. Klárhestarnir voru áberandi góðir og mikil bar- en Sif Hauksdóttir varð þriðja í töltkeppninni á Stráki og Guð- mundur Þorsteinsson þriöji í fjór- gangi á Glettu. • Magnús Björn Sveinsson var drjúgur við verðlaunapeningasöfn- un í flokki unglinga. Hann vann fjórgang og hlýðnikeppnina á Andrá og fimmgang á Fána og varð stigahæstur knapa. Anna Ólafs- dóttir vann töltkeppnina á Breka og varð önnur í fjórgangi. Jóhann- es Ævarsson vann íslenska tví- keppni, varð annar í töltkeppninni á Sörla, varð annar í hlýðnikeppn- inni og þriðji í fjórgangi. Lilja Kristjánsdóttir varð þriðja í tölt- keppninni á Mósa. Kristín Ingvars- dóttir varð önnur í fimmgangi á Glanna og Svandís Magnúsdóttir þriðja í fimmgangi á Stjarna. Jök- ull Guðmundsson varð þriðji í hlýðnikeppninni á Perlu. • Adolf Snæbjörnsson varð stigahæstur knapa í flokki ungl- inga 16-18 ára. Hann vann einnig fimmganginn á Fána pg varð annar í fjórgangi á Flugu. ívar Þórisson vann íslenska tvíkeppni, vann fjór- ganginn á Gáska og varð annar í töltkeppninni. Bjarni Sigurðsson vann töltkeppnina á Ljósfaxa en Ólafur ■ Ólafsson varð þriðji á Stjarna. Sigfríður Hafþórsdóttir varð þriðja í fjórgangi á Lennon, Elías ívarsson varð annar í fimm- gangi á Nasablesa og Brynjólfur Jóhannesson varð þriðji í fimm- gangi á Stjarna. -EJ • Guðmundur Einarsson, stigahæsti knapinn, á Kópi. DV-mynd EJ Goöhestakeppni Andvara fór fram á laugardaginn. Kepp- endur voru frekar fáir, en gæðin voru mikil. Alhliðahestarnir voru sér- lega fallegir og gammvakrir. Einungis einn knapi keppti í barnaflokki, Svanur Snær Halldórsson á Mjölni. Hann fékk 8.12 í einkunn. Hið sama var uppi á teningnum í ungl- ingaflokki. Þar keppti Björn Karlsson á Jökulfaxa og fékk 8.06 í aðaleink- unn. Eigandi Jökulfaxa er Aníta Oddsdóttir. Bylgja, sem Björg Ólafs- dóttir á og sýndi, stóð efst í B flokki og fékk 8.39 i einkunn. Funi, sem Jón Birgisson á og sat, fékk 8.06 og Kolfreyja, sem Ragnar Valsson á en Sveinn Ragnarsson sýndi, fékk 8.00. A flokks hestarnir hjá Andvara sýndust vel á ágætum velli félagsins. Sikill Bjarna Hólm Frímannssoar, sem Sævar Leifsson sýndi, stóð efstur með 8.31 í einkunn (sjá mynd að ofan). Goði, sem Bjarni á einnig, varð í öðru sæti með 8.21 i eink- unn. Ólafur örn Þórðarson sýndi hann. Hylling, sem Friðþjófur Vignis- son á og sýndi, varð í þriðja sæti með 8.15. -EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.