Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Síða 3
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
25
Allt að fara
til fjandans
hjá Lakers?
- Utah Jazz sigraði aftur um helgina
Allt útlit er fyrir hörkukeppni á
lokasprettinum í NBAsdeildinni í
bandaríska körfuknattleiknum og
nokkuö hefur veriö um óvænt úrslit.
Um helgina tapaði til að mynda sig-
urstranglegasta liöið, Los Angeles
Lakers, öðrum leik sínum gegn Utah
Jazz, 96-89, á heimavelli „Jazzleikar-
anna“ og er staöan nú þannig að
Utah Jazz hefur unnið tvo leiki en
Lakers.einn. Flestir spá Lakers sigri
í deildinni en ljóst er að leikmenn
liðsins verða að taka sig saman í
andhtinu ef þeir spádómar eiga að
ganga eftir.
• Vel gengur hjá Boston Celtics,
sem flestir ætla að leiki til úrslita
gegn Lakers. Liðið hefur nú leikið tvo
leiki gegn Atlanta Hawks og unnið
þá báða. Um helgina sigraði Boston,
108-97.
• Á austurströndinni er spennan
ekki meiri en að það hð kemst í íjög-
urra hða úrshtin sem fyrr vinnur
fjóra leiki. Þar eigast við Detroit Pist-
ons og Chicagoi Buhs með Michael
Jordan innanborös. Um helgina léku
hðin þriðja leikinn og sigraði Pistons
örugglega, 101-79. Staðan er nú 2-1
fyrir Detroit Pistons.
• Hinn slagurinn á austurströnd-
inni stendur á mihi Denver Nuggets
og Dahas Mavericks. Um helginá
sigraði Denver, 107-105, og hefur
Denver þá unnið tvo leiki og Dallas
einn. -SK
Opna spænska mótið í golfi:
Ballesteros var
í slæmu skapi
- Mark James sigraði á 262 höggum
Severiano Ballesteros frá Spáni
var aht annað en ánægður með gang
mála á opna spænska meistaramót-
inu í golfi sem -fram fór um helgina.
Ballesteros gekk mjög Ula á mótinu
og reifst og skammaðist út í móts-
haldara. Taldi hann völhnn í Pe-
drena alltof auðveldan en samt varð
hann 12 höggum á eftir fyrsta manni.
Sigurvegari á mótinu varð Bretinn
Mark James. Hann lék frábært golf
og kom inn á 262 höggum. Átti hann
í harðri baráttu við landa sína, Nick
Faldo og Richard Boxall. Faldo lék
síðustu holuna á tveimur höggum
yfir pari og kom inn á 265 höggum
Johnson
meiddist
í Tokýo
Heimsmethafinn í 100 metra
hlaupi, Kanadamaðurinn Ben Joh-
snon, varð fyrir miklu áfalh á al-
þjóðlegu frjálsíþróttamóti í Tokýo í
Japan um helgina. Hann meiddist í
keppni í 100 m hlaupinu þegar hann
hafði hlaupið 40 metra og varð að
hætta.
Johnson, sem hlaupið hefur á 9,83
sekúndum, hefur verið óheppinn
hvað meiðsh varðar undanfarið.
Hann missti af mjög mörgum mótum
innanhúss snemma á þessu ári vegna
meiðsla og keppnin í Japan var sú
fyrsta utanhúss sem var á dag-
skránni hjá honum. Undirbúningur-
inn fyrir ólympíuleikana hefur því
farið úr skorðum öðru sinni hjá Jo-
hnson.
„Það var hárrétt hjá Johsnon að
hætta á þessu augnabliki. Hann hefði
getað meitt sig enn meira ef hann
hefði haldið áfram. Hann getur nú
gengið en ahs ekki hlaupið 100 metra
hiaup,“ sagöi Charhe Francis, þjálf-
ari Johnsons eftir aö atvikið átti sér
stað. -SK
en Boxah á 266 höggum. Ástrahnn
Wayne RUey jafnaði vallarmetið á
velhnum á þriðja degi mótsins er
hann lék 18 holumar á aðeins 61
höggi.
„Eg hef oft leikið betur en á þessu
móti. og sérstaklega púttaöi ég iha.
En ég er ánægður með sigurinn sem
var mjög kærkominn,“ sagði James
eftir mótið. Þegar hann var spurður
um hegðun Bahesterosar sagði hann:
„Ballesteros segir sínar skoðanir en
allir aðrir keppéndur á mótinu hugsa
líklega aht annað. Hann er á annarri
bylgjulengd. Ef th vih er hann ekki
vanur að tapa.“ -SK
• Ben Johnson gengur út af leik-
vanginum i Tokýo með hlaupaskóna
í hendinni eftir að hafa orðið fyrir
meiðslum i 100 metra hlaupinu. Jo-
hnson á heimsmetið í greininni, 9,83
sekúndur. Símamynd Reuter
íþróttir
L, framkvæmdastjóri enska knattspyrnuliðsins Liverpool, hafði ríka
ástæðu til að~brosa á föstudagskvöldið þrátt fyrir að brosið hyrfi með öiiu af andliti hans á laugardaginn
er menn hans töpuðu fyrir Wimbiedon í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á Wembley. Dalglish var á
föstudagskvöldið kosinn framkvæmdastjóri ársins i Englandi og sést hér með glæsilegan verðlaunagrip
sem nafnbótinni fylgir. Þetta er i annað skipti sem Kenny Dalgiish er kosinn framkvæmdastjóri ársins i
ensku knattspyrnunni en hann hefur náð frábærum árangri með meistaralið Liverpool.
Símamynd Reuter
Tafelmeier náði besta
heimsárangri í spjóti
- kastaði 85,96 metra. Sebastian Coe kominn af stað
Vestur-Þjóðverjinn Klaus Tafel-
meier kastaði spjóti 85,96 metra á
móti í Japan um helgina og er það
besti árangur sem spjótkastari hefur
náð í heiminum í ár. Fyrir þetta mót
átti Einar Vhhjálmsson besta árang-
urinn í heiminum, 83,36 metra.
• Á mótinu sigraði bandaríska
stúlkan Evelyn Ashford í 100 m
hlaupi á 11,13 sekúndum, í 10 þúsund
metra hlaupi karla sigraði Kenýa-
maðurinn Merande á tímanum
27:40,36 mínútum og Bandaríkjamað-
urinn Renaldo Nehemiah vann sigur
í 110 metra grindahlaupi á 13,57 sek-
úndum en heimsmet hans er 12,93
sekúndur og var sett 1981.
• Breski hlauparinn Sebastian
Coe, tók um helgina þátt í móti í
fyrsta skipti í eitt ár en hann hefur
átt við langvarandi meiðsli að stríða.
Coe, sem sigraði í 1500 metra hlaupi
á OL í Moskvu og Los Angeles, hljóp
þá 800 metrana á 1:48,8 mínútum.
-SK
• Klaus Tafelmeier frá Vestur-Þýskalandi kastaði spjótinu 85,96 metra.