Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Síða 7
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
29
Iþróttir
nótið í knattspymu - SL-deild:
itt jafntefli
fandi hita
$erðu jafntefli, 2-2, á gervigrasinu í gær
sendingu inn í vítateig KR-inga. Þar var
Trausti Ómarsson á auðum sjó, lék lag-
lega á Stefán Arnaldsson, markvörð KR,
og skoraði í autt markið, 1-0. Fjótlega
eftir markið áttu Víkingar alla mögu-
leika á að auka forskotið þegar Atli
Helgason átti skot rétt yfir markið af
stuttu færi.
• Smám saman komust KR-ingar
meira inn í leikinn og markið lá nánast
í loftinu. Þegar um stundarfjórðungur
var liðinn af leiknum jöfnúðu KR-ingar.
Björn Rafnsson fékk sendingu við víta-
teigslínuna, afgreiddi boltann skemmti-
lega niður og skaut þrumuskoti í bláhor-
nið, alls óverjandi fyrir Guðmund
Hreiðarsson, markvörð Víkings.
• Síðustu mínútur fyrri hálfleiks
voru mjög fjörugar og áttu bæði liðin
hættuleg tækifæri. Andri Marteinsson
komst einn inn fyrir vörn KR og fram-
hjá Stefáni markverði en var þá kominn
mjög utarlega 1 teignum. I staðinn fyrir
að skjóta á markið gaf Andri knettinum
fyrir en þá var Stefán kominn á sinn
stað og greip knöttinn. Tveimur mínút-
um fyrir leikhlé náði KR forystunni.
Willum Þórsson gaf sendingu fyrir
markið og þar tók Sæbjörn Guðmunds-
son við knettinum og skallaði laglega í
markið - sérlega glæsilegt mark, 2-1.
• Síöari hálfleikur var afspyrnuléleg-
ur svo að ekki sé meira sagt. Leikurinn
varð þófkenndur og lítið sem ekkert
markvert gerðist að undanskildu jöfn-
unarmarki Víkinga sem kom tíu mínút-
um fyrir leikslok. Trausti Ómarsson
náði knettinum inn í vítateig KR eftir
mistök í vörninni og skaut að markinu.
Stefán markvörður virtist hafa hendur
á knettinum en inn fyrir og í netið fór
boltinn, 2-2. Þegar á heildina er litið var
jafntefli sanngjörn úrslit.
-JKS
Hifinn hafði milcil
áhrif á leikmenn“
- sagði Trausti Omarsson
„Ég er mjög ánægður með að
taka eitt stig á útivelli. Þegar yfir
heildina er litið erum við sáttir
með jafiiteflið. Eftir að við náðum
forystu í upphafi leiksins fór leik-
ur okkar svolítiö úr böndunum.
Við urðum ef til vill kærulaus-
ir,“ sagöi Trausti Ómarsson sem
skoraöi bæöi mörk Víkings í
leiknum á móti KR í gær.
„Ég er alveg viss um að hitinn
haföi mikil áhrif á leikmenn
beggja liða og þá sérstaklega þeg-
ar hða tók á seinni hálfleikinn.
Þetta er nokkuð sem leikmenn
eru ekki vanir. Okkar spil felst í
stuttum sendingum en þvf miður
náöum við ekki þvi spili í þessum
leik. Mér líst vel á framhaldið þvf
að við eigum að geta gert mun
betur en í þessum ieik. Við spilum
okkar heimaleiki á nýja grasvell-
inum sem raun áreiðaniega reyn-
ast okkur sterkur í deildinni f
sumar,“ sagöiTraustiÓmarsson.
-JKS
• Trausti
skónum i ieiknum gegn KR og
skoraði bæði mörk Vikings.
Láttu fara vel um þig
/ O /• A "
í frunu.
Þú átt það skilið.
Edduhótel er ávallt skammt undan.
Farðu Edduleiðina í sumar og þér mun líða vel.
-----------EDDUKJÖR 1988--------------------------
Frá 15.-30. júní og 8.-30 ágúst býður Hótel Edda þér að gista nóttina fyrir
aðeins 863.- krónur á mann í tveggja manna herbergi m/handlaug.
Tilboð þetta gildir fyrir minnst fjórar nætur, sem hægt er að gista allar á
einu hóteli eða eina nótt á hverjum stað.
Gistingu má einungis panta með tveggja daga fyrirvara eða skemmri.
Leitaðu nánari upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu ríkisins
í síma: 25855 eða á Edduhóteiunum.
Forsala hefst 16. maí.