Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Page 8
30
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
Iþróttir
DV
vek*u vamssouB
í W } W i ý \
shpnstsáín
'
.
Leiftur náði í stig
' „jómfmleiknum“
- Leiftur og Akranes gerðu markalaust jafntefli að viðstöddum 1150 áhorfendum
Kormákur Bragason, DV, Ólafefirði:
Veðurguðimir skörtuðu sínu feg-
ursta á Olafsfirði í gær þegar Skaga-
menn komu í heimsókn að leika við
Leifursmenn fyrsta 1. deildar leikinn
í sögunni á Ólafsfirði. Sólin náði að
halda þokubakkanum í hafnarkjaft-
inum og áhorfendum í ljómandi
skapi allan leikinn enda hefur áhugi
fyrir þessum leik verið með eindæm-
um um allan Tröllaskaga. Fólk
streymdi hvaðanæva að úr ná-
grannabyggðunum og er talið að
áhorfendur hafi verið um 1100-1200
eða jafnmargir og bæjarbúar.
Skagamenn hófu leikinn af krafti
og pressuðu stíft fyrstu mínúturnar
en þó voru það Leifursmenn sem áttu
fyrsta færið snemma í leiknum.
Smám saman komust Leifursmenn
meira inn í leikinn sem einkenndist
af mikilli baráttu. Hvorugt liðið gaf
þumlung eftir en þó var allan tímann
leikin drengileg knattspyrna og ann-
ars ágætur dómari, Eysteinn Guð-
mundsson, þurfti lítið að hafa fyrir
hlutunum.
Fyrsta verulega hættulega mark-
tækifærið átti Leiftur um miðjan
fyrri hálfleik þegar Steinar Ingi-
mundarson skaut yfir í góðu færi
eftir sendingu frá Herði Benónýs-
syni. Hörður komst skömmu síðar í
gott færi eftir einvígi viö Sigurð Jóns-
son en skot hans hafnaöi í hliðarnet-
inu. Fátt annað markvert gerðist í
fyrri hálfleik nema liðin fengu hvort
sína homspyrnuna. Síðustu mínút-
urnar sóttu Leiftursmenn á með gol-
una í bakið. Þeir komust hins vegar
ekkert áleiðis gegn sterkri vörn
Skagamanna og öruggum mark-
verði, Ólafi Gottskálkssyni.
í seinni hálfleik byrjuðu Skaga-
menn undan skarpri norðangolu og
voru mun meira með boltann eins
og í byijun fyrri hálfleiks. Reyndar
áttu Leifursmenn gott færi strax í
upphafi seinni hálfleiks þegar Stein-
ar slapp í gegn og góða sendingu fyr-
ir markið frá hægri en Hafsteinn
Jakobsson hitti ekki boltann á mark-
teig.
A 55. mínútu skiptu Skagamenn
þjálfara sínum, Siguröi Lárussyni,
út af og inn kom Sigurður Harðar-
son, hpur og útsjónarsamur leikmað-
ur, sem setti mun meiri brodd í.sókn-
arlotur Skagamnna en þeir höfðu
hingaö til ekki átt eitt einasta mark-
tækifæri. Það fengu þeir hins vegar
skömmu síðar þegar Aðalsteinn Víg-
lundsson átti gott skot úr vítateign-
um eftir sendingu frá hægri en Þor-
valdur Jónsson bjargaði glæsilega.
Hann hélt þó ekki knettinum sem
barst út í teiginn en Leiftursmenn
náðu að bjarga í horn rétt áður en
Haraldur Ingólfsson náði til knattar-
ins. Þetta má segja að hafi verið í
eina skiptið í leiknum sem Leifurs-
menn sofnuðu á verðinum.
Akurnesingar voru mun meira
með boltann sem eftir lifði leiks en
Leifursmenn beittu hættulegum
skyndisóknum. Akumesingar áttu
síðan síðasta færið í leiknum þegar
Karl Þórðarson fékk dauðafæri eftir
sendingu frá Sigurði Harðarsyni en
bakvörður Leifursmanna, Guð-
mundur Garðarsson, komst naum-
lega fyrir skotið.
Leikurinn einkenndist fyrst og
fremst af baráttu og sviðsskrekk
beggja hða. Hvorugt hðið tók neina
áhættu enda voru marktækifæri fá á
báða bóga og segja má að úrshtin
teljist sanngjörn. Enginn leikmaður
skaraði framúr í þessum leik en
varnir beggja hða komu sterkar út
sem og markverðimir. Sigurður
Haröarson var einna frískastur
Skagamanna og gaman að sjá að
Karl Þórðarson hefur engu gleymt í
knattmeðferð. Hafsteinn Jakobsson
og Halldór Guömundsson börðust
vel á miðjunni hjá Leifri og á knatt-
meðferð Hafsteins eftir að ylja mörg-
um áhorfendum í sumar.
«• Áhorfendur fjölmenntu á völlinn á Ólafsfiröi í gær og á meöal þeirra var Guöjón Þórðarson, þjálfari KA á
Ákureyri, sem sést ef vel er gáð fyrir miðri mynd. Eins og sjá má í hægra horninu niðri á myndinni hefur snjó
ekki tekið upp á áhorfendastæðunum. DV-mynd Gylfi Kristjánsson
„Leíftur
sýnd veiði
en ekki
gefin“
-sagði þjáifari KA
Koimákur Bragason. DV, Ólafefirði:
„Það er ijóst að Leifursmenn
em sýnd veiði en ekki gefin.
Ef þeir spila svona í sumar eins
og í dag getur ekkert lið verið
ömggt um stigin á móti þeim.
Ég er ósáttur við leik Skaga-
manna, þeim gekk iha að koma
boltanum út á kantana og sam-
spil sem þeir em annars þekkt-
ir fyrir var sjaldnast meira en
tvær til þrjár snertingar,“ sagði
Guðjón Þóröarson, þjáliari KA
og fyrrverandi þjálfari og leik-
maður Akumesinga, í samtah
við DV í gær.
„Vömin hjá Leiftri er mjög
sterk og Þorvaldur Jónsson er
frábær markvöröur á bak viö
hana en hann var einnig besti
leikmaður þeirra í leiknum í
dag,“ sagði Guðjón Þórðarson
að lokum.
„Það ætti
að banna
. malar-
leikí“
- segir Sigurður Lár-
usson, þjálfari ÍA
Kotmákur Bragason. DV, Ótafefirði:
„Ég er náttúrlega ekki ánægð-
ur með úrshtin. Eg vil auðvitað
ahtaf fa þrjú stig en úrshtin
verða að teýast sanngjöm. Við
bjuggumst við erfiðum leik og
ég er feginn að vera búinn með
Leiftur hér fyrir norðan," sagöi
Sigurður Lárusson í samtah við
DV eftir leikinn á Ólafsfirði í
gær.
„Möhn setti auðvitaö svip
sinn á leikinn. Ég tel að mótiö
eigi að hefjast í byrjun júní og
banna ætti malarvelh í 1. deild,"
sagði Sigurður Lárusson.
„Getum staðið í öllum liðum“
Koimákur Bragason, DV. Ólafstbrði:
„Ég er í sjálfu sér sáttur viö
úrshtin þó ég hefði frekar vhjað
þrjú stig. Við áttum færin og bar-
áttan var góð þjá mínum strákum.
Þessi leikur sýnir að við getum vel
staðið í hvaða hði sem er í 1. deild,“
sagði Óskar Ingimundarson, þjálf-
ari Leifturs.
I
I