Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Side 11
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
33
• Pétur Arnþórsson, Fram, og Hilmar Sighvatsson, Val, í baráttu á gervi-
grasinu á (immtudaginn. Þeir og félög þeirra mætast á sama stað kl. 20 í
kvöld i fyrstu umferð SL-deildarinnar. DV-mynd Brynjar Gauti
ísfirðingar hættir í 3. deild:
Knattspymuráðið
gert upp 25. maí
- leikmennirnir allir til 4. deildar liðs BÍ
íþróttabandalag ísafjarðar, sem
átti lið í 1. deildinni árin 1982-83,
verður ekki með á íslandsmótinu í
knattspymu í ár. Knattspyrnuráð
bandalagsins, KRÍ, er gjaldþrota og
verður gert upp þann 25. maí nk.
í síðustu viku gengu allir leikmenn
ÍBÍ frá félagaskiptum yfir í Badmint-
onfélag ísafjarðar, BÍ, sem hefur leik-
ið í 4. deild síðustu tvö árin. Lið ÍBÍ
hefur því verið dregið út úr SV-riðli
3. deildarinnar og í honum verða því
níu lið í sumar í stað tíu. Aðeins eitt
fellur, í stað tveggja áður, vegna
brotthvarfs ísfirðinga.
ÍBÍ féll úr 2. deildinni í fyrra og
skuldir knattspymuráðsins eftir
þátttökuna í 1. og 2. deild undanfarin
ár eru gífurlegar, skipta milljónum.
Jóhann Torfason, sem hafði verið
ráðinn þjálfari ÍBÍ fyrir sumarið,
sagði upp störfum fyrir nokkm þar
sem hann fékk ekki greidd laun, en
nú stjórnar hann sama mannskap
undir merkjum BÍ.
Kvennalið ísfirðinga, sem vann sér
rétt til að leika í 1. deild í sumar, fær
að halda sæti sínu þar en leikur und-
ir nafni BÍ. Sömuleiöis munu yngri
ílokkarnir keppa fyrir hönd Bad-
mintonfélagsins.
Búast má við því að lið BÍ verði í
fremstu röö í 4. deildinni í sumar en
það fær væntanlega mikla keppni frá
Bolvíkingum um efsta sætið í Vest-
fjarðariðli.
Badmintonfélagið verður þó aö
leika sinn fyrsta leik, gegn Höfrungi
frá Þingeyri þann 4. júní, án þeirra
sem koma frá ÍBÍ, þar sem þeir verða
ekki orðrúr löglegir.
-VS
Knattspyma:
Samkomulag
í sjónmáli
- Sigurður áfram hjá Wednesday
Samingaviöræður Sigurðar Jóns-
sonar við forráðamenn Sheffleld
Wednesday eru nú langt á veg komn-
ar. Má segja að aðeins sé eftir að
undirrita nýtt samkomulag sem lík-
lega verður til eins árs, en Sigurður
sagðist ekki stefna að lengri samn-
ingi við félagið í spjalli við DV á dög-
unum.
Eins og fram hefur komið í DV
hefur Sheffield mikinn hug á að
halda Sigurði áfram hjá félaginu og
það til langs tíma. íslendingurinn er
enda, að sögn G.H. Mackrell ritara
Sheffield, veigamikill þáttur í fram-
tíðaráformum félagsins.
Sigurður Jónson, sem alinn er upp
í Uði Skagamanna, hóf að leika með
Sheffield snemma árs 1985. Meiðsli
hafa lengi aftrað honum frá því að
sýna sitt rétta andlit í ensku knatt-
spyrnunni. í vor hefur Sigurður hins
vegar gengið heill til skógar og því
tryggt stöðu sína í liðinu. Hefur hann
átt hvern stjörnuleikinn í kjölfar
annars, jafnan verið einn stigahæsti
maður liðsins í síðustu leikjum deild-
arkeppninnar. JÖG
_____________________________________________íþróttir
íslandsmeistaramir gegn bikarmeisturunum í kvöld:
„Ekki vanir að
tapa tveimur
leikjum í röð!“
- „sigurinn á fimmtudag stappaði í okkur stálinu/' segir Þorgrímur
„Við erum ekki vanir því að tapa
tveimur leikjum í röð, eins og gerðist
nú í lok Reykjavíkurmótsins, og
mætum.því tvíefldir til leiks gegn
Valsmönnum," sagði Pétur Ormslev,
fyrirliði Fram, í samtali við DV.
Framarar mæta Valsmönnum í stór-
leik 1. umferðar SL-deildarinnar á
gervigrasinu í Laugardal kl. 20 í
kvöld.
„Þaö eru alltaf hörkuleikir þegar
Fram og Valur mætast og þess vegna
má búast við enn einum slíkum. Við
eigum harma að hefna frá þvi í meist-
arakeppninni og fórum til leiksins
með það í huga. Viö höfum verið í
nokkurri lægð, leikið illa gegn KR
og Val, og þurfum að taka okkur
saman í andhtinu. Það yrði mjög góð
byrjun á íslandsmótinu fyrir okkur
að sigra sjálfa meistarana," sagöi
Pétur.
Framarar tefla væntanlega fram
sínu sterkasta liði í kvöld. Kristinn
R. Jónsson ætti að geta leikiö, en
hann handarbrotnaði fyrir skömmu,
lék hluta af leiknum viö KR á dögun-
um en hvíldi gegn Val í meistara-
keppninni.
Allt að smella saman
„Eftir brösuglegt gengi í vor og
talsverð meiðsh virðist allt vera að
smella saman hjá okkur á elleftu
stundu," sagði Þorgrímur Þráinsson,
fyrirhði Vals. „Sigurinn á Fram í
meistarakeppninni stappaði í okkur
stálinu, en það er ljóst að leikurinn
verður geysilega erfiður, Framarar
koma th með að selja sig dýrt. Þetta
verður án efa skemmtilegur leikur,
ekki síst vegna þess aö gervigrasið
býður upp á óvænt atvik, en ég vona
þó að harkan verði ekki jafnmikil og
á fimmtudaginn," sagði Þorgrímur.
Valsmenn leika að sjálfsögðu án
Guðna Bergssonar sem var skorinn
upp vegna kviðslits fyrir skömmu.
Þeir Vaiur Valsson, Jón Grétar Jóns-
son og Ámundi Sigmundsson hafa
allir átt við meiðsh að stríða, en ættu
allir að geta leikið í kvöld.
Hilmar í banni gegn ÍA
Hilmar Sighvatsson úr Val, sem
var rekinn af leikvelli í leiknum á
fimmtudaginn, verður með Hlíðar-
endahðinu í kvöld. Hann fer í eins
leiks bann, en það tekur ekki giidi
fyrr en á fostudaginn. Þar með er
ljóst að hann tekur bannið ekki út
fyrr en 2. júní, gegn ÍA á Akranesi.
Valur mætir Leiftri á fimmtudags-
kvöldið, en þar getur Hilmar leikið.
-VS
Innlend verksmíð hefur sannað sig bæði í gæðum og endingu.
Hafðu okkur með í ráðum.
SKrifstofan er opin frá kl. 09:00 til kl. 17:00 virka daga.
AU meistarafélag húsasmioa
SKIPHOLTI 70 - REYKJAVÍK SÍMAR: 31277 OG 36977
FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI