Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Side 3
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988.
3
im ú ir»ii>m»8i n n
iviotrraiiiDoo
komméráóvart
„Mótframboö gegn Vigdísi
Finnbogadóttur forseta kom mér
mjög á óvart. Mér finnst Vigdís
hafa staðið sig alveg prýöilega
som forseti og flnnst hún verð-
skulda aö vera þaö áfram.“ sagði
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis-
saksóknari og fyrrverandi for-
setaframbjóöandi, í samtali viö
DV um hugsanlegar forsetakosn-
ingar.
„Þaö er uppgjör hvers og eins
hversu lengi hann treystir sér til
að vera í embætti. Ég ímynda mér
að flestum finnist þeir vera búnir
að gera skyldu sína eftir tvö til
þijú kjörtímabil en fyrst Vigdís
treystir sér til að sinna starftnu
áfram þá finnst mér sjálfsagt að
hún geri það.“ -JBj
Albert Gudmundsson:
Áaldreiaðvera
sjálfkjörið í for-
n if A iini irrii KMtiHitn afrfirmBimrw
sotaeinDðBttio
„Það á aidrei að vera sjálfkjörið
í forsetaembættiö, hvort sem um
er að ræða einn frambjóðanda
eða marga,“ sagði Albert Guð-
mundsson i samtah við DV um
hugsanlegar forsetakosningar í
sumar.
„Ef forseti er einn í framboöi
og fær minna en helming at-
kvæða á hann ekki að vera for-
seti. Það er verið að kjósa um leið-
toga þjóðarinnar og fólkið á aö fá
þarni sem þaö treystir," sagði
Albert.
Varðandi mótframboð Sigrún-
ar Þorsteinsdóttur gegn Vigdísi
Finnbogadóttur forseta sagðist
Albert ekki þekkja máhö nógu
vel til að geta lýst skoðun sinni á
því. -JBj
Pétur Htorsteinsson:
Hæpiðaðnokk-
ur ógni Vigdísi
„ísland er ftjálst land og það er
öllum aö sjáJfsögöu fijálst að
bjóða sig fram tíl forseta.
Hitt er aftur annað mál að ég
hef enga trú á þvi að nokkur geti
unnið forsetaembættið af Vigdísi
Finnbogadóttur í kosningum,“
sagði Pétur Thorsteinsson, sendi-
herra og fyrrum forsetaframbj óð-
andi, í samtali við DV um vænt-
anlegar forsetakosningar. -JBj
Fréttir
Verkalýðshreyfingin:
Ekki samstaða um
forystu Ásmundar
„Ég ætla ekki að ræða það í öðr-
um sóknum," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambandsins, þegar DV
spurði hann hvort sambandið hefði
fremur viijað haga viðræðum við
ríkisstjómina eins og upphaflega
var ætlað en að taka þátt í stóru
samninganefndinni undir forystu
Ásmundar Stefánssonar, forseta
ASÍ.
Samkvæmt heimildum DV fór
því fiarri að full samstaða væri inn-
an verkalýðshreyfingarinnar um
að haga viðræðum við ríkisstjóm-
ina eins og gert var. Það mun eink-
um hafa verið Ásmundur Stefáns-
son sem lagði á það áherslu að
hann stýrði stórum sameinuöum
hópi í viðræðunum. Aðrir, til dæm-
is Verkamannasambandið og
verslunarmenn, vildu haga við-
ræðunum eins og ríkisstjómin
lagði til. Hennar hugmyndir voru
að Verkamannasambandið, iðn-
verkafólk og verslunarmenn
kæmu saman til viðræðna, þeir
sem ósamið er við skipuðu annan
hóp og sjómenn þann þriðja.
-gse
Sex ára
bfleigandi
-spáði rétt í Evrópusöngvakeppninni
Sex ára stelpa, Hildur Viggósdóttir,
var svo heppin fyrir nokkru að vinna
Skoda í getspá sem Félagsheimili
tónlistarmanna efndi til um úrsht
Eurovisionkeppninnar í Dublin.
Ellefu giskuðu rétt og var dregið
úr nöfnunum í beinni útsendingu á
Rás 2. Hildur fékk fékk Skodann af-
hentan þann 16. maí þannig að talan
16 heldur áfram að koma við sögu í
söngvakeppninni.
Hildur var að vonum glöð yfir að
fá splunkunýjan Skoda í vinning.
Foreldrar hennar sögðu að hún hefði
alveg af sjálfsdáðum tekið upp á að
spá um úrslitin. Hún var allan tím-
ann nokkuð öragg með að eignast
bíhnn.
Allur ágóði af getspánni rennur í
nýstofnaðan sjóð til uppbyggingar
félagsheimilis tónhstarmanna og til
styrktar tónhstarmönnum sem
stuðla að kynningu á landi og þjóð á
erlendum vettvangi með tónhst
sinni.
-JBj
Hildur situr hér á húddinu á splunkunýjum Skodanum. En hún verður víst
að bíða í ellefu ár til að geta sjálf ekið honum um göturnar.
Öskuillur bfleigandi:
Braut tvær rúður
og olli skemmd-
um á bð
Lögreglan varð að hafa afskipti af
öskuillum bíleiganda í gær. Bíleig-
andinn hafði lagt bfl sínum óhöndug-
lega við Málningarverksmiðjuna
Hörpu um hádegi í gær. Starfsmenn
málningarverksmiðjunnar límdu
miða með orðsendingu á bíl manns-
ins. Á miðann voru skrifuð tilmæli
til eigandans og hann beðinn um að
gera þetta ekki aftur.
Þegar eigandi bílsins kom að bfln-
um og sá miðann brást hann illur
við. Hann hóf að kasta gijóti í verk-
smiðjuhúsið og hafði brotið tvær
rúður þegar lögreglu tókst að stöðva
hann. Grjótið lenti einnig á bíl sem
stóð nærri og skemmdist lakkið á
bflnum töluvert. Lögreglan fór með
hinn reiða bfleiganda á lögreglustöð
þar sem rætt var við hann.
-sme
Vatnsleysuströnd:
Flugvélarhluta
rak á fjörur
Hluta úr flugvél hefur rekið á fiör-
ur á Vatnsleysuströnd undanfarnar
tvær vikur. Þrjá sætishluta og eitt
dekk hefur rekið með nokkurra daga
millibili.
Rannsóknanefnd flugslysa er að
rannsaka hlutina og er rannsókn
nýlega hafin. Líklegt er tahð að hlut-
amir séu úr Cessna-vél.
-sme
HÖRN
Sófasett - stakir
sófar - hornsófar -
svefnsófar - hvild-
arstólar og hvers
konar önnur hús-
gögn fyrir heimilið
Opið laugardag til kl. 17
TM-HUSGOGN
Síðumúla 30 - Sími 68-68-22