Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988. 7 _____Viðskipti Ekki til umræðu að Jöfur fái Cherokee og Willys - segir Sveinbjöm Tryggvason, aðaleigandi Egils Vilhjálmssonar hf. dv Viðtalið Áhugamálin eru þessi klassísku .........n ............................................... . 7 Nafn: Þórunn Guðmundsdóttir Aldur: 30 Staða: Hæstaréttarlögmaður „Tiltölulega fáar konur hafa verið í lögmennsku gegnum tiö- ina. Þeim er að fjölga og þá um leið fjölgar konum sem verða hæstaréttarlögmenn. En hvers vegna svo fáar konur hafa farið út í lögmennsku veit ég ekki,“ segir Þórunn Guðmundsdóttir, nýbakaður hæstaréttarlögraað- ur. Þórunn er önnur tveggja kvenna sem þreyttu þriðju og síð- ustu prófraun sina fyrir hæsta- rétti í vikunni og stóðust þær báðar. Aðeins flórar íslenskar konur hafa öölast þessi réttindi áður. „Þetta var vinna“ Þórunn er fædd í Reykjavík 9. júlí 1957. Hún er því þrítug en hæstaréttarlögmenn verða að hafa náð þeim aldri til að fá rétt- indin. „Þetta var vinna en mjög gam- an. Það er gaman að vera búin með þetta fyrst maður fór út á þessa braut á annað borð,“ segir Þórunn um prófraunina. En til að geta orðið hæstaréttarlögmað- ur þarf viðkomandi m.a. að þreyta þrjú prófmál fyrir hæsta- rétti. Framhaldsnám í Bandaríkjunum Þórunn er stúdent fi*á Mennta- skólanum við Hamrahhð en lauk námi frá lagadeild Háskóla ís- lands 1982. „Eftir að ég lauk námi vann ég eitt sumar sem íúlltrúi þjá sýslumanninum í Dalasýslu. Það var mjög skemmtilegur timi. Það er bæði skemmtilegt og gott fólk í Búðardal. Að dvölinni í Búðardal lokinni fór hún til náms í Bandaríkjun- um í einn vetur. Hún stúderaði í Cornell University í New York fylki þar sem hún tók próf kallaö Masters oflaw. „Skólinn er í New York fylki. Þar er stærsta safti íslenskra bóka í Vesturheimi svo hann hefur mikil tengsl við landiö. Þegar ég var viö nára voru um þrjátíu þúsund íslenskir bókatitlar til í skólanum auk flölda handrita sem geymd eru á míkrófilmum.“ Þórunn er ógift og bamlaus en foreldrar hennar eru Guömund- ur Ingvi Sigurðsson hæstaréttar- lögmaður og Kristín Þorbjarnar- dóttir prófarkalesari. Þórunn er yngst þriggja systkina. Bræður hennar eru Sigurður Guömunds- son læknir og Þórður Ingvi Guð- mundsson, framkvæmdastjóri hjá Lind hf. Reglulega í sund „Ahugamálin eru bara þessi klassísku. Ég les mikið og tek þá engar bókmenntir fram yfir aðr- ar svo reyni ég að hreyla mig eitt- hvaö. Ég fer reglulega í sund og syndi þá alltaf fimmliundruö- metrana. Auk þess fer maöur í göngutúra og þess háttar." -JBj „Eg hef setið á fundum með full- trúum Chryslerverksmiðjanna og þeir segja þaö alveg óyggjandi að fyr- irtækið mitt, Egill Vilhjálmsson hf., hafi umboð fyrir jeppana Cherokee, Willys og aðra bíla frá American Motors. Það er því ekki til umræðu aö Jöfur fái umboðið þrátt fyrir að þeir hafi gert ailt til að ná því,“ segir Sveinbjörn Tryggvason, aðaleigandi Egils Vilhjálmssonar hf. Chrysler bílaverksmiöjurnar í Bandaríkjunum keyptu bílafyrir- tækið American Motors í fyrra en Jöfur hf. hefur umboö fyrir Chrysler á íslandi. „Þó Chrysler hafi keypt American Motors þá standa allir samningar sem American Motors hefur gert. Þess vegna verö ég með umboðið áfram. Menn smella bara ekki fingr- um og halda að hægt sé að rifta samningum. Þetta verður þvi bara að vera draumur áfram hjá Jöfurs- mönnum að fá umboöiö," segir Sveinbjöm Tryggvason. -JGH Honda Accord Amex til sölu Sveinbjörn Tryggvason. „Það verður bara að vera draumur Jöfursmanna að fá umboðið." Árgerð 1987, 4 dyra, ekinn 16.000 km. Billinn er sérstaklega vel með farinn, með sóllúgu, útvarpi m/segulbandi og grjótgrind. Góðir greiðsluskilmálar BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, afml 681200. balnn sfml 84060.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.