Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Page 11
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988. 11 Útlönd Málað í tilefni komu Reagans Sovéskir verkamenn eru nú önn- um kafnir viö aö malbika götur, gróðursetja tré og mála hús, allt vegna komu Reagans Bandaríkja- forseta og fylgdarliös hans til Moskvu í lok mánaðarins. Sérstaklega er snurfusað um- hverfis heimih bandaríska sendi- herrans þar sem bandarísku for- setahjónin munu búa meðan á heimsókninni stendur. Banda- rískir málarar hafa verið að verki innandyra og í garðinum umhverf- is húsið hafa Sovétmenn unnið að viðgerðarstörfum. „Það er jafnvel hætta á að maður verði sjálfur málaður ef maður stendur kyrr lengur en fimm mínútur,“ sagði eiginkona bresks sendiráðsstarfs- manns í gamni á dögunum. Nixontorgið Nálægt Kreml, þar sem Reagan forseti og Gorbatsjov Sovétleiðtogi munu ræðast við, hafa verkamenn verið að leggja síðustu hönd á end- urlagningu vegar sem liggur að Borovitsky hliðunum. Þegar Nix- on, fyrrum Bandaríkjaforseti, var þama á ferð 1974 til að hitta Brésnev var einnig tekið til hend- inni á þessum slóðum og Moskvubúar köliuðu staðinn enn þá Nixontorgið. Búist er við þúsundum frétta- manna til Moskvu í tilefni leið- togafundarins og þar sem miðstöð þeirra verður hefur nýlega verið komið fyrir hægindastólum frá Spáni og raftæknibúnaði frá Vest- ur-Þýskalandi. Segja má að allir væntanlegir við- komustaðir Bandaríkjaforseta fái einhvers konar andhtslyftingu. Þó svo að viðgerðir geti takið óhugn- anlega langan tíma í Sovétríkjun- um er allt gert, sem mögulegt er, til þess að öllu verði lokið í tæka tíð. Nemendum í skóla nokkrum, sem Nancy Reagan mun ef th vih heimsækja, var gefið frí fyrir tveimur vikum um óákveðinn tíma svo þeir hafa líklega ástæðu th að fagna komu forsetans. Fornir meistarar Sovétmenn eru fornir meistarar í algjörum breytingum á svip- stundu. Þegar Katarína mikla sigldi niður Dnjeprána árið 1787 fór hún fram hjá þorpi sem komið var upp á mettíma. Það samanstóð hins vegar allt úr fólskum húsgöflum. Þegar Nixon var á ferð voru gamlar byggingar á leiðinni frá flugvelhn- um inn th borgarinnar jafnaðar við jörðu og nýjar reistar nánast á einni nóttu, aö því að sagt er. Það er svo sem ekkert óvenjulegt að viðgerðir utandyra fari fram á vorin en þær hafa aldrei gengið jafnhratt fyrir sig, sagði Moskvu- búi nokkur. Það hefur nefnhega aldrei verið neitt leyndarmál að sovéskir verkamenn taka lífinu með ró. Eftir tíu ár Reagan Bandaríkjaforseti er sagður hafa gaman af brandaran- um þar sem segir frá sovéskum sölumanni sem tjáði viðskiptavin- inum að bílhnn hans yrði tilbúinn th afhendingar eftir tíu ár. „Um morguninn eða kvöldið?“ er við- skiptavinurinn sagður hafa spurt. „Hvaða máli skiptir það úr því að það er eftir tíu ár?“ spurði þá sölu- maðurinn. „Pípulagningamaður- inn kemur um morguninn," svar- aði þá hinn um hæl. Þetta þykir útskýra hvers vegna íbúar þeirra gatna sem Reagan ek- ur um eru litnir öfundaraugum. Verkamaður i Moskvu athugar hvort öryggislinan sé ekki i lagi áður en hann tekur til við að mála turna á kirkju sem liggur nálægt heimili bandaríska sendiherrans. Reagan Bandarikjaforseti og Nancy kona hans munu dvelja þar meðan á leiðtogafundinum í Moskvu stendur. Símamynd Reuter PRTOOM^ HJÓLHÝSI - FARANGURSVÁGNAR - BÁTAVAGNAR SÝNING Á MORGUN, LAUGARDAG, KL. 10-16 Verð aðeins kr. 199.000,- stgr. /nanni 1fl ’flflX^ (gengi 18.5. ’88) • Tveggja hellna eldavél • Svefnpláss ffyrir 3-4 • Rafmagnsvatnsdæla og vaskur • Vatnstankur • Gluggatjöld • 3 inniljós og rafkerfi • Fíberglass yfirbygging • Galvaniseruð grind • Stór dekk • Sjálfvirkar bremsur í beisli • Handbremsa, nefhjól • Flexitorafjöðrun • Demparar • Léttbyggt og hentar aftan í alla bíla • Þyngd 600 kg • Góðir skápar Fólksbílakerra með segli og fullum Ijósabúnaði - Gott tæki til allra flutninga - Burðargeta 400 kg. Verð aðeins kr. 46.000,- ----------Bátavagnar með öllum búnaði fyrir mis- Farangursvagnar með Ijósum - þyngd munandi stærðir af bátum. Verð kr. aðeins 100 kg. Verð kr. 39.900,- 58.000,- VELGAB0RG ÍÍ?J!HnÁLSI 2 SÍM183266-686655

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.