Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1988, Side 26
42
FÖSTUDAGUR 20. MAl 1988.
Jarðarfarir
Össurína Bjarnadóttir lést 8. maí.
Hún fæddlst í Bolungarvík 17. nóv-
ember 1906. Foreldrar hennar voru
Bjarni Jón Bárðarson og Kristín
Salóme Ingimundardóttir. Össurína
fluttist til Reykjavíkur árið 1950. Hún
giftist ekki og eignaðist engin böm.
Útfór hennar verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 13.30.
Kristján Leós verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu þriðjudaginn 24.
maí kl. 10.30.
Dagbjartur Guðmundsson, Garðbæ,
Eyrarbakka, sem andaðist 15. maí,
verður jarösunginn frá Eyrarbakka-
kirkju laugardaginn 21. maí kl. 14.
Steinunn Olafsdóttir frá Mörk á Síðu
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands á
Selfossi mánudaginn 16. þ. m. Jarð-
arforin fer fram frá Prestbakka-
kirkju laugardaginn 21. maí kl. 14.
Guðbjörg Eiriksdóttir, Smjördölum,
Sandvíkurhreppi, veröur jarðsungin
frá Selfosskirkju laugardaginn 21.
maí kl. 15. Jarðsett verður frá Laug-
ardælakirkju.
Kristinn Tryggvason, Kvisthaga 10,
lést í Borgarspítalanum 16 þ. m. Út-
förin verðúr gerð frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 25. maí kl. 16.30.
Guðrún Pálsdóttir frá Rifshalakoti,
dvalarheimilinu Lundi, Hellu, verð-
ur jarðsungin frá Oddakirkju laugar-
daginn 21. maí kl. 14.
Útför Ólafíu Halldórsdóttur, Vallar-
götu 14, Vestmannaeyjum, fer fram
frá Landakirkju laugardaginn 21.
maí kl. 14.
Tilkyniiiiigar
Skrifstofa Geðhjálpar
tilkynnir
að frá 1. júní verður skrifstofan og félags-
miðstöðin lokuð mánuðina júní, júlí og
ágúst.
Tvö prestaköll laus
Biskup íslands hefur auglýst tvö presta-
köll laus til umsóknar. Þau eru: Patreks-
fjarðarprestakall í Barðastrandarpróf-
astsdæmi og Raufarhafnarprestakall í
Þingeyjarprófastsdæmi. Umsóknarfrest-
ur er til 2. júní.
Tennismót
Nike Dunlop tennismót unglinga, 16 ára
og yngri, verður haldið dagana 27.-29.
maí við Kópavogskóla. Skrásetningarhst-
ar Uggja frammi við tennisvelli í Kópa-
vogi og við Víkingsvelh í Fossvogi. Þátt-
töku er einnig hægt að tilkynna tíl Páls
Stefánssonar í síma 15262 fyrir kl. 20
fimmtudaginn 26. maí.
Vinnuhópur Tónabæjar
í tengslum við starfsemi I.T.R. verður
starfræktur í sumar vinnuhópur á veg-
um félagsmiðstöðvarinnar Tónabæjar. i
hópnum eru 10-15 unglingar á aldrinum
15-17 ára og 2 verkstjórar. Hópnum verð-
ur skipt í einingar eftir verkefnum. Þetta
er fimmta sumarið sem vinnuhópurinn
er starfræktur og hefur gott orðspor hans
farið víða. Vinnuhópur Tónabæjar er til-
búinn að leysa af hendi margvisleg verk-
efni, t.d. garðhreinsun, gluggaþvott,
hreingemingar, timburvinnu, tiltekt á
lóðum og fl. Þjónusta þessi stendur borg-
arbúum, fyrirtækjum og fl. til boða og
verða gerð fóst verðtilboð í verkefnin.
Nánari upplýsingar eru veittar í Tónabæ
í síma 35935.
Knattspyrnuskóli Leiknis
hefst mánudaginn 24. mai nk. Leiðbein-
andi verður sem fyrr Sigurbjartur Á.
Guðmundsson knattspyrnuþjálfari
ásamt gestaleiðbeinendum sem verða
margir af frægustu knattsyrnumönnum
íslands. Allir þátttakendur fá viðurkenn-
ingu og veitt verða ýms verðlaun. 1. nám-
skeið verður frá 24/5-3/6, 2. frá 6/6-17/6,
3. frá 20/6-1/7, 4. frá 4/7-15/7, 5. frá 18/7
-29/7. Krakkar fæddir 1980 og síðar verða
frá kl. 09-10.30. Krakkar fæddir 1978-1980
verða frá kl. 10.30-12. Þeir sem fæddir eru
1977 og fyrr verða frá kl. 13-14.30. Nám-
skeiðið mun kosta kr. 1.500 á mann. Veitt-
ur verður sérstakur systkinaafsláttur og
einnig munu þeir sem hafa tekið þátt í
fjórum fyrstu námskeiðunum fá frítt á
þaö fímmta. Innritun fer fram í Leiknis-
húsinu sama dag og námskeiðin heflast.
Hægt er að greiða með greiðslukortum.
Minriingarkort-
Styrktarsjóður barnadeildar
Landakotsspítala
hefur látið hanna minningarkort fyrir
sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir, myndlist-
armaður og kennari, teiknaði ijögur mis-
munandi kort. Minningarkortin eru seld
á eftirtöldum stöðum: i Apóteki Seltjam-
amess, Vesturbæjarapóteki, Hafnar-
fjarðarapóteki, Garðsapóteki, Holtsapó-
teki, MosfeUsapóteki, Árbæjarapóteki,
Lyfjabúð Breiðholts, Reykjavíkurapó-
teki, Háaleitisapóteki, Kópavogsapóteki,
Lyfjabúðinni Iðunni, blómaverslununum
Burkna, Borgarblómi, Melanóm, Selt-
jamamesi og BlómavaU í Kringlunni.
Einnig verða þau seld á skrifstofu og
bamadeild Landakotsspítala.
Henry, ný hljómsveit
Nú nýverið var stofnuð hljómsveitin
Henry sem sérhæfir sig í betri tórUist og
er með sérstök prógröm fyrir stuðböU.
Ætlunin er að spUa á böUum og öðrum
mannfógnuðum um land aUt. Á mynd-
inni em frá vinstri: Hafsteinn Þórisson,
gítar, Sveinn Svemsson, söngur og gitar,
Jón Birgisson, bassi, Bjöm Ámason,
hljómborð, og Steinar Helgason, tromm-
ur.
Tívolíið í Hveragerði
hefúr nú haftð fjóröa starfsár sitt og enn
hefúr verið bætt við aðstöðuna í þessari
skemmtanamiðstöð Suðurlands. Ný veit-
ingaaðstaða hefur verið sett upp og er
boðið upp á grillaðstöðu þar. Af tækjum
má nefna bílabrautir, hringekju, drauga-
hús, skotbakka, koUtrabba, báta- og
hestaleigu svo fátt eitt sé nefnt. Þá verða
aUtaf sýningar um helgar og aldrei að
vita hvenær uppákomur eiga sér staö.
Tívolíið er opið alla daga vikunnar frá
kl. 12-21 og er aögangur ókeypis. Hópaf-
sláttur er veittur í tæki og veitingar. Sím-
inn i tívoliinu er 99-4673 og á skrifstof-
unni í Reykjavik 28377.
Fréttir
Hlustendakonnun Félagsvísindastofnunar:
Ríkisútvarpið gefur eftir
- Stjaman og Stöð 2 í sókn
Félagsvísindastofnun Háskólans
birti í gær niöurstööur hlustenda-
könnunar sem hún haföi látið gera
14. og 15. maí. Könnunin sýnir vax-
andi gengi Stjömunnar gg Stöðvar
2 síðan í marsmánuði. í úrtakinu
voru 924 á aldrinum 9 til 80 ára.
74,8% svöruðu.
Yfir landið allt hefur Stjarnan
10-13% hlustun, Rás 2 héfur 6-10%
hlustun en Bylgjan 3-7% hlustun.
Rás 1 hefur sveiflukenndari hlust-
un en nær eins og venjulega toppi
í kringum fréttatíma í hádegi og á
kvöldin. Þó hafa þessir toppar
minnkað.
Varðandi sjónvarpsstöðvarnar er
greinilegt að Stöð 2 bætir stöðu
sína, hvort sem tekið er fyrir svæð-
ið sem aflar stöðvarnar nást á eða
landið allt. Á sama tíma dregur li-
tillega úr horfun á ríkissjónvarpið.
Það er því greinilegt að ríkisstöðv-
arnar em að gefa eftir. -SMJ
Ragnar Júlíusson:
Staðgreiddi
Grandavagninn
lceland Seafood:
Andstæðingar
Guðjóns buit
Við sfjómarkjör á aöalfundi
Ieeland Seafood hurfu bæði Er-
lendur Einarsson, fyrrum for-
stjóri Sambandsins, og Gísli Jón-
atansson, kaupfélagsstjóri á Fá-
skrúösiirði, úr stjórninni.
Þessir tveir neituðu á sínum
tíma að reka Eystein Helgason,
forstjóra Iceland Seafood. Þeir
stóðu líka fyrir því að fram kom
í fréttatilkynningu eftir stjómar-
fund í fyrirtækinu, sem fjallaði
um launamál Guðjóns B. Ólafs-
sonar, forstjóra Sambandsins, að
í raun var stjómin að samþykkja
afturvirk laun til Guðjóns. Þeir
eru nú horfnir úr stjóminni. Er-
lendur gaf ekki kost á sér. Gisli
féll í kjöri. -gse
„Bíllinn verður staðgreiddur,"
sagði Ragnar Júlíusson, stjómar-
formaður Granda, eftir að fundi
stjórnar lauk í gær. „Ég greiði hann
að fullu fyrir júnilok á sama verði
og hann var keyptur á í desember,
1.448.580 krónur."
Stjórnin samþykkti samhljóða að
selja Ragnari Grandavagninn á þess-
um kjörum eins og þegar hún ákvað
að kaupa bílinn handa honum. Ragn-
ar vék af fundi meðan aörir stjórnar-
menn gerðu upp hug sinn.
Það hafa orðið tvær gengisfeflingar
síðan í desember og ætla má að bíll-
inn hafi hækkað í verði um 240 þús-
und. Færðu ekki þarna gengisgróða?
„Það var athugað hvað svona bíll
kostaði á bílasölu. Það var 150 þús-
und lægra en ég keypti hann á. Bílar
hækka ekki í verði þegar þeir eld-
ast.“
Þú ert skólastjóri. Verður það ekki
erfitt fyrir þig að standa undir jafn-
dýrri fjárfestingu?
„Peningamál mín eru mitt einka-
mál,“ sagði Ragnar. „Ég fæddist ekki
með silfurskeið í munninum heldur
hef ég unnið frá því ég var ungflng-
ur. Ég tel mig vel geta keypt þennan
bíl.“ -gse
Meiming_______________________
„Blikandi Ijósleiftur44
Gunther Uecker að Kjarvalsstöðum
Hætt er við að flestir listelskandi
íslendingar hafi litla hugmynd um
þróun þýskrar myndlistar frá lok-
um síðasta stríðs og fram til þess
að Beuys steig fram á sjónarsviðiö.
En þeir eru tæplega einir um þá
fáfræði því fyrstu árin eftir stríð
var þýsk menningarpólitík í mol-
um og þvi ekki tfl stórræðanna;
varð síöan undir í samkepþninni
við amerísk og frönsk menningar-
öfl.
Maður veltir því stundum fyrir
sér hvort þýskir afstrakt-express-
jónistar eins og Wols, Götz og Sond-
erborg hefðu ekki öðlast jafnmikla
frægð og Pollock eða Soulages
hefðu þeir haft jafnöflugar menn-
ingarkanónur á bak við sig eins og
hinir amerísku og frönsku starfs-
bræður þeirra.
Af þessum, og eflaust fleiri, or-
sökum hafa ýmsar hræringar í
þýskri myndlist farið fyrir ofan
garð og neðan hjá öðrum þjóðum,
þar á meðal ZERO hópurinn svo-
nefndi (1957-64), en einn angi hans
gerði þó aðeins vart við sig hér á
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
íslandi í verkum Diters Rot.
ZERO-menn, sem raunar áttu sér
skoðanabræður í Frakklandi
(G.R.A.V.), Hollandi (N.U.L.) og ít-
alíu (Gruppo N), voru nokkurs
konar listrænir tæknikratar, vildu
virkja nýjustu tækni og vísindi í
þágu listarinnar og gerðu sér far
um að vinna af vísindalegri ná-
kvæmni.
Frá nöglum til birtu
ZERO hreyfingunni var stjómaö
af þrístiminu Otto Piene, Heinz
Mack og Gunther Uecker, sem aflir
em enn að starfi, en hafa kannski
ekki haft erindi sem erfiði eftir að
ZERO lagði formlega upp laupana.
Uecker er þekktastur fyrir lág-
myndir þær sem hann barði saman
úr nöglum en í seinni tíð hefur
hann í síauknum mæli snúið sér
aö því að virkja rafmagnsbirtu í
verkum sínum.
Það er kannski helst birtan sem
tengir saman þessa eldri ZERO
kúnst Ueckers og myndröðina frá
Vatnajökli sem sýnd er í austursal
Kjarvalsstaða um þessar mundir.
Þessi myndröð er þannig til kom-
in að í ágúst 1985 geröi Uecker sér
ferð hingað til lands, ásamt ljós-
myndaranum Rolf Schroeter, í
þeim rómantíska tilgangi að kynna
sér leyndardóma Vatnajökuls og
gera sér mat úr þeim með ein-
hverjum hætti.
Eftir myndum að dæma hefur
Uecker tekið þennan leiöangur
nuög alvarlega, að minnsta kosti
hefur hann klætt sig upp eins og
Arabíu-Lárus á yfirreið um Sahara.
í samspili
Út úr þessu ferðalagi kom svo
fjöld vatnslitamynda og ljósmynda,
sem ásamt ljóðrænum texta Uec-
kers mynda uppistöðu smekklegr-
ar bókar, svo og sýningarinnar að
Kjarvalsstöðum.
Vatnslitamyndir Ueckers, smáar
í sniðum, hafa fremur hugmynda-
legt gildi en sjónrænt.
Listamaðurinn skrásetur ekki
staðhætti heldur festir á pappír fláa
íjallanna, teikninguna í snjórákun-
um, hrypjandi hraundranganna,
og umfram allt, birtuna.
Meðfylgjandi texti Ueckers er
uppfullur af tilvísunum í blæbrigði
birtunnar: „brennandi sólarljós“,
„lithvörf hvikuls ljóssins", „blik-
andi ljósleiftur", „skerandi silfur-
ljós“, „hvít víðátta“.
Það er kannski fyrst og fremst
samspfl texta Ueckers og vatnslita-
mynda annars vegar og ljósmynda
Schroeters hins vegar, sem gefur
þessu fyrirtæki gildi, því einir og
sér vega þessir þættir tæplega nógu
þungt á listrænni vogarskál.
-ai
Ein af vatnslitamyndum Ueckers.