Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. 3 Fréttir Ragnarsbakarí í Keflavík selt Björgvin Víglundssyni: „Olafur Ragnar mætti vissulega hrópa húrrau „Þaö hljóta að teljast jákvæðar fréttir að það er búiö að selja Ragn- arsbakarí og Ólafur Ragnar mætti vissulega hrópa húrra yfir að heyra svona jákvæða frétt úr þjóðlífinu," sagði Ármann Reynisson í Ávöxtun sf„ en hann segist vilja gagnrýna neikvæða umfjöllun formanns Al- þýðubandalagsins um fjárfestingar- félögin að undanfornu. Á sunnudag- inn seldu Armann og Pétur Björns- son Björgvin Víglundssyni verk- fræðingi Ragnarsbakarí. Sagði Ár- mann að samningar við Björgvin hefðu staöið yfir um tíma en gengið hefði verið endanlega frá sölunni á sunnudaginn. „Við keyptum bakaríið 4. desember síðastliðinn og höfum síðan unnið við að koma rekstri þess á réttan kjöl. Við erum ánægðir meö árangur af starfi okkar en þessi sala léttir vissulega af manni mikili vinnu.“ Ármann sagði að tvær ástæður væru fyrir sölunni: í fyrsta lagi hefði aldr- ei veriö ætlunin að eiga fyrirtækiö lengur en í eitt ár og í öðru lagi þá stæði fyrir dyrum lagasetning á veg- um viöskiptaráðuneytisins sem bannaði verðbréfasjóðunum að eiga fyrirtæki sem þeir ættu viðskipti við. Sagöi Ármann að í undirbúningi væri sala á hlut þeirra Péturs í Kjöt- miðstöðinni en þeir munu eiga 45% í því fyrirtæki. Þá hefði Veitingamað- urinn verið seldur í apríl. Þeir Ármann og Pétur eiga krist- alsverslun Hjartar Nielsen hf. og smáhlut í smærri fyrirtækjum. Þeir eiga einnig Ávöxtun sf„ sem rekur tvo verðbréfasjóði sem samtals velta um 400 milljónum kr.. Ávöxtunar- bréf sem er meö um 350 milljónir bak við sig og Rekstrarbréf sem er með um 30 milljónir. Þá er fyrirtækið með rekstrarsjóð sem kaupir lítil fyrir- tæki og endurleigir þau þriðja aðila. Er sú starfsemi á kaupleiguformi, að sögn Ármanns. -SMJ Björgvin Víglundsson: „Ragnars- bakarí var keypt á fullu verði“ „Ég vil ekkert segja um kaup- verð á Ragnarsbakaríi enda segja tölur ekki allt. Ég get þó fullyrt að Ragnarsbakarí var keypt á fullu verði en ekkert fram yfir það,“ sagði Björgvin Víglundsson verkfræöingur sem nú hefur keypt Ragnarsbakarí í Keflavík. Þetta er annað fyrirtækið sem Björgvin kaupir á árinu því í vet- ur keypti hann byggingarfyrir- tækið Álviðru. Björgvin sagði að fleiri aðilar væru með honum í þessum við- skiptum þótt hann vildi ekki nafngreina þá aö svo stöddu. Um væri að ræða þrjá aðila, einstakl- inga og fyrirtæki. Væri í undir- búningi stofnun hlutafélags um reksturinn. Að sögn Björgvins þá munu flestir starfsmenn fyrirtækisins halda sínu starfi en nú eru um 60 manns á launaskrá þótt sumir séu í hlutastarfi. Sagði Björgvin að skipt verði um stjórnendur fyrirtækisins þótt ekki hefði ver- ið gengið frá neinum ráðningum í því sambandi. -SMJ Fíkniefnasmygl: Úrskurðað- ur í gæslu- varðhald Fíkniefnadeild lögreglunnar hand- tók á Keflavíkurflugvelli mann sem reyndi að smygla fíkniefnum til landsins. í fórum mannsins fundust 800 grömm af hassi og lítils háttar af kókaíni. Maðurinn var úrskurðað- ur í viku gæsluvarðhald. Hann var að koma frá Amsterdam. Maðurinn hefur ekki komið við sögu fíkniefnalögreglunnar í langan tíma. -sme Haraldur í Hæstarétt Haraldur Henrýsson, sakadómari og forseti Slysavarnafélagsins, hefur verið settur hæstaréttardómari í tveggja mánaða leyfi Þórs Vilhjálms- sonar hæstaréttardómara. Haraldur mun hefja störf hjá Hæstarétti um næstu mánaðamót. -sme SERTILBOÐ ! Nordmende upptöku- og afspilunarvélin, fyrir VHS-C spólur, sem passa í venjuleg VHS heimatæki Aðeins grelðslukjör tll allt að 12 mán. Aðeins 1300 gr (með rafhlöðu) HQ myndgæði (High Quality) Aðeins 10 lúx (kertaljós í 25 cm fjarl.) 430 línu upplausn Sjálfvirk lit-, ljós og „fókus“-stilling Dags- og tímainnsetning 14 stillingaratriði sjást í myndkíki Tekur VHS-C spólur (fyrir VHS heimatæki) Mynd- og hljóðdeyfir (fader) Sexfalt-tveggja hraða súm CCD örtölvu myndkubbur Fljótandi kristals-stjómskjár 4 lokarahraðar i/6o, 1/250, 1/500 og 1/1000 Hægt að skoða upptöku strax Ýmsir fylgihlutir o. fl. o. fl. Alm. verð: stgr Almenntverð: 84.000,- NORDMENDE NYTSÖM NUTIMATÆKI- SKIPHOLT119 SIMI29800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.