Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. Viðskipti dv Christian Roth, forstjóri ísal: Mannlvfið breyst mikið frá því ég vann hér fýrir um tíu árum Christian Roth, forstjóri ísal, er mættur til leiks í Straumsvík. Hann var tæknilegur framkvæmdastjóri verksmiðjunn- ar á árunum 1977 til 1979. Hann er Bæjari og doktor i eðlisfræði. DV-mynd KAE Þjóðverjinn doktor Christian Roth, hinn nýi forstjóri ísal, er mættur tií leiks aftur í Straumsvík. Christian var tæknilegur framkvæmdastjóri álverksmiðjunnar í Straumsvík á árunum 1977 til 1979. Hingað kemur hann frá Þýskalandi þar sem hann hefur veriö forstjóri álversins í Ess- en. Vorum mjög ánægð á íslandi „Við vorum alla tíð mjög ánægð á íslandi og hér eigum við hjónin nokkra vini,“ segir Christian. Hann kom til landsins 9. ágúst síðastliðinn til að taka við starfi forstjóra ísal af Ragnari Halldórssyni, fyrrum for- stjóra, sem nú er orðinn stjórnar- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Sparisjóósbækurób. 25-26 Sparireikningar 3jamán. uppsögn 24-28 Sp.Ab,- Sb 6mán. uppsögn 26-30 Sp.Ab,- Sb.Vb 12mán. uppsögn 26-33 Úb.Ab 18mán. uppsögn 39 Ib Tékkareikningar, alm. 9-15 Ib.S- b,Ab Sértékkareikningar 10-28 Vb.Ab Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 4 Allir 20-36 Lb.Bb,- Sp Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7-7,25 Úb.Bb,- Ib.V- b.S- b.Ab Sterlingspund 9-9,75 Lb,Ab Vestur-þýskmörk 3,75-4,25 Vb.Sb,- Ab.Úb Danskarkrónur 7,25-8,50 Vb.Ab, ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 38,5-39 Sp Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 41 Allir Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 41 -42 Ib, Bb.Sp Utlán verðtryggð . Skuldabréf '9,25-9,50 lb,Vb Utlán til framleiðslu isl. krónur 36-41 Úb SDR 8,50-9,25 Lb.Úb,- Sp.Bb Bandarikjadalir 9,75-10,50 Úb.Sp Sterlingspund 12-12,75 Úb.Sp, Vestur-þýsk mork 5,25-7,25 Úb Húsnæðislán 3,5 Lifeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 56,4 4.7 ó mán. MEÐALVEXTIR óverðtr. júlí 88 38,2 Verötr. júlí 88 9,5 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala ágúst 2217 stig Byggingavisitalaágúst 396 stig Byggingavisitala ágúst 123,9 stig Húsaleiguvisitala Hækkaói8%1.júlí. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða Avöxtunarbréf 1,7526 Einingabréf 1 3,218 Einingabréf 2 1.848 Einingabréf 3 2,055 Fjölþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,502 Kjarabréf 3,193 Lífeyrisbréf 1.618 Markbréf 1,673 Sjóðsbréf 1 1,555 Sjóðsbréf 2 1,379 Tekjubréf 1,533 Rekstrarbréf 1,2718 HLUTABRÉF Söluverð að lokinrli jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 115 kr. Eimskip 269 kr. Flugleiðir 240 kr. Hampiðjan 116 kr. Iðnaðarbankinn 168 kr. Skagstrendingur hf. 158 kr. Verslunarbankinn 120 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 123 kr. Tollvörugeymslan hf. 100 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavixla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. formaður verksmiðjunnar. Að sögn Christian hefur margt breyst á íslandi á síðasthðnum tíu árum. „Það hefur verið byggt gífur- lega mikið af nýjum húsum, það eru komnar nýjar götur víða og þá tek ég eftir því hve bílum hefur fjölgaö, enda er farið að bera á talsverðum umferðarþunga á fjölfórnustu götun- um.“ Hinn nýi forstjóri Isal er mikill náttúruunnandi ogfuglaskoðari. „Ég er samt auðvitað fyrst og fremst kominn til að reka og stjóma þessari verksmiðju," segir hann kíminn. Einstakt fuglalíf á Reykjanesskaga í frítímum sínum fyrir tíu árum fór Christian oft í skoðunarferðir um Reykjanesskagann. „Það er einstakt fuglalíf í björgunum á Reykjanes- skaga og vil ég sérstaklega nefna svæðið í kringum Hafnarberg." Auk þess að fara í gönguferðir um Reykjanesskagann gerir Roth nokk- uð af því að tína sveppi. Hann tínir eingöngu birkisveppina svonefndu sem kallast víst kúalubbar á eldra máli. Um útlit efnahagsmála á íslandi og rekstur álverksmiðjunnar í Straumsvík segist Roth ekki vilja tjá sig að sinni, enda sé stutt síðan hann kom til landsins. Markaðurinn fyrir ál mjög góður „En almennt talað er markaöurinn fyrir ál mjög góður og margir búast við að góðæriö í áiheiminum haldist út allt næsta ár. Það er mikil eftir- spurn eftir áli.“ Christian er fæddur áriö 1938 í Munchen. Hann er því Bæjari. Hann hefur unnið hjá Alusuisse síðastliðin tuttugu ár. -JGH Fátt kemur í veg fyrir að Gunnar Ragnars fái stólinn Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri og forseti bæjar- stjórnar Akureyrar. Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir að hann verði ráðinn forstjóri ÚA i stað Gísla Konráðssonar. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Gunnar Ragnars, forstjóri Slipp- stöövarinnar á Akureyri og forseti bæjarstjómar Akureyrar, verði ráöinn forstjóri Útgerðarfélags Ak- ureyringa hf. í stað Gísla Konráös- sonar, sem hættir í byrjun næsta árs fyrir aldurs sakir. Fréttaljós Jón G. Hauksson Stjórnarfundur í næstu viku „Það verður stjómarfundur hjá okkur í næstu viku og á honum verður líklegast ráðið í stöðuna. Við eram að vinna í málinu og fara yfir umsóknimar, leita að þeim hæfasta," segir Sverrir Leósson, formaður stjórnar Útgerðarfélags Akureyringa. Um það hvort Gunnar Ragnars sé sá hæfasti og verði ráðinn for- stjóri ÚA, þessa risafyrirtækis í sjávarútvegi íslendinga, vill Sverr- ir ekki tjá sig um. „Við lítum fyrst og fremst faglega á þetta mál og leitum að hæfasta manninum. Gunnar er hæfur maö- ur með áratuga reynslu af stjórnun stórfyrirtækis sem er Slippstöðin á Akureyri,“ segir Sverrir. Þau eru í stjórn ÚA Sfjóm Útgerðarfélags Akur- eyringa hf. er þannig skipuð: Sverrir Leósson formaður og Halldór Jónsson, báðir tilnefndir af Sjálfstæðistlokknum, Þóra Hjaltadóttir varaformaður og Sig- urður Jóhannesson, tilnefnd af Framsóknarflokknum, og loks Pét- ur Bjamason, tilnefndur af Al- þýðuflokknum. Fjórtán sóttu um stöðuna Alls sóttu fjórtán manns um stöð- una, þar af óskuöu sjö þeirra nafn- leyndar, en hinir sjö eru Ásgeir Arngrímsson, skrifstofumaður hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, Elvar Einarsson, starfsmaður hjá KASK á Höfn í Hornafirði, Finnbogi Al- freðsson, forstöðumaður Fram- leiðni í Reykjavík, .Guðmundur Reykjabn, framkvæmdastjóri Apó- tekarafélags íslands, Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinn- ar á Akureyri, Halldór Ámason, framkvæmdastjóri Ríkismats sjáv- arafurða, og Róbert Guðfmnsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma á Siglufirði. Þá hefur DV heimild fyrir því að einn þeirra sem óska nafnleyndar .sé Jens Eysteinsson, markaðssér- fræðingur hjá Coldwater í Banda- ríkjunum. Hann er sagður mjög hæfur maöur. Hvers vegna sækir Gunnar um? Margir á Akureyri hafa velt því mjög fyrir sér hvers vegna Gunnar Ragnars, forstjóri Slippfélagsins á Akureyri og forseti bæjarstjómar á Akureyri, sæki um starfið þar sem hann sé í mjög góðu starfi. Vert er að vekja athygli á að Sverrir Leósson, formaður stjórnar ÚA, hefur sagt í fjölmiðlum að sá sem verði ráðinn þurfi að segja af sér öllum meiri háttar trúnaðar- störfum annars staðar og sinna fyrst og fremst forstjórastöðu ÚA. Þetta þýðir að ef Gunnar verður ráðinn mun hann segja af sér sem forseti bæjarstjórnar á Akureyri og líklegast sem bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins líka. Gunnar oddviti sjálfstæðismanna Gunnar er oddviti sjálfstæðis- manna á Akureyri. Hann skipaði efsta sætið á lista flokksins í síð- ustu bæjarstjórnarkosningum. Út- Ut er þess vegna núna fyrir því að Akureyrarbær eignist nýjan for- seta bæjarstjórnar. Gunnar hefUr verið forstjóri Slippfélagsins á Akureyri síöastlið- in tuttugu ár. Það er fyrirtæki með hundruð starfsmanna. Gunnar er viðskiptafræðingur að mennt. Ljóst er aö Gunnar er svo sterkur umsækjandi, bæði með tilliti til for- stjórastarfs síns hjá Slippstöðinni og eins sem forseti bæjarstjórnar- innar, að sá sem ætlar að hafa bet- ur í baráttunni um stöðuna, verður að vera gífurlega sterkur. Sá um- sækjandi sést ekki á augabragði. Þetta segir Gunnar sjálfur um umsókn sína En hvers vegna sækir Gunnar Ragnars um forstjórastöðuna í ÚA? Sjálfur hefur hann þetta að segja við DV: „Ég er búinn aö vera í bráð- um tuttugu ár hjá Slippstöðinni og hef einfaldlega áhuga á að skipta um starf, breyta til. Utgerðarfélagið er jafnframt mjög áhugavert fyrir- tæki.“ • - En er Gunnar tilbúinn til að segja af sér sem forseti bæjar- stjórnar og bæjarfulltrúi á Akur- eyri. „Ég gerði það upp við mig þegar ég sótti um að til þess gæti komið.“ Verður stjórn ÚA einhuga? Telja verður líklegt að stjórn ÚA vilji koma sterk út á við í ráðningu nýs forstjóra og ekki sýna annað en samhug um hann. En allt getur gerst. Pólitík gæti verið sett á odd- inn og hennar vegna gætu myndast mismunandi fylkingar innan stjórnar Útgerðarfélagsins um nýj- an forstjóra. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.