Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988.
11
Útlönd
George Bush, forsetaframbjóðandi repúblikana
Frambjóðandi í
leit að ímynd
Þótt George Bush, forsetafram-
bjóðandi repúblikana, hafi gegnt
mörgum veigamiklum embættum, er
hann kjósendum að mörgu leyti sem
óskrifað blað. Öllum þeim störfum
sem hann hefur tekið að sér hefur
hann skilað með miklum ágætum.
Þótt hann hafi oft verið umdeildur,
hefur hann ekki verið orðaður við
neitt sem fellt gæti skugga á framboö
hans. Störf hans hafa hins vegar ver-
ið þess eðlis aö persóna hans og jafn-
vel stefna hafa legið í láginni, eru
ekki þekktar stærðir.
George Bush hefur eiginlega aldrei
verið kjörinn til starfa. Honum mis-
tókst í fyrstu tilraun sinni til að kom-
ast á þing þegar hann tapaöi í bar-
áttu viö demókrata um sæti í full-
trúadeildinni árið 1964. Tveim árum
síðar náði hann kjöri í öðru kjör-
dæmi og sat á þingi í fjögur ár. Þá
bauð hann sig fram til öldungadeild-
arinnar, en tapaði enn, í það skiptið
fyrir Lloyd Bentsen, sem nú er vara-
forsetaefni demókrata.
Árið 1971 skipaði Nixon, þáverandi
forseti, Bush sendiherra viö Samein-
uðu þjóðirnar. Tveim árum síöar tók
hann við forsæti í flokksráði repú-
blikanaflokksins og gegndi því emb-
ætti meöan á Watergate-hneykslinu
stóð.
Gerald Ford, arftaki Nixons, sendi
Bush síöan til Kína, þar sem hann
veitti sendinefnd Bandaríkjanna for-
ystu. Þegar Bush sneri aftur heim
var hann skipaður forstjóri banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA, sem
hann þurfti að endurreisa eftir mikil
áfóll vegna hneykslismála og þing-
rannsóknar á störfum hennar.
Árið 1980 gerði Bush tilraun til að
verða forsetaefni repúblikana, en
varð að lúta í lægra haldi fyrir Reag-
an.
Öll störf Bush, að varaforsetaemb-
ættinu meðtöldu, hafa verið bak-
grunnsstörf fremur en hlutverk sem
ýttu honum fram í sviðsljósið. Und-
anfarin átta ár hefur hann staðið í
skugganum af Reagan forseta og
hvorki getað né mátt halda fram eig-
in stefnu eða persónu.
ímynd hans meðal kjósenda í
Bandaríkjunum er því loðin. Það var
ekki fyrr en hann hélt ræðu sína á
þingi repúblikanaflokksins, þar sem
hann veitti viötöku útnefningu sem
forsetaefni flokksins, að hann leyst-
ist úr læðingi og gat farið að skapa
sér ímynd.
George Bush hefur nú tvo mánuði
til aö kynna kjósendum hver hann
er, hver stefna hans er og hvert hann
ætlar Bandaríkjunum að stefna
næstu fjögur árin, verði hann kjör-
inn forseti.
Óþekktur og
umdeildur
Val George Bush, forsetaefnis
repúblikana, á varaforsetaefni kom
mörgum verulega á óvart. Bush
átti þess kost að velja úr hópi
márgra þekktra og hæfra stjórn-
málamanna, sem hefðu getað
styrkt framboð hans verulega.
Hann kaus hins vegar lítt þekktan
öldungadeildarþingmann frá Indi-
ana, Danforth Quayle, sem virðist
ekki líklegur til aö styrkja framboð
Bush. Þvert á móti virðist Quayle
líklegri til að skaða forsetaefnið.
Quayle hefur setið í öldungadeild
bandaríska þingsins síðan 1980.
Hann sigraði þá Birch E. Bayh með
litlum mun, hlaut fimmtíu og fjög-
ur prósent atkvæða, en Bay fjöru-
tíu og sex.
Quayle hefur sinnt öldungadeild-
arþingmennsku sinni með ágæt-
um. Hann hefur átt sæti í ýmsum
mikilvægum nefndum, meðal ann-
ars varnarmálanefnd og nefnd sem
fjallar um kjamorukuvígbúnað.
Hann hefur ennfremur verið virk-
ur í mörgu sem lýtur að umhverfis-
málum, fjölskyldumálum, fíkni-
efnamálum, menntamálum, listum
og öðrum félagsmálum.
Bandarískir fjölmiðlar minnast
þó þessara starfa hans ekki í dag.
Þeir einbeita sér þess í stað að
máli sem skotið hefur upp kollin-
um í hvert sinn sem Quayle hefur
boðið sig fram, en það er þjónusta
hans í þjóðvarðliöi Indiana meðan
á Vietnamstríðinu stóð. Quayle
segist sjálfur hafa kosið þjóðvarð-
höið, til þess að geta haldið áfram
laganámi sínu, en andstæöingar
hans telja hann hafa skriðið í skjól
þar til að komast hjá því að berjast
í Vietnam. Halda þeir því fram að
Quayle hafi beitt fyrir sig áhrifum
ættmenna og vina til að komast hjá
almennri herþjónustu, en sjálfur
segir þingmaðurinn einungis að
engar reglur hafí verið brotnar af
sinni hálfu.
Ólíklegt vérður að teljast að ásak-
anir þessar muni hafa mikil áhrif
í forsetakosningunum í nóvember.
Þær verða væntanlega gleymdar
og grafnar þá. Hins vegar hafa þær
komið af stað athugunum á kjörum
og athöfnum Quayle sem gætu orð-
ið óþægilegar. Ýmislegt er dregið
fram í dagsljósið, sem þægilegra er
að liggi kyrrt, svo sem fremur slæ-
leg frammistaða varaforsetaefnis-
ins í skóla.
Telja verður líklegt að Bush hafi
ætlað Quayle aö færa framboðinu
æskuljóma og ferskleika. Svo gæti
þó farið að Quayle yrði að nota tím-
ann fram að kosningum að mestu
til að veija hendur sínar og gæti
því unnið forsetaefninu takmarkað
gagn.
Bush segist sjálfur sannfæröur
um að Quayle sé sá sem hæfastur
sé til að gegna varaforsetaembætt-
inu. Bendir hann þar sérstaklega
til þekkingar öldungadeildarþing-
mannsins á varnarmálum.
Að sjálfsögðu verður Bush að
standa að baki þess sem hann hefur
valið, því skipti hann um með-
frambjóðanda yrði það líklega
dauðadómur fyrir framboð hans.
Dan Quayle, varaforsetaefni repúblikana.
Vinningstölurnar 20. ágúst 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 3.807.289,-
1. vinningur var kr. 1.907.557,- Aðeins einn þátttakandi var með
5 réttar tölur.
2. vinningur var kr. 571.332,- og skiptist hann á 188 vinnings-
hafa, kr. 3.039,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.328.400,- og skiptist á 5400 vinningshafa
sem fá 246 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
ULLEnUULLENUUrr MILMLANI MJN
SPORTBÍLL OG SPÍTTBÁTUR
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111