Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. 15 Niðurfærslan „Gárungarnir hafa mjög vitnað til tannlækninga í þessu sambandi þar sem tannlæknirinn beitir bornum af kaldri ró og yfirvegun þótt sjúklingur- inn emji og skræki í stólnum, enda ber læknirinn eingöngu framtíðar- hamingju sjúklingsins fyrir brjósti," segir greinarhöfundur m.a. Allar efnahagsaðgerðir hafa til- hneigingu til þess að kosta ein- hvem eitthvað, eða bitna á ein- hverjum, eins og sagt er. Þess vegna er fyrsta efnahagsaðgerð allra ríkisstjórna að gera engar efnahagsaðgerðir því að vinsæld- irnar skipta alla stjómmálamenn mestu máh. „Það lafir meðan ég lifi,“ sagði einhver Lúðvíkinn í Frakklandi og var þá ekki veriö að hugsa um það hvort afkomendum- ir lentu undir fallöxinni. Köld skynsemi Önnur regla stjórnmálanna er að halda höfðinu köldu þótt hjartað hamist af ástríðu. Köld skynsemin og markviss beiting vitsmuna til lausnar vandamálinu leiðir aUtaf af sér bestu lausnina og mestar vin- sældir í stjórnmálum til lengdar. Gárangamir hafa mjög vitnað til tannlækninga i þessu sambandi, þar sem tannlæknirinn beitir born- um af kaldri ró og yfirvegun þótt sjúkUngurinn emji og skræki í stólnum, enda ber læknirinn ein- göngu framtíðarhamingju sjúkl- ingsins fyrir brjósti. Leikræn út- Ustun á þessu frekar er þegar tann- læknirinn rótskefur sína heittelsk- uðu með hæggenga bomum til þess að þau geti lifaö hamingjusömu lífi aUtaf, síðan um alla framtíð. í upphafi skal endirinn skoða Þriðja stórmottó aUra efnahags- aðgerða er að sjá aðgerðina algjör- lega tU enda. Aðgerð, sem þarf að hætta við, er einfaldlega misheppn- uð aðgerð. Betur heima setið en af stað farið. Sérstaklega falUn til óvinsælda, því að af öUu því undur- samlega sem gerir stjórnmála- menn vinsæla er nánast ekkert eins klökkt og það að átrúnaðar- goðið í ráðuneytinu sé vingull. Slík manngerð getur verið ágæt í revíu eða sem hirðfífl á stórum vinnustað en sem forustumaður í stjórn- málum passar hún ekki. Sælir eru hógværir Að lokum má svo benda á hið pólitíska mikUvægi efnahagsað- gerða, að þær séu einfaldar, venju- legar og yfirlætislausar þannig að enginn geti sagt að honum hafi dottið þær í hug og hirúr séu svo KjaUarinn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur heimskir að þeir skilji þær ekki eða hafi ekki verið menn til þess að leggja þær til. „Skilst fyrr en skell- ur í tönnum,“ segir máltækið og í hinu eilífa vinsældakapphlaupi sfjórnmálanna er viðbúið að menn fái ekki einir að hlaða á sig vin- sældum með frumlegum aðgerðum og eftirtektarverðum. Yfirlætis- leysið og samheldnin er því aðall góðra efnahagsaðgerða, þá er að- gerðin næstum því orðin eins góð og engin efnahagsaðgerð, sem eng- inn getur eignað sér og allir eru sammála um að sé mjög gott að- gerðaleysi. Hálf niðurfærsla - upp Fáum blandast hugur um það núna að efnahagsaðgerða er þörf. í fræðsluþætti um efnahagsmál í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum skýrði Asmundur Stefánsson, for- seti ASÍ, aðgerðir í stöðunni, að þær væru annaðhvort uppfærsla, niðurfærsla eða út á hlið. Þá segja fréttir okkur að enn ný aðgerð sé í sjónmáli, þ.e. hálf niðurfærsla - upp. Uppfærsla sé venjuleg gengis- fellingarleið með frystingu launa, afnámi verkfalla og gengisauka- sjóði til hjálpar bágstöddum, niður- færslan sé „a la Emilía" 1959 og hálf niðurfærsla - upp sé eitthvað sem Þjóðhagsstofnun hafi kokkað saman til þess að Ásmundur geti verið endurkjörinn með lófaklappi sem forseti ASÍ á þingi samtakanna í haust og vissi þó enginn að nokk- ur hætta steðjaði að honum. Hlið- araðgerðin felst í millifærsluleið, fjármagnaöri af Seðlabanka og lendir í verðbólgu. Drullupollaleikur á fjöllum í sjálfu sér eru allir Islendingar orðnir hundleiðir á uppfærsluleið- inni. Þetta séríslenska fyrirbrigði, sem á sér þó alls staðar hliðstæðu, byggir á loforðaflaumi stjómmála- manna sem létu aldrei fylgja hvað hlutirnir kostuðu. Síðan hefur ver- ið fariö á bakið á þjóðinni með verðbólgu og gengisfellingar og hún skattlögð á þennan hátt. Reiknað hefur verið út að þessi verðbólguskattlagning hafi kostað okkur um 3% af þjóðarframleiðsl- unni á ári undanfarna áratugi. Auðvitað er þetta sérstakt kerfi í sjálfu sér og afsökunin er sú fátækt sem þjóðin bjó við allt fram á þessa öld, þegar nánast allt hefur verið gert. Það sem er þó mjög slæmt fyrir þetta kerfl er hvað verðbólgan sjálf slævir verðmætaskyn þjóðar- innar, sem aftur orsakar virðingar- leysi fyrir flármunum. Eigin flár- magni þjóðarinnar er kastað í ein- hverja vitleysu, allt frá atkvæða- kaupum út og suður, kallað byggðastefna við hátíðleg tækifæri, upp í drullupollaleiki á flöllum uppi, kallað virkjanir fyrir stóriðju, en það gleymdist bara að selja stór- iðjuna, svo að leikaraskapurinn, vextirnir og orkuverðið lenti á þjóðinni. Öll þessi uppfærsluleið er svo talin hafa kostað okkur um 40% þjóðartekna á nokkurra áratuga bili. Eða eins og máltækið segir: Það er dýrt að vera fátækur. Niðurfærslan rotar verðbólguna Niðurfærslan hefur þrátt fyrir allt þá stóru kosti að vandinn er skilgreindur, viðurkenndur og ráð- ist beint að honum. Bor tannlækn- isins ratar beint í skemmdina en þvælist ekki um allar heilbrigðu tennurnar líka. Vel heppnuð niður- færsia rotar verðbólguna í einu höggi. Vextir lækka, nafnvextir eru þannig áætlaðir niður i um 13% í desember og raunvextir þá um 2% lægri en nú. Greiöslubyrði ein- staklinga og fyrirtækja stórminnk- ar því um leið. Allt verðlag lækkar einnig um 4% en gengið helst fast. Staðið er því við fastgengisstefn- una. Full atvinna er tryggð og hag- vöxtur nær sér aftur á strik. í des- ember er svo áætlað aö verðbólgan verði komin niður í um 7-8%. Elli- lífeyrir verður óskertur og kaup- máttur hans eykst því mikið. Lögin verða svo afnumin um mitt næsta ár. Niðurfærslan er tekjujöfnun Auðvitað er það viðbúið að spurt verði af hverju hinir lægst launuðu eiga að fórna tveimur þúsundum á mánuði meðan hinir hæst launuðu fórna tugþúsundum. Venjulega er þetta öfugt í -samningum. Meðan Guömundur J. og félagar eru að reyna að þoka hinum lægst laun- uðu smávegis upp bíða hinir hæst- launuðu átekta og neyta svo afls- munar og fá margfalt. Svarið er auðvitað ofureinfalt. Niðurfærslan veröur einnig tekjujöfnunarað- gerð. Þjóðartekjur íslendinga eru nú áætlaðar um 22 þúsund dollara á mann þetta áriö. Eina ferðina enn erum við með tekjuhæstu þjóðum veraldar. Þaö væri því hreinn aum- ingjaskapur ef við gætum ekki tek- ið á okkur smátekjujöfnun um leið og við göngum endanlega frá verð- bólgunni. Slíkra aðgerða mun verða minnst sem einnar þeirra farsælustu sem lýðveldið unga i norðri bar gæfu til aö stíga um alla framtíð. Guðlaugur Tryggvi Karlsson „Niðurfærslan hefur þrátt fyrir allt þá stóru kosti að vandinn er skilgreindur, viðurkenndur og ráðist beint að hon- um.“ Skiptár mannlegi þátturinn engu máli lengur? „Gera stjórnmálamenn sér yfirleitt grein fyrir uppruna sínum, fyrir hverja þeir hafa lofað að berjast, hvaða hug- myndafræði þeir leggja til grundvallar pólitískri baráttu?“ Á göngu minni upp Laugaveg fyfir nokkru vatt sér að mér maður á miöjum aldri og tók mig tali. Ekki þekkti ég þennan mann en það sem hann haíði framað færa hefur ver- ið mér nokkuð ofarlega í huga síð- an. Manninum fórust orð eitthvað í þessa veru: - Ég hef oftsinnis haft nokkuð fyrir því - þegar ég hef þurft að gera upp hug minn hvaða flokk ég á að kjósa - að reyna að átta mig á framkomu og á hvern hátt mannlegum samskiptum er varið hjá þeim sem í framboði eru fyrir hina ýmsu flokka. Það hefur t.a.m. setið í mér um langan aldur, frá því að ég var að alast upp vest- ur á fjörðum, hverja reynslu ég upplifði sem unglingur einmitt með tilliti til þess sem að framan grein- ir. Þannig var málum háttað að allt mitt fólk var fylgjandi einum ákveðnum stjórnmálaflokki. Á mínu heimili var sá skilningur ríkj- andi að þessi flokkur væri sverð og skjöldur þeirra sem minna máttu sín í þjóðfélaginu og forystu- menn flokksins því „okkar menn“, KjaUarirtn Karvel Pálmason alþingismaður málsvararnir, þ.e. þeir sem vildu rétta okkar hlut til betra hfs. Ejöl- skylda mín var flölmenn og bjó við þröngan kost. Skemmtiferð Eitt sinn bar svo við að flokkur okkar auglýsti í gluggum kaup- félagsins að fyrirhuguð væri skemmtiferð til nærliggjandi byggðarlags fyrir stuðningsmenn flokksins. Það var töluverður æv- intýrablær yflr þessari ferð, fara átti með „rútu“ sem þá var nýtt fyrirbrigði. Ég og bróðir minn, báð- ir um fermingaraldur, sáum þessa auglýsingu og ævintýraþráin sagði til sín. Þarna var sem sagt í uppsigl- ingu tækifæri til að ferðast og þeir sem stóðu fyrir ferðinni voru þeir sem sögðust vera að berjast fyrir þá sem ekki höfðu úr miklu að spila. Við bræður hófum síðan markvissa fláröflun til þess að geta greitt fargjaldið - að mig minnir 50 aura. Þetta tókst með samræmdum aðgerðum, við „stokkuðum upp“ og seldum blöð og fengum leyfi for- eldranna til fararinnar. Svo rann upp langþráður dagur, ferðin skyldi hafin. Fólk safnaðist saman til brottfarar og tilhlökkun- in var mikil hjá okkur bræðrum. Við „rútuna'1 stóð einn af leið- togum flokksins og tók á móti gjald- inu. Þegar við komum til hans leit hann á okkur, þóttafullur meö valdsmannssvip, og sagði: Hér haf- iö þið ekkert að gera, þið og ykkar líkar fallið ekki inn í þennan hóp. Það vom niðurlútir og vonsvikn- ir ungir drengir sem urðu þarna frá að hverfa. Þeir voru, að þeim fannst, annars flokks manntegund. Við fengum þarna dæmi um það. og það hefur fylgt okkur bræðrum ávallt síðan, að ekki er aílt sem sýnist í heimi hér. Lengri var ekki þessi saga en lærdómsrík var hún fyrir þann sem haft hefur það að ævistarfi að helga sig stjómmálum. Margar spurningar hrannast upp: Gera stjórnmálamenn sér yfirleitt grein fyrir uppruna sínum, fyrir hverja þeir hafa lofað að berjast, hvaða hygmyndafræði þeir leggja til grundvallar pólitískri baráttu? Gleyma stjórnmálamenn þessu öllu þegar þeir komast í þá að- stöðu, fyrir tilstuðlan fólksins, þ.e. að vinna heils hugar að málum sem til heilla horfa umbjóöendum til handa? Margar fleiri spurningar vökn- uðu sem ósvarað verður að sinni. En ef til vill eru stjórnmálamenn orðnir svo „töff" að mannlegi þátt- urinn, sem að okkur snýr, skiptir engu máli lengur. Karvel Pálmason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.