Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988.
Spumingin
Ertu reiðubúin(n) að
greiða vegatoll til
að fá breikkun
Reykjanesbrautar?
Sigrún Björnsdóttir: Já, þaö væri
ágætt að bæta úr ósköpunum.
Helga Birgisdóttir: Já, það færi þó
eftir hversu hár hann yrði. Ef hann
yrði hóflegur þá væri það í lagi.
Einar Bjarnason: Já, það er sjálfsagt
að hafa vegatoll til að fá þetta í gegn.
Sveinbjörg Bergsdóttir: Já, en upp-
hæðin myndi þó skipta máli. Breikk-
unin er sjálfsögð.
Ragnar T. Matthíasson: Já, ég er al-
veg sammála því.
Jóhannes Sigurðsson: Já, en hversu
hár hann yrði myndi þó skipta máh.
Lesendur
Hundahald í Reykjavík
Kona í austurbænum hringdi:
Talsvert hefur verið um það rætt
hvort rétt sé að leyfa hundahald
áfram í Reykjavík og sýnist sitt
hverjum. Sumum finnst sjálfsagt að
leyfa takmarkalaust hundahald
áfram og telja að reynslan hafi verið
svp góð af því.
Ég er í þeim hópi sem vill herða
allar reglur varðandi hundahaldið
þar sem brögð eru að því að fólk fari
ekki eftir settum reglum. Lögin
kveða skýrt á um það að allir hundar
skuli vera í ól. Þó eru mörg svæði
hér innan borgarinnar þar sem
hundar hlaupa um algerlega lausir.
Mér er hreint ekki sama um það þeg-
ar hundar koma flaðrandi upp um
mig þegar maður er í göngutúr i
bænum. Sérstaklega ef það eru ein-
Reykjavik er ekki neinn staður fyrir hunda, segir kona í austurbænum, því
þeir verða að hafa frelsi til að leika sér.
hver stór flikki eins og scháffer-
hundar.
Ég geri mér grein fyrir því að það
er með öllu óframkvæmanlegt að
hafa eitthvert eftirlit með því að fólk
fari að settum reglum, en það verður
bara að eiga sér stað einhver hugar-
farsbreyting í þessu efni. Fólk sem á
hunda verður að læra að taka tillit
til nágrannans og fylgja settum regl-
um.
Auðvitað er landsbyggðin eina eðh-
lega umhverfið fyrir hunda. Þess
vegna sárvorkenni ég hundum sem
lokaðir eru inni mestallan daginn og
geta lítið hreyft sig. Því ætti fólk
einnig að taka það með inn í dæmið
hvað það er að gera hundinum sjálf-
um, því hann er ekki eingöngu til að
skemmta eigandanum.
Rétt stefha í
Þorbjörg telur að straumur fólks út í Viðey muni mjög aukast eftir breyting-
arnar.
Viðey
Þorbjörg hringdi:
Ég má til með að lýsa yfir ánægju
minni með framkvæmdirnar í Viðey,
þar sem ég tel að hárrétt stefna hafi
verið tekin varðandi eyjuna, eftir að
ríkið gaf Reykjavíkurborg stpðinn.
Það að breyta ekki Viðey í eitthvert
safn var viturleg ákvörðun. Þarna
verður stööug matsöluþjónusta sem
mun gera staöinn mun meira lifandi
en ella hefði orðið.
Þessi staður á eftir að verða alger
vin, bæði fyrir útlendinga og íslend-
inga. Þaö hlýtur að vera freistandi
að skreppa í Viðey og fá sér góðan
mat í öðru umhverfi en maður á að
venjast.
Auk þess frétti ég að hestakerra
verði rekin sem gengur um eyjuna,
og það er bráðsniðugt fyrirbaeri sem
eflaust verður mikiö notað. Ég ætla
að vona að vel verði til vandað með
kokka staðarins svo staðurinn muni
öðlast sess sem einn besti matsölu-
staðurinn á Reykjavíkursvæðinu.
Góðar útsölur
Kristján hringdi:
Langi vel hefur þaö verið þann-
ig á íslandi aö útsölur hér á landi
á fatnaði hafa verið frámunalega
lélegar. Þar hefur hjálpast margt
aö, lélegar vörur og verðið hefur
lækkaö tiltölulega lítið. En nú
virðist vera orðin breyting þar
á.Ég heyri fólk alls staðar í kring-
um mig tala um hversu góðar
útsölurnar séu nú. Auk þess hef
ég reynt mikið af því sjálfur og
verið gripinn hálfgerðu kaupæði
vegna þess hve góðar útsölumar
eru.
Ég keypti til dæmis tvennar
buxur og eina skyrtu í verslun-
inni 17 fyrir litið fé á mjög góðri
útsölu. Svipaða sögu má segja ura
margar aörar útsölur. Loksins
kom að því að íslensku útsölum-
ar færu að komast á svipað stig
og gerist í öðrum löndura Evrópu.
Einstök útsala
Guðrún hringdi:
Ég fór um daginn með vinkonu
minni í bæinn þar sem hún ætl-
aði að fara að versla. Við fórum
saman í verslunina Gelli sem er
með útsölu. Ég bjóst ekki við
miklum verðlækkunum en það
var nú öðru nær. Á endanum lab-
baði ég út með þvottavél og 250
lítra isskáp sem samtals kostuöu
ekki nema 61.067 krónur.
Ég var búin aö eiga sama ís-
skápinn í yfir tuttugu ár og aldrei
hafði ég haft efni á að kaupa mér
nýjan, en þessi kostaði aðeins
rúmar 30 þúsund krónur. Al-
mennt kosta kæliskápar 60-80
þúsund krónur. Þaö er ekki á
hveijum degi aö maður kemst á
svona góða útsölu.
Hættið að selja miða
Guðbjörg hringdi:
Bíóferðir eru ákaflega vinsælt
áhugamál margra, og er ég þar engin
undantekning. Það fylgir því
skemmtilegri tilfmning að horfa á
kvikmyndir á breiðtjaldi heldur en
sjónvarpsskjá. Þess vegna fer það
ákaflega í taugamar á mér þegar fólk
kemur of seint í bíó og er vaöandi inn
í salinn allt að 15 mínútum of seint
og skyggir á tjaldið hjá manni.
Það stendur þá oft eins og glópar í
myrkrinu og veit ekkert hvað það á
af sér að gera. Þetta hefur hálfpart-
inn eyðilagt fyrir manni heilu mynd-
imar, eins og til dæmis Krókódíla
Dundee II þar sem maður missti
meira og minna af fyrsta korterinu
vegna þessa ósiðar. Ég fer fram á það
Guðbjörg lenti i því á myndinni Krókódíla Dundee II að áhorfendur sem
komu seint eyðilögðu fyrir henni fyrri hluta myndarinnar.
við bíóyfirvöld að þau hætti að selja
miða á myndirnar eftir að sýning
þeirra er hafin. Þó er ég hálf vonlaus
um aö það mál nái fram að ganga
þar eð gróðasjónarmið ráða þarna
örugglega ferðinni.
Viðeyjarhneykslið
Gísli skrifar:
Þá em þeir búnir aö taka í gagnið
öll herlegheitin í Viðey. Nágranni
minn sagði að viðgerðin á húsunum
þar heföi kostað borgina 150 milljón-
ir og eru þó ekki öll kurl komin til
grafar enn. Það á t.d. eftir aö hellu-
leggja moldarstíginn sem Vigdís for-
seti var látinn ganga eftir. Slík að-
koma getur ekki talist virðingarverð
hjá gestgjafanum, Davíð Oddssyni.
En þaö er ekki sú vansæmd sem
rennur mér mest til rifja heldur
finnst mér það ekki ná nokkurri átt
að láta einn af veitingamönnum
borgarinnar njóta þeirra forréttinda
aö reka veitingasölu í Viöey. Hann á
að vísu að borga einhverja leigu fyr-
ir staðinn en það getur aldrei orðið
til að borga þær 150 milljónir sem
teknar hafa verið af fé Reykvíkinga
til aö gera rekstur hans í eyjunni
aðlaðandi.
Þetta er ekki bara misheppnuð fjár-
festing hjá Davíð heldur er hann líka'
að mismuna borgurunum meö því
að láta einn mann hafa slík forrétt-
indi. Hefði ekki verið nær að borgin
annaðist sjálf veitingasölu í Viðey?
Þaö er jú hún sem ber allan kostnað
af rekstrinum.
Ég hef raunar ekkert á móti því aö
peningar séu lagðir í að gera upp
fomminjar ef hófs er gætt en að
leggja 150 milljónir í gamla kumbalda
nær ekki nokkurri átt. Hér eftir sem
hingað til munu Reykvíkingar skoöa
Viðey af fastalandinu og því hefði
verið alveg nóg að gera húsin þar upp
að utan og spara miklar fjárhæðir
sem fariö hafa í að pússa allt að inn-
an líka.
V.S. hringdi:
Það er nú kannski aö bera í
bakkafullan lækinn að fara aö
ræða um þáttinn Á milli mála á rás
2 sem Siguröur Gröndal og Eva
Albertsdóttir sáu um því þaö eru
svo margir sem hafa talaö um
hann. En mig langar þó aö leggja
orö í belg. Um daginn brá svo viö
aö Siguröur Gröndal var hættur
meö þáttinn og veit ég ekki hveiju
þaö sætti.
Hann hafði veriö gagnrýndur
talsvert fyrir málfar og orðalag og
fékk einnig mikiö hrós hjá sumum
fýrir lagaval og frísklega fram-
komu. Ég hlustaöi talsvert á þenn-
an þátt eingöngu vegna þess h versu
frábær lög voru valin í þáttinn. V0
hafi verið besta lagaval frá upphafi
í útvarpsstöö hér á íslandi.
Siguröur spilaöi mikiö tónlist
rokkrisanna Led Zeppeiin, Deep
Purple og Uriah Heep en þaö virð-
ist vera á bannlista hjá öðrum út-
varpsstöðvum. Af hverju skil ég
ekki. En blaörið í manninum féll
ekki að mínum smekk því það
minnti mig á grunnskólahúmor á
miög iágu piani. Sérstaklega var
áberandi hve mikiö hann þurfii aö
tala sjálfur í beinum viðtölum við
fólk í þættinum.
En þrátt fyrir allt voru þetta góð-
ir þættir hjá honum og hann var
greinilega farinn aö slípast eitthvaö
í málæðinu. Ég er bara að velta því
fyrir mér af hveiju Sigurður var
látinn hætta og hvort þaö hafi ver-
ið vegna þess að hann valdi áður-
nefnda tónlist til flutnings eða
hvort mönnum hafi ekki líkað mál-
fariö iijá honum. En ég vil sem sagt
fá hann aftur í þáttinn.