Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988.
29
T .ífaghffl
Umferðin
er ekki
einkamál
Bætt umferðarmenning er langtimamarkmið.
Ung börn þurfa aðstoð í umferðinni.
- byrjum
„Okkur fundust fómimar í um-
ferðinni vera orðnar svo miklar að
við sáum okkur knúnar til að leggja
eitthvað af mörkum sem mætti
verða til þess að draga úr þeim
hræðOegu umferðarslysum sem
verða hér daglega. Það er líka kom-
inn tími til að kalla okkur almenn-
ing til ábyrgðar vegna „umferðar-
menningarinnar". Það er ekki
lengur einkamál hvers og eins
hvemig hann hegöar sér í umferð-
inni,“ segir Soffia Vagnsdóttir, ein
úr hópi kvenna sem hvetja til
bættrar umferðarmenningar.
„Við byrjuðum að ræða saman
um eigin hegðun í umferðinni og
komumst auðvitað að því að viö
vorum ekki barnanna bestar. Of
hraður akstur, skapvonska, bömin
án öryggisbelta - allt voru þetta
hlutir sem einhverjar okkar könn-
uðust við. Svo fyrsta verkefnið er
auðvitað að taka sjálfan sig í gegn.
Það er einmitt það sem við viljum
fá fólk til að gera - að líta í eigin
barm og ekki síður láta sig varða
hvemig umferðinni er háttað.“
Auglýsingar vopn
í baráttunni
Hópurinn hefur unnið að gerð
auglýsinga í samstarfi viö aðra.
Sjónvarpsstöðvarnar sýna nú á
níilli dagskráratriða stuttar mynd-
ir þar sem fólk segir frá reynslu
sinni af umferðarslysum. Þaö eru
sjúkraflutningamenn, lögreglu-
menn og aðstandendur sem segja
frá sönnum atburðum sem þetta
fólk sjálft hefur upplifað. Auglýs-
eins og viö annað í lífmu er reynsl-
an besti skóhnn. Við teljum að það
þyrfti að koma upp ævingastöðum
fyrir þá sem eru að læra, þar sem
unga fólkið fær þjálfun.
Það er greinilegt á öllu fasi Soffiu
að hér er á ferðinni manneskja sem
helgað hefur sig þessum málum.
„Önnur spurning, sem upp hefur
komið, er sú hvort hækka eigi bíl-
prófsaidurinn. Margir hafa ekki
þann þroska til að bera að skilja
að við það að setjast undir stýri
ertu kominn með drápsstæki í
hendurnar. Einnig þyrfti skóla-
kerfið að vera virkara í kennslu og
undirbúningi ökumanna.“
Almenningur vill leggja
sitt af mörkum
Hópurinn hefur hafið undirbún-
ing að hauststaríi í tengslum við
skólabyrjun.
„Við vinnum nú að því að hafa
samband við skólayfirvöld, for-
eldrafélög og íbúasamtök í hverf-
unum. Við höfum mikla trú á því
að almenningur, foreldrar og kenn-
arar vilji taka þátt í þessu átaki
með okkur. Við vitum að með
haustinu fjölgar slysum á börnum
í umferðinni á leið í og úr skóla.
Viö viljum gjarnan virkja eldri
nemendur, t.d. 12 ára börnin, í því
að aöstoða þau yngri. Eldri nem-
endur gætu tekið að sér gangbraut-
arvörslu við skóla og með því læra
þau líka að umgangast umferðina.
Svona fyrirkomulag tíðkast er-
lendis og oft eru það foreldrar sem
taka að sér vörsluna.
Viö höfum leitað víða um heim
eftir hugmyndum sem nýst gætu
hér. Það eru til að mynda samtök
í Bandaríkjunum sem kalla sig
„Mothers Against Drunken Dri-
vers“ sem eru samtök mæðra fórn-
arlamba ölvaðra ökumanna."
Bætt umferðarmenning er
langtímamarkmið
Hópurinn hafði opinn símatíma
tvo laugardaga og gat fólk hringt
inn ábendingar, hugmyndir og lýst
reynslu sinni.
„Við fundum á viðbrögðunum að
þetta var málefni sem brann mjög
á fólki. Símtölin voru af ýmsum
toga, það voru ábendingar um
hættulega staði í borginni, kröfur
um hertar aögerðir gegn umferðar-
brotum og aörir lýstu hörmulegri
reynslu sinni af slysum.
Það verður að viöurkennast að
stundum, þegar maður er úti í
umferðinni, finnst manni þessi
barátta vonlaus. Þaö er meö þetta
eins og barnið, það lærir ekki að
lesa á einum degi. í þessari baráttu
þurfum við að gera okkur grein
fyrir að það er langtímamarkmið
aö ná fram hugarfarsbreytingu al-
mennings í umferðarmálum. Við
verðum að gera það með aðgeröum
sem koma fólki á óvart og vekja
það af værum blundi," sagði Soffia.
-JJ
Við verðum að vekja fólk af værum
blundi, segir Soffia Vagnsdóttir.
ingamar hafa þótt beinskeyttar og
óhugnanlega trúverðugar.
„Við vissum að sumum myndi
finnast þær auglýsingar, sem þegar
hafa birst, helst til harðar og nær-
göngular. En við og þeir sem unnu
að gerð þeirra töldum að til að ná
fram viðbrögðum yrðu þær að vera
„sjokkerandi“ og í þeim þyrfti að
koma fram blákaldur veruleikinn."
Verkinu skipt í þrennt
Hópurinn byijaði strax að skipta
verkefninu niður.
„Það eru þrír meginþættir sem
við viljum leggja megináherslu á. í
fyrsta lagi auglýsingar, öðru lagi
endurskoöun á refsilöggjöfmni og
í þriðja lagi ökukennsluna, þ.e.
undirbúninginn fyrir ökupróf.
að athuga eigin hegðan
Við höfum leitað til fólks á aug-
lýsingastofum og í kvikmyndagerð
og hefur það fólk unnið frábært og
óeigingjarnt starf í gerð blaða- og
sjónvarpsauglýsinga. Einnig hafa
leikarar úr hópnum séð um gerð
útvarpsauglýsinga. Allt þetta fólk
hefur gefið vinnu sína og útvarps-
og sjónvarpsstöðvar birt þær end-
urgjaldslaust. í undirbúningi er
gerð auglýsingamynda sem við höf-
um áhuga á að sýna í öllum kvik-
myndahúsum. Þá er verið að leggja
síðustu hönd á handrit þriggja
mynda fyrir börn.
Endurskoðun á
refsilöggjöfinni
í öðru lagi vill hópurinn endur-
skoðun á refsilöggjöfinni.
Að okkar mati eru ekki nægilega
ströng viðurlög við ölvunarakstri.
Þegar litið er á tölur yfir ökumenn
sem eru teknir á einni helgi fyrir
ölvunarakstur eru þær ógnvekj-
andi. Við höfum verið með hug-
myndir eins og að taka bílinn og
halda honum í viku hið minnsta,
burt séð frá því hvort ökumaður-
inn sé eigandi eöa ekki. Nú er bíll-
inn í vörslu lögreglunnar í sólar-
hring og enginn finnur tilfinnan-
lega fyrir þeim missi. Ef tíminn
yrði lengdur þá myndi bílleysi
koma við fólk. Sumum finnst
kannski ósanngjarnt að þetta bitni
á fleirum en ökumanninum en við
teljum að þetta myndi halda aftur
af manni sem sest ölvaður undir
stýri.
Annað er hvað dómskerfið er
seinvirkt. Það tekur alltof langan
tíma að dæma í slíkum málum. Við
höfum sérstakan fíkniefnadómstól
og þvi ekki að setja á stofn sér-
stakan umferðardómstól? Það
myndi örugglega flýta fyrir í kerf-
inu að afgreiða umferðarmálin sér.
Það þarf ekki eingöngu að herða
refsingar heldur og gera þær skil-
virkari:
Tíðarandi
Bílprófsaldurinn hækkaður
Og í þriðja lagi viljum við endur-
skoöa ökukennsluna. Viö vitum að
flestir sem lenda í óhöppum eru á
aldrinum 17-20 ára. Oft er um að
kenna fákunnáttu og reynsluleysi.
Þú lærir á bíl um hábjartan sumar-
daginn og síðan lendirðu í óvænt-
um aðstæðum í svartasta skamm-
deginu, snjó og hálku, og enginn
ræður neitt við neitt.
Nú, einnig er allt annað að aka f
borginni heldur en úti á vegum.
Þú getur keyrt greitt á steyptum
vegi en þegar á möhna er komiö
eru aöstæöur allt ööruvísi. Óvanir
bregðast rangt við því viö akstur,