Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. Lífsstín Sportköfun við Vestmannaeyjar: Páll kominn á land eftir vel heppnaðan köfunarleiðangur. DV-mynd ÓG ■ „Hvað ertu að fetta fingur út í mig?,“ gæti dauðsmannsfingurinn verið að spyrja. DV-mynd PG Kafaðí gegnum Hænu Komið að landi eftir að hafa kafað við Kamb. DV-mynd ÓG „Það skemmtilegasta við sportköf- un er að maður kemst á slóðir þar sem enginn hefurkomið áður. í vatn- inu er maður fijáls og neðansjávar er allt annar heimur en blasir við ofansjávar. c Sportkafarar kafa yfirleitt ekki neðar en á 30 metra dýpi því að dýpra er lítið að sjá, birtan nær lítið neðar og dýra- og plöntulífið því fáskrúð- ugra,“ segir Páll Guðbergsson sport- kafari. Sportkafarafélag íslands er ungt félag, það var stofnað 1982 og eru meðlimir þess um 40. Markmið þess er að stuðla að hálfsmánaðarlegum köfunarferðum félagsmanna. Mest er kafað á Reykjavíkursvæö- inu en auk þess fara sportkafarar saman á Arnarstapa, Þingvöll, til Vestmannaeyja og upp í Hvalfjörð. Ódýrt sport „Þetta er ekki dýrt sport. Ég tel raunar að sportköfun sé með ódýrara sporti sem fólk á kost á að stunda. Það kostar á bfiinu 80-130 þúsund að kaupa þann búnað sem sportkaf- arar þurfa að eiga; það er loftkút, lunga til þess að komast niður, galla til að verjast kulda og blöðkur til að komast áfram. Menn geta notað sama útbúnaðinn í allt að tíu ár. Eini kostnaöurinn í milhtíöinni er loft á kútinn. Áfylling- in kostar á bibnu 250 og 400 krónur. Það þarf enga sérstaka líkamsburði til að stunda þessa íþrótt. Það eina sem menn þuifa að vara sig á er aö eiga aukapúst til að komast í land eftir að hafa verið í kafi. Loftið í kútnum endist í um það bil klukkutíma en fer þó eftir því á hve miklu dýpi menn eru að kafa. Sömu lögmál Það gilda sömu lögmál um sport- köfun og atvinnuköfun. Ég lærði að kafa hjá hemum á Keflavíkurflug- velli og seinna fór ég á námskeið til Flórída í Bandaríkunum. Ég er með kennararéttindi í sport- köfun. Til þess að öðlast þau þarf ÞÚIÉT EKKi ÍISSA AF ÞESSU SPORTBÍLL GG SPÍTTBATUR maður að fara á þriggja vikna nám- skeið. Áður en maður fær inngöngu á kennaranámskeiðið þarf maður að hafa lært köfun hjá viðurkenndum kennara og geta sýnt fram á að maö- ur hafi tekið lágmarkstíma í kafi sem eru 200 botntímar. Ég kenni sportköfun og frá áramót- um hafa um 30 manns verið á nám- skeiðum hjá mér, bæði konur og karlar. Þetta er ekkert síður karla- en kvennasport. Vestmannaeyjaferðin Sportkafarafélagið efnir til Vest- mannaeyjaferðar einu sinni á ári. Að þessu sinni var haldiö út í eyjar á fóstudagskvöldi og kafaö tvisvar við. eyjarnar á laugardeginum og einu sinni á sunnudeginum. „Það er mjög gaman að kafa við Vestmannaeyjar því að það er mjög gott skyggni í sjónum við eyjarnar, lítið af svifi í sjónum. Dýralíf er mjög fjölbreytt við eyjarnar. Við sáum margar ufsatorfur og gátum synt í gegnum þær. Ufsinn sækir í skítinn Ufsinn sækir í dritið frá sjófuglun- um við klettaveggina, því er mikið af honum við eyjarnar. Fiskar hræðast yfirleitt ekki þó maður syndi nálægt þeim, þeir láta sér fátt um finnast. Við köfuðum við sker sem heitir Hæna en neðansjávar liggja göng í gegnum það. Það þarf að fara niður á 15-28 metra dýpi til að finna þessi göng og það er hálffurðuleg tilfinning að synda í gegnum þau. Við fórum einnig út í Kamb en við hann eru stórar gular breiður af dýri sem heitir dauðsmannsfingur. Þetta er mjög frumstætt dýr sem líkist þumalfingri á manni. Þegar það leit- ar sér ætis koma í ljós fæðuangar og ekki sér í fingurinn. - Þið reynið ekki að fá ykkur í soðið þegar þið eru að kafa? „Það er hægt að veiöa rauðmaga, grásleppu, flatfisk, krabba og ýmsar Tíðarandi skeljar. Aðra fiska gengur illa að festa hönd á. Hins vegar gerir maður ekki mikið að því að ná sér í fisk þegar maður er að kafa. Það er miklu skemmtilegra að skoða það sem fyrir augu ber neðansjávar." Að lokum vildi Páll láta þess getið að þeir sem vildu kynna sér málefni félagsins nánar gætu skrifað til póst- hólfs 4268-124 í Reykjavík. -J.Mar Ufsatorfa við Vestmannaeyjar. DV-mynd PG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.