Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. LífsstíU Fegrunamefnd veitir viðurkenningar: Fagurt umhverfi skapar jákvæð viðhorf Viðjugerði, fegursta gata Reykjavíkurborgar. DV-myndir JAK Árið 1969 var tekinn upp sá háttur aö velja fegurstu götu borgarinnar. Þær götur, sem valdar hafa verið, eru aukenndar með merki fegrunar- nefndar og hafa þær fengið að halda því í 10 ár. Þá hefur merkið verið fjar- lægt. Alls hafa 19 götur orðið þess heið- urs aðnjótandi á tímabilinu að vera titlaðar „Fegursta gata Reykjavík- ur“. Á 202 ára afmæli borgarinnar þann 18. þessa mánaðar.var útnefnd feg- ursta gatan í ár svo sem venja er til á afmælisdegi hennar. Auk útnefningar fegurstu götunn- ar voru tvær viðurkenningar veittar fyrir fallegar fjölbýlishúsalóðir og loks fengu sjö fyrirtæki og stofnanir viðurkenningar fyrir fegrun um- hverfis. Ekki algildur dómur Borgarstjóri aíhenti viðurkenning- amar fyrir hönd umhverfisráðs Reykjavíkurborgar. í ávarpi, er hann hélt við það tækifæri, sagði hann meðal annars að ekki bæri að líta á þennan dóm sem algildan um fegurð umhverfis. Viðurkenningin væri einungis vitnisburður um að frá- gangur og fegrun umhverfis væri með þeim hætti aö til sóma væri. Viðjugerði fegurst Viðjugerði var kosin fegursta gata borgarinnar í ár og mun hún því skarta merki fegrunamefndar næstu tíu árin. Hús aldraðra við Sundlaugaveg fékk viðurkenningu fyrir glæsilega byggingu og snyrtilega lóð sem mið- ast við þarfir aldraðra. í dómnefnd- arálitinu segir ennfremur að aðkoma að húsinu sé ipjög góð og þægileg og að lofsvert sé að frágangur á lóð hald- ist í hendur við byggingarfram- kvæmdir. í stuttu ávarpi, sem Hans Jörgenson hélt er hann tók við viður- kenningunni, sagði hann meðal ann- ars: „Það er mjög uppörvandi að fá þessa viðurkenningu." Hann lét þess og getið að það væri hluti af fram- kvæmdum við húsið að ganga frá lóðinni samfara endanlegum frá- gangi hússins. „Tenging húss og garðs mynda eina heild og vekur það sérstaka at- hygli," segir í dómnefndarálitinu um fjölbýlishúið Geitland 2-4 en það hlaut viöurkenningu fyrir að vera snyrtilegasta fjölbýlishúsið. Fyrirtæki og stofnanir Fyrir fegrun uinhverfis í iðnaðar- hverfi fékk fyrirtækið G.K. Hurðir, Fosshálsi 9-11, viðurkenningu. Fyrir fegrun lóðar í íbúðarhverfi, þar sem tekið er mið af umhverfí, Áslaug Jónsdóttir í sælureitnum við Húsgagnahöllina. fékk Hagi við Hofsvallagötu, en þar rekur fyrirtækiö Vífilfell hluta af starfsemi sinni, verðlaun. Húsgagnahöllin, Bíldshöíða 20, var heiðruð fyrir mikið átak í gróður- setningu trjágróöurs. Fyrirtækið er staðsett á einu mesta umferðarhorni landsins en þar er nú smám saman að myndast skjólsæll garöur. Á und- anfómum ámm hafa fimmtán þús- und tré og mnnar veriö gróðursettir þar umhverfis htla silungatjöm, bílastæði og fífumýri sem sérstak- lega hefur verið vernduð. Víðishúsið að Laugavegi 166 fékk viðurkenningu fyrir góðan frágang lítillar lóðar sem er að stærstum hluta bílastæði. Fyrir fegrun umhverfis í iönaðar- hverfi, sem hggur aö fjölfarinni um- ferðargötu, var Kassagerð Reykja- víkur heiðruð. Eigendur Sóknarhússins, Skipholti 50 a, hlutu viðurkenningu fyrir áber- andi lóð sem hggur á opnu svæði á mörkum íbúðar- og verslunarhverf- is. Loks var Sparisjóður vélstjóra heiöraður fyrir skemmtilegan frá- gang htillar en áberandi lóðar. Lóðin við Sóknarhúsið er einstaklega falleg. -J.Mar Viljum leggja fram okkar skerf - segir Leifur Agnarsson „Þaö er oröið langt síðan við fórum að fegra í kringum fyrirtækið. Og með því viljum við leggja fram okkar skerf til að gera borgina fallega,“ segir Leifur Agnarsson, fram- kvæmdastjóri Kassagerðar Reykja- VÍkUT; „Lóðin var meira og minna hönnuð af starfsmönnum fyrirtækisins í samvinnu við Sævar Kæmested skrúðgarðyrkjumeistara. Það er verulegur kostnaður því samfara að gera fallega lóð. En á móti kemur að það sparastað einhverju leyti kostn- aðtír við þrif. Því um leið ogbúið er að.malbika og ganga frá lóðmniberst miklu minni drulla og skítur inn í hús. Svo eitthvað af kostnaðinum skilar sér til baka á þann hátt. Ég tel einnig að það hafi jákvæð áhrif á viðskiptavini að koma að lóð sem búið er að gera fallega. Lóðin er þaö fyrsta sem fólk sér og falleg lóð gefur jákvæða mynd af fyrirtæk- inu. Þegar maður kemur á stað þar sem umhverfið er óaðlaðandi fær maður um leið neikvæðari mynd af viðkomandi fyrirtæki. Það er rpjög jákvætt að fá viður- kenningu af þessu tagi og við erum mjög ánægðir með að hafa fengið hana,"'segir Lejfur að lokum. -J.Mar - segir Guömundur Þ. Agnarsson „Okkur þykir vænt um borgina Guðmund Sigurðsson landslags- inum snyrtilegum með þvi að og viljum gera- það sera í okkar arkitekt til að skipuleggja hann. skreppa út í matartímanum þegar valdi stendur til að prýða umhverfi Áður vorum viö þó búnir aö mal- veður leyfir og taka til hendinni. okkar. Því þótti okkur vænt um aö bika i kringum húsið. Þetta var Ég vona aö garðurinn laði að viö- fá þessa viðurkenningu frá borg- óhemjudýrt, það kostaði um 400 skiptavini. Efég á að tala fyi'ir sjálf- inni,“ segir Guðmundur Þ. Agnars- þúsund á sínum tíma að gera þenn- an mig þá ber ég miklu meira traust son.firamkvæmdastióriGK-hurða. an garð. til fyrirtækja þar sem umhverfið „Garðurimi okkar er þannig Viðerumníusemvinnumífyrir- er snyrtilegt. Ég held einnig að staðsettur að það má segja að hann tækinu og erum jafnframt eigendur forráðamenn fyrirtækja séu famir sé vin i eyðbnörkinni. Enda vekur þess. Við hjálpumst að viö aðhalda að leggja miklu meira upp úr að hann óskipta athygh vegfareuda garðinumíhorfinu.Ávprin tökum prýða umhverfið heldur en þeir , Þegar við hófumst handa við aö við yfirleitt einn dag í að hreinsa gerðu fyrir nokkrum árum og það komaskipaná garðinn fengum við og laga tilog svohöldum við gai-ð- er míög jákvætt.1' -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.