Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Síða 33
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. 33 Lífsstm Konurnar eru „primus motor'' í garðvmnunni „Það er mjög hvetjandi að fá þessa viðurkenningu frá borgir Sg tók mér nú raunar það bessaleyfi að taka konuna mína með mér hingað því það eru þær sem vinna miklu meira að því að fegra og gera umhverfið skemmtilegt," sagði Ingólfur Finn- bogason, við Viðjugerði, þegar hanntók viðurkenningarskjalinu úr hendi borgarstjóra. „Konurnar eru prímus mótorar í allri garðvinnu. Enda sér maður það glöggt þegar maður htur í garða nábúanna að það eru konurnar sem stöðugt vinna að því að fegra í kring- um sig. Án þeirra væru engir fallegir garðar.“ Hjónin Ingólfur Finnbogason og Sofíía Ólafsdóttir búa við Viðjugerði 12. „Við vorum beðin að mæta hingað fyrir hönd þess ágæta fólks sem býr við Viðjugerði. Við eigum hins vegar bara lítinn þátt í að gera götuna fal- lega. Byijað var að byggja við Viðjugerði árið 1974. Gatan var malbikuð strax en síðan hafa íbúarnir unnið við að snyrta og fegra í kringum hús sín. „Það hefur ekki verið neitt sam- stillt átak meðal íbúanna að gera götuna fallega . Þetta hefur komið svona smátt og smátt. Við byrjuðum strax að vinna í okkar lóð. Við feng- um garðyrkjumann til að skipuleggja garðinn en síðan hefur konan mín alfarið séð um vinnuna við hann. Það er nauðsynlegt að fá garðyrkjumann til að skipuleggja garðinn í upphafi til að fá heildarmynd á hann,“ segir Ingólfur. „Þetta er mikil vinna og tímafrek," segir Soffia. „Ætli ég eyði ekki að meðaltali þremur til íjórum tímum á dag við vinnu í garðinum. En mér finnst garðvinnan ákaflega skemmti- leg og því tel ég þetta ekki eftir mér.“ - segir Ingólfur Finnbogason Soffía Olafsdóttir og Ingólfur Finnbogason í garði sinum. í garðinum hjá þeim Soffiu og Ing- ólfi er mikið af birki og blómum sem mynda skemmtilegan ramma utan um tiltölulega stóra grasflöt. „Ég held að tilgangurinn með við- urkenningum af þessu tagi sé fyrst og fremst sá að hvetja fólk til að snyrta og fegra í kringum sig. Raun- ar tel ég það til fyrirmyndar hversu fólk er almennt duglegt að snyrta í kringum hús sín. Maður er nú aðallega að gera þetta fyrir sjálfan sig því það er staðreynd aö manni líður betur ef umhverfið er fallegt úti sem inni.“ - Þið óttist ekki aukna umferð um götuna í kjölfar þessarar viðurkenn- ingar? „Það er guðvelkomið að fólk komi og skoði götuna. Kannski getur það um leið fengið hugmyndir að þvi hvernig það geti fegrað sitt eigið umhverfi enn frekar,“ segir Ingólfur að lokum. J.Mar Eykur samkenndina - segja þau Gerður G. og Sveinn Bjarklind „Það eru allir mjög ánægðir með lóðina og við erum ekki frá því að vinnan við hana auki samkennd meðal íbúa hússins," segja þau Gerð- ur G. Bjarkhnd og Sveinn Bjarkhnd. Eins og áður sagði fékk fjölbýlishúsið Geitland 2-4 verðlaun fyrir snyrti- lega byggingu og vel hirta lóð. Hafist var handa um uppbyggingu lóðarinnar um 1970. íbúarnir fengu skrúðgarðaarkitekt til að teikna lóð- irnar fyrir báða stigagangana svo hægt væri að samræma útlit þeirra. Við ræktun í lóðinni hefur aðalá- herslan veriö lögð á tré og gras. Sveinn hefur lengst af verið pottur- inn og pannan í garðvinnunni enda segir Gerður að það orð hafi komist á að það væru svo miklir flottræflar sem byggju í Geitlandinu að þeir hefðu ráðið sér garðyrkjumann. „Það er mikil vinna að halda lóð- inni í horfinu en hún er að sama skapi mjög gefandi. Það fylgir því ákveðin vellíðunartilfinning þegar maður kemur þreyttur inn til sín eftir að hafa eytt stund í garðinum. Það er alveg sama þó maður sé með blöðrur á öhum fingrum," segir Gerður og hlær. „Það sem við gerðum rangt við hönnun garösins í upphafi var að gróðursetja 100 metra belti af hegg sem nú er orðinn yfir 150 sentímetrar á hæð. Það er erfitt að eiga við hegg- inn að því leyti að það er gífurleg vinna og tímafrek að að klippa hann til. Á móti kemur hins vegar að vel klipptur heggur ein er fegursta trjá- tegundin sem maður sér í görðum," segir Sveinn. Fínt úti og inni „Það er ekki nóg að hafa fínt inni hjá sér, það þarf líka að huga að því að umhverfið sé fallegt. Þó að þetta / f sé mikil vinna þá kemur hún nokkuö af sjálfu sér og smátt og smátt fer maður að tína allt lauslegt rusl sem verður á leið manns. Ég er með poka í skottinu á bílnum og þar geymi ég ruslið uns ég hef tíma til að henda því,“ segir Gerður. Það hefur lengi verið haft á orði að um leið og hús og lóðir fá viður- kenningu frá Umhverfismálaráði hækki verð þeirra. „Ég er ekki frá því að það sé rétt,“ segir Sveinn. „Um leið og fasteignaveröið hækkar hækka líka fasteignagjöldin. Þetta er ákveðin þverstæða því eftir því sem maður leggur meira á sig við að fegra umhverfið hækka íbúðirnar í verði og fasteignagjöldin um leið. Og það er spurning hvort það er rétt,“ segir Sveinn að lokum. -J.Mar il BentBjamason: Fallegt fyrir augað „Garðurinn er fahegur og gleö- ur augu vegfarenda. Hjá Spari- sjóöi vélsfjóra er töluvert lagt upp úr því að gera umhverfiö fahegt. Einar Þorgeirsson skrúðgarð- yrkjumeistari hefur haft veg og vanda af skipulagi og viðhaldi garösins,“ segir Bent Bjarnason sparisjóðsstjóri. Lóöin umhverfis Sparisjóö vél- stjóra, Síðumúla 1, er lítil hornlóö þar sem gróðursett hafa verið tré og blóm innan um fiörugrjót sem á að minna viðskiptavini á tengsl sparisjóðsins við hafið. „Ég tel aö ytra umhverfi geti laðað að viðskiptavini þó að þaö hafi aldrei verið færðar neinar sönnur á það. Þaö sér það hver maður í hendi sér að það er íniklu hlýlegra aö koma á stað þar sem búið er aö planta gróðri en koma þangað þar sem einungis eru steyptar gang- stéttarhellur." -J.Mar Hjónin Gerður G. og Sveinn Bjarklind taka viö viðurkenningarskjali úr hendi borgarstjóra fyrir hönd íbúanna i fjölbýlishúsinu Geitlandi 2-4. ÞU ATT MOGULEIKA SPORTBÍLL OG SPÍTTBÁTUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.