Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988.
Andlát
Ásgrímur Kristinsson frá Ásbrekku,
síðast til heimilis að Beykihiíð 1,
Reykjavík, lésj í Landspítalanum
laugardaginn 20. ágúst.
Theodór Heiðar Pétursson, andaðist
í Borgarspítalanum að kvöldi föstu-
dagsins 19. ágúst.
Jón Daníelsson, Hörpulundi 5,
Garðabæ, fyrrum bóndi Hvallátrum,
Breiðafirði, lést laugardaginn 20.
ágúst.
Skarphéðinn Halldórsson, fyrrver-
andi sparisjóðsstjóri, andaðist í
Borgarspítalanum að morgni 20.
ágúst.
Rósa Pálsdóttir frá Geirlandi, andað-
ist í Landspítalanum að morgni 21.
ágúst.
Sveinbjörn Egilsson, Barðavogi 34,
Reykjavík, andaðist á öldrunardeild
* Landspítalans sunnudaginn 21.
ágúst.
Óskar Ástmundur Þorkelsson, fyrr-
verandi gjaldkeri Shppfélagsins í
Reykjavík, lést á heimili sínu, Rauða-
gerði 65, Reykjavík, mánudaginn 22.
ágúst sl.
Alexander Sigurbergsson, Lindar-
götu 58, lést í Borgarspítalanum þann
20. ágúst.
María Sigurðardóttir, Nóatúni 24,
andaðist í Borgarspítalanum að
morgni 20. ágúst.
Jarðarfarir
Árni Ketilbjarnar frá Stykkishólmi,
Strandaseh 9, Reykjavík, sem lést 17.
þ.m., verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 25. ágúst
kl. 10.30 f.h.
Hafliði Jóhannesson húsasmíða-
meistari, Freyjugötu 45, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 24. ágúst kl.
13.30.
Útför Rúnu Guðmundsdóttur, Fjöln-
isvegi 8, Reykjavík, verður gerð frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 25.
ágúst kl. 13.30.
Baldur T. Eiríksson lést 13. ágúst.
Hann var fæddur á ísafirði þann 14.
júh 1913, sonur hjónanna Eiríks
Brypjólfs Finnssonar og konu hans,
Kristínar Einarsdóttur. Stúdent frá
MA varð hann 1934. Eftir stúdents-
prófið sigldi hann til Þýskalands og
starfaði hjá útgerðarfyrirtækjum
þar. Árið 1937 íluttist hann til Siglu-
fjarðar. Þar starfaði hann að marg-
víslegum verkefnum. Árið 1969 flutt-
ist hann búferlum til Akraness og
réðst sem fulltrúi hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins. Baldur var tvígiftur.
Fyrri kona hans var Hólmfríður
Sveinbjörnsdóttir en hún lést árið
1967. Þau eignuðust sex börn. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Aldís Dúa
Þórarinsdóttir. Útför Baldurs verður
gerð frá Akraneskirkju í dag kl. 14.15.
Þórarinn Krístjánsson er látinn.
Hann fæddist á Seyðisfirði 26. októb-
er 1906. Hann var sonur hjónanna
Kristjáns Kristjánssonar og Kristín-
ar Þórarinsdóttur. Þórarinn hóf störf
við símritun á Seyðisfirði sautján ára
gamah en fluttist síðan til Reykjavík-
ur árið 1926 og hóf þá störf við ritsím-
ann í Reykjavík, en þar starfaði hann
aha tíð þar til starfsævi hans lauk.
Þórarinn var tvíkvæntur. Fyrri konu
sína, Öldu Möller, missti hann árið
1948. Þeim varð 3ja barna auðið.
Seinni kona hans er Matthildur
Þórðardóttir. Útför Þórarins verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Guðmundur Thorsteinsson lést 13.
ágúst sl. Hann var fæddur 13. sept-
ember 1948. Foreldrar hans voru Sig-
urveig Hahdórsdóttir og Hahi Her-
mannsson, sem gekk Muggi í föður-
stað. Síðasta árið starfaði Muggur á
bifreiðastöðinni Hreyfli. Eftirlifandi
eiginkona hans er Elísabet Jónsdótt-
ir og áttu þau eina dóttur saman.
Fyrir átti Muggur son. Útför hans
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
TiUcyimingar
Kársnesprestakall
Fyrirhuguð er dagsferð á vegum Kórs-
nessóknar sunnudaginn 4. september nk.
kl. 9.30. Farið verður um Borgarfjörð og
Suður-Mýrar. Þátttaka tilkynnist í þess-
ari viku milli kl. 17 og 20 hjá Stefaníu,
s. 22131, Margréti, s. 41949, eða í viðtals-
tíma sóknarprests.
Hallgrímskirkja
- starf aldraðra
Nk. fimmtudag, 25. ágúst, er fyrirhuguð
ferð í Galtalækjarskóg. Á heimleið verð-
ur komið viö í Skarði i Landsveit og kirkj-
an skoðuð. Einnig verða skoðaðir hellar
á Hellum. Lagt verður af stað frá kirkj-
unni kl. 10 f.h. og komið heim um kl. 19.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur
Jónsdóttir í síma 39965.
Tapaðfundið
Kettlingur tapaðist
3 mánaða kettlingur tapaðist frá Vallar-
tröð 5, Kópavogi, sl. laugardag, 20. ágúst.
Hann er gulbrúnn með ljósan blett á róf-
unni og er ómerktur. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma 45470.
Tónleikar
HörðurTorfa
á tónleikaferð
Höröur Torfason trúbador er á tónleika-
ferð um Austfirði og Norðausturland.
Tónleikar veröa á eftirtöldum stöðum:
23. ágúst á Breiðdalsvík, 24. ágúst á Borg-
arfiröi eystri, 25. ágúst á Vopnafirði, 26.
ágúst á Bakkafiröi, 27. ágúst á Þórshöfii,
28. ágúst á Raufarhöfn og 29. ágúst á
Kópaskeri. Tónleikamir hefjast allir kl.
21. Höröur verður með sinn árlega kon-
sert í Reykjavík 4. september í Lækjar-
tungli og verður sá konsert væntanlega
tekinn upp og gefinn út á plötu.
t
Þökkum innilega samúö og styrk við andlát
og útför litlu dóttur okkar og systur,
Guðnýjar Einarsdóttur,
Sundstræti 30, ísafirði
Aöalbjörg, Einar og systur
Menning
Manneskjumot
Orgeltónleikar Arna Arinbjarnarsonar í kirkju Fíladelfiusafnaðarins.
Ámi Arinbjarnarson haföi sett
saman ljómandi efnisskrá sem
hann lék á orgelið í Fíladelfíukirkj-
unni í gærkvöldi: Prelúdía og fúga
og Passacaglia eftir Buxtehude,
Prelúdía og fúga, Sálmforleikur og
Tokkata eftir Bach, Prelúdía, fúga
og thbrigði eftir Franck og Tokkata
og fúga eftir Reger. Þetta var alveg
Tónlist
Leifur Þórarinsson
mátulegt, vel upp byggt og með
sterku menningar- og manneskju-
móti.
Það er alltaf gott og gagnlegt að
heyra Buxtehude, þennan stór-
kostlega „lærimeistara" Bachs og
Handels og hápunktinn á þýsku
orgelbarokki áður en Jóhann Se-
bastian lagði upp í sínar krónatísku
geimferðir. Árni lék Prelúdíu hans
og fúgu í G dúr af mikihi bjartsýni
og festu í byrjun tónleikanna, mót-
aði raddir skýrt og skilmerkilega
og náði fram eðlilegri stígandi. í
passacaglíu í d moll kom dimmari
og dramatískari tónn í spilið, sem
lét vel í eyrum. Sama má segja um
verk Bachs, Prelúdíu og fúgu í d
moh og sálmforleikinn „Nun kann
der Heiden Hehand“, sem' voru
leikin af miklum innheik og hrein-
skiptni. Og Tokkatan fræga í d
moll (sem sumir segja reyndar að
sé alls ekki eftir Bach) hljómaði
glæshega að vanda.
Hins vegar þótti manni vanta
nokkuð á sannfæringuna í róman-
tísku verkunum. Aö einhverju leyti
má það eflaust skrifast á raddgerð
orgelsins, sem er ekki sérlega til-
þrifamikil, en það vantaði einnig
meiri sveigjanleik í spihð hjá Árna,
sérstaklega í sætsúru tónverki Cés-
ars Francks, þar sem smávegis „rú-
bato“ hefði kannski gert gæfumun-
inn. Og Tokkata í d moll og fúga í
D dúr eftir Max Reger hljómaði ein-
hvern veginn endaslepp þrátt fyrir
kröftugt og heiðarlegt spil. Þessi
þungþykka aldamótatónhst þarf
líklega harðara spark í afturend-
ann en velsæmi leyfir, enda áreið-
anlega hugsuð fyrir stærra orgel
og akkústikk en þarna var fyrir
fæti. Það breytir hins vegar ekki
að Árni Arinbjarnarson, sem leik-
ur að öhu jöfnu fyrstu fiðlu í sinfó-
níunni, er býsna flinkur og vandað-
ur orgelleikari, sem á bæði skilið
vinsemd og virðingu.
LÞ
Stóll og hásæti
við hofnina
- sýning í Hafiiargálleríi
Olíumálverk í Hafnargalleríi. Inga Þórey (t.v.) með myndina Hásæti og
Guðbjörg Hjartardóttir með Kyrralífsmynd. DV-mynd JVA
Hafnargaherí við Hafnarstræti
er einn þeirra sýningarsala sem
hafa orðið nokkuð útundan í hst-
umfjöllun. Þar kemur sjálfsagt
margt th, en líklega vegur þó
þyngst að þar hafa sýnt næsta fáir
„þungavigtarmenn" á myndlistar-
sviöinu. Svo skiptir örugglega líka
nokkru að salurinn er aðeins opinn
á vérslunartíma bókaverslunar
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
Snæbjarnar og því lokaður um
helgar. Galleríið er þó allrar at-
hygh vert, því þar hefur mátt sjá
ýmislegt geijast síðasta árið. Það
eru einkum ungir myndlistarmenn
sem hafa sýnt í Hafnargalleríi og
afurðir þeirra hafa verið ærið mis-
jafnar. Er gott th þess að vita að th
skuh vera sýningarsalur utan Ný-
hstasafnsins sem er opinn fyrir til-
raunahst unglingsins af götunni.
Það er þó ekki þar með sagt að allt
skuli hengt upp á veggi bara ef sýn-
andinn getur borgað leiguna. Þegar
gagnrýni fjölmiðla er af skornum
skammti er þörf þeim mun meira
aðhalds af forstöðufólki sýningar-
salanna. Það væri t.d. hreint ekki
út í bláinn að staður á borð við
Hafnargallerí hefði á sínum snær-
um hjálparkokk við uppsetningu
og kynningu sýninga.
Þær stöllur Inga Þórey Jóhanns-
dóttir og Guðbjörg Hjartardóttir,
sem nú sýna verk sín í Hafnargall-
erh, mættu að ósekju gefa gaum
að framansögðu. Sýning þeirra hef-
ur óþarflega flausturslegt og hrað-
soðið yfirbragð. Þar má finna að
einföldum formsatriðum eins og
númerum við myndir og mynda-
skrá í einriti. Umgjörð sýningar er
ahtaf stórt atriði og sérílagi hjá
þeim listamönnum sem þarfnast
kynningar. í thviki þeirra Ingu
Þóreyjar og Guðbjargar stendur
hið ytra borð sýningu þeirra nokk-
uð fyrir þrifum. Þó má grhla í
skemmtilega hugkvæmni á sýning-
unni.
Inga Þórey fer talsvert „sjálf-
virkar" leiðir. Málverk hennar er
skúlptúrískt og straumlínulagað
eins og tíðkaðist í kringum fyrri
heimsstyrjöld. í þá daga dundaði
dadistinn Hans Arp við að mála
kvið móður sinnar innanverðan á
meöan kúlnaregnið lamdi saman
rammann. Ein mynda Ingu Þóreyj-
ar er einmitt af slíkri byssukúlu
sem er órjúfanlega tengd skot-
markinu. Undirrituðum þótti
myndimar „X“ og „Hásæti" einna
best heppnaðar að uppbyggingu af
verkum Ingu, þótt eitthvað skorti
á útfærslu.
Guðbjörg Hjartardóttir hélt
einkasýningu í Hafnargallerh fyrir
á að giska 11 mánuðum síðan. Und-
irritaður er ekki frá því að þá hafi
verið meira heildaryfirbragð yfir
sýningu hennar. Það er þó ekkert
nema gott um það að segja að fólk
tileinki sér mörg stílbrögð. Alltof
margir atvinnumálarar mála í rút-
ínu. Myndin „Stóh, borð, stóll, bók“
er t.a.m. hreint ekki úr takt við
hinar myndirnar, þó hugmynda-
fræðilega séð sé hún hinum megin
á hnettinum. Sú mynd er raunar
gott dæmi um það hve Guðbjörgu
lætur í raun vel að vinna „naívt“
á meðvitaðan hátt. Kyrralífsmynd-
in númer sjö þótti mér sömuleiðis
hafa skemmtilegan slagkraft. Þó
gildir hið sama um þá mynd einsog
flestar aðrar á sýningu þeirra stall-
systra; flas er best í hófi.
Ólafur Engilbertsson