Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 39
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988.
39
Fréttir
Breiðdalsá 1 Breiðdal:
125 laxar hafa komið á
land og hellingur af silungi
„Þetta gengur hægt og hljótt hérna
í veiðinni hjá okkur í Breiðdalsá og
eru komnir 125 laxar land,“ sagði
Skafti Ottesen á Hótel Bláfelli í gær-
kvöldi en þar bóka veiðimenn aílann.
„Sá stærsti er 17 pund og í dag veidd-
ist' einn 15 punda lax í Gljúfrahyl,
feikna fallegur fiskur. Hann veiddist
á maðk. Það er misjafnt hvort veiði-
menn sjá mikið, sumir sjá laxa, aðrir
ekki. Einn veiðimaður taldi 20 laxa
í Mannskaðahyl fyrir nokkrum dög-
um. í Norðurdalsánni hafa veiðst
tveir laxar en Tinna hefur verið frek-
ar róleg í sumar. Svæði fjögur í ánni
hefur verið sterkt og víða um það er
töluvert af laxi. Silungsveiðin hefur
verið upp og ofan í sumar, góð stund-
um og svo dottið niður á milli. En
þetta er fallegur silungur sem veið-
ist, vatnið er gott í ánni og veðurfar
fínt,“ sagði Skafti ennfremur.
Reykjadalsá í Borgarfirði.
„Það kom kippur fyrir skömmu og
eru komnir 18 laxar á land,“ sagði
Guðmundur Kristinsson, formaður
veiðifélags Reykjadalsár í Borgar-
firði, er við leituðum frétta af slóðum
Snorra Sturlusonar í gærkvöldi.
„Tíu silungar hafa veiðst. Stærsti
íaxinn var 14 pund og næstum allir
laxarnir hafa veiðst í Klettsfljótinu,
þessu eina sanna. Þar er líklega mest
af laxi í.ánni núna. Það vantar rign-
ingu, þá gæti laxinn komið í ríkari
mæli,“ sagði Guðmundur í lokin.
„Laxá á Refasveit er komin í 100
laxa og það gerðist í kvöld,“ sagði
Sigurður Kr. Jónsson á Blönduósi í
gærkvöldi. „Við vorum að veiða í
ánni í gærdag og fengum einn lax, 5
punda, á maðk. í Göngumannahylj-
unum er mest af laxi en hann lítur
ekki við neinu.
Blanda hefur verið róleg og eru
komnir 1233 laxar. Við vorum þar í
fyrradag og urðum ekki varir allan
daginn. Sjö laxar veiddust þó daginn
áður,“ sagði Sigurður.
G.Bender
Vaskir veiðimenn við Blöndu fyrir
nokkrum dögum með 18 punda
hæng. Sverrir Valgarðsson og Ró-
bert Sverrisson.
DV-mynd Sigurður Kr.
Víðidalsá fyrir ofan Kolugjúfur
„Fengum fjóra væna laxa,
19,18,17 og 16 punda“
„Þetta var Ijómandi veiðitúr og Stóra-Laxá í Hreppum Víðidalsá í Steingrímsfirði
við sáum töluvert af fiski þarna í „Það eru komnir 14 laxar á svæði „Feiknagóður veiðitúr og viö
ánni. Ég fékk 19,18,17 og 16 punda fjögur í Stóru-Laxá í Hreppum og fengum 6 laxa,“ sagði veiöiraaður
laxa en alls urðu laxarnir 8 í holl- sá stærsti, sem veiðst hefur, er 17 sem var aö koma úr Víöidalsá í
inu,“ sagði Haraldur Haraldsson, pund,“ sagöi veiöimaöur sem kom Steingrímsfirði, en mjög hljótt hef-
veiðimaður sera var að koma úr af svæöinu á laugardaginn. „Veö- ur verið um hana í sumar enda
Víðidalsá fyrir ofan Kolugljúfur. rið var fallegt en við sáum ekki veiðin ekkert til að hrópa húrra
Veiðin hefur verið að stórbatna siö- mikið af laxi. Daginn áður en við fyrir. „Við fengum helling af falleg-
ustu daga eftir mjög slaka byxjun. komum höfðu fengist tveir laxar, 4 um bleikjum og ég held að það hafi
„Við fengum alla laxana á maðk og 16 punda. Fengum einn urriöa, veiðst 15 laxar, enda ýmislegt geng-
og ég er hæstánægður með veiði- tveggja punda, það var eina veiðin. ið á þarna í sumar,“ sagði veiöi-
ferðina. Við settum í boltafisk, lík- Úr allri ánni eru líklega komnir maöm- í lokin.
lega um 25 punda, voðalegan 55-60 laxar,“ sagði Stóru-Laxár- -G.Bender
drjóla," sagði Haraldur ennfremur. veiðimaðurinn.
51 lax komínn í Hörðudalsá í Dölum
„Veiðin gekk frekar rólega og feng-
um við ekki nema 7 bleikjur, sú
stærsta var 3,5 pund, misstum eina
ennþá stærri á fluguna," sagði veiði-
maður sem var að koma úr Hörðu-
dalsá í Dölum um helgina. „Bleikjan
getur verið dyntótt og það voru litlar
flugur sem hún tók þegar vart varð.
Laxveiðin hefur gengið vel í ánni
og er kominn 51 á land, sá stærsti
er 17 pund ennþá. Það vantar rign-
ingu í ána til þess að fiskurinn taki
við sér. Sáum 10-15 laxa í einum
hylnum en þeir tóku ekki, flestir eru
laxarnir 5, 6 og 7 pund sem veiðst
hafa. í einum hylnum neðarlega í
ánni sáum við lax vel yfir 20 pund
en hann tók ekki frekar en hinir,“
sagði veiðimaðurinn úr Hörðudaln-
um.
Mýrarkvíslin, Svarfaðardalsá
„Mýrarkvíslin er komin í 205 laxa
og þetta er miklu rólegra en í fyrra
í veiðinni," sagði Friðrik Friðriksson
á Dalvík, er við spurðum frétta. „í
ánni er mikið af laxi en þegar veður-
farið er svona gott tekur fiskurinn
illa.
Svarfaðardalsá er komin með 12
laxa og hann er 16 pund sá stærsti.
Bleikjuveiðin hefur verið fin og
veiðimenn hafa verið að fá þetta
10-20 bleikjur á dag mest. Stærstu
bleikjurnar eru 4 pund,“ sagði Frið-
rik í lokin. -G.Bender
Já, svona lítur hann út, fyrsti silungurinn kominn á land og veiðimaðurinn
er Kolbeinn Friðriksson á Dalvík. Veiðistaðurinn er Hraunið í Laxá í Aðaldal.
DV-mynd FF.
Kvikmyndahús
Bíóborgin
Frantic
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9.00 og 11.15.
Rambo III
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Beetlejuice
Sýnd kl. 5 og 9.
Haettuförin
Sýnd kl. 7 og 11.
Bíóhöllin
I fullu fjöri
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Frantic
Sýnd kl. 5 og 9.
Rambo III
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Skær Ijós borgarinnar
Sýnd ki. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn 5
Sýnd kl. 5.
Beetlejuice
Sýnd kl. 7.15 og 11.15.
Hættuförin
Sýnd kl.5, 7, 9 og 11.
Háskólabíó
Á ferð og flugi
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Laugarásbíó
Salur A
Sá illgjarni.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Salur B
Skyndikynni
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Salur C
Skólafanturinn
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Regnboginn
í skugga páfuglsins
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Leiðsögumaður
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Krókódíla-Dundee 2
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Þrumuskot
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15.
Svifur að hausti
Sýnd kl. 7.
Nágrannakonan
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Stjörnubíó
Von og vegsemd
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05.
Endaskipti
Sýnd kl. 5 og 11.
Nikita litli
Sýnd kl. 7 og 9.
Leikhús
Elskhuginn
Alþýðuleikhúsið
Ásmundarsal v/Freyjugötu.
Leikstjóri: Ingunn Ásdísardóttir.
Leikendur: Erla B. Skúladóttir,
Kjartan Bergmundsson og Viðar
Eggertsson.
4. sýn. fimmtud. 25. ágúst kl.
20.30.
5. sýn. laugard. 27. ágúst kl. 16.00.
6. sýn. sunnud. 28. ágúst kl. 16.00.
Miðapantanir allan sólarhring-
inn í síma 15185. Miðasalan í Ás-
mundarsal er opin í tvo tíma fyr-
ir sýningu (sími þar 14055). •-
Al
bht Laugalæk 2,
simi 686511, 656400
HEFUR ÞÚ
SK0ÐAÐ 0KKAR
TILB0Ð
Vi svín, frágengið að þín-
um óskum 383 kr. kg
Nautahakk kr. 495,- en
aðeins 425 kr. í 10 kg
pakkningum. Kindahakk
45t kr. en aðeins 325 kr. í
10 kg pakkningum.
ggP'laugalæk 2,
sími 686511, 656400
Veður
Hæg suðlæg átt og skúrir við suður-
og vesturströndina í dag en austan
og síðan norðaustan strekkingur og
rigning víða um land í nótt. Hiti 6-13
stig.
Akureyrí skýjað 10
Egilsstaðir skýjað 5
Galtarviti úrkoma 9
Hjarðarnes alskýjað 8
Kefla víkurílugvöllur skýjað 8
Kirkjubæjarklausturalskýjaö 8
Raufarhöfn léttskýjað 6
Reykjavík úrkoma 9
Vestmannaeyjar rigning 8
Útlönd kl. 6 i morgun:
Bergen lágþoku- blettir 9
Helsinki þokumóða 13
Kaupmannahöfn skýjað 13
Osló skýjað 12
Stokkhólmur hálfskýjað 15
Þórshöfn skýjað 10
Algan'e skýjað 25
Amsterdam rigning 14
Barcelona skýjað 19
Beríín skýjað 13
Chicago skúr 19
Frankfurt skýjað 13
Glasgow skýjað 12
Hamborg skýjað 11
London skýjaö 13
Los Angeles heiöskírt 18
Lúxemborg þokumóða 12
Madríd léttskýjaö 12
Malaga þokumóða 23
Mallorca skýjað 18
Gengið
Gengisskráning 1988 kl. 09.15 nr. 158 - 23. ágúst
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 46,970 47,090 46,100
Pund 79,027 79,229 79,822
Kan. dollar 38,187 38,285 38,178
Dönsk kt. 6,4320 6,4485 6,5646
Norsk kr. 6,7432 6,7605 6,8596
Sænskkr. 7,1974 7,2158 7,2541 •
Fi.mark 10,4424 10.4691 10,5179
Fra. franki 7,2647 7,2833 7,3775
Belg. franki 1,1745 1,1775 1,1894
Sviss. franki 29,2739 29,3487 29,8769
Holl. gyllini 21,8227 21,8784 22,0495
Vþ. mark 24,6271 24,6900 24,8819
it. lira 0,03328 0,03337 0,03367
Aust. sch. 3,5022 3,5112 3,5427
Port. escudo 0,3032 0,3040 0.3062
Sgá. peseti 0,3759 0,3769 0,3766
Jap.yen 0,35090 0,35180 0,34858
Irsktpund 66,056 66,225 66,833
SDR 60,3959 60,5502 60.2453
ECU 51,3077 51,4388 51,8072
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
23. ágúst seldust alls 37,2 tonn.
Magn í Verð i krónum
tonnum Medal Lægsta Hæsta
Hlýri 0,4 25,00 25,00 25.00
Karfi 2,9 29,00 29.00 29,00
Langa 1,1 27,00 27,00 27,00
Lúöa 0.4 79,31 30.00 180,00
Koli 2,8 38,73 35,00 41,00
Steinbitur 1,0 24,87 23,00 25,00
Þorskur 12,6 42,65 39,00 44,00
Ufsi 0,1 17,00 17,00 17,00
Ýsa 15,7 52,82 33,00 57,00
A morgun verða seld 50 tonn af þorski og 15 tonn ai ýsu.
Fiskmarkaður Suðurnesja
22. ágúst seldust alls 97,0 tonn.
Þorskur 51,9 45,36 37.00 48.50
Ýsa 7,3 55,78 34,00 61,00
Undirmál 2,4 19,00 19,00 19,00
Ufsi 15,0 24,26 18,00 26,00
Karfi 5,8 18,84 15,00 20,00
Steinbítur 0,4 23,00 23,00 23,00
Hlýri-rsteinb. 2,1 24,50 24.50 24.50
Langa 1,0 19,01 17,00 20,00
Blálanga 0,2 17,00 17,00 17,00
Sóikoli 0,7 55,00 55,00 55,00
Skarkoli 1,5 45,50 45,50 45,50
lúöa 0,4 92,12 40,00 119,00
Olugkjafta 8.0 8,00 8.00 8,00
Skata 0,1 47,00 47,00 47,00
Skötuselur 0,2 181,29 170,00 222,00
i dag verður selt úr ýmsum bátum.
Grænmetism. Sölufélagsins
22. ágúst seldist fyrir 1.424.019 krónur.
Gúrkur 1,045 140,00
Blómkál 0,350 89,00
Tómatar 2,460 137,00
Paprika, græn 0,690 252.00
Paprika, rauð 0,400 380,00
Papr.. rauögul 0,045 301,00
Kinakál 1,302 84,00
Gulrætur. ópk. 0,790 193,00
Gulrætur, pk. 0,640 181,00
Rófur 0,350 66,00
Hvitkál 0,900 67,00
Salat 0,195 53,00
Spergilkál 0,155 202,00
Einnig voru seld 1.100 búnt-af steinselju og 380 búnt
af dilli.
JVI LISTINN Tl
FAC □
® 13008