Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 40
~CJ FRETTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðgst 5.000 krón- þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. FUÍstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. Læknamálin: Uppsagnir hafa verið ræddar „Málin eru hjá ríkissaksóknara og við erum að velta fyrir okkur hvern- ig við bregðumst við. Þannig er staða málsins og það er kannski ekki rétt af mér að segja að uppsagnir hafi ekki staðið til því um það hefur auð- vitað verið hugsaö,“ sagði Guðmund- ur Bjamason heilbrigðisráðherra þegar hann var inntur eftir því hvort þeir þrír heilsugæslulæknar, sem sætt hafa rannsóknum grunaðir um fjársvik, hafi verið leystir frá störf- um. Einn læknanna, fyrrverandi heilsugæslulæknir á Hellu, hefur sagt upp starfi sínu. Hinir læknarnir tveir, heiisugæslulæknir í Ólafsvík og á heilsugæslustöðinni í Árbæjar- hverfi í Reykjavík, eru í leyfi frá störfum. Bragi Steinarsson vararíkissak- sóknari segir að ákvarðanir um ákæru í málum læknanna liggi ekki fyrir en ákvarðanir verði teknar inn- an skamms. -sme Glæfraakstur Ökumaður var stöðvaður fyrir að aka eftir Hverfisgötu, vestan Vita- _stígs, á 103 kílómetra hraða rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Á Hverfisgötu er leyfður 50 kílómetra hámarkshraði. Ökumaðurinn, sem er átján ára pilt- ur, verður sviptur ökuleyfi fyrir framferði sitt. Lögreglumaöur, sem DV ræddi við, sagði þetta vítaverðan akstur. Hörmuleg slys hafa orðið á Hverfisgötu og gatan leyfir engan veginn shkan hraða. Þá var ökumaður stöðvaður fyrir að aka á 135 kílómetra hraða á Vest- urlandsvegi. -sme ÁgætsalaíGrímsby í morgun var íslenskur fiskur seld- ur úr átta gámum í Grimsby. Meðal- ^verð fyrir kílóið af þorski var 77 krónur og ýsan fór á 87 krónur. Að sögn Þórarins Guðbergssonar hjá Fylki í Grimsby var lítiö framboð af fiski úr heimabátum í Grimsby. Hann sagði íslenska fiskinn blandað- an og að jafnt og gott verð hefði feng- ist fyrir aflann. Innflutninéur á o erlendu vinnuafli hefur stöðvast - segir Guðmundur J. Guðmundsson mannasambands íslands og Dags- en vildi ekki nefna neinar tölur í því sambandi. „Eg held að þaö séu aílir að verða sammála um aö inn- „Þetta mál og blaðaskrifin í kringum það hefur orðiö til þess að stöðva innfiutning á erlendu vinnafli hingað til lands. Það verö- ur varla meira um shkan innilutn- ing nema maður og maður. Nú hefur vinnumálanefnd ráðuneytis- ins tekið þetta til nánari athugun- ar,“ sagði Guömimdur J. Guð- mundsson, formaður Verka- brúnar, þegar hann var inntur eftir athugun Dagsbrúnar a aðbúnaði erlends vinnuafls í kjölfar fréttar DV ura aðbúnað thailensku stúlkn- anna á kjúkiingabúinu að Vallá á Kjalamesi. Guðmundur sagði að kjör stúlkn- anna hefðu lagast töluvert eftir að þær voru settar á almenna taxta spýting á þessu vinnuafli hingað til lands sé óheppileg. Þar aö auki er atvinna að dragast saman og upp- sagnir fraraundan hjá ýmsum fýr- irtækjum úti á landi,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson. JFJ Steingrímur Njálsson: Er vistaður á hæli í Reykjavík Steingrímur Njálsson, margdæmd- ur kynferðisafbrotamaður, er kom- inn til Reykjavíkur þar sem hann verður vistaður á hæli til geðlæknis- meðferðar. Steingrímur var dæmdur af Hæstarétti til að vera á viðeigandi hæli í fimmtán mánuði. Yfirlæknir þeirrar stofnunar sem Steingrímur verður á vildi ekkert um málið segja er DV ræddi við hann í gær. Steingríms verður ekki, sam- kvæmt dómi Hæstaréttar, gætt frek- ar en annarra vistmanna. Samkvæmt heimildum DV hefur dómur Hæstaréttar valdið miklum vandamálum innan heilbrigðiskerf- isins. Starfsfólk stofnana hefur neit- að að taka á móti Steingrími af ótta við hann og það sem hann kann að gera starfsfólkinu og börnum þess. „Þetta hefur ekki komið inn á mitt borð. Það getur vel verið að stjórnir viðkomandi stofnana hafi tekiö á málinu. Það er vandræðagangur og erfiðleikar við að vista svona menn,“ sagði Guðmundur Bjarnason heil- brigðisráðherra. -sme Eldur kom upp í sýningarglugga verslunar á Laugavegi í gærkvöldi. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var glugginn sprunginn. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Slökkviliðið reykhreinsaði verslunina. Tjón mun vera nokkurt af völdum elds, vatns og reyks. DV-mynd S Hreyfilbilun í Fokkervél yfir ísafiarðardjúpi: Vélinni lent á öðnim hreyflinum Siguijón J. Sigurösson, DV, ísafiröi: Skömmu eftir flugtak á ísafjarðar- flugvelli í gærkvöldi bilaði vinstri hreyfill á TF-FLM Fokkervél Flug- leiða. Þrjátiu og tveir farþegar og þriggja manna áhöfn var um borð í vélinni. Bilunarinnar varð vart fjórum til fimm mínútum eftir flugtakið og var flugyélin þá í 2000 feta hæð. Flug- stjórinn, Erlendur Guðmundsson, afréð að lenda aftur á ísafirði. Þar voru aðstæður góðar. Farþegum var tilkynnt hvemig konúð væri. Slökkvilið og sjúkrabílar voru kall- aðir á flugvöllinn en þurfti ekki við þegar til kom. Lent var níu mínútum eftir flugtak- ið og lendingin gekk áfallalaust fyrir sig. Flugvirkjar komu fljótlega frá Reykjavík. Bilunin var í gírboxi í hreyfilsmótornum. Önnur vél var send eftir farþegunum og voru þeir sóttir klukkan 22 í gærkvöldi. Starfs- maður Flugleiða á ísafirði sagöi að einhver skrekkur hefði komið í far- þega. Hann sagði þó aö allir hefðu börið sig vel. -sme Helgi vann nafna sinn Siguijón J. Siguiðsson, DV, ísafirði: Helgi Ólafsson stórmeistari vann alnafna sinn, Helga Ólafsson eldra, í 8. umferð og heldur því forystunni á skákmótinu á ísafirði. Reyndar eru fjórir efstir og jafnir með 6 vinninga en Helgi á inni óteflda skák við Guð- mund Gíslason. Önnur úrslit í gær voru þannig að Johansson sigraði Guðmund Gíslason, Guðmundur Halldórsson sigraöi Ægi Pál, Schand- orff vann Andra Áss, Rantanen vann Popovych og Flear vann Magnús Pálma. LOKI Skandall á dag kemur Denna í lag! Veðrið á morgun Enn rignir Austan- og síðan norðaustanátt. Rigning um austanvert landiö og einnig á Norðurlandi þegar líður á daginn. Smáskúrir suðvestanlands. Hiti 9-12 stig. Skoðanakönnun Skáís Framsókn í sókn Samkvæmt skoðanakönnun, sem Skáís gerði fyrir Stöð 2 á fylgi stjórn- málaflokka 19. og 20. ágúst sl„ hefur Sjálfstæðisflokkurinn 30,5% fylgi ef miðað er við þá sem tóku afstöðu. Framsóknarflokkurinn hefur bætt mestu við sig ef miðað er við síðustu könnun og er meö 24,4%. Kvennalist- inn er í þriðja sæti með 21,2% fylgi sem er um 10% minna en þegar hann fékk mest samkvæmt skoðanakönn- unum. Þá mælist fylgi Alþýðuflokks- ins vera 10,6%, Alþýðubandalagið er með 9,4%, Borgaraflokkur 3% og Þjóðarflokkur fékk 1%. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.