Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1988, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988.
Utlönd
Einn yfirmanna (lugmóðurskipsins USS Eisenhower stingur höfðinu út
um gat á skrokki þess eftir áreksturinn.
Simamynd Reuter
Bandaríska flugmóöurskipið USS Eisenhower varð í gær fVrir því
óhappl að rekast á spánskt k<)laflutningaskip á hafi úti.
Óhappið átti sér stað úti fyrir strönd Virginíufylkis f Bandarfkjunum
skömmu áður en flugmóöurskipið átti aö koma til hafnar í flotastöðinni
í Norfolk.
Nokkrar skemmdir urðu á báðura skipunum en ekki er enn ljóst hversu
langan tíma þaö tekur að gera við flugmóðurskipiö.
Sovéskur hermaður á rölti viö SS-20 flaugarnar sem eru tilbúnar til
eyðileggingar.
Sovétmenn halda nú áfram eyði-
leggingu meðaldrægra kjarnorku-
vopna sinna i samræmi við samn-
ing þann sem stórveldin undirrit-
uðu í vor um eyðingu slíkra vopna.
Fyrir skömmu sprengdu þeir í
loft upp þrjár SS-20 eldflaugar í
Kapustin eftir aö kjarnaoddar
þeirra höfðu veriö fjarlægöir.
Nokkur hópur erlendra blaöa-
manna og stjórnarerindreka fylgd-
ist meö eyöileggingu flauganna.
Sovétmenn hafa áöur skyrt frá
því aö kjarnaoddar flauganna verði
nýttir í friösamlegum tilgangi. Þeir
hafa notað litlar kjamorkuspreng-
ingar við bæði námagröft og vega-
gerö áöur og mun hafa gefist veL
Simamynd Reuter
SS-20 eldflaug sprengd I loft upp
í Sovétríkjunum.
Simamynd Reuter
Árekstur
Komnír aftur?
Bandaríska dagblaðið Washing-
ton Post fullyrti i morgun aö sov-
éskir hermenn væru að nýju
komnir til afgönsku borgarinnar
Kunduz eftir aö hafa horfið þaðan
fyrir tveim vikum. Brotthvarf sov-
éska herliðsins frá Kunduz var í
samræmi við sáttmálann um brott-
flutning Sovétmanna frá Afganist-
an sem undirritaöur var fyrr á
þessu ári. ,
Haft er eftir vestrænum stjórnar-
erindrekum í Pakistan að svo virð-
ist sem sovéskir hermenn hafi að
nýju verið sendir til Kunduz. Er
talið að skipanimar hafi komiö frá
sovéskum embættismönnum sem
hafi óttast afleiðingar þess að borg-
in féll um tima i hendur uppreisn-
armanna.
Haft er eftir bandarískum embættismönnum að þessi flutningur herliös
til borgarinnar aö nýju brjóti ekki í bága við samkomulagið um brott-
flutning sovésks herhðs ffá Afganistan. Samkvæmt sáttmálanum á helm-
ingur sovéska hösins að vera horfmn úr landinu þann 15. september og
hinn helmingurinn snemma á næsta ári..
SOVÉTRIKIN
IRAN
Sovéskir hermenn eiga að hafa
snúið aftur til Kunduz.
Sprengja eidflaugar
Kappræður frambjóð-
enda líklegar
Bush varaforseti hefur verið á kosningaferðalagi um Bandaríkin og komið
VÍða við. Simamynd Reuter
Ráðgjafar frambjóðendanna til for-
setakosninga í Bandaríkjunum í nóv-
ember nk. munu ræðast við í dag um
hugsanlegar kappræður þeirra Ge-
orge Bush, frambjóðanda repúblik-
ana, og Michael Dukakis, frambjóð-
anda demókrata.
Sérfræðingar telja að kappræður
geti haft úrslitaþýðingu í kosningun-
um en skoðanakannanir vestra sýna
að margir kjósendur eru á báðum
áttum. Dukakis er enn allsendis
óþekkt stærð í stjórnmálum og Bush
hefur átt í erfiðleikum með að sýna
sjálfstæði sitt gagnvart ríkisstjórn
Ronalds Reagan.
James Baker, kosningastjóri Bush,
sagði í gær að ólíklegt væri að kapp-
ræðurnar myndu eiga sér stað fyrir
20. september en Bush hefur lýst yfir
vilja til að taka þátt í þeim.
Samkvæmt nýjum skoðanakönn-
Dukakis, forsetaframbjóðandi
demókrata, slær á léttar nótur með
blaðamönnum í gær.
Símamynd Reuter
unum nýtur Bush lítillega meira
fylgis en Dukakis. Dukakis hafði 17
prósent meira fylgi en Bush að loknu
flokksþingi demókrata í júlí en sam-
kvæmt niðurstöðum skoðanakann-
ana síðan hefur það forskot tapast.
Nokkrir ráðgjafar demókrata segja
að Dukakis hafi látið Bush eftir bar-
áttuna en varaforsetinn hefur verið
óþreytandi að ferðast um landið.
Dukakis viðurkenndi í gær að hann
hefði átt í erfiöleikum með aö koma
sjónarmiðum sínum á framfæri við
kjósendur. Hann hafnaði þó hug-
myndum um að hann þyrfti að fara
frekar út til fólksins í landinu og
sagðist mundu geta háö kosninga-
baráttu sína frá heimafylki sínu,
Massachusetts, þar sem hann sinnir
nú skyldustörfum sínum sem fylkis-
stjóri.
Bush hefur ráðist harkalega á af-
stöðu Dukakis í varnarmálum á
kosningaferðalagi sínu. Hann segir
afstöðu Dukakis muni veikja varnir
Bandaríkjanna en Dukakis hefur lýst
yfir andstöði sinni við MX-eldflaug-
amar, stjörnustríðsáætlun Reagans
forseta og B-1 orrustuþoturnar.
Helsta vandamál kosningabaráttu
Bush hefur verið Dan Quayle vara-
forsetaefni. í gær viðurkenndi Bush
að enn sem komið væri hefði Quayle
ekki sýnt og sannað að hann bætti
stöðu repúblikana í kosningabarátt-
unni. Hann varði þó feril Quayles og
sagði að almenningur væri farinn aö
snúast á sveif með repúblikönum.
Reuter
Framfaraflokkur-
inn eykur fylgi sitt
flokknum sera mundi vinna lítil-
lega á.
Aukinn stuðningur við Fram-
faraflokkinn er túlkaður sem óá-
nægja og viövörun til ríkisstjórnar-
innar og að margir lyósendur óski
eftir ákveönari borgaralegri pólitík
cn hingað til hefur verið royndin.
Er nú rætt ákaft í flokki forsætis-
ráðherrans hvernig flokkurinn geti
snúist gegn sigurgöngu Framfara-
flokksins nú að undaníomu.
Sumariiði ísleifesan, DV, Árósum;
Samkvæmt skoðanakönnunum
er Framfaraflokkurinn, sem lengst
af hefur verið kenndur viö Mogens
Glistrup, nú næststærsti flokkur
Danmerkur á eftir sósíaldemókröt-
um.
Hefur hann aukið fylgi sitt um tíu
prósent frá því í kosningunum í vor
eða úr níu prósentum í nítján pró-
sent. Enn meiri er munurinn ef
miðað er við kosningamar sem
vora haldnar í september 1987 en
þá hlaut flokkurinn aðeins um
fimm prósent atkvæða.
Sá flokkur sem tapar mestu er
hins vegar flokkur forsæfisráö-
herrans, Pouls Schluter, íhalds-
samiþjóðarflokkurinn. Fengi hann
nú aðeins fimmtán prósent at-
kvæða í stað nítján prósent áður.
Aðrir flokkar tapa einnig, að und-
anskildum Sósíalíska þjóðar-
Bandaríkin taka upp metrakerfið
Anna Bjamason, DV, Denver:
Meðal nýmæla í nýjum lagabálki
um bandarísk viðskiptamál, sem er
rúmlega 1400 blaðsíður, er gerð síð-
asta tilraunin til að útrýma yarda-
máli, mílum og tommum. Öllum
stofnunum, sem starfa á vegum rík-
isins, er gert að breyta yfir í metra-
kerfið fyrir árið 1992.
Þetta þýðir að bandaríska ríkið,
sem er langstærsti einstaki kaupandi
bandarísks varnings, veröur aö
breyta pöntunarkerfi sínu. Þegar út-
boö verða gerð, t.d. í steypu í vegi,
verður mælieiningin að vera kíló-
grömm. Ef innanríkisráðuneytið sel-.
ur ríkisjörð verður að skrá stærð
hennar í fermetrum í sölusamningn-
um í stað ekra og yarda til þessa.
Samkvæmt lögum er fjögurra ára
aðlögunartími veittur til breytingar-
innar. Ástralía og Kanada, sem síð-
ust landa skiptu á sama hátt yfir í
metrakerfiö, settu sér slíkan aðlög-
unartíma til breytingarinnar og
reyndist hann vel.
Aðeins þrjú lönd, Bandaríkin,
Burma og Líbería, nota enn breska
þyngdar-' og lengdarmæhngakerfið.
Hefur þetta skaðað útflutning
Bandaríkjamanna því sum lönd
banna innflutning ávaxta og græn-
metis sem ekki eru í gámum stöðluð-
um fyrir metrakerfiö.
í sumum iðngreinum í Bandaríkj-
unum hefur þegar verið tekiö upp
metrakerfið. Má þar t.d. nefna tölvu-
iðnaðinn og framleiðendur áfengis,
dýna og ljósmyndavarnings. Þróunin
er skammt undan í öðrum greinum.
í matvöruverslunum eru núna t.d.
kartöflur í plastpokum þar sem bæði
er getið þyngdar í enskum pundum
og kílógrömmum.