Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988.
IJtlönd
Japanskir munkar á bœn fyrir (raman keisarahöllina i Japan.
Simamynd Reutor
Hirohito Japanskeisari missti mikið blóð í morgun. Hiröin í keisarahöll-
inni vildi þó ekki greina frá hversu mikill blóðmissirinn hefði veriö held-
ur aðeins aö hann heiði verið sá mesti frá þvi að keisarinn varð alvar-
lega veikur 19. september síöastliðinn. Samtals hefur keisarinn fengiö
nxmlega niu litra i blóðgjöf meðan á veikindunum hefur staðið.
Jóhanna til Mið-Ameríku
Fellibylurinn Jóhanna er nú á
leiö til Miö-Ameríku. Jóhanna er
fyrsti fellibylurinn sem myndast á
Karíbahafi frá því aö Gilbert, mesti
fellibylur frá því að mælingar hóf-
ust, fór með miklum eyðileggingar-
krafti yfir þetta svæði í síðasta
mánuöi.
Talið er ólíklegt að Jóhanna veröi
jafnkrðftug og Gilbert sem grand-
aði rúmlega hundraö og fimmtíu
manns og olli skemmdum fyrir
milljarða dollara.
Sex manns slösuðust og þök af
hundrað húsum fuku á eyjunni
Curacao er Jóhanna fór þar yflr i
gær i formi hitabeltisstorms.
3A
^estur-lndiur
O t—O
Karibahaf
Japanskeisari missir bióð
Óeirðalögregla í Bonn handtekur kúrdískan mótmælanda.
Simamynd Reuter
.Kúrdar í Bonn lentu í átökum viö óeirðalögreglu í gær þegar forseti
Tyrklands, Kenan Evren, hóf sex daga opinbera heimsókn sína i Vestur-
Þýskalandi í gær.
Um fimmtíu Kúrdar börðust viö stuðningsmenn forsetans fyrir utan
ráöhúsið í Bonn og einn mótmælendanna kveikti í tyrkneska fánanum
áöur en óeirðalögregla beitti kylfum sínum gegn Kúrdunum. Tíu manns
voru handteknir.
Margir Kúrdar flúðu til V-Þýskalands viö valdarán forsetans árið 1980.
Tyrkir hafa ekki viljaö veröa við kröfum Kúrda um sjálfstæði og forset-
inn segir aö þeir verði aö gera sig ánægða með sömu réttindi og aðrir
borgarar.
Jarðskjátfti í Gríkklandi
Látlir jarðskjáiftakippir gengu
yfir vesturhluta Grikklands í gær
í kjölfar skjálítanna á sunnudaginn
sem lögðu fjölda heimila í rúst Að
minnsta kosti tuttugu og fimm
manns slösuöust á sunnudaginn og
skemmdir urðu miklar.
Þorpsbúar í Kilini sváfu utan-
dyra aðíaranótt mánudagsins af
ótta viö frekari skjálfta en skjálft-
inn á sunnudaginn raældist 6 stig
á Richterskvaröa.
Frá því í september hafa orðið
fimmtán jarðskjálftar á þessu
svæði.
Sjómaður virðlr tyrir sér sprungu
i hafnarbakkanum i Kilini í Grikk-
landi. Sprungan kom i jardskjalfta.
Simamynd Reuter
DV
Bush eykur
forskotið
Steinunn Böðvaisdóttir, DV, Washington:
meirihluti aðspurðra, eða 62 prósent
á móti 32 prósentum, kvaöst telja
Bush liklegri til aö viðhalda hernaö-
arstyrk Bandaríkjanna en Dukakis.
Niðurstöður skoöanakönnunar-
innar sýna einnig styrk hvors fram-
bjóðanda í hinum fimmtíu fylkjum
Bandaríkjanna á grundvelli at-
kvæðafjölda hvers fylkis fyrir sig.
George Bush, forsetaframbjóðandi repúblikana, stendur hér fyrir framan
eins konar hreyfil sem notaður er til að skjóta gervihnöttum út í himingeim-
inn. Myndin er tekin á kosningaferðalagi í Denver. Simamynd Reuter
Þar kemur fram að yröi gengið til
kosninga í dag hlyti Bush alls 303
atkvæði en 270 atkvæöi nægja til sig-
urs. Bush er talinn öruggur um sigur
í átján fylkjum samkvæmt þessari
skoðanakönnun og líklegur til sigurs
í fimmtán öörum. Dukakis telst aftur
á móti öruggur um sigur í sex fylkj-
mn auk höfuðborgarinnar og líkleg-
ur til sigurs í öðrum þremur fylkjum.
Alls myndi hann hljóta 105 atkvæði.
Niöurstööur könnunarinnar benda
til þess að einungis í átta fylkjum
meö samtals 130 atkvæði geti farið á
annan hvorn veginn. í síöustu könn-
un þessara íjölmiðla voru ellefu fylki
talin til alls líkleg.
Báðir frambjóðendumir héldu
kosningabaráttunni ótrauðir áfram í
gær. Nú, þegar einungis þrjár vikur
eru til kosninga, lítur út fyrir að
Dukakis eigi á brattann aö sækja.
Stuðningsmenn hans leggja nú meg-
ináherslu á baráttuna í stærri fylkj-
unum og þar sem fylgi frambjóöend-
anna viröist jafnt. Bush hellti sér í
slaginn tvíefldur að kröftum eftir
kappræöumar. Enn getur allt gerst
á næstu þremur vikum í þessari
kosningabaráttu sem hingaö til hefur
verið mjög jöfn.
George Bush, forsetaframbjóðandi
repúblikana í Bandaríkjunum, nýtur
nú 17 prósent meira fylgis meðal al-
mennings en andstæðingur hans,
Michael Dukakis, frambjóðandi
demókrata, samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar NBC sjónvarps-
stöðvarinnar og WaR Street Journal
dagblaðsins sem birtar vom í gær.
Þetta eru fyrstu niðurstöðumar
sem birtar em um fylgi frambjóðend-
anna á landsvísu síðan þeir háöu
seinni kappræður sínar síðastliðinn
fimmtudag. Samkvæmt skoðana-
könnunum vann Bush yfirgnæfandi
sigur í kappræðunum meö allt aö 22
prósenta mun.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar um fylgi frambjóðendanna,
sem birtar vora í gær, gefa Bush
stuðning 55 prósenta kjósenda. Duk-
akis hlaut stuðning 38 prósent að-
spurðra en 7 prósent voru óákveðnir.
Þetta er mesta forskot sem Bush hef-
ur notið í þessari kosningabaráttu.
Sé miðað við niðurstöður kannana,
sem gerðar vom áður en kappræð-
umar í síðustu viku fóm fram, hefur
Bush aukið forskot sitt á Dukakis um
7 til 10 prósent á tæpri viku.
Frammistaða Bush í kappræðun-
um virðist hafa aukið til muna traust
kjósenda á leiðtogahæfileikum hans.
Alls kváðust 65 prósent aðspurðra
frekar vilja hafa Bush í embætti for-
seta á hættutímum. Yfirgnæfandi
RæAuhöfundar forsetaframbjóðendanna gegna mikilvægu hlutverki eins
og sjá má á meðfylgjandi teikningu Luries.
Herstöðvasamningi mótmælt
Oldungadeildarþingmenn á
Filippseyjum réðust í gær harkalega
á samning sem geröur var viö Banda-
ríkjamenn um áframhaldandi leigu
þeirra á herstöðvum á eyjunum.
Samkvæmt samningnum munu
Bandaríkjamenn borga nær sjötíu
milijarða króna fyrir afnot af her-
stöðvunum árin 1990 og 1991.
Sögðust sumir öldungadeildar-
þingmenn telja að ákvæði um kjam-
orkuvopn í samningnum stangist á
við sljómarskrá Filippseyja.
Opinberir aðilar fógnuðu samn-
ingnum, sem skrifað var undir í
Washington, mjög og sögðu að þessi
samningur myndi ryðja brautina
fyrir frekari alþjóðlega aðstoð við
Filippseyjar, sem skulda nærri
fimmtán hundmð miUjarða ís-
lenskra króna erlendis.
Þingmenn réðust hins vegar á rík-
isstjóm Corazon Aquinos fyrir að
hafa ekki samráð við þingið um
samninginn.
Bandaríkin álíta hina geysistóm
Clarks herstöð og flotastöðina við
Subic flóa algera nauðsyn fyrir vam-
ir á Indiands- og Kyrrahafi, og vilja
gera samninga um leigu á stöðvun-
um til lengri tíma en fram til 1991,
ems og nu er.
Samkvæmt samningnum veröa
rúmir fjörutíu miUjarðar greiddir
bemt tynr Eitnot al herstoðvunum en
tæpir þrjátíu milljarðar verða veittir
í annars konar aðstoð. Reuter
Raul Manglapus, utanrfklsráðherra Filippseyja, og George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, skrifa undir samninginn um aðstoð Bandarikjanna
upp á nærri sjötíu milljarða íslenskra króna fyrlr afnot af herstöðvum í tvö ár.
Simamynd Reuter