Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Blaðsíða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988.
Frjálst.óháÖ dagblaö
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift.
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 800 kr.
Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr.
Smáir og knáir
Við getum lært margt af smáríkjum Evrópu, sem
hafa komið sér vel fyrir, þótt þau séu á landamærum
öflugra ríkja, er hafa sum hver myndað voldugt Evrópu-
bandalag. Á okkar tíma og þróunarstigi virðist evrópsk-
um smáríkjum vegna nokkru betur en stóru ríkjunum.
Ekki er langt síðan smæðin sjálf var smáríkjum fiöt-
ur um fót. Hún dró úr aðgangi að fjölmennum markaði
og var hemill á verksmiðjuiðnað, sem var undirstaða
evrópskra auðþjóða, áður en hann fluttist til Austur-
Asíu og þekkingariðnaður tók við í gamla heiminum.
Núna er engin framtíð í stórum verksmiðjum í Evr-
ópu og allra sízt þeim, sem eru vinnuaflsfrekar. Evrópu-
menn eru orðnir svo vanir háum tekjum, að handa-
vinna á borð við skipasmíði á heima í Kóreu og vél-
mennavinna á borð við bílasmíði á heima í Japan.
Sjálfstæðið er sá kostur smáríkja, sem gerir meira
en að vega upp smæðina. Smáríki hafa sitt eigið mið-
sóknarafl, sem beinist ekki til Lundúna, Parísar eða
Rómu, heldur til eigin höfuðborgar. Þetta hefur marg-
vísleg áhrif, allt frá sálrænum yfir í fiárhagsleg.
Sameiginlegt með mörgum hinna hagkvæmu eigin-
leika smáríkja er kunnáttan við að nota sérstöðuna.
Færeyingar kunna mun betur en við að nota sér útgáfu
frímerkja til ávinnings og hinir sterkríku Sanmarínar
eru hátt yfir okkur hafnir á því sviði.
Ferðaþjónusta er skyld frímerkjaútgáfu. Alveg eins
og sumir frímerkjasafnarar verða að eignast frímerki
frá San Marinó verða sumir ferðasafnarar að geta stát-
að af að hafa komið þangað. Menn flykkjast þangað, en
ekki til næstu borgar, sem kann að vera mun fegurri.
Fjármálaþjónusta er gróðavænlegasta iðjan í smáríkj-
um. Þar hefur Sviss riðið á vaðið og í kjölfarið fylgt
Lichtenstein og Luxemburg. Smáríki geta leyft sér
sveigjanleika og svigrúm í bankarekstri, sem erfiðara
er hjá stóru ríkjunum, reyrðum í þungar ríkisreglur.
Oft hefur verið bent á, að íslendingar eigi góða mögu-
leika á að byggja upp bankafríhöfn, seni geti tekið við
útlendum peningum og skilað þeim, án þess að peninga-
veltan sé fryst að hluta, skattlögð, vaxtaheft eða þvinguð
á annan hátt af hálfu hins opinbera Stóra bróður.
Hugsanlegt er, að lega landsins milli Vestur-Evrópu
og Norður-Ameríku geti orðið grundvöllur umskipunar
vamings frá Austur-Asíu og sjálfvirkrar samsetningar
tæknibúnaðar frá sama heimshluta. Opnun norðaustur-
leiöarinnar yfir íshafið mundi stuðla að því.
Við þurfum einnig að taka frumkvæði í afstöðu okkar
til efnahagsbandalaga á borð við Evrópubandalagið, sem
sogar til sín rúmlega helminginn af útflutningi okkar.
Við þurfum annaðhvort að stefna að þátttöku eða fara
hina leiðina og efla sérstöðu okkar úti á Atlantshafi.
Ef við viljum hagnýta okkur til fulls möguleika okkar
sem íbúa smáríkis úti í hafi, er eðlilegt, að við eflum
frekar sérstöðuna og reynum jafnframt með viðskipta-
samningum að milda tollmúra Evrópubandalagsins, svo
sem raunar hefur verið stefna okkar hingað til.
Til þess að það megi takast, verðum við að draga úr
einstefnunni í útflutningi og leggja meiri áherzlu á að
afla afurðum okkar markaða í Japan og nágrannaríkj-
um þess í Austur-Asíu, um leið og við reynum að hamla
gegn frekari samdrætti viðskipta við Norður-Ameríku.
í ráðagerðum af þessu tagi er hagkvæmt að læra af
auðugum smáríkjum, er hafa áður farið ýmsar þær leið-
ir, sem okkur standa til boða um þessar mundir.
Jónas Kristjánsson
w——
WÆ ■#rl||J
áJH
Fjármagnseigendur hafa vaðið um gráir fyrir járnum, búist til varnar og stofnað félag og vakið upp ótta hjá
fólki sem á eitthvert smáræði á bók, segir hér m.a. - Frá fundi um stofnun Félags sparifjáreigenda.
Stjómarand-
staða í stríðsham
Svo virðist vera að ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar hafi
góðan meðbyr er hún stígur sín
fyrstu skref.
Samkv. skoðanakönnun DV eru
65,1% fylgjandi ríkisstjórninni en
39,1% andvíg. Þetta bendir ótvírætt
til þess að meirihlutanum líki vel
þetta breytta stjórnarmynstur - og
geri sér vonir um að eitthvað kunni
að rofa til.
Fyrrverandi ríkisstjóm og sú
næsta á undan minnir mig að hafi
lagt af stað með talsvert meiri-
hlutafylgi sem lauk með lítilli tiltrú
og ótvíræðum hrakförum í öllu
góöærinu.
Nýkjörin ríkisstjórn má ekki
gleyma því að til hennar verða
gerðar þær kröfur að hún snúi
óheillaþróun í andhverfu sína. Ef
ríkisstjórnin kemur því í kring'að
skattleggja fjármagnstekjur og
leggja niður lánskjaravísitölu er
það tvennt góð undirstaða til að
skapa hér manneskjulegra og rétt-
látara þjóðfélag. - Og engum dettur
í hug að það skipti ekki meira máli
fyrir láglaunafólk en hitt þótt
samningsréttur fáist ekki endur-
heimtur fyrr en í mars eða þótt þær
litlu launahækkanir, sem áttu að
greiðast á tímabilinu, stöðvuðust.
Þetta veit forystusveit ASÍ mjög
vel, sömuleiðis Skúli Alexanders-
son, kvennalistakonur og aörir sem
andvígir voru þessari stjórnar-
myndun.
En hitt er alveg ljóst að ijár-
magnseigendur vilja ekki líða
slíkt... Og þeir geta aö sjálfsögðu
víðar verið en nokkurn grunar.
Böðlar réttlætisins
. Þegar nýfrjálshyggjan hélt inn-
reið sína í þjóðfélagið var sem
harka og fantaskapur réðu lögum
og lofum. Eins og grenjandi ljón
æddi hún yfir allt, hremmdi fjöl-
marga í klær sínar og skildi þá eft-
ir nær dauða en lífi - þótt hún hins
vegar hæfi aðra hátt í loft og bæri
þá á gulistólum um borgina. - Ekki
svo að skilja að veldi hennar nái
ekki langt út fyrir borgarmörkin.
Þessir menn, sem malað hafa
guU á gráa markaönum svokallaöa
og orðið stórauðugir menn á ör-
skömmum tíma, koma út í þessu
Utla samfélagi eins og nokkurs
konar yfirstétt sem hefur ráö fjöl-
margra einstaklinga og fyrirtækja
í hendi sér.
Vegna áforma ríkisstjórnarinnar
um aö skattleggja fjármagnstekjur,
þegar þær eru komnar yfir viss
mörk, hafa fjármagnseigendur
vaðiö um gráir fyrir járnum og
búist tíl vamar - stofnaö félag
spariíjáreigenda - og vákið upp ótta
hjá fólki sem á eitthvert smáræði
á bók.
Vonandi tekst þessari ríkisstjórn,
ef hún fær starfsfrið, að hindra
Kjallaiinn
Aðalheiður Jónsdóttir
verslunarmaður
framgang þeirrar óheillaþróunar
er nýfrjálshyggjan hefir skapað
þessu þjóðfélagi.
Samfélag heilagra
Sjónvarpsþátturinn á Stöð 2 með
Ólafi Ragnari Grímssyni fjármála-
ráðherra og framkvæmdastjóra
Fjárfestingarfélagsins var um
margt athygUsveröur.
Það er stórfurðulegt ef hér verða
að gilda allt önnur lög um fjár-
magnstekjur en í öllum vestrænum
löndum. - Er nokkurt vit í því að
hér séu launatekjur skattlagðar
eins og gert er en fjármagnstekjur,
hversu gífurlegar sem þær eru, séu
undanþegnar skatti?
Sjáaniega var forsvarsmaður
gráa markaðarins felmtri sleginn
yfir áformum stjórnvalda aö fara
að róta við þeim „gráa“ - sem með-
al annars var sagður eiga að
tryggja sjálfstæði þjóðarinnar.
Segja má að þær séu orðnar
margvíslegar, aðferðir íhaldsafl-
anna til að tryggja sjálfstæöi þjóð-
arinnar... Svo var þetta reyndar
líka andlegt... Ekki fylgdi því samt
nánari skýring. - Var sá „grái“ þá
eftir allt saman - samfélag heil-
agra?
Ekki skal mig undra þó að sann-
kristnir kapítaUstar rísi upp á aft-
urfæturna þegar á að fara að
njósná um á hverju þeir lúra og
gera þeim aö greiða til samfélags-
ins.
Hvað er framundan?
Nú er Alþingi að hefja störf...
Heyrst hefur talað um að stjórnar-
andstöðuflokkarnir ætU að verða
harðir í horn að taka og hafi jafn-
vel í hyggju að mynda pólitíska
hemaðarblokk gegn ríkisstjórn-
inni.
Mikil fundahöld hjá flokkunum
að undanfornu, þar sem þeir hafa
borið saman bækur sínar, benda
nyög til þess að margt eigi þeir
sameiginlegt. - Kannski ætlar Al-
bert að passa kvennaUstakonur
eins og eigin flokksmenn svo að
þær fari ekki að stökkva út undan
sér og taka víxlspor til vinstri?
Ekki minnist ég þess aö Kvenna-
Ustinn hafi nokkurn tíma tekið
slíka afstöðu í stjórnarandstöðu
sem nú. - Það er alveg ljóst aö hann
er ekki eins hræddur við að halla
sér til hægri eins og vinstri.
Stjörnupólitík
Dálítið finnst mér KvennaUstinn
undarlegt fyrirbæri... Hvorki til
hægri né vinstri eða neitt annaö
svo vitað sé - og alls ekki stjórn-
málaflokkur.
En hvað vilja þessar konur þá
vera að brölta í stjórnmálum? - Er
Alþingi þá hinn rétti starfsvett-
vangur fyrir þær? Það vil ég efa.
Nú áttu þær þess kost að ganga
til stjórnarsamstarfs og þoka ein-
hverju af sínum baráttumálum
áleiðis en þá kjósa þær heldur að
vera í stjórnarandstöðu. - Hvers
vegna?... Jú, baráttumálin urðu að
bíða. - Skoðanakannanir höfðu
stigið þeim svo til höfuðs að annað
komst ekki að... Þær voru orðnar
stjömur. Ef farið var að taka þátt
í stjórnarsamstarfi og axla ábyrgð
gat það orsakað stjörnuhrap.
Svolítið sýnist þetta nú snautlegt
viðhorf en líkast til alveg rökrétt
frá þeim séð. - Þessu fylgi höfðu
þær náð frá gömlu flokkunum, án
nokkurra veröleika. Þess vegna
var best að fara ekki að takast á
við vandann heldur krefjast kosn-
inga fljótt! fljótt! - áður en kjósend-
ur fengju eitthvað raunhæft að
styðjast við og breyttu kannski af-
stöðu siiini.
Þetta er líkast til pólitísk stjömu-
speki sem kannski á eftir aö sanna
gildi sitt á einhvem hátt og hjálpa
kjósendum að átta sig - hver veit?
Aðalheiður Jónsdóttir
„Og engum dettur 1 hug að það skipti
ekki meira máli fyrir láglaunafólk en
hitt þótt samningsréttur fáist ekki end-
urheimtur fyrr en í mars eða þótt þær
litlu launahækkanir, sem áttu að greið-
ast á tímabilinu, stöðvuðust.“