Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988. Andlát Játvaröur Jökull Júliusson, Miðja- nesi, lést í dvalarheimilinu Barma- hlíð, Reykhólum, að morgni 15. okt- óber. Ingibjörg Sigurðardóttir, Stekkjar- götu 3, Neskaupstað, lést í Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað 14. okt- óber. Jóhanna E. Sigurðardóttir, áður Sel- vogsgötu 9, Hafnarfirði, er látin. Guðrún Þorbjörg Steindórsdóttir, Vitastíg 16, lést í sjúkrahúsi í Róm 15. október. Eyjólfur Tómasson, Brekkubyggð 39, Garðabæ, lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 16. október. Jens Davíðsson, Austurgötu 47, Hafnarfirði, andaðist á heimili sínu fóstudaginn 14. október. Ólafur Jónsson, til heimilis á Lauga- vegi 27a, lést 15. október á heimili sínu. Jarðaifarir Ólöf Grímea Þorláksdóttir, Stóra- gerði 23, verður jarðsungin frá Há- teigskirkju miðvikudaginn 19. októb- er kl. 15. Útfor Gunnbjöms Gunnarssonar, Sæviðarsundi 29, fer fram frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 20. októb- er kl. 13.30. Jarðarfor Ellerts Helgasonar, Soga- vegi 135, verður gerð frá Fossvog- skapellu fimmtudaginn 20. október kl. 16. Jóhanna Guðmundsdóttir fyrrver- andi kennari, frá Lómatjöm, verður jarðsungin frá Neskirkju fimmtu- daginn 20. október kl. 15. Gestur Halldórsson frá Garðsvík, verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju miðvikudaginn 19. október kl. 13.30. Eyjólfur Sveinsson úrsmiður frá GUlastöðum, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 19. október kl. 13.30. Námskeið Námskeið í bridge í kvöld, 18. október, hefst í menningar- miðstööinni Gerðubergi námskeið 1 bridge. Að námskeiðinu standa Náms- flokkar Reylqavikur, Bridgesamband ís- lands og Geröuberg. Kennari á námskeiö- inu verður Jakob Kristinsson (ritari Bridgesambands Reykjavíkur). Kennt verður í 10 skipti (á þriðj udagskvöldum) og hefst kennslan kl. 19.30. Kennslugjald er kr. 3500. Innritun er í Gerðubergi og síminn þar er 79140 og 79166. Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands heldur námskeiö í skyndibjálp. Nám- skeiðið hefst þriðjudaginn 18. okt. kl. 20 og stendur í 5 kvöld. Kennt verður 18., 20., 25., 27. okt og 1. nóv. Námskeiðsgjald er kr. 2500, námsgögn eru innifalin. Nám- skeiðið verður haldið aö Öldugötu 4. Öll- um 14 ára og eldri er heimil þátttaka. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 15. Þeir sem hafa áhuga á aö komast á námskeiðið geta skráö sig i sima 28222. Notað veröur nýtt námsefiii sem RKÍ tók i notkun nýlega og hefur geflö góða raun. Nokkuð er um nýjungar. Lögð verður áhersla á fyrirbyggjandi leiöbeiningar og ráö til almennings við slys og önnur óhöpp. Námskeiöinu lýkur með prófl sem hægt er aö fá metið i flestum framhalds- skólum. Tilkynningar Félag eldri borgara Opiö hús í Tónabæ í dag frá kl. 13.30. Kl. 14 ftjáls spilamennska. Kl. 19.30 dans- kennsla, almennur dans til kl. 23.30. Opiö hús i Goðheimum, Sigtúni 3, á morgun, sunnudag. Kl. 14 ftjálst spil og tafl. KL 20 dansað til kl. 23.30. Opiö hús í Tónabæ á mánudag frá kl. 13.30. KL 14 félagsvist KL17 Mallorkafundur. KL19 söngæflng. 15. okL Alþjóðlegur dagur hvíta stafsins Hviti stafurinn er aðalhjálpartæk) blindra viö aö komast leiöar sinnar, jaftit utanhúss sem innan. Hann er jafhframt forgangsmerki i umferðinni. Það krefst langrar þjálfunar aö læra að nota hvlta stafinn svo aö hann komi að sem mestum notum. Þjálfunin er fólgin i aö læra að beita stafrtum á réttan hátt, læra ákveðn- ar leiðir og aö þekkja kennileiti Ökumenn og aðrir vegfarendur taka í rfkara mæli tUlit til blindra og sjónskertra sem nota hvita stafinn. Eitt aöalvandamál þess sem feröast um meö hjálp hvita stafsins er kyrrstæöir bilar á gangstéttum. Þessir bílar geta valdiö stórhættu, sérstaklega vörubílar og aörir háir bílar. Stafurinn lendir undir bílnum og sá blindi verður ekki var viö bilinn fyrr en hann rekst sjáifur á hann. Skoraö er á ökumenn aö virða hvíta staflnn sem stöðvunarmerkL Menning Smáborgarar og sköllótt söngkona Veislugestir í Smáborgarabrúðkaupi Brechts. Ólafur Guðmundsson og Bára Magnúsdóttir. Nemendaleikhúsið sýnir: Smáborgarabrúðkaup Höfundur: Bertolt Brecht Þýðing: Þorsteinn Þorsteinsson. Flosi Ólalsson þýddi vísur vinarins Sköllótta söngkonan Höfundur: Eugene lonesco Þýðing: Karl Guðmundsson Leikstjóri: Briet Héðinsdóttir Leikmynd og búningar: Guðrún Sigríður Haraldsdóttir Lýsing: Egill örn Árnason Leiklistarskóli íslands er þannig vaxinn aö fjórða hvert ár eru ekki innritaðir neinir nýir nemendur. Þar af leiðir að Nemendaleikhúsið, en uppistaðan í því er útskriftarár- gangurinn hveiju sinni, starfar aðeins þrjú ár af hverjum íjórum. í fyrra var þannig hlé á starfsemi leikhússins og ekki laust við að maður saknaði sýninganna. Þær einkennast öðru fremur af eldmóði hinna ungu leikaraefna sem fá til hðs við sig færustu leikstjóra og sú samvinna skilar oft býsna góðum árangri. Verkefnaval er fjölbreytt og eitt af þremur viðfangsefnum leikársins er venjulega frumsamið íslenskt verk, sérhannað fyrir hóp- inn. Bríet Héðinsdóttir stjómar fyrstu sýningu leikársins hjá Nemenda- leikhúsinu en frumsýning var í gærkvöldi í Lindarbæ. Átta manns eru í árganginum að þessu sinni og auk þeirra leika tveir gestaleik- arar. Tveir einþáttimgar eftir tvo nútíma klassíkera eru á dagskrá, Smáborgarabrúðkaup eftir Bertolt Brecht og Sköllótta söngkonan eftir Ionesco. Þó að þessir þættir eigi harla fátt sameiginlegt fljótt á litið fjalla þeir þó báðir um fjölskyldulíf og mann- leg samskipti. Smáborgarabrúðkaup er grát- fyndinn þáttur um einkar heimilis- lega brúðkaupsveislu sem fer alveg í vaskinn. Þetta er eitt af fyrstu verkum Brechts og þama kveður við annan tón heldur en í seinni leikritum hans. Hann fiallar um líf og samskipti fólks sem er njörvað mður af smá- smugulegum reglum og venjum hins smáborgaralega samfélags. Hann flettir ofan af öfund, illgimi og skorti á væntumþykju í mann- legri sambúð og beitir vopni háðs- ins til þess að opna augu áhorfand- ans. Efni þáttarins er í grófum drátt- um það að ung brúðhjón halda sín- um nánustu veislu á heimili sínu. Brúðurin er komin langt á leið, en það þykir ekki góð latína í smá- borgarakreðsum, en brúðguminn, svona rétt í meðallagi banghagur ungur maöur, var bara ekki fljótari en þetta að smíða innbúið sem aftur var algjör forsenda þess að brúð- kaupið gæti farið fram. Og loksins er allt tilbúið - eða þannig... Leiklist Auður Eydal Veislan fer fram með miklum endemum. í upphafi era allir sett- legir og prúöir, eins og tilheyrir í fínni veislu. En svo fara gestimir að skandahsera hver um annan þveran og um það er lýkur er aht. meira og minna í rúst. Áhorfendur sitja á þijá vegu í kringum leiksviðið og horfa eins og óboðnir gestir inn á heimili þess- ara seinheppnu smáborgara í gegn- um hrunda veggi. Leikmynd og sviðsmunir era skemmtilega hönn- uð og heimasmíðuðu húsgögnin hrynja ofureðlhega í sundur þegar við á. Leikmynd og búningar eru verk Guðrúnar Sigríðar Haraldsdóttur sem undirstrikar kátlega þætti og drætti 1 persónugerðinni, með farsakenndum búningum og gerv- um sem um leið styðja leikarana töluvert og gefa tóninn. Litir em bjartir og fjörlegir og henni hefur tekist alveg prýðilega að skapa umgjörð við hæfi. Bríet Héðinsdóttir leiksfjóri gefur leikendunum nokkuð lausan taum- inn í þessum þætti og undir hennar stjóm hafa þau þama hlotið dýr- mæta reynslu í gamanleik sem fer út í farsa. Helga Braga Jónsdóttir var alveg pottþétt sem móðir brúðgumans. Hún lék hlutverk hinnar einu sönnu matmóöur ahra tíma af ríkri kímni. Þau Bára Lyngdal Magnús- dóttir og Ólafur Guðmundsson vom dæmigerð hjón sem þola ekki hvort annað og nota hvert tækifæri sem gefst til að kyta og hnýta hvort í annað. Þeirra illutverk vom tölu- vert ýkjukennd, sérstaklega þurfti Bára að tefla á tæpasta vað. Steinn Á. Magnússon var vinur- inn en brúðbjónin sjálf léku þau Elva Ósk ÓMsdóttir og Sigurþór A. Heimisson. Christine Carr var systirin en auk þess léku tveir gestaleikarar 1 þessum þætti, þeir Andri Öm Clausen og Emil Gunn- ar Gunnarsson. Andri þurfti að leika töluvert upp fyrir sig í aldri, sem hinn söguglaði faðir brúðar- innar, og þaö gerði honum að von- um erfitt fyrir en hann komst engu að síður nokkuð vel frá þessu. í seinni þættinum er hins vegar útfærslan mun agaðri. Þar er sund- urlaus orðaflaumurinn meginmál- ið, leikurinn stílfæröur og persón- umar verða skoplegar fyrst og fremst vegna þess að öh venjuleg ghdi raskast. Tíminn gengur aft- urábak og út á hhð, ekkert er leng- ur öruggt. Hjón þekkja ekki lengur hvort annað og samræðumar byggjast á innantómum khsjum. Það hefur mikið vatn mnnið th sjávar síðan Ionesco skrifaði ein- þáttunginn um Sköhóttu söng- konuna fyrir nærri 40 árum og margir hafa síðan spreytt sig á því að fara fram úr þvi framúrstefnu- legasta sem á hverjum tíma hefur veriö komið fram. En engu að síður hefur sú sköh- ótta staðist tímans tönn mætavel, þrátt fyrir stælingar og önnur nýrri verk. Það er vitaskuld vegna þess að þrátt fyrir frasana, endurtekning- amar og einfalt yfirborðið er þetta magnað og vel samið verk sem á fuht erindi í dag, ekkert síður en þegar það kom fyrst fram. Sem ádeila á smáborgaraskap og vélræna thvem nútímamannsins stendur það enn fyrir sínu og þaö er líka hoh hugvekja þegar innan- tómt froðusnakk og síbyljubull dynur án afláts á eyrum svo að orðin hafa fyrir löngu misst merk- ingu sína. Þar er á ferð harmleikur timgumálsins sem bæði er raun- vemlegur og okkur nákominn. í þessum seinni þætti sitja tvenn hjón (sömu hjónin?) í stofu sinni, hvor um sig eins og speghmynd af hinum. Litimir era dempaðir, sam- ræðumar staðlaðar og viss fárán- leiki ríkir. Þau Ólafur, Helga Braga, Steinn og Steinunn Ölafsdóttir leika þessi tvenn hjón og komu inntakinu nokkuð vel th skha þó að þau réðu ekki alveg th fullnustu við leikmát- ann. Textinn í þessu verki er geysi- erfiður, verkið byggist að mestu á töluðu orði og það engum venjuleg- um texta. Framsögn flestra í hópnum er með ágætum og í hehd var þessi sýning vel unnin og leikendur hafa hér greinhega hlotiö styrka leið- sögn Bríetar. Yfir leikendum er þokki æskunnar en um leið er farin að skha sér áralöng þjálfun í leik- hstarnámi. Það verður gaman að sjá hópinn takast á við þau tvö verkefni sem eftir eru í vetur. -AE Vetrarstarf Alþýðubandalagsins í Garðabæ er nú hafiö. Félagið boðar til opins flind- ar meö ráöherrum flokksins í Safiiaöar- heimilinu, Kirkjuhvoli, Garöabæ, í dag, 15. október, kl. 15. Ráöherramir Ólafur Ragnar Grimsson fiármálaráðherra, Svavar Gestsson menntamálaráöherra og Steingrimur J. Sigfússon landbúnað- ar- og samgöngumálaráðherra flytja stuttar framsöguræöur og svara síðan fýrirspumum frá fundarmönnum. Eskfiröingar og Reyö vfk og nágrenni halda sitt árlega síödegis- kaffi fýrir eldri sveitunga sunnudaginn 23. október kl. 15 í Sóknarsalnum, Skip- holti 50a. Kynnlngar- og sölusýning Dagana 18. og 19. október, frá kl. 9-18, veröa kynntar teiknivörur í Máh og menningu, Síöumúla 7, Reykjavik. Kynntar veröa ýmsar teiknivörur, s.s. teikniborö, teiknivélar, teiknipennar, teikniáhöld, vagnar meö skúflum og margt fleira. Nýja letrasetbókin er nú loks komin og veröur hún til afhendingar á sýningunni fýrir viðskipavini „letra- set“. Sýningardagana veröur viöskipta- vinum gefinn 15% staögreiösluafsláttur af öllum teiknivörum nema teikniborö- um og teiknivélum. ITC (áður málfreyjur) Fyrir pá sem vflja vita meira um um ITC em upplýsingasímar. Guörún Lifja, s. 91-46751, Jónina, s. 94-3662, Marta, s. 91- 656154 og Hjördís, s. 91-28996. Skagfirðingafélagið I Reykjavik efnir til vetrarfagnaðar nk. laugardag. Spiluð veröur félagsvist. Jóhann Már Jóhannsson stórsöngvari syngur og tríó Þorvaldar leikur. Samkoman hefst kl. 20.30 í félagsheimilinu Drangey, Síöu- múla 35. Tapaðfundið Blátt seðlaveski fannst Blátt, Utiö seðlaveski með myndum fannst i Lækjargötu. Uppl. í s. 27022, dag- bók. Seðlaveski tapaðist Vinrautt seölaveski tapaöist fýrir utan Staldriö sl. föstudag. í veskinu voru skil- ríki og myndir. Finnandi vinsamlegast hringi í Drífu í s. 79690 eða s. 41847 efUr kl. 17. Fundir Aðalfundi Foreldra- samtakanna I Reykjavik veröur frestaö um rúmlega mánuö. Aðalfundur NRON Aðalfundur Neytendafélags Reykjavikur og nágrennis verður haldinn miöviku- daginn 26. október kl. 20 aö Hótel Lind, Rauöarárstíg 18. Félagar fjölmennið. KR-konur veröa meö fund í kvöld, 18. október, kl. 20.30 í félagsheimilinu. Dagskrá: Upplest- ur - Jónina H. Jónsdóttir, tískusýning flá Kápunni. Allar konur-velkomnar. ITC-deildin Björkin heldur fund aö Siöumúla 17 miövikudag- inn 19. október kl. 20. Mætum stundvís- lega. Allir velkomnir. Kvenfélag Óháða safnaðarins Fundur veröur haldinn í safnaöarheimil- inu Kirkjubæ i dag þriðjudag kl. 20.30. Fundareftii: rætt um basarinn sem hald- inn veröur 5. nóvember. Fræöslufundur nemendaráða í Reykjavik Fræöslufundur fýrir fulitrúa allra nem- endaráða grunnskóla Reykjavikur var haldinn í Tónabæ 4. okt. sl. Fundinn sóttu 80 unglingar sem eru í forsvari fýrir fé- lagsstarfl skólanna. Á fundinum var flall- aö um hlutverk og viöfangseftii nem- endaráöa, gerö starfsáætlana, lög og reglugerðir sem tengjast félagsstarfl skólanna. Einnig var rætt um samræm- ingu félagsstarfs milli skóla og spunnust fjörugar umræöur út frá þvi. Unglingam-' ir ræddu um lengd skemmtana, aögangs- eyri inn á diskótek og fleira. Spuminga- keppni grunnskólans var kynnt, starfs- fólk félagsmiðstöðvanna í Reykjavik hef- ur umsjón meö henni. Aö lokum fluttu unglingamir, einn frá hverjum skóla, fýrirlestur um starfsáætlun félagsstarfs- ins á haustinu. Fundinum lauk meö al- mennum umræöum um frístundastörf skólanna. Kvenfélaglð Seltjörn Fundur veröur í Félagsheimili Seltjam- amess í dag, 18. október, kl. 20.30. Sigur- geir Sigurösson bæjarstjórí veröur gestur fundarins og talar hann um bæjarmál. Konur, sem fóm til Osló á Nordisk For- um, segja frá vel heppnaðri ferö. Félag áhugamanna um heimspeki halda sinn annan fUnd starfsáriö 1988-89 nk. sunnudag kl. 14.30 i Lögbergi, stofu 101. Fyrirlesari á þessum fundi veröur Gunnar Skirbekk og flytur hann lestur sem hann neftúr „Contextual Pragmatics and Universal Pragmatics - a Mutual Critidsm of Praxeological and of Trans- cendental Pragmatic Ways of Thinking". Gunnar Skirbekk er prófessor í visinda- heimspeki viö háskólann i Bergen og hefur hann geflö út fjölda bóka og rit- geröa um heimspekileg eftú. Þá hefUr hann unniö að málefttum Nordisk Insti- tut for fllosofl en íslendingar eiga hlut að þeirri stofnun og var haldiö málþing á vegum hennar hér á iandi sl. vor. Leiðrétting í afmælisfrétt um Guömund H. Garöarsson, sem birtist í blaðinu í gær, kom ekki fram aö Valdís, systir Guömundar, er gift Ríkarði Stein- bergssyni verkfræöingi. Fyrri maður Valdísar, Skafti Þóroddsson, lést í desember 1962. Blaöiö biöst velvirð- ingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.