Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988. 13 Lesendur ^SKYLfí ^9*18 i | SJÁLFSAU Stööumælar geta valdiö bíleigendum ómældum útgjöldum. Stöðumælasektir: Þú sleppur ekki auðveldlega Bíleigandi skrifar: Ég vil skora á fólk að sniðganga miðborgina og fara ekki þangað á bíl nema það bráðnauðsynlega þurfi vegna „stöðumælaskæruhemaðar- ins“ sem ég vil kalla svo. Ef fólk legg- ur dæmið niður fyrir sér og reiknar hvað það leggst mikill kostnaður of- an á þá vöru, sem það ætlar að kaupa í miöborginni en getur eins keypt í úthverfunum, þá er orðið nokkuð dýrt að versla þama. Segjum að þú þurfir að fara á tvo staði. Þú þarft að borga 50 krónur í hvom stöðumæli og getur átt von á a.m.k. 300 króna sekt - jafnvel 600 kr. Þá getur feröin niður í bæ kostað þig 400 - 600 krónur. Þú sleppur ekki auðveldlega við sekt því fólk hefur staðið „varðliöana" að því að bíða við mælana. Þessi ósvinna er borgaryfirvöldum til mikillar minnkunar, ekki síst vegna þeirrar aðstöðu sem bíleigend- um er boðið upp á hér í gatnakerfinu. VarafLugvöllur úr sögunni Á AJþýðubandalagið Þorsteinn Ólafsson skrifar: Ég get ekki látið hjá líða að setjast niður og hripa nokkrar línur vegna fréttar sem ég las í Þjóðviljanum í morgun (13. okt.). Þar stendur í fyrir- sögn: „Viljum engan herflugvöll“ - Það er samgönguráðherra Islands, Steingrímur J. Sigfússon, sem svo mælir og segir engar framkvæmdir fyrirhugaðar í þessum efnum og þvi hafi viðræðum fulltrúa Bandarög- anna og flotastjórnar Atlantshafs- bandalagsins verið slitið. Ég spyr nú bara: Hvetjir era þessir „við“ sem ráðherrann vitnar til í fyr- irsögninni? Ég er landsbyggðarmað- ur og einn þeirra sem telja að hér verði að vera varaflugvöUur. Slíkan flugvöll byggjum við íslendingar ekki í framtíöinni sjálfir og einir. Umræður um byggingu varaflugvall- ar byijuðu fyrst í tíð Matthíasar Bjamasonar alþingismanns. Síðan hafa fáir fundir veriö haldnir um málið, en búið að skila greinargerð Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra. - Er hann að þjóna þjóð sinni með því að stöðva við- ræður um varaflugvöll? að ráða? um viðræðumar til ráðherra. Það má vel vera að núverandi sam- gönguráðherra haldi, að hann sé að þjóna þjóð sinni af samviskusemi með þessari ákvarðanatöku en meirihluti landsmanna kann honum engar þakkir fyrir þessa afstöðu. Núverandi formaður utanrikis- málanefndar, Jóhann Einvarðsson, segir að sjálfsagt hefði verið að halda viðræðum áfram, - en hann er einn- ig bundinn í báða skó, annars vegar af formanni flokks síns, sem ekki tekur af skarið, og svo samgönguráð- herra, og fáir vilja eða þora að ganga í berhögg við ráðherraúrskurð, allra síst þingmenn. - Það verður því úr að við færumst enn lengra til baka í samgöngumálum okkar á meöan þessi afturhaldssama og þjóðfjand- samlega ríkisstjóm situr. Einkamál! Til sölu VHS-videóspólur fyrir fullorðna Pósthólf 3063, 123 Reykjavík HÚSGÖGN - TEPPI Við höfum flutt að Suðurlandsbraut 16, 2. hæð (hús Gunnars Ásgeirssonar). Sófasett og hornsófar í úr- vali. Halldór Svavarsson, umboðs- og heildverslun ö DeWALT Prófí Isagir DW 1501, 1,5 hestafl, 46,5 cm skurðarbreidd. DW 8101, 2 hestöfl, Glam skurðarbreidd. Spónsuga 14" blað 2000W. Hjólsagir DW 60, 1 hestafl, 2850 snún. á mín. 125 I poki, 500 m3 flæði á klst. 91 /4" blað 1800W. ÆL BIACKSlDECKER "Jm Á íslandi Jíarrysson ff. Nýbýlavegi 14 Kópavogi S. 642028 - 642029 'a tV\^) 't&WVX/ Á heimilissíðum á morgun verður fjallað um gömul húsgögn. Á íslandi er mikið til af slíku frá Danmörku og Englandi - húsgögn sem voru flutt inn bæðj fyrir og eftir stríð. En gömul dönsk húsgögn eru ekki bara vinsæl hér á landi -sjálfir ítalir eru nú farnir að kaupa gamalt af Dönum í stórum stíl. Einnig verðurfjallað um heimilis- lýsingu og hollráð gefin um hvernig best er að koma fyrir lömpum heima við-til aðskapa þægindi og koma í veg fyrir andlega og líkamlega þreytu. í tíðaranda erfylgst með uppboði á varn- ingi íTollstöðinni en þarvarádögunum boðinn uppallskonar varningur sem ekki hef- ur verið leystur út eða lent hjátollstjóra af öðrum ástæðum. Upp- boðið, sem fram fór fyr- ir stuttu, var vel sótt og mikiðfjörogspenna enda ekki alltaf vitað hvað verið er að kaupa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.