Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988.
UtLönd
Elísabet Bretadrottning hóf í gær fyrstu opinberu heimsókn bresks þjóö-
höfðingja til Spánar. Hón gladdi gestgjaia sína mjög meö því aö eegja við
komuna tíi Spánar að hún vonaði að vandaraáliö með Gibraltar yrði ley sL
Gíbraltarmálið er stærsta ágreiningsatriðið í samskiptum Bretlands og
Spánar, en Spánveijar vilja íá yfirráð yfir Gíbraltar.
Reuter
Yitzhak Shamlr, forsætisráðherra Israels, brýtur hér brauð með eþíópisk-
um gyölngi á kosningaferðalagi um suðurhluta landsins.
Stmamynd Reuter
Yitzhak Samir, forsætisráðherra ísraels, sagöi í gær aö stofhun palest-
ínsks ríkis á vesturbakkanum gæti leitt til þriðju heimsstyrjaldarinnar.
Shamir sagði að ef ísraelar létu viðgangast að slíku riki yrði leyft aö
komast á yrði ómögulegt aö losna við þaö aftur án þess að það leiddi til
heimsstyrjaldar, vegna afskipta arabaríkja og austantjaldsríkja.
Nancy Reagan gagnrýnd fyrir föt
Nancy Reagan hefur undanfama daga sætt gagnrýni fyrir að fá lánuð
fót og skartgripi án þess að gefa það upp í skýrslum sem hún og forsetinn
eru skyldug til að fýlla út á hveiju ári. Talsmaður Hvíta hússins sagði í
gær að Reagan forseti hefði tekiö gagnrýnina á konu sína mjög nærri sér
og aö ekkert væri ólöglegt meö það hvemig forsetafrúin yröi sér úti um
þau fót sem hún klæðist
Dómari gengur út
Belgískur logreglumaður leitar á breskum knattspyrnuunnanda sem
ákærður er fyrir manndráp en þrjátiu og niu manns biðu bana þann
29. mai 1985 í skrilslátum breskra áhorfenda á knattspymukappleik sem
fram fór á Heysel leikvanginum í Brussel.
Símamynd Reuter
BelgLskur dómari gekk út úr réttarsal í gær eftir að honum lenti saman
við verjanda breskra knattspymuunnenda sem em ákærðir fyrir mann-
dráp vggna skríþiláta þeirra á Heysel leikvanginum í Brussel fyrir þrem-
ur og hálfu ári.
Dómarinn gekk út eftir að verjandinn haíði sýnt honum fádæma dóna-
skap. Síöar frestaði hann rétti þar til í dag.
Jafnaðar* og miðjumenn sigra
Jafnaöar- og miðjumenn sigmöu í sveitarstjópnarkosningum sem fram
fóm í Finnlandi á stmnudag og mánudag. Ekki urðu miklar hreyfingar
á fýlgi frá því í kosningunum 1984. Búist hafði veriö við aö græningjar
myndu bæta við sig fylgi en þeir töpuðu. Vinstri flokkar töpuöu einnig
verulega.
Enn verkföll í Frakklandi
Serbar einangraðir
Serbneskir þjóðemissinnar, sem
em nú að reyna að auka áhrif sín í
júgóslavneskum stjórnmálum, virt-
ust vera einangraðir á neyðarfundi
leiðtoga Kommúnistaflokksins, sem
á að ná hápunkti sínum í dag með
mikilli uppstokkun í forystusveit
flokksins.
Formaður flokksins, Stipe Suvar,
sagði á fundi miðnefndar flokksins í
gær að Serbía, sem er stærsta lýð-
veldið í því ríkjasambandi sem Júgó-
slavía er, hefði engan rétt til fullra 'i
yfirráða yfir Kosovo eða Vojvodina,
sem em sjálfstæð hémö á serbnesku
landsvæði.
Júgóslavía gengur nú í gegnum
mesta pólitíska óveður sem landið
hefur lent í frá því að kommúnistar
tóku völdin í landinu árið 1945.
Ástæðan er eijur milli Serba, sem
em átta milijónir, og Albana, sem
eru sautján hundmð þúsund, og búa
nær eingöngu í Kosovo.
Reuter
Dusan Ckrebic, serbneskur meðlimur í stjórnmálaráöi júgóslavneska
Kommúnistaflokksins, t.v., ræðir hér við Slobotan Milosevic, leiðtoga Komm-
únistaflokksins í Serbíu, á neyðarfundi Kommúnistaflokksins í Belgrad i gær.
Simamynd Reuter
Bjaiui Hinrikssan, DV, Bordeaux;
í þessari viku reynir virkilega á
getu frönsku ríkisstjórnarinnar til
að taka á launamálum opinberra
starfsmanna og kröfum þeirra um
bætt kjör. Fyrir verkalýðfélögin er
um að ræða prófstein á mátt þeirra
í lengri verkfollum sem gætu fylgt
í kjölfarið næstu vikur.
Eftir að viðræður ríkisstjómar-
innar og opinberra launþega á
fostudaginn var fóm út um þúfur
telja verkalýðsfélögin sig hafa feng-
ið vind í seglin. Þau eru mörg og
kröfur hinna mismunandi starfs-
greina mjög misjafnar.
Búast má við röskun á ferðum
lesta og strætisvagna í dag og allan
daginn verða kröfugöngur, vinnu-
stöðvanir og smærri verkföll hjá
ýmsum hópum. Eitt stærsta verka-
lýðsfélagið kallar þetta fram-
kvæmdadag starfsgreinanna og
búast má við að embættismenn,
kennarar og starfsmenn póstþjón-
ustunnar auk flugfélaganna Air
Inter og Air France hlýði kallinu.
Á fimmtudaginn verða svo hefö-
bundin verkföll að undirlagi sex
verkalýðsfélaga, verkfall hjúkr-
unarkvenna heldur áfram og á
laugardaginn verða þær með
kröfugöngur um allt land. Reyndar
má búast við mikilli göngugleði
alla vikuna, sérstaklega í París.
Lestarstarfsmenn hafa endurvakið
verkfallsnefnd sína sem þekkt varð
í desemberverkfallinu 1986 þegar
samgöngur lömuðust í lengri tíma.
Sumir hópar opinberra starfs-
manna hafa þegar náð samningum
svo sem flugmenn, fangaverðir,
lögreglumenn og flugumferðar-
stjórar. Hjúkrunarkonur hafa ver-
ið rúmar tvær vikur í verkfalli og
þrátt fyrir að ríkisstjómin hafi lýst
yfir skilningi á kröfum þeirra og
reynt að koma til móts við þær og
þrátt fyrir að þreytu sé farið að
gæta í röðum verkfallsmanna, sem
sjá um að lágmarksþjónustu á
sjúkrahúsum sé haldið uppi sam-
hliða verkfallinu, sér ekki fyrir
endann á aðgerðum.
Verkalýösfélögin, sem misstu af
lestinni í máli hjúkrunarkvenna,
því þær hafa skipulagt allar að-
gerðir sjálfar, vilja ekki að tekið sé
fram fyrir hendur þeirra og því
má að nokkru leyti skýra þessa
viku sem sýningu á mætti félag-
anna og aövörun til ríkisstjórnar-
innar sem heldur fast við aðhalds-
stefnu sína.
Hjónin Geoffrey Gait, 31 árs, ög Ruth, 26 árs, björguðust án teljandi meiðsla úr slysinu ásamt syni sínum, Ric-
hard, sem er átta mánaða gamall. Símamynd Reuter
Mannleg mistök kunna
að hafa valdið slysinu
Þoka, flugmannsmistök eða mis-
skilningur milli flugtums og flug-
manns kunna að vera ástæður þess
að farþegaþotan frá Uganda fórst í
aðflugi að Leonardo da Vinci flug-
velli í Róm í gær. Þrjátíu og einn fórst
í slysinu.
Björgunarsveitir fundu svarta
kassann í braki vélarinnar sem
fleytti kerlingar á húsþökum áður
en hún þeyttist inn í skóg og varð
alelda.
Samgöngumálaráöherra Ítalíu,
Giorgio'Santuz, lét strax hefia rann-
sókn á flugslysinu og ráðherra sam-
göngumála í Uganda er kominn til
ftalíu til að aðstoða við rannsóknina.
Flugvélin, sem var á leið frá Lon-
don til Uganda, reyndi tvisvar að
lenda en þurfti að hætta við. Það var
í þriðja sinn sem vélin lækkaði flugið
allt of fljótt og skall niður þegar hún
átti um einn kílómetra ófarinn að
flugbrautinni. Reuter