Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1988, Side 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988.
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988.
17
Iþróttir
DV
“ segir Pétur í viðtali við DV
Við erum búnir að æfa af miklum krafti og vorum að
koma úr einni keppnisferð af mörgum sem við förum 1
áður en alvaran hefst. Það hafa átt sér stað miklar breyt-
ingar hjá okkur frá því í fyrra og við erum mjög bjartsýn-
ir á gott gengi 1 NBA-deildinni í vetur,“ sagði Pétur Guð-
mundsson í samtali við DV í gær en hann er sem kunn-
ugt er atvinnumaður hjá bandaríska NBA-liðinu San An-
tonio Spurs.
„Það eru aöeins fimm leikmenn
í liðinu núna sem léku með í
fyrra, ég og fiórir aðrir. Ég er í
byijunarliðinu sem stendur en
auövitaö gæti það breyst. Enneru
fjórtán leikmenn sem koma til
greina í tólf manna liðið í vetur
en það veröur endanlega valið
um næstu mánaðamót. Frank
Brickowski, miðheijinn sem var
í byijunarliðinu hjá okkur í
fyrra, hefur ekki enn skrifaö und-
ir samning en hann fer fram á
mjög há laun.“
Losnar Robinson
undan herskyldunni?
„Forráðamenn San Antonio eru
aö reyna aö fá David Robinson
leystan undan herskyldu en hann
er af mörgum talinn besti mið-
herjinn í Bandaríkjunum. Ef það
tekst verður ekki samiö við
Brickowski. Það yrði gífurlegur
styrkur fyrir okkur að fá Robin-
son en menn eru ekki mjög bjart-
sýnir á aö hann verði leystur frá
herþjónustu.“
Nýr þjálfari
- Nú hefur Bob Weiss hætt sem
þjálfari. Hvernig lýst þér á nýja
þjálfarann?
„Það er rétt að Bob Weiss var
rekinn og við starfi hans tók
Larry Brown. Hann er 47 ára og
er mjög reyndur þjálfari og góð-
ur. Hann þjálfaði áður háskólalið
Kansas og undir hans stjórn varð
liðið háskólameistari á síðasta
keppnistimabili. Þá hefur Brown
þjálfað áður í NBA-deildinni,
meðal annars hjá Denver Nugg-
ets og New Jersey Nets. Mér list
mjög vel á Brown og hann veit
einfaldlega miklu meira um
körfubolta en Weiss gerði. Ég er
viss um að Brown á eftir að gera
góða hluti meö liðið."
Sigur gegn Dallas
- Hvemig hefur undirbúningur-
inn fyrir keppnistímabiliö geng-
ið?
„Hann hefur verið erfiður en
þetta hefur allt gengiö vel. Við
erum nýkomnir úr æfingabúöum
og lékum til dæmis æfingaleik
gegn Dallas Mavericks á heim-
leiöinni. Viö sigruðum 93-75. Ég
var í byijunarliðinu, lék með í 16
mínútur og skoraði 8 stíg og hirti
4 fráköst. Ég var þokkalega
ánægöur með mína frammistöðu
í leiknum. Framundan er sýn-
ingatimabil og viö rnunrnh leika
mjög víöa á næstu dögum. Ég er
að fara út úr dyrunum í stranga
keppnisferö og vonandi nær mað-
-4L
Pétur Guðmundsson sést hér leika listir sinar meö
knöttinn er hann ásamt félaga sinum hjá San Antonio Spurs, Alvin
Robertson, leiðbeindi islenskum körfuknattleiksmönnum sl. sumar.
Pétur segist vera í mjög góðri æfingu um þessar mundir og hefur
hann verið i byrjunarliðinu hjá San Antonio Spurs í æfingaleikjum
undanfarið. Á dögunum lék Spurs gegn Dallas Mavericks og sigraði
93-75 og átti Pétur þokkalegan leík að eigin sögn.
Belinda Guðmundsson og Pétur Guðmundsson setja
upp hringana en þessi mynd var tekin þegar þau hjónakorn gengu í
heilagt hjónaband á dögunum í Bandarikjunum. Belinda er 24 ára
gömul en Pétur verður þrítugur 30. október nk.
ur að standa sig vel í leikjunum
sem framundan eru."
- Þú varst að ganga 1 það heilaga
á dögunum ekki satt?
„Það er rétt. Það var kannski
kominn tími til. Konan heitir
Belinda Guðmundsson og er 24
ára gömul. Það má því segja að
það sé bjart framundan. Eg hef
alveg sloppið við meiösli, er í
mjög góðu formi og aö öllu leytí
mjög hamingjusamur og ánægð-
ur með lifið,“ sagði Pétur Guð-
mundsson.
Keppnistímabilið
fer að hefjast
• Þess má geta aö keppnistíma-
biliö í NBA-deildinni hefst um
næstu mánaðamót. Iiðunum hef-
ur verið fiölgað um tvö. Nú keppa
liö Charlotte og Miami í deildinm
og aflur verður íjölgað um tvö lið
eftir komandi keppnistímabil.
• Flestír spá Los Angeles Lak-
ers sigri í deildinni í vetur. Að-
eins ein breyting hefur verið gerö
á liöinu frá því í fýrra. Kurt
Rambis er fariim til Cliarlotte.
-SK
stíga þau Belinda og Pél-
ur fyrstu sporin á dansgólfinu,
brúðarvalsinn, eins og algengt
er í giltingarveislum.
íþróttahreyfíngin:
Ari kjörinn
formaður ÍBR
- haföi betur gegn Pétri Sveinbjamarsyni
Ari Guðmundsson var kjörinn formaður íþróttabandalags Reykja-
víkur um helgina.
Mótframbjóðandi Ara var Pétur Sveinbjarnarson en atkvæði féllu
þannig að Ari hlaut 71 atkvæði en Pétur 56.
íslensku keppendurnir á ólympíu-
leikum fatlaðra í Seoul ætla ekkert
að láta undan þvi í gærmorgun bætt-
ist peningur í safniö.
Þá vann Geir Sverrisson úr Kefla-
vík silfurverðlaun í 100 metra
bringusundi. Hann kom í mark á
1:21,25 mínútum sem er glæsilegt ís-
landsmet. Eldra íslandsmet var
1:21,78.
Sá sem hreppti gullið í sundinu fór
vegalengdina á 1:21,18 en sá sem kom
á hælana á Geir kom í mark á 1:21,77
mínútum. Keppendur voru um 20.
Geir, sem er 17 ára gamall, hefur
æft af miklum krafti fyrir leikana,
aö sögn ráöamanna hjá íþróttasam-
bandi fatlaöra. Þjálfari Geirs er Frið-
rik Ólafsson, þjálfari Eðvarðs Þórs
Eðvarðssonar, fyrrum íþróttamanns
ársins.
Haukur í úrslit
Haukur Gunnarsson, heimsmet-
hafi og gullverðlaunahafi í 100 metra
hlaupi, komst snemma í morgun í
úrslit í 200 metra hlaupi. Hann vann
sinn riðil og setti persónulegt met
eftir því sem heimildir herma. Hann
er því til alls líklegur í úrslitunum
sem fara fram í fyrramáliö.
-JÖG
Ivanescu bjartsýnn
- V-Þjóðverjar unnu Júgga 1 tvigang
Magnús þjátfar Þrótt
- hefur fengið loforð um að ahir haldi áfram
Magnús Jónatansson hefur verið
ráðinn þjálfari hjá knattspyrnuliði
Þróttar úr Reykjavík sem féll í haust
í 3. deildina í fyrsta skipti.
Magnús er einn reyndasti þjálfari
landsins og hefur m.a. stýrt liðum
KR, Isaíjarðar og Breiðabliks í 1.
deildinni og nú síðustu árin Víking-
um og Selfyssingum í 2. deildinni.
„Ég hef fengið loforð um að alhr
leikmenn Þróttar haldi áfram og
reyni að koma liðinu á réttan kjöl á
ný. En 3. deildin verður geysilega
erfið næsta sumar, þar eru mörg
sterk lið sem ætla sér 2. deildarsæt-
iö,“ sagöi Magnús í spjalli viö DV í
gær.
-VS
• Magnús Jónatansson.
Ari, sem leysir Júlíus Hafstein af hólmi hjá ÍBR, er fæddur 17. sept-
ember árið 1927. Hann er að góðu kunnur úr íþróttaheiminum, var
sundkappi hér á árum áður og síðar formaður sundfélagsins Ægis.
Einnig hefur Ari gegnt formennsku hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.
Meö Ara í stjórn ÍBR sitja þau Ásgeir Guðlaugsson, Haukur Tómas-
son, Lovísa Sigurðardóttir, Sigurður Hall, Þórður Jónsson og Örn
Andrésson.
JÖG
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi:
„Fyrst við losnum við að mæta
íslendingum, Spánverjum og Pól-
verjum í riölum B-keppninnar má
telja öruggt að við komumst auðveld-
lega í gegnum hana. Ég tel raunhæft
að við verðum í baráttunni um titil-
inn í næstu A-keppni,“ sagði Ivanes-
cu, landsliðsþjálfari Vestur-Þjóð-
verja í handknattleik, eftir að lið
hans hafði mætt Júgóslövum þrisvar
um síðustu helgi.
Vestur-Þjóðverjar unnu fyrsta leik-
inn 29-26, annar endaði með jafn-
tefli, 22-22, og þeir þýsku unnu loks
þriðju viðureignina í fyrrakvöld,
22-19. Það voru engir aðrir en Gunn-
ar Kjartansson og Rögnvaldur Erl-
ingsson sem dæmdu leikin%og fengu
ágæta dóma fyrir frammistöðu sína.
England:
Mölby í
steininn
Jan Mölby, danski knatt-
spymumaöurinn sem leik-
ur með Liverpool, var í gær
dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi og tekur sá úr-
skurður strax gildi. Hann á
möguleika á náöun eftir sex
vikur með góðri hegðun.
í febrúar sl. stakk Mölby
af þrjár lögreglubifreiðar
sem eltu hann með því að
aka á 160 kílómetra hraða í
gegnum íbúðahverfi í Li-
verpool. Hann hefur áður
hlotið íjóra minni háttar
dóma fyrir afglöp sín á ak-
brautum. Mölby hefur átt
fast sæti í vörn Liverpool
það sem af er keppnistíma-
bilinu.
Tottenham tapar stig-
um
í gær voru tvö stig dæmd
af 1. deildarliði Tottenham
með þeim aíleiðingum að það
er nú í þriðja neðsta sæti
deildarinnar með aðeins 5 stig
eftir sex leikL Ástæðan er sú
aö heimaleik Tottenham gegn
Coventry í fyrstu umferðinni
í haust var frestað á síðustu
stundu þar sem lögregla taldi
aö nýreist grindverk væri
hættulegt áhorfendum.
-VS
Olafur og Halldór
ekki með í Berlín?
- báðir meiddir eftir æfíngu í gærmorgun
Enn fjölgar þeim sem ekki ganga
heilir til skógar í íslenska landsliðs-
hópnum í knattspymu sem býr sig
undir HM-leikinn gegn Austur-Þjóð-
veijum í Berlín á morgun. HaUdór
Áskelsson meiddist á rist á æfingu í
gærmorgun og þá varð Ólafur Þórð-
arson að hætta á æfingunni vegna
mikilla verkja í læri.
Guðni Kjartansson, aðstoðarþjálf-
ari landsliðsins, sagöi í samtah við
DV í gærkvöldi að ekki væri hægt
að segja enn til um hvort þeir Ólafur
og HaUdór yrðu leikfærir á morgun.
„Aðrir eru á batavegi, Gunnar Gísla-
son er að koma til og Friðrik Frið-
riksson gat æft létt í dag. Bjami Sig-
urðsson kom frá Noregi um hádegið
og útiitið með hann er gott þótt hann
hafi reyndar fengið slæmt högg á
lærið í æfingaleik um helgina, og
Atii Eðvaldsson er orðinn nokkuð
góður," sagði Guðni.
íslenska Uðið fór í gegnum BerUn-
armúrinn um hádegisbiUð í gær,
æfði vestan viö hann um morguninn
en austan megin síðdegis í gær. Hóp-
urinn hefur dvaUð í Vestur-Berlín frá
því á fimmtudag en þangað kom
hann frá Istanbúl eftir leikinn við
• Ólafur Þórðarson hefur leikiö alla
landsleikl íslands I ár en gætl misst
af slagnum I Berlfn á morgun.
Tyrki á miövikudagskvöld. „Það er
talsverö þreyta í hópnum, enda hefur
verið miitið æft og keppnisferðin orð-
in löng. En ég á ekki von á öðm en
að okkur takist aö ná upp réttri
stemmningu fyrir leikinn. Hann
verður mjög erfiður, viö megum ekki
gefa Austur-Þjóðveijunum færi á að
beita hraðanum sem þeir em frægir
fyrir og Uðið verður því að leika
skynsamlega. Veijast vel og sleppa
við að fá ódýr mörk á sig, og reyna
síðan að nýta skyndisóknimar sem
best,“ sagöi Guðni.
Hann bætti því við að aðbúnaður
Uðsins í Austur-Berlín væri ekki sá
sem lofað heföi veriö, sænúlegt hótel
en ekki í þeim gæðaflokki sem venj-
an væri og nokkurrar óánægju hefði
gætt í hópnum fyrir vikiö.
Sigfried Held landsUðsþjálfari vel-
ur ekki 16 manna hópinn fyrir leUc-
inn fyrr en í dag en hann hefur um
19 leikmenn að velja. Verði allir heU-
ir er líklegast að byijunarUð íslands
verði þannig: Bjami Sigurösson,
Guðni Bergsson, Sævar Jónsson,
AtU Eðvaldsson, Ólafur Þórðarson,
Gunnar Gíslason, Ómar Torfason,
Ásgeir Sigurvinsson, Amór
Guöjohnsen, Siguröur Grétarsson og
Guðmundur Torfason, Aðrir í hópn-
um era Ragnar Margeirsson, Pétur
Amþórsson, HaUdór Askelsson, Þor-
valdur Örlygsson, Ágúst Már Jóns-
son, Friðrik Friðriksson, Guðmund-
ur Hreiöarsson og Amljótur Davíös-
son. -VS
Pétur Guðmundsson, körfuknattleiksmaður hjá NBA-liðinu San Antonio Spurs:
Ml « ^Hi^rHi Hi IB H BH Hi BH wH wM I^HHH H§
og í mlög góðu formi
Haukur Gunnarsson komst í úrslit í morgun í 200 metra hlaupi:
Silfur í Seoul
- Geir Sverrisson vann silfur 1100 metra bringusundi
Iþróttir
Gunnar Guim aiœon, DV, Sviþjóö:
Árangur íslenska landsliðsins i undan-
keppni heimsmeistaramótsins í knatt-
spymu hefúr vakið mikla athygli viða i
Evrópu.
Framganga íslensku piltanna hefúr
komið á óvart hér í Sviþjóð og slógu
sænsku blööin upp jafnteflunum tveimur
á dögumun, öðm gegn Sovétmönnum en
hinu gegn Tyrkjum. Hafði eitt daglaðanna
á orði að ísland státaði af besta gengi
flestra liöa í undankeppni HM til þessa.
Var fyrirsögn blaðsins: „íslendingar í
úrslitum HM1990?“ Gengiö var út frá þvf
í blaðinu að með svipuðu áframhaldi gæti
lið okkar manna jafhvel skákaö keppi-
nautum eins og A-Þjóðveijum og Austur-
ríkismönnum sem em talsvert hærra
skrifaðir en íslendingar á landabréfi
knattspyrnunnar.
Njarðvík vann
Aftureldingu
Ægir Már Kára scm, DV, Suðumesjuiru
Njarðvikingar unnu góðan sigur á Aft-
ureidingu, 25-18, í 2. deildinni í hand-
knattleik í gærkvöidi en liðin mættust þá
í íþróttahúsinu í Njarðvík. Afturelding
haíði forystu í hálfleik, 11-10, en heima-
menn snem síðan leiknum sér í hag.
Stjömuleikmennimir fyrrverandi, Sigur-
jón Guðmundsson og Magnús Teitsson,
skoruðu sex mörk hvor fyrir Njarövik og
Erlendur Davfösson sex fyrir Aftureld-
ingu.
Aöalstemn Aðalsteinsson:
„Leik ekki
í 4. deikT
„Það er misskilningur sem fram kemur
í DV að ég muni leika með Haukum næsta
sumar. Það rétta er að ég þjálfa hjá félag-
inu og Haukamir fóru þess á leit viö mig
aö ég léki jafnframt meöþeim en þaö kem-
ur ekki til greina af minni hálfú aö spila í
4. deildinni,” sagði Aðalsteinn Aðalsteins-
son knattspymumaður í samtali við DV S
gær.
, JÉg varð að hætta að leika með Völsung-
um á raiðju sl. surari vegna þrálátra
meiösla, náði mér aldrei til fulls eftir aö
hafa meiöst haustíö áður. Nú ætia ég aö
byggja mlg upp frá grunni í vetur og gangi
það vel hef ég fuilan hug á því að leika 1
1. deildinni næsta sumar,“ sagöi Aöal-
steinn.
Hann lék með Völsungum tvö síðustu
keppnistímabil, þar á undan meö Djerv
1919 í norsku 2. deildinni en fram að því
meö Víkingum.
-VS
Haukur Gunnarsson:
Jafnaði
heimsmetið
Haukur Gunnarsson, sem vann á glæsi-
legan hátt sigur í 100 metra hlaupi á
ólympíuleikum fatiaöra í gær, jafhaði
heimsmet sitt í úrslitahlaupinu samhliða
því sem hann endurbætti ólympfumetið í
þriðja sinn.
Tímamir sem vom birtir í blaðinu í gær
vom óstaðfestir en staöfestur tími piltsins
í úrslitunum er 12,80 sekúndur sem er
heimsmet en ekki 12,88 sekúndur eins og
haldiö var fram.
Haukur átti metið fyrir eins og áöur
hefur komið fram en sá tími var teltinn
með skeiðklukku en ekki með flóknum
rafeindabúnaði líkum þeim sem beitt er á
leikvanginum í SeouL
-JÖG