Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989.
Fréttir
Þórir Lárusson, formaður Borgarafiokksins í Reykjavík:
Eigum ekki að fara
í stjómarsamstarf ið
- Borgaraflokkuiinn hefur fundið sterkan mann 1 Reykjavík
„Ég tel að það hefði átt að hætta
þessum stjómarmyndunarviðræð-
um áður en þing hófst. Þegar Stein-
grímur ákvað aö halda þessa efna-
hagsræðu sína á þingi mátti hverjum
manni vera ljóst að það var engin
alvara í þessum tilraunum af hálfu
stjórnarinnar. Það er því mín sann-
færing í dag að Borgaraflokkurinn
eigi ekki að ganga til samstarfs við
þessa ríkisstjórn og það er trú mín
að af því verði ekki,“ sagði Þórir
Lárusson, formaður Borgaraflokks-
ins í Reykjavik! 'i f' I r
- En nú heldur þingflokksformaöur
ykkar því fram að ekki, hafi verið
fullreynt?
„Það er búið að slíta þessum við-
ræðum og ég sé ekki að það sé glóra ,
í því að halda þeim áfram eða taka
þær upp aftur. Það væri einfaldlega
til að eyöileggja flokkinn. Númer eitt,
tvö og þrjú, þegar hugsaniegt var að
flokkurinn færi í stjórnarsamstarf,
var að hann hefði haft pólitískan
ávinning út úr því. Hann var hins
vegar enginn. Það sem við höfum á
oddinum er auðvitað matarskattur-
inn og uppstokkun ráðuneyta. Það
eru í raun forsendur fyrir því að við
hefjum raunverulegar stjórnar-
myndunarviðræður. Þá á eftir að
taka á stóreignaskattinum og skatti
á skrifstofu- og verslunarhúsnæði
svo ég nefni einhver dæmi.“
Flokkurinn missti flugið
- Borgaraflokkurinn hefur komið
illa út í skoöanakönnunum. Er hann
Borgaraflokkurinn er farinn að und-
irbúa sveitarstjórnarkosningar og
að sögn Þóris Lárussonar, formanns
Borgaraflokksins í Reykjavík, er
búið að finna sterkan mann til að
leiða flokkinn á móti Davíð í Reykja-
vik. DV-mynd KAE
búinn að tapa tiltrú fólks?
„Nei, ég held það nú ekki. Hins
vegar er þetta ungur flokkur og þvi
miður hefur ekki verið samstaða í
þingflokknum. Flokkurinn var ekki
í fréttunum sem slíkur og þó að hann
hafi flutt um hundrað mál á þingi
þá komst hann aldrei í umræðuna.
Borgaraflokkurinn missti flugiö að
mörgu leyti. Ég er hins vegar sann-
færður um það að ef flokkurinn hefði
verið í stjórnarandstöðu í haust þá
væri hann búin að vinna upp fylgi
sitt aftur. En flokkur sem greiðir at-
kvæði sín út og suður, hann hefur
ekki tiltrú fólks. Þó aö Aðalheiöur
sé hin mætasta manneskja þá hefur
það komið sér illa fyrir flokkinn að
hún hefur stutt ríkisstjórnina. Sama
má segja um Óla Þ.“
- Eru borgaraflokksmenn á leið í
Sj álfstæðisflokkinn?
„Nei, borga'raflokksmenn eru ekki
á leiðinni í Sjálfstæðisflokkinn. Borg-
araflokksmenn eru ekki búnir að
gleyma brottfór sinni úr Sjálfstæðis-
flokknum og telja sig ekki eiga erindi
þangað aftur. Eg sé ekki fyrir mér
hvernig sættir eigi að verða á milli
þessara tveggja flokka nema þá að
allur þingflokkurinn gangi í Sjálf-
stæðisflokkinn."
Ingi Björn verði varaformaður
- Varaformannsembætti flokksins
er óskipað. Hvernig á að afgreiða þaö
mál?
„Landsfundur tók skýra afstöðu
um að það eigi að vera þingmaður
með því að kjósa Júlíus og það er,
og var, mín skoðun að varaformaður
eigi að koma úr röðum þingmanna.
Mér finnst eðlflegast að það verði
Ingi Björn Albertsson sem taki við
þessu embætti.“
- Á Borgarflokkurinn einhverja
hugmyndafræðilega framtíð fyrir
sér?
„Ég tel að slíkur flokkur eigi fylli-
lega framtíð fyrir sér. Fijálslyndur
flokkur hægra megin við miöju á
framtíð fyrir sér. Sérstaklega ætti
nýr flokkur að hafa byr því hann er
ekki eins og gömlu flokkarnir á klafa
alls konar hagsmunahópa. Spurn-
ingin er hins vegar hvemig gengur
að koma þessu til kjósenda og það
er atriði sem Borgaraflokkurinn
verður að athuga sérstaklega fyrir
næstu kosningar."
Höfum fundið sterkan mann
- Nú styttist i sveitastjórnarkosn-
ingar. Er undirbúningur ykkar haf-
inn?
„Við erum komnir af stað með
starfsemi í sveitarstjórnarmálum.
Það liggur ekki annað fyrir en að við
bjóðum fram í sem flestum sveitafé-
lögum. Hér í Reykjavík höfum við
fundið ákaflega sterkan mann til að
leiða hstann í stað Alberts. Hann
hefur ekki gefiö endanlegt svar enn-
þá og því get ég ekki gefið upp hver
það er. Þó að Davíð sé að mörgu leyti
ágætur stjórnmálamaður þá er
margt sem við teljum að þurfi að
breyta í Reykjavík. Hér hefur verið
stjórnað af hroka og ég tel að Davíðs
verði ekki minnst fyrir stjómvisku
heldur hitt að honum tókst aö drepa
niður miðbæinn. Framkvæmdagleð-
in nú skýtur dálítið skökku við mið-
að við launakjör borgarstarfsmanna.
Það þarf skilyrðislaust að lagfæra
þau áður en ráðist er í miklar fram-
kvæmdir." -SMJ
Fokkerinn liggur í snjóskaflinum utan fl jgbrautarinnar á Akureyri. DV-mynd GK
Fokkerinn haf naði í snjóskaf li
Standa ekki
skil á skött-
um þúsunda
starfsmanna
Samkvæmt áætlun fjármála-
ráöuney tisins höfðu um 8.300 fyr-
irtæki ekki skilað af sér stað-
greiðslu skatta sem þau höfðu
innheimt af um tvö til þrjú þús-
und starfsmönnum sínum. Ráðu-
neytið áætlar aö skuld þessara
fýrirtæKja sé tæplega 1,5 millj-
aröur króna.
Ef þessi fyrirtæki standa ekki í
skilum geta starfsmenn þeirra átt
á hættu að verða krafðir um
greiðslu á þessum skatti Til þess
að koma i veg fyrir það þurfa
launþegar að framvfsa launaseðl-
um eða launamiöa til að sanna
aö skatturinn hafi þegar verið
dreginn af þeim
Ólafur Ragnar Grimsson fjár-
málaráðherra hefur ákveðið að
loka 199 af þessum fyrirtækjum
þann 15. mars hafi þau ekki gert
upp skuldir sínar fyrir þann tíma.
Þetta eru þau fyrirtæki sem
skulda eina milljón eða meira
vegna staögreiðslunnar.
Að sögn Ólafs eru þetta bæði
lítil og stór fyrirtæki og í ýmsum
atvinnugreinum. Sum þeirra
hafa ekki skilað inn staögreiðslu
frá því staðgreiöslukerfiö var tek-
iö upp.
Fjármálaráðuneytið áætlar
ákveðna skuld á þau fyrirtæki
sem ekki skila inn staögreiðslu-
skýrslum. Samkvæmt þessari
áætlun var heildarskuld þessara
fyrirtækja um 733 milljónir króna
um síðustu áramót Það má hins
vegar gera ráð fyrir að þegar
skýrslur hafa borist frá fyrir-
tælqunum muni þessi fjárhæð
lækkaumalltaðhelming. -gse
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Mér virtist vélin koma eölilega
niður en strax og hún hafði lent var
greinilegt að eitthvað var aö og vélin
virtist strax vera komin út fyrir
brautina vinstra megin,“ sagði Jón
Lárusson, einn af ferþegum Náttfara,
Fokker-vélar Flugleiða, sem hlekkt-
ist á í lendingu á Akureyrarflugvelli
um klukkan 14 í gær og hafnaði í
skafli skammt frá flugbrautinni.
Vélin var að koma frá Reykjavík
með 32 farþega. Allir sem í vélinni
voru sluppu ómeiddir en skemmdir
uröu nokkrar á hjólaútbúnaði nef-
hjóls og fremst á skrokki vélarinnar.
Skömmu áður en flugvélin lenti á
Akureyri fengust þær upplýsingar
hjá afgreiðslu Flugleiða þar að
skyggni væri mjög lítið og það gekk
á meö byljum. Einar Sigurðsson,
fréttafulltrúi Flugleiða, var spurður
hvort hugsanlega mætti rekja
ástæöu óhappsins til þess að skilyrði
hafi ekki verið nægilega góð.
„Nei, alls ekki. Öll skilyrði til flugs
og lendingar voru góð, bremsuskil-
yrði voru góð, vindur var einungis
20 hnútar og það var nýgengiö yfir
él. Öryggiskröfur okkar eru mjög
stífar og reyndar erum við oftsinnis
gagnrýndir fyrir að vera of stífir á
þeim kröfum.
Það sem gerðist var að þegar vélin
var lent og komin um 100 metra inn
á brautina fór hún að rása til vinstri.
Þrátt fyrir tilraunir flugstjórans til
að rétta vélina af tókst það ekki og
hún stöðvaðist síðan í snjóskafli ekki
langt frá brautinni," sagði Einar Sig-
urðsson.
Jón Lárusson sagöi aö farþegarnir
heföu verið rólegir á meðan vélin var
að stöðvast og þeir yfirgáfu hana síð-
an Qg gengu að flugstööinni.
Þegar vettvangsrannsókn var lokið
í gær var hafist handa við að koma
vélinni frá flugbrautinni en hún var
það nærri brautinni að hún var lok-
uð fyrir umferð stæiri véla, s.s. Fok-
ker-véla Flugleiða. í gærkvöldi átti
síðan að hefja nákvæma könnun á
skemmdum á vélinni og viðgerð.
DV
Rafmagn komið
í Árneshreppi
Regína Thorarensen, DV, Setfosá:
Eldsnemma í morgun talaði ég
við mág minn, Valdimar Thorar-
ensen á Gjögri, og sagði hann mér
að rafmagn hefði koraið aftur á í
Ámeshreppi seint í gærkvöldi og
lofaði hann mjög dugnaö viögerð-
armanna í því vonskuveðri sem
verið hefur.
Valdimar var eini maöurinn
heima en sonur hans er flugvall-
arstjóri á Gjögri og fór snemma
út eftir því flugvél frá Amarflugi
er væntanleg. Þar var allt á floti
eftir rafmagnsleysið og var fólk
að aðstoða hann við þrifin, allir
sem gátu. Flug féll niður til Gjög-
urs á mánudag og það er vont
veður þegar slíkt skeöur því Am-
arflugsmenn em mjög duglegir
við flugið að sögn Valdimars.
Koma tvisvar í viku.
Ólafur Ragnar:
Jón Baldvin
sker niður sendi-
sveina en ekki
sendiherra
„Minn ágæti fyrirrennari, ut-
anríkisráðherrann, hafði ýmsar
hugmyndir um hvemig spara
mætti í launum sendisveinanna í
utanrikisráðuneytinu en hafði
minna hugað að því hvernig
spara mætti í launum sendiherr-
anna. Ég sagði við hann á fundi
að samkvæmt þvi gildismati sem
við viljura leggja i þessa aðgerð
verði fyrst bytjað á sendiherrun-
um áður en kemur að sendisvein-
unum,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson fjármáiaráðherra með-
al annars á fundi sínum með for-
svarsmönnum ríkisstofnana þar
sem hann kynnti aukiö eftirlit
með ríkisrekstri sem meðal ann-
ars beinist að um 4 prósent niður-
skurði á öllum launum.
„Á sama hátt segi ég við for-
svarsmenn ríkisspítalanna; við
skulum fyrst skoða þau gífurlegu
fríðindi i ferðapeningum, náms-
leyfum og dagpeningum sem
læknamir hafa vissulega samiö
rnn en þarf að lækka áður en ráö-
ist er aö launum sjúkraliðanna.
Ef við beinum þessum spamaöi
fyrst og fremst að þeim sem
minna mega sín í ríkiskerfinu fær
þessi aðgerð ekki þann lýöræðis-
lega grundvöll sem hún þarf aö
ha£a.“ *gse
Grindavík:
á móti bjór
Ægir Már Karisaon, DV, Suðumesjum:
, JÉg er mjög svekktur yfir þessu
öllu saman því ég bjóst aldrei við
þessari niðurstööu," sagöi Ámi
Bjöm Bjömsson, veitingamaöur
í Grindavík, sem ætlaöi að opna
veitingastað meö bjórsölu 1. mars
nk.
Ámi sagði í samtali við DV að
bæjarfulltrúar í Grindavík hefðu
ákveöið að taka ekki afstöðu í
þessu máli fyrr en eftir sex mán-
uði.
„Þeir gáfu mér þá skýringu að
þeir vildu sjá hvernig þetta
myndi ganga í öðrura lands-
byggðum. Það verður erfitt fyrir
mig að bíða því ég er þegar búinn
að eyða einni mifijón króna í
þennan staö og ætlunin var að
opna síðustu vikuna í febrúar.
Ég er búinn að eyða einu og
hálfu ári í undirbúning og ætla
ekki aö gefast upp. Ég ætla að
sækja um léttvínsveitingaleyfi
með mat. Þeir geta varla sett sig
á móti því þar sem þegar er einn
staður með slíkt leyfi hér. Það á
ekki aö gera upp á milli staða
með leyfi. Þá yrði ég að leita til
æðri stjórnvalda en vonandi þarf
ég þess ekki.“