Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989.
Útiönd
Handtekinn
vegna ránsins
á Boeynants
Júgóslavi hefur veriö handtekinn
af frönsku lögreglunni vegna gruns
um aðild að ráninu á Paul Vanden
Boeynants, fyrrum forsætisráðherra
Belgíu, að því er tilkynnt var í morg-
un.
Talsmenn lögreglunnar sögðu að
Júgóslavinn, sem býr í Belgíu, hafi
verið með 150 þúsund svissneska
franka á sér í þúsund franka seðlum.
Verið er að bera saman númerin á
seðlunum viö númerin á þeim seðl-
um sem greiddir voru í lausnargjald
fyrir forsætisráðherrann á mánu-
dagskvöld. Talið er að lausnargjaldið
hafi numið allt að 2,5 milljónum doll-
ara.
Vanden Boeynants var rænt í bíl-
skúr við heimili sitt í Brussel þann
14. nóvember síðasthðinn og var
hann í haldi hjá mannræningjunum
í mánuö. Hann kvaðst hafa verið
hlekkjaður og með hettu yfir höfðinu
í fangavistinni. Boeynants sagðist
aldrei hafa séð andlit mannræningj-
anna né heyrt þá tala. Kvaðst hann
viss um að þeir væru atvinnumenn,
þeir hafi skipulagt mannránið vel og
verið vel vopnum búnir.
Reuter
Bandaríski teiknarinn Lurie telur að nú sé verulega farið að hitna undir
John Tower, varnarmálaráðherraefni Bush forseta. Þingmenn hafa verið
mjög aðgangsharðir við Tower vegna orðróms um drykkjuskap og kvenna-
far. Undir þessari mynd vill Lurie hafa textann: „Ekki hafa áhyggjur John
- við erum bara að varpa svolitlu Ijósi á fortíð þína.“
Hungurverkfalli
lokið í S-Afríku
Fangar í fangelsi í Jóhannesarborg
hafa aflýst hungurverkMli, sem þeir
voru í, eftir að ríkisstjórnin gaf í skyn
að flestir þeirra eitt þúsund póhtísku
fanga, sem eru í haldi án þess að
hafa fengið réttarhöld, verði látnir
lausir, að sögn lögfræðinga.
„Við höfum ákveðið að hætta
hungurverkfalli okkar,“ sagði í yfir-
lýsingu sem rúmlega eitt hundrað
fangar sendu frá sér í morgun.
Lögfræðingar um tvö hundruð
annarra fanga sem voru í hungur-
verkfalh í öðrum fangelsum hittu í
morgun Adriaan Vlok dómsmálaráð-
herra.
Kathleen Satchwell lögfræðingur
sagði eftir viðræðurnar við Vlok að
lögfræðingar ættu von á að flestir
fanganna eitt þúsund verði látnir
lausir.
„Okkur skilst á ráðherranum að
jafnvel meirihluti fanganna verði lát-
inn laus,“ sagði hún á fréttamanna-
fundi.
Hópur nítján fanga hóf hungur-
verkfah fyrir tuttugu og fjórum dög-
um og síðan hafa um þrjú hundruð
fangar til viðbótar slegist í hóp
þeirra. Margir höfðu verið í haldi án
þess að hafa fengið réttarhöld í mál-
um sínum í meira en tvö og hálft ár.
Neyðarlögin leyfðu slíkt.
Reuter
Umsjón
Ólafur Arnarson
og
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
Vopnaðir hermenn á verði á Sri Lanka þar sem kosið var í gær.
Simamynd Reuter
Flokkur forsetans
sigurvegari
Þjóðarflokkurinn á Sri Lanka,
flokkur Premadasa forseta, hafði í
morgun hlotið 57,6 prósent atkvæða
þegar búið var að telja í 41 kjör-
dæmi. Flokkurinn leiddi í hinum 119
kjördæmunum. Harðasti andstæö-
ingurinn, Frelsisflokkur Bandarana-
ike, hafði aðeins hlotið 33,5 prósent
atkvæða.
Að minnsta kosti þrjátíu og átta
manns höfðu verið drepnir í gær
þegar kjörstöðum var lokað eftir
fyrstu þingkosningar í landinu frá
1977. Ahs biðu fjögur hundruð
manns bana í' kosningabaráttunni
sem var sú blóðugasta í sögu lands-
ins. Af ótta við átök milli stuðnings-
manna hinna ýmsu frambjóðenda
settu yfirvöld á útgöngubann á með-
an á atkvæðatalningu stendur.
Öflugur vörður var settur við stjórn-
arbyggingar.
Kosningastarfsmenn áætla að
kosningaþátttaka hafi verið rúmlega
50 prósent en á mörgum stöðum í
suðurhluta landsins, þar sem vinstri
sinnaðir skæruhðar herja, var kosn-
ingaþátttakan aðeins 25 prósent.
Reuter
Vilja viðræður utanlands
Stjóramálaflokkar í E1 Salvador stungu upp á Guatemala, Costa á þriðjudaginn. I lokayfirlýsingu
kváðust í morgun vera reiöubúnir Rica eða Mexíkó sem fundarstað á fundarins voru allir íbúar E1
til viðrasðna við skæruhða í Mex- raánudag. Salvador hvattir til að ganga að
íkó eða einhverju nálægu landi í En þrátt fyrir þessar deilur um kjörborðinu þann 19. mars.
næstu viku um tillögu þeirra um fundarstað virðist sem tillaga í gær geröu bæði vinstri sinnaðir
frestun kosninga. skæruliða náí ekki fram að ganga. og hægri sinnaðir skæruliðar í E1
Upprunalega hugmyndin var sú Duarte forseti og herinn hafa lýst Salvador árásir á byggingar and-
að fulltrúar skæruliða kæmu til yfir andstöðu sinni við hana og stæöinganna. Fjórir menn særöust
San Salvador á morgun til að út- Duarte tókst að halda tillögunni í árásunum.
skýra áætlun sína. Stjórnmála- utan við umræöurnar á toppfundi
flokkarnir höfnuðu þessu og forsetaMið-Amerikuríkjasemlauk
Níu létust
er hús hrundi
Björgunarmenn meö hunda fundu
í morgun tvö lík í rústum byggingar
sem hrundi við sprengingu í Toulon
í Frakklandi síðdegis í gær. Alls hafa
fundist níu lík en lögreglan segir að
fimm manns sé enn saknað. I nótt
fannst ungur maður á hfi eftir að
hafa legið undir rústunum í átta
klukkustundir.
Byggingin, sem var frá átjándu öld,
hrundi við sprengingu sem varð
vegna gasleka að því er tahð er fuh-
víst. Þijátíu manns meiddust og þar
af þrír alvarlega. í byggingunni voru
skrifstofur og tannlæknastofa.
Sprengingin var svo öflug að vegfar-
endur lyftust upp og gluggarúður í
nálægum húsum brotnuðu.
íbúar í nágrenninu voru fluttir á
brott vegna mikhs gasleka. Fyrir
minna en mánuði þurfti að flytja íbúa
sama hverfis á brott vegna gasleka.
Niu manns biðu bana er átjándu aldar bygging hrundi I Toulon i Frakklandi
i gær. Fimm manns er enn saknað. Slmamynd Reuter