Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989. 5 Fréttir Verðstöðvunin: Samdráttur helmingaði verðbólguna í tilkynningu frá hagdeild fjár- málaráðuneytisins kemur fram að hækkun á óbeinum sköttum nú um áramót hefur leitt til um 1 prósent hækkunar framfærsluvísitölunnar. Það er fiórðungur af þeirri hækkim sem átt hefur sér stað á meðan verð- stöðvun hefur gilt undanfama fimm mánuði. , Hagdeild íj ármálaráöuneytisins telur að gengisbreytingar á verð- stöðvunartímanum og kostnaðar- hækkanir erlendis hafi geflð tilefni til verðhækkana er jafngilda um 4,5 prósent hækkun á framfærsluvísi- tölu. Vegna samdráttar og aukinnar samkeppni hefur þessi hækkun hins vegar ekki orðið nema um 1,5 til 2 prósent. Innflytjendur og smásalar hafa því tekið á sig rúman helming og allt upp í tvo þriðju af þessum hækkunum. Ef gert er ráð fyrir að sama hafi gerst vegna skattahækkananna má segja að verðhækkunartilefni þeirra hafi getað leitt til um 2,25 til 3 pró- sent hækkunar á framfærsluvísitölu. Það er sambærileg hækkun og tfi dæmis hagdeild Alþýðusambandsins spáði um áramót. Um 1 til 1,5 prósent af hækkun framfærsluvísitölunnar má rekja til annarra orsaka en skattahækkana, gengisbreytinga og hækkana erlend- is. Þegar tekið er tillit til mats fjár- málaráðuneytisins á áhrifum sam- dráttar og aukinnar samkeppni á verð á innflutningi og sambærilegra áhrifa vegna skattahækkana má draga þá ályktun að framfærsluvísi- talan hefði hækkað um 8 til 9 prósent á verðstöðvunartímanum ef ekki væri fyrir samdrátt í þjóðfélaginu og aukna samkeppni vegna hans. -gse Samninganefhd ríkisins: Átta konur inn fimm karlar úft Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra hefur skipað átta konur í stað fimm karla í Scimninganefnd rík- isins. Áfram sitja í nefndinni fiórir fulltrúar úr gömlu nefndinni. Einn þeirra, Indriði H. Þorláksson hag- sýslustjóri, verður eftir sem áður for- maður nefndarinnar. Aðrir sem halda sæti sínu í nefnd- inni eru Birgir Guðjónsson, skrif- stofustjóri hjá Launaskrifstofu ríkis- ins, Sigrún Ásgeirsdóttir, deildar- stjóri hjá sömu skrifstofu, og Þor- steinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Nýju fulltrúarnir eru Arndís Stein- þórsdóttir, deildarstjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu, Arnhildur Ásdís Kolbeins, deildarstjóri á Launaskrif- stofu ríkisins, Ásta Lára Leósdóttir, launaskrárritari hjá sömu skrifstofu, Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytis- stjóri félagsmálaráðuneytisins, Guö- rún Ásta Siguröardóttir, deildar- stjóri í fiármálaráðuneytinu, Guðríð- ur Þorsteinsdóttir, starfsmannasfióri Ríkisspítalanna, Inga Svava Ingólfs- dóttir, starfsmannastjóri Pósts og síma og Kristrún ísaksdóttir, deild- arsérfræðingur í menntamálaráðu- neytinu. -gse SUS með hvalafund Samband ungra sjálfstæðismanna efnir til opins fundar um hvalveiðar íslendinga í dag kl. 17. til 19. Fundur- inn verður haldinn á Hótel Borg und- ir yfirskriftinni: „Hvalveiðar - mark- aðir, vistfræði, sjálfstæði“. Ámi Sigfússon, formaður SUS, flytur ávarp. Erindi flytja: Jóhann Sigurjónsson, Tómas Ingi Olrich, Halldór Ásgrímsson og Theódór Halldórsson. -SMJ Ginsana sigrast á þrautum og þreytu. í flókinni stöðu, skerpir Ginsana einbeitinguna Nú á sérstökum tilboðskjörum Viö úrlausn flókinna verkefna reynir á andlegan jafnt sem líkamlegan styrk. GINSANA eflir kraft og þrek, eykur afköst, vinnur gegn þreytu og gerir fólk hæfara til aö standast betur hverskyns álag og streitu. GINSANA er náttúruafurö sem hjálpar mannslíkamanum til aö hjálpa sér sjálfur. SÉRSTAKT TILBOÐ í tilefni af heilsuviku í Kringlunni sem hefst föstudaginn 10. febrúar, býður Heilsuhúsið uppá GINSANA hylki og næringarvökva á sérstökum tilboðskjörum. Tilboöiö stendur til 15. mars eöa meðan birgðir endast. TILBOÐ1. Þú kaupir kassa með 30 GINSANA-hylkjum á aöeins kr. 723, og færð í kaupbæti glas af MULTIVIT fjölvítamlnum og steinefnum, sem annars mundi kosta þig kr. 339. TILBOÐ 2. Þú kaupir flösku af GINSANA TONIC (næringarvökvi) fyrir aöeins kr. 723, og færö í kaupbæti glas af MULTIVIT fjölvítamínum og steinefnum. TILBOÐ 3. Þú kaupir kassa meö 100 hylkjum af GINSANA fyrir aðeins kr. 2.067, og færð í kaupbæti glas meö 180 töflum af MULTIVIT fjölvítamínum og steinefnum, sem annars mundi kosta þig kr. 768. BÆTT HEILSA - BETRA LÍF HDheilsuhúsið Skólavörðustlg 1A sími 22966 og Kringlunni 8-12 slmi 689266 Jafn hæfilegur hraði sparar bensín og mmnkar slysahættu. Ekki rétt? yUMFERÐAR RÁÐ Endurski í skam

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.