Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Side 27
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989.
27
Fólk í fréttum
Þórhallur Ásgeirsson
Þórhallur Ásgeirsson, fyrrv. ráöu-
neytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu,
lét af störfum 1. febrúar sl. en hann
varð sjötugur 1. janúar. Þórhallur
fæddist 1. janúar 1919 í Rvík, var í
námi í hagfræði í Stockholms Hög-
skola 1937-1939 og Minnesotahá-
skóla 1940-1942. Hann var fulltrúi í
utanríkisráðuneytinu 1945-1947,
ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðu-
neytinu 1948-1989 og fulltrúi Norð-
urlanda í stjóm Alþjóðagjaldeyris-
sjópsins í Washington 1958-1962.
Þórhallur var formaður verðlags-
nefndar 1962-1972, nefndar er samdi
frumvarp til laga um verðgæslu og
samkeppnishömlur 1967-1969. Hann
hefur verið formaður Hrafnseyrar-
nefndar frá 1974 og samstarfsnefnd-
ar um gjaldeyrismál frá 1980. Þór-
hallur var aðalsamningamaður ís-
lands og Efnahagsbandalags Evr-
ópu 1971-1972 og hefur verið í bank-
aráði Norræna fjárfestingabankans
frá stofnun 1976. Þórhallur kvæntist
3. október 1943 Lilly Ásgeirsson, f.
2. júní 1919. Foreldrar hennar vom
Sverre Knudsen, smiður í New
York, og kona hans, Ragna Knuds-
en, af norskum ættum. Börn Þór-
halls og Lillyar eru Sverrir, f. 31.
júlí 1944, efnaverkfræðingur hjá
Orkustofnun, kvæntur Ingu Helga-
dótturflugfreyju, Dóra, f. 6. sept-
ember 1947, hjúkrunarfræðingur,
gift Magnúsi B. Einarssyni, lækni á
Reykjalundi, Ragna, f. 4. október
1950, ritstjóri Nýtt á nálinni, gift
Flosa Kristjánssyni kennara, og Sól-
veig, f. 19. júlí 1956, hjúkrunarfræð-
ingur, gift Gunnari Jóakimssyni,
viðskiptafræðingi hjá Síldarútvegs-
nefnd. Systur Þórhalls eru Vala, f.
8. júní 1921, gift Gunnari Thorodds-
en, d. 1983, forsætisráðherra, og
Björg, f. 22. febrúar 1925, gift Páli
Ásgeiri Tryggvasyni, sendiherra í
Bonn.
Foreldrar Þórhalls voru Ásgeir
Ásgeirsson forseti og kona hans,
Dóra Þórhallsdóttir. Ásgeir var son-
ur Ásgeirs, kaupmanns í Rvík, Ey-
þórssonar. Móðir Ásgeirs Eyþórs-
sonar var Kristín, systir Sigríðar,
langömmu Þórhildar Þorleifsdóttur
alþingismanns. Kristín var dóttir
Gríms, prófasts á Helgafelli, Páls-
sonar, bróður Margrétar,
langömmu Margrétar, móður Ólafs
Thors. Móðir Ásgeirs Ásgeirssonar
var Jensína Matthíasdóttir, smiðs í
Holti í Rvík, bróður Sigríðar, ömmu
Rögnvaldar Sigurjónssonar píanó-
leikara. Matthías var sonur Mark-
úsar, prests á Álftamýri, Þórðarson-
ar, stúdents í Vigur, Olafssonar, lög-
sagnara á Eyri, Jónssonar, ættfóður
Eyrarættarinnar, langafa Jóns for-
seta. Móðir Matthíasar var Solveig
Pálsdóttir skálda, prests í Vest-
mannaeyjum, Jónssonar, bróður
Önnu, langömmu Þorsteins Erlings-
sonar skálds. Móðir Solveigar var
Guðrún, systir Styrgerðar,
langömmu Eyjólfs, afa Guðrúnar
Helgadóttur, forseta sameinaðs
þings. Guðrún var dóttir Jóns, b. á
Brekkum í Holtum, Filippussonar,
bróður Rannveigar, konu Bjarna
Sívertsens riddara, langömmu
Matthíasar, afa Matthíasar Á. Mat-
hiesen alþingismanns.
Móðurbróðir Þórhalls var Tryggvi
forsætisráðherra. Dóra var dóttir
Þórhalls biskups Bjarnarsonar,
prófasts og skálds í Laufási, Hall-
dórssonar, prófasts á Sauðanesi,
Björnssonar, prófasts í Garði í
Kelduhverfi, Halldórssonar, bróður
Árna, langafa Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi. Systir Björns var
Björg, ættmóðir Kjarnaættarinnar.
Bjöm var sonur Halldórs, b. á Æsu-
stöðum, Björnssonar, b. á Löngu-
mýri, ívarssonar, bróður Guð-
mundar, afa Skáld-Rósu, og Sigríð-
ar, langömmu Sigurðar Nordal.
Móðir Þórhalls var Sigríður Einars-
dóttir, b. í Saltvík á Tjörnesi, Jónas-
sonar og konu hans, Sigríðar Vig-
fúsdóttur, b. í Naustavík, Þorsteins-
sonar. Móðir Sigríðar var Kristín
Sæmundsdóttir, prests á Stað í
Kinn, Jónssonar, prests í Mývatns-
þingum, Sæmundssonar, b. á
Brúnastöðum í Fljótum, Þorsteins-
sonar, b. á Stóru-Brekku, Eiríksson-
ar, ættfóður Stóru-Brekkuættarinn-
ar.
Móðir Dóru var Valgerður Jóns-
dóttir, b. á Bjarnarstöðum í Bárðar-
dal, Halldórssonar, b. á Bjarnar-
stöðum, Þorgrímssonar, bróður
Jóns, langafa Kristjáns Eldjárns for-
seta. Móðir Halldórs var Vigdís
Hallgrímsdóttir, b. í Hraunkoti í
Þórhallur Asgeitsson.
Reykjadal, Helgasonar, ættföður
Hraunkotsættarinnar. Móðir Val-
gerðar var Hólmfríður Hansdóttir,
b. í Neslöndum við Mývatn, Þor-
steinssonar, bróður Halldóm,
langömmu Snæbjarnar, afa Arn-
ljóts Björnssonar prófessors.'Móðir
Hans var Þóra Jónsdóttir, systir
Helgu, langömmu Hjartar, langafa
Ólafs Ragnars Grímssonar.
Afmæli
Erling Sigurðsson
Erling Sigurðsson offsetprentari,
Þrastarhólum 10, Reykjavík, er fer-
tugurídag.
Erling fæddist í Reykjavík og átti
þar heima þar til hann varð fimm
ára en flutti þá með foreldrum sín-
um á Selfoss þar sem hann ólst upp
eftirþað.
Hann hóf nám í prentiðn 1967 í
Prentsmiðju Suðurlands á Selfossi
og tók sveinspróf í prentiðn 1971.
Þá flutti hann til Reykjavíkur og hóf
störf hjá Hilmi jafnframt því sem
hann hóf nám í offsetprentiðn. Hann
lauk prófi í offsetiðn 1973 og starfaði
hjá Hilmi til ársins 1978 en hóf þá
störf hjá Prentstofu Guðmundar
Benediktssonar í Kópavogi þar sem
hann starfaði til 1983. Þá hóf hann
störf hjá Prenttækni í Kópavogi og
starfar þarenn.
Sambýliskona Erhngs er Sólveig
Mangúsdóttir húsmóðir, f. 26.7.1952.
Erhng og Sólveig eiga tvær dætur.
Þær em Bára Hhn, f. 26.10.1975, og
Svava Huld, f. 23.3.1979.
Erhng á tvo bræður. Þeir eru Böð-
var Helgi Sigurðsson, lyfjafræðing-
ur hjá Farmaco í Garðabæ, og Alm-
ar Sigurðsson, offsetskeytingamað-
ur í Reykjavík, og rekur hann offset-
þjónustuna Litsjá í Reykjavík.
ForeldrarErhngs: Sigurðurlngi-
mundarson, húsgagnasmiður á Sel-
fossi, f. 4.12.1918, og kona hans,
Svava Sigurðardóttir, verkamanns
í Reykjavík, Böðvarssonar, f. 18.10.
1927.
Sigurður er sonur Ingimundar,
útvegsb. og formanns á Strönd á
Stokkseyri, Jónssonar, b. í Klauf í
Landeyjum, Brynjólfssonar, b. á
Fornusöndum undir Eyjafjöhum,
Þórðarsonar.
Móðir Sigurðar var Ingibjörg Þor-
steinsdóttir, b. á Sandprýði á
Stokkseyri, Oddssonar, b. áFljóts-
hólum, Oddssonar, b. á Fljótshólum,
Hinrikssonar, b. í Brandshúsum,
Þorkelssonar, b. á Hrútsstöðum,
Hjartarsonar, b. á Syðra-Velli Andr-
éssonar, Guðmundssonar, b. á Hól-
um, Ormssonar, b. og skipasmiðs á
Hólum, Indriðasonar.
Móðir Ingibjargar var Jóhanna
Jónsdóttir, b. í Vöðlakoti í Gaul-
verjabæ, Vigfússonar, b. í Hrúts-
staðahjáleigu, Jónssonar, b. í Galt-
arholti á Rangárvöllum, Guðnason-
ar, b. í Gerðum í Landeyjum, Filipp-
ussonar.
Móðir Jóhönnu var Bóthildur
Erling Sigurðsson.
Jónsdóttir, yngra, b. í Tungu í Flóa
og síðar á Eystri-Loftsstöðum, Ól-
afssonar, b. og hreppstjóra á Eystri-
Loftsstöðum, Vemharðssonar, b. á
Vestri-Loftsstöðum, Ögmundsson-
ar, b. á Vestri-Loftsstöðum, Magn-
ússonar, b. á Skúmsstöðum á Eyrar-
bakka, Sveinbjörnssonar, b. á
Skúmsstöðum, Geirmundssonar,
lögréttumanns á Háeyri, Jónssonar,
prests í Hruna, Héðinssonar.
Móðir Jóns í Tungu var Sesselja
Aradóttir, b. í Götu á Stokkseyri,
Bergssonar, hreppstjóra í Bratt-
holti, Sturlaugssonar, ættföður
Bergsættarinnar.
Magnús Kr. Sigurðsson
Magnús Kr. Sigurðsson, fv. flugaf-
greiðslumaöur, Smáratúni23,
Keflavík, er áttatíu og fimm ára í
dag.
Magnús fæddist í Keldudal í
Hegranesi í Skagafirði en var kom-
ungur er faðir hans lést og ólst því
upp hjá fósturforeldrum að Axlar-
haga í Akrahreppi. Fósturforeldrar
hans voru Eiríkur Magnússon og
Kristín Sveinsdóttir.
Magnús stxmdaði sem unglingur
öh almenn landbúnaðarstörf. Hann
stundaði nám við Alþýðuskólann að
Hvítárvöllum í Borgarfirði í tvö ár
og settist síðan í Samvinnuskólann
í Reykjavík en þaðan lauk hann
prófi 1931.
Hann starfaði síöan viö Kaupfélag
Hehissands 1933-34, var fangavörö-
ur í Reykjavík frá 1936-48, rak veit-
ingastofuna Bjarg frá 1948-51 og
matvöruverslunina Sæborgu frá
1951-52.
Magnús var starfsmaður í flug-
þjónustu varnarhðsins á Keflavík-
urflugvelli frá 1952-54 og starfsmað-
ur á sama stað hjá íslensku Flug-
málastjórninni frá 1954-62. Hann
hóf síðan störf hjá Loftleiðum á
Keflavíkurflugvelli 1962 og starfaði
þar áfram hjá Flugleiðum þar th
hann lét af störfum fyrir aldurs sak-
ir.
Magnús kvæntist 21.12.1935 Bene-
diktu Valgerði Hallfreðsdóttir, f. 9.4.
1904, frá Bakka í Geiradal í Reyk-
hólahreppi. Foreldrar Benediktu
vom Hallfreður Eyjólfsson, b. í
Geiradal, og Kristrún Jónsdóttir.
Magnús og Benedikta misstu tvö
börn í frumbemsku. Dóttir Magnús-
ar utan hjónabands er Sigrún, hús-
móðiríKeflavík.
Magnús á tvær systur sem báðar
eru á lífi. Þær eru Sigurlína, hús-
freyja í Skagafirði, og Sigríður, hús-
móðiríGrindavík.
Foreldrar Magnúsar vom Sigurð-
ur Hannesson, vinnumaður á
Frostastöðum í Skagafirði, og kona
hans, María Jónsdóttir frá Lágmúla
á Skaga.
Sigurður var sonur Hannesar, b.
Magnúa Kr. Sigurðsson.
í Dæli í Sæmundarhlíð, Ásmunds-
sonar, b. á Skálahnjúk, Þorleifsson-
ar, b. í Mörk í Laxárdal fremri.
Móðir Ásmundar var Sigríður Jóns-
dóttir. Móðir Hannesar var María
Jónsdóttir, b. á Stapa í Tungusveit
Guðmundssonar. Móðir Sigurðar
var Kristín Guðmundsdóttir frá
Höfðahólum á Skagaströnd.
Svava Knstin
Sigurðardóttir
Svava Kristín Sigurðardóttir,
starfsmaður á Keflavíkurflugvelh,
Norðurgötu 20, Sandgerði, er sjötug
ídag.
Svava fæddist á Fagurhóh í Dan-
gerðiogólstþarupp.
Eiginmaður Svövu er Henrik Jó-
hannesson, verkstjóri hjá varnar-
liðinu á Keflavíkurflugvehi, for-
maður Færeyingafélagsins á Suður-
nesjum, f. í Súnnleá á Suðurey í
Færeyjum, 1.9.1920.
Kjörbörn Svövu og Henriks eru
Henrik Henriksson, f. 13.10.1952 og
Sólrún María Henriksdóttir, f. 13.7.
1958. Foreldrar Svövu voru Sigurður Einarsson, verkstjóri hjá Lofti Loftssyni, f. í Tjarnarkoti í Miðnes- hreppi 12.2.1878, og kona hans, Sig- ríður Jónsdóttir, f. á Seljalandi í Fljótshverfi í Austur-Skaftafells- Svava Kristín Sigurðardóttir. sýslu, 26.9.1889. Þau hjónin, Svava og Henrik, taka á móti gestum í Félagsheimilinu í Sandgerði laugardaginn 18.2. klukk- an 15.00.
Til hamingju meó daginn
Hringbraut 65, Reykjavík. Pétur S. Ólafsson, Bragagötu 21, Reykjavík.
75 ára
Jóhannes Guðjónsson, Grettisgötu 77, Reykjavík. Birna Ásmundsdóttir Olsen, Smyrlahraum 22, Hafnarfiröi.
70 ára 40 ára
Þorsteinn Eiríksson, Teigaseh 1, Reykjavík. Árni Eyvindsson, Hegranesi 11, Garðabæ.
60 ára Magnús H. Valgeirsson, Vikurbraut 54, Grindavík. Valgarð Valgarðsson, Skólabraut 18, Hólmavík. Hildur H. Pálsdóttir, Melasíðu 101, Akureyri. Guðrún Björgvinsdóttir, Suðurhólum 6, Reykjavík.
Guðlaugur Tómasson, Greniteigi 30, Keflavík.
50 ára
Sigvaldi Friðgeirsson,
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisböm og aðstandendur þeirra til
að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og
starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í
síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir