Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1989, Side 28
28
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989.
Andlát
Elísabet Einarsdóttir, áður búsett á
Linnetstíg 9b, lést á Hrafnistu, Hafn-
arfirði, hinn 14. febrúar.
Hálfdán Ólsen Guðmundsson lést í
Borgarspítalanum 14. febrúar.
Guðmundur Símonarson, Melabraut
5a, Seltjamarnesi, lést á heimili sínu
þann 14. febrúar.
Opinn fundur um
menntunarmál fóstra
Fóstrufélag íslands mun standa fyrir
opnum fundi um menntunarmál fóstra í
nútiö og framtíð í dag, fimmtudaginn 16.
febrúar kl. 16-18 í húsi BSRB aö Grettis-
götu 89. Tilefni fundarins er nefndarálit
Fósturskólanefndar menntamálaráöu-
neytisins, sem út kom í desember 1989.
Flutt verða framsöguerindi og á eftir
verða pallborösumræöur þar sem félags-
menn geta borið fram fyrirspurnir um
menntunarmál fóstra í nútíö og framtíð.
Jarðarfarir
Sigríður Ólafsdóttir kaupkona lést
6. febrúar sl. Jarðarfórin hefur farið
fram í kyrrþey.
Daði Magnússon, Krossholti 5, Kefla-
vík, lést 11. febrúar. Jarðarförin fer
fram frá Keflavíkurkirkju laugar-
daginn 18. febrúar kl. 14.
Vigdís Bruun Madsen, Hringbraut 58,
Hafnarfiröi, verður jarðsungin föstu-
daginn 17. febrúar kl. 15 í Víðistaða-
kirkju, Hafnarfirði.
Kristjana H. Einarsdóttir Schmidt,
Furugrund 66, verður jarðsett á
morgun, föstudaginn 17: febrúar, kl.
10.30 frá Fossvogskirkju.
Sveinbjörn Berentsson, Túngötu 1,
Sandgerði; er lést 6. febrúar, verður
jarðsunginn frá Hvalsneskirkju
laugardaginn 18. febrúar kl. 14.
Sigurður Gislason lést 7. febrúar.
Hann fæddist á Patreksfirði 10. apríl
1910. Foreldrar hans voru Gísli Sig-
urðsson og Kristjana Sigriður Páls-
dóttir. Sigurður stofnaði Ávaxtabúð-
ina og rak hana lengst af við Óðins-
torg. Hann kvæntist Jósefínu
Guðnýju Björgvinsdóttur en hún lést
árið 1982. Utför Sigurðar verður gerð
frá Fríkirkjunni í dag kl. 13.30.
Tórúeikar
Sverrir Stormsker
á Hótel Borg
Sverrir Stormsker heldur tónleika á Hót-
el Borg í kvöld, fimmtudag 16. febrúar.
Um það bil ár er nú síðan Stormsker
hélt síðast opinberlega sólótónleika á
höfuðborgarsvæðinu. Efnisskráin uppi-
stendur af frumsömdum sálmum og
bamagælum, sem Stormsker kyriar við
eigin slaghörpuleik. Tónleikamir hefjast
kl. 22, en húsið opnar kl. 21.
Fundir
Jöklarannsóknafélag
Islands
Aðalfundur félagsins verður haldinn að
Hótel Lind, Rauðarárstíg, þriðjudaginn
21. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuieg
aðalfundarstörf, 2. Kaffidrykkja, 3. Sýnd-
ar verða myndir Ingibjargar Sigurðar-
dóttur úr ferðum félagsins 1957-1961.
Digranesprestakall
Aðalfundur kirkjufélagsins verður í safn-
aðarheimilinu við Bjamhólastíg í dag, 16.
febrúar, kl. 20.30. Að loknum aðalfundar-
störfum flytur Soffia Eygló Jónsdóttir
frásöguþátt. Kaffiveitingar.
Áfram Forum
Kvenféiagasamband ísiands og L.F.K.
halda fund um konur og störf í dreifbýli
að Hallveigarstöðum í kvöld, 16. febrúar
kl. 20.
Námskeid
Kynlífsnámskeið
Á næstunni fer Kynfræðslan af stað með
tvö námskeið. Þann 16. febrúar nk. hefst
fimm vikna námskeið fyrir konur, „Kyn-
reynsla kvenna". Markmið námskeiðsins
er að efla alhliða kynímynd kvenna, vel-
líðan og þekkingu í kynferðismálum. í
byriun mars verður síðan haldið nám-
skeið fyrir foreldra barna og unglinga en
foreldramir munu hittast tvisvar í viku,
alls fjórum sinnum. Leiðbeinandi á báð-
um námskeiðunum er Jóna Ingibjörg
Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og kyn-
fræðingur. Skráning og nánari upplýs-
ingár fást hjá Gulu línunni í s. 623388.
Tilkyimingar
Tónleikar í
Bæjarbíói
Fimmtudagskvöldiö 16. febrúar verða
haldnir tónleikar í Bæjarbíói, Strandgötu
6, Hafnarfirði. Tónieikarnir hefjast kl.
20.30 og fram koma hljómsveitimar Ný
dönsk, Ex og Laglausir. Þá kemur ljóð-
skáldið Sjón og flytur frumsamin ijóð.
Tónleikamir ganga undir nafninu Fjarð-
ar-Rokk '89 og vonast aðstendendur til
að þetta verði árviss viðburður.
Tveir fiðlukonsertar
Síðara misseriþessa starfsárs hjá Sinfó-
níuhljómsveit Islands hefst með þremur
ólíkum verkum þar sem fram koma þau
György Pauk og Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikarar. Hljómsveitarstjóri verður
Petri Sakari, aðalhljómsyeitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar. Á efnisskrá tón-
leikanna í Háskólabíói fimmtudaginn 16.
febrúar kl. 20.30 verða þijú verk: Konsert
fyrir tvær fiðlur í d-moll eftir J. S. Bach;
Fiðlukonsertinn „Chain II" eftir Lut-
oslavsky og Sinfónía nr. 4 eftir Bmckn-
er. Fiðlukonsertinn eftir Bach er nánast
kammerverk, eingöngu er spilað á
strengjahijóðfæri og sembal, dæmigert
fyrir barokktímann. Því næst verður
fluttur Fiðlukonsertinn „Chain 11“ eftir
Lutoslavsky sem er jafndæmigert nú-
tímaverk og að lokum verður flutt Sin-
fónía nr. 4, „Rómantíska sinfónian", eftir
Bruckner. György Pauk leikur einleik í
fiðlukonsertinum eftir Lutoslavsky en
saman leika þau Guðný Guðmundsdóttir
í konsertinum eftir Bach.
Bókmenntaviðburður í
Bíókjallaranum
í kvöld, fimmtudaginn 16. febrúar, munu
níu ljóðaskáld lesa úr verkum sínum í
Bíókjallaranum undir skemmtistaðnum
Tunglinu, Lækjargötu 2. Skáldin eru Þór
Eldon, Dagur Sigurðarson, Þorri, Bragi
Ólafsson, Einar Melax, Magnús Gezzon,
Pálmi Öm Guðmundson, Olafur Engil-
bertsson og Gísli Þór Gunnarsson. Flest
skáldin munu lesa upp úr nýlegum bók-
um sínum eða væntanlegum verkum.
Upplesturinn er til heiðurs aldursforset-
anum, Degi Sigurðarsyni, sem er nú í
stuttri heimsókn hér á landi. Húsið opnar
kl. 21 en skemmtunin hefst stundvíslega
kl. 22. Allir velkomnir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar,
dóttur, móður, tengdamóður, ömmu og systur,
Jenneyjar Sigrúnar Jónasdóttur,
Borðeyri.
Erling Ottósson
Björn Ottósson
Alda Ottósdóttir
Jónas Ingi Ottósson
Ottó Björnsson
Sigriður Magnúsdóttir
Gunnhildur Höskuldsdóttir
Sigríður Gísladóttir
Halldór Þorvaldsson
Helena Jónsdóttir
Sigurður Þór Ottósson Malan ísaksen
Heimir Ottósson Maibritt Hansen
barnabörn og systkini
Fréttir
DV
Það fraus hver dropi segir Friðrik Jóhannsson, skipstjóri:
Líkamshiti Gísla kom-
inn niður í 32 gráður
Siguijón J. Sigurðsson, DV, fsafiröi:
Skipsbrotsmönnunum af Kol-
brúnu, þeim Haraldi Guðmundssyni
og Gísla Jóni Kristjánssyni, var
bjargaö á síðustu stundu um borð í
Óskar ÍS að kvöldi þriðjudags.
„Þetta atvikaðist þannig að ég var
staddur við Prestssker í ísafjarðar-
djúpi þegar vélarbilun varð í bátn-
um. Ég kallaði á aðstoð og var Kol-
brún fyrsti bátur til að koma. Þá var
minn bát að reka upp í Prestssker.
Þeir náðu til okkar og drógu okkur
út fyrir Æðey. Þá tók rækjubáturinn
Gissur hvíti við og dró okkur inn
Skutulsfjörö. Kolbrún hélt við hlið
okkar þessa leið. Þegar við vorum
komnir í Prestsbugtina undan Hrað-
frystihúsi Norðurtanga ákváðum viö
að losa bátana í sundur sökum veð-
urs. Ég gat siglt fyrir eigin vélarafli
þá leið sem eftir var til hafnar. í þann
mund er ég var að ljúka við að draga
vírinn inn var mér litið í átt að Kol-
brúnu og sá hvað var að gerast. Kol-
brún var þá komin á hliðina og fór
síðan á hvolf. Mitt fyrsta verk var
að láta yita í talstöðina hvað var að
gerast. Ég setti síðan á fulla ferð að
þeim. Ég vissi að þeir voru í flotgöll-
um en var hræddur um að þeir
myndu festast undir bátnum. Raunin
varð reyndar sú að Gísli komst ekki
út úr stýrishúsinu fyrr enn báturinn
var kominn á hvolf. Ég sigldi hlé-
megin við þá svo bátinn ræki ekki
yfir þá. Það gekk vel að drösla þeim
inn fyrir en þeir voru orðnir mjög
kaldir. Líkamshiti Gísla var kominn
niður í 32 gráður,“ sagði Friðrik Jó-
hannsson, skipstjóri á rækjubátnum
Óskari ÍS.
- Voru þeir lengi í sjónum?
„Ég missti tímaskynið og get því
ekki sagt til um það. Það hafa
kannski verið fimm til tíu mínútur.
En þeir voru orðnir kaldir.“
- Telur þú að ísingin hafi valdið
þessu óhappi?
„Ég get ekkert sagt um það. Hún
hefur örugglega átt stóran þátt í því
hvemig fór. Ég veit hvernig báturinn
hjá mér var orðinn. Það fraus hver
einasti dropi sem kom inn,“ sagði
Friðrik Jóhannsson.
Verðlækkun á minkaskinnum
Verðlækkun hefur orðið á minka-
skinnum. Lægra verð hefur fengist
fyrir minkaskinn á skinnauppboðinu
sem nú stendur yfir í Kaupmanna-
höfn en fékkst á sama stað í desemb-
er. Nemur lækkunin að jafnaði um 5
prósent. Framboð minkaskinna í
heiminum í fyrra var 35 milljónir
skinna en er nú 41 milljón. Þetta
aukna framboð veldur verðlækkun-
inni.
-JGH
Ragna Róbertsdóttir.
Sigurður Örlygsson.
Tumi Magnússon.
Mermingarverðlaimin 1989:
Fimm myndlistar-
menn tilnefndir
DV hefur fengið þær upplýsingar
frá nefnd þeirri, sem tilnefnir ís-
lenskan myndlistarmann til menn-
ingarverðlauna blaðsins, að nú
standi valið á milli fimm aðila sem
allir stóðu fyrir framúrskarandi
listsýningum á síðasta ári.
„Ragna Róbertsdóttir er ofarlega
á blaði hjá okkur en hún hélt gagn-
merka skúlptúrsýningu að Kjarv-
alsstöðum," sagði Aðalsteinn Ing-
ólfsson, formaður dómnefndar, en
í henni eru, auk hans, Hringur Jó-
hannesson myndlistarmaður og
Ríkharður Hördal forvörður.
„Sama má einnig segja um Sigurð
Örlygsson sem kom mörgum á
Kristján Davíðsson.
óvart með risastórum myndum
sem voru mitt á milli málverka og
skúlptúrs.
Við erum líka skotnir í því sem
Tumi Magnússon, ungur og bráð-
efnilegur listmálari, hefur verið að
gera að undanförnu. Hann var
meðal annars með sýningu í Nor-
ræna húsinu á síðasta ári.
Brynhildur Þorgeirsdóttir heitir
listakona sem gert hefur góða hluti
upp á síðkastið. Hún var með sýn-
ingu í Gallerí Svart á hvítu í fyrra
sem okkur fannst öllum mikið til
um.
Loks er á lista hjá okkur gamla
kempan Kristján Davíðsson sem
færist allur í aukana með aldrin-
um. Sýning hans í Gallerí Borg var
leiftrandi af listrænni innlifun og
lífsfiöri.“
Því má reikna með að myndlist-
amefndin muni verðlauna ein-
hvern listamann úr þessum hópi.
Áður hafa eftirtaldir aðilar eða
samtök hlotið Menningarverðlaun
DV fyrir myndlist:
Gallerí Suðurgata 1 (1979), Rík-
harður Valtingojer myndlistar-
frömuður (1980), Sigurjón Ólafsson
myndhöggvari (1981), Ásgerður
Búadóttir veflistakona (1982), Helgi
Þorgils Friðjónsson listmálari
(1983), Jóhann Briem listmálari
(1984), Jón Gunnar Árnason mynd-
smiður (1985), Magnús Kjartansson
myndlistarmaður (1986), Gunnar
Öm listmálari (1987) og Georg
Guðni listmálari (1988).
-hlh
Brynhildur Þorgeirsdóttir.