Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1989, Blaðsíða 27
27 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989. DV Páll Halldórsson Páll Halldórsson, formaður BHMR, hefur verið í fréttum DV vegna verkfalls og samningaviðræðna BHMR. PáU er fæddur 4. ágúst 1950 í Rvík og lauk dipl. phys. prófi í eðlisfræði í háskólanum í Göttingen í Þýskalandi 1979. Hann hefur verið eðlisfræðingur frá 1979 hjájarðeðl- isfræðideild Veðurstofunnar og hef- ur unnið við áhættumat með tilhti til mannvirkjagerðar. Páll var í stjóm Æskulýðsíylkingarinnar ' 196&-1970ogkjararáðiFélagsísl. náttúrufræðinga frá 1986 og samn- inganefnd frá vorinu 1987. Hann hefur verið í launamálaráði BMHR síðan haustið 1987 og formaður BHMR frá mars 1988. Páll hefur samið yfirhtsrit um Skagafjarðar- skjálftann 1984 og ritumjarð- skjálftaáhættu. Páll kvæntist 12. september 1972 Sólveigu Ásgríms- dóttur, f. 30. janúar 1947, sálfræðingi á unglingageðdeild Landspítalans við Dalbraut. Foreldrar Sólveigar era Ásgrímur Albertsson gullsmið- ur, fyrrv. skrifstofustjóri Utvegs- bankans í Kópavogi, og kona hans Anna Jóhannsdóttir. Dóttir Páls og Sólveigar er Hallgerður, f. 29. ágúst 1974. Systur Páls eru Ásta, f. 6. mars 1955, fatahönnuður í Rvík, gift Ein- ari Erlendssyni ljósmyndafræðingi, EhnÝrr, f. 22. júní 1958, hjúkrunar- fræðingur í Rvík, og Ólöf Eir, f. 4. september 1969, nemandi. Foreldrar Páls eru Halldór B. Stef- ánsson, verslunarmaður í Rvík, og kona hans, Hallgerður Pálsdóttir verslunarmaður. Halldór er sonur Stefáns, verkamanns í Stykkis- hólmi, Halldórssonar, beykis og skálds í Hafnamesi í Fáskrúðsfirði, Halldórssonar Halldórssonar Hah- dórssonar, b. í Krossgerði á Beru- fjarðarströnd, bróður Gísla, langafa Málfríðar, móður Jóhannesar Gmmarssonar, formanns Neyt- endasamtakanna. Gísh var einnig langafi Garðars, fóður Guðmundar alþingismanns. Hahdór var sonur Halldórs, b. í Krossgerði, Gíslason- ar, bróður Áma, langafa Guðmund- ar, afa Emils Bjömssonar prests. Annar bróðir Gísla var Brynjólfur, langafi Gísla, langafa Ólafs Davíðs- sonar, framkvæmdastjóra Félags ísl. iðnrekenda. Systir Halldórs var Margrét, langamma Eysteins Jóns- sonar, fyrrv. ráðherra. Móðir Stef- áns var Elísabet Brynjólfsdóttir, b. á Karlsstöðum á Beruij arðarströnd, bróður Helgu, móður Benedikts Þórarinssonar kaupmanns, afa Johns Benedikz læknis. Brynjólfur var sonur Jóns, b. í Hvammi, Jóns- sonar og konu hans, Guðnýjar Þor- steinsdötttu-, b. á Þorvaldsstöðum, Erlendssonar, b. á Ásurmarstöðum, Bjamasonar, ættfóður Ásunnar- staðaættarinnar, langafa Guðrúnar, langömmu Hallgríms, föður Geirs seðlabankastjóra. Hallgerður er dóttir Páls, af- greiðslumanns í Rvík, Þóroddsson- ar, sjómanns á Sjávarbakka í Am- ameshreppi í Eyjafirði, Símonar- sonar. Móðir Páls var Hallgerður Pálsdóttir, b. á Skeggsstöðum í Svarfaðardal, Jónassonar. Móðir Páls var Hallgerður Sigurðardóttir, systir Þóm, móður Jóhanns, langaf- a Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra SÍS, Hafliða Hallgrímssonar sehó- leikara, Þórunnar Ashkenazy og HaUdórs, föður fréttamannanna Atla Rúnars og Jóns Baldvins HaU- dórssona. Móðir HaUgeröar yngri var Elin Bjömsdóttir, b. og smiðs í Enni í Viðvíkurhreppi, Gunnlaugs- sonar, b. á Narfastöðum, Bjömsson- ar, prests í Hvammi í Laxárdal, bróður Þorgríms, langafa, Bryn- hfidar, ömmu Jóns L. Ámasonar stórmeistara. Bjöm var sonur Ar- nórs, prests á Bergsstöðum, Ámas- sonar, biskups á Hólum, Þórarins- sonar. Móðir Áma var Ástríöur Magnúsdóttir, prófasts í Hvammi í Hvammssveit, Magnússonar, bróð- ur Áma prófessors. Móðir Ástríðar var Sigríður Jónsdóttir, systir Páls Vídalín, lögmanns. Móðir Bjöms í Hvammi var Margrét Bjömsdóttir, prests í Bólstaðarhhð, Jónssonar, föður Kristínar, langömmu Vigdísar Finnbogadóttur. Björn var einnig faðir Ehsabetar, langömmu Sveins Fólk í fréttum Páll Halldórsson. Bjömssonar forseta, Jóns Þorláks- sonar forsætisráðherra og Þórunn- ar, móður Jóhanns Hafstein forsæt- isráðherra. Móðir Gunnlaugs var Helga Eiríksdóttir, prests á Staðar- bakka, Bjamasonar, föður Jóns, afa Jóns Þorlákssonar forsætisráð- herraoglangafaSigurðarNordal. • Móðir Elínar var HaUdóra Magn- úsdóttir, b. í Enni, Gunnlaugssonar og Helgu Jónsdóttur, b. í Stóra- gerði, Vigfússonar. Móðir Jóns var Valgerður Jónsdóttir, b. á Skeggs- stöðum Jónssonar, ættföður Skeggsstaðaættarinnar. Afrnæh Bæring Þ. Þorbjömsson Bæring Þorbjöm Þorbjömsson, sjó- maður frá ísafirði, nú til heimiUs að Miðvangi 41 í Hafnarfirði, er átta- tíu og fimm ára í dag. Bæring fæddist að Steig í Veiði- leysufirði í Grunnavíkurhreppi. Hann flutti þaðan fjögurra ára með foreldrum sínum til Bolungarvíkur. Eftir rúmt ár í Bolungarvík var hann sendur til föðurafa síns, Guð- mundar Þorvaldssonar, og konu hans, Svanborgar, að Kjaransvík á Ströndum en stuttu síðar komu for- eldrar Bærings að Kjaransvík og bjuggu þar í tvíbýh með Guðmundi og Svanborgu. Á tíunda árinu fór Bæring til Hesteyrar til hjónanna Eiríks Benjamínssonar og Elísabet- ar Halldórsdóttur. Þar ólst hann upp og gekk í skóla til fimmtán ára ald- urs. Frá Hesteyri flutti Bæring svo til foreldra sinna að Steinólfsstöðum í VeiðUeysufirði en þangað fluttu þau frá Kjaransvík. Eftir rúmt ár á Steinólfsstöðum missti hann móður sína og flutti þá tU Hnífsdals með föðurömmu sinni og systkinum. Hann var þar í eitt ár og fór síöan í vinnumennsku til Einars Guð- laugssonar að Kolsá í Jökulfjörðum þar sem hann var í þijú ár. Hann fór svo aftur í Hnífsdal og þaðan til Frímanns Haraldssonar á Horni þar sem Bæring var í önnur þijú ár. Hann bjó síðan í Hnífsdal næstu tíu árin og stundaði sjóinn á árabátum og stærribátum. Bæring keypti sér árabát 1928 sem hann nefndi Unu, setti í hann vél og sótti fast á honum öU vor, sumur og haust, allt til ársins 1986. Á stríðs- árunum sótti hann aUan ársins hring. Bæring kvæntist 30.3.1929 Ólöfu Jakobsdóttur frá Aðalvík. Þau hófu sinn búskap í Hnífsdal og bjuggu þar til 1939 en fluttu þá til ísafjarð- ar. Þar vann Bæring við fiskverkun á vetuma, lengst af í Hraðfrystihúsi Norðurtangans. Þau hjónin fluttu síðan til Hafnar- fiarðar 1974 þar sem þau em búsett ídag. Bæring og Ólöf eignuðust fiögur böm: Guðrún, f. 24.12.1928, húsmóð- ir í Hafnarfirði, ekkja eftir HaUdór Einarsson netagerðarmann, d. 16.4. 1979; Margrét, f. 13.7.1931, húsmóðir í Bandaríkjunum, ekkja eftir Tom Lawler, d. 1981; Kristinn, f. 12.7. 1937, rafvirkjameistari í Svíþjóð, kvæntur Bryndísi Sigurðardóttur sjúkraUða, og Ólafur, f. 9.10.1943, d. 20.11.1982, sjómaður, átti Öldu Aðalsteinsdóttur hjúkrunarfræöing sem búsett er í Garðabæ. Stjúpsonur Bærings er Ásgeir Valhjálmsson, f. 16.6.1927, framkvæmdastjóri í Garðabæ, kvæntur Sigurlínu Kristj- ánsdóttur ljósmóður. Bæring átti sex alsystkini, þijá bræður og þijár systur. Systkiiú hans: Guðmundur PáU, f. 8.6.1906; Jón Marías, f. 22.4.1907; Stefán Pét- ur, f. 12.1.1910; Sigríður Bjargey, f. 12.9.1914; EUn Guömundína Frið- gerður, f. 18.5.1915, og Friðrikka BetúeUna, f. 14.6.1918. Þá á hann tvo hálfbræður, samfeðra, Albert og Sigurð. Systkinin em öU á lífi nema EUnogJón. Foreldrar Bærings vom Þorbjöm Guðmundsson, f. 1882, b. í Kjarans- vík og að Stemólfsstöðum, og kona hans, Guðrún Albertína, f. 22.11. 1880, húsmóðir. Þorbjöm var sonur Guðmundar, b. í Kjaransvík á Ströndum og á Álfsstöðum, Þorvaldssonar, b. á Hrafnsfiarðareyri, Jónssonar Gísla- Bæring Þorbjöm Þorbjörnsson. sonar. Guðrún var dóttir Jens, b. í Tröð í Álftafirði og á Eiði, Kolbeinssonar, b. í Þemuvík og á Galtarhrygg, Magnússonar, á Garðsstöðum, Kol- beinssonar. Móðir Jens var Guð- björg Einarsdóttir, vinnumanns í Vigur og í Þemuvík, Jónssonar, b. að LaugabóU í Ögurhreppi, Bárðar- sonar í Amardal, IUugasonar, for- föður Amardalsættarinnar. Móðir Guðbjargar var María Svarthöföadóttir, b. á Garðsstöðum, HaUgrímssonar, Jónssonar, bróður Ólafs, lögsagnara á Eyri í Skutuls- firði, ættföður Eyrarættarinnar og langafa Jóns forseta. HaUgrímur var sonur Jóns, b. að Skarði í Skötu- firði, Sigurðssonar. Móðir Guörúnar Albertínu var Guðríður Torfadóttir, b. á KerUnga- stöðum í Grunnavík, Torfasonar. Bæring tekur á móti gestum í dag, eftir klukkan 18, í Gaflinum í Hafn- arfirði. Gunnar S Gunnar Sigurösson deUdarsfióri, Gnoðarvogi 58, Reykjavík, er fimm- tugurídag. Gunnar fæddist að Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá í Norður-Múla- sýslu, en ólst upp til sautján ára ald- urs að Gagnstöð í sömu sveit. Hann stundaði nám við Alþýðuskólann að Eiðum 1953-56, lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum aö Bifröst 1960 og stundaði nám í vátryggingum við Swiss Insurance Training Centre í Zúrich 1971. Gunnar hefur auk þess sótt námskeið við Tryggingaskóla SIT svo og ýmis styttri námskeið erlendis á sviði vátrygginga. Gunnar hefur unnið hjá Sam- vinnuhreyfingunni frá ársbyijun 1957, fyrst hjá Kaupfélagi Héraðs- búa á EgUsstöðum, til ársloka 1960, og síðan hjá Samvinnutryggingum í Reykjavík frá ársbyijun 1961. Gunnar er nú deUdarstjóri Endur- tryggingadeUdar. Kona Gunnars er Lilja Ólafsdóttir framkvæmdastjóri, f. 28.3.1943. Sonur Gunnars og Lilju er Gaukur Gunnarsson, f. 29.3.1964, afgreiöslu- maður í Reykjavík, í sambýh með Þórdísi P. Eyfeld verslunarmanni. Systkini Gunnars em HaUdór, verktaki á EgUsstöðum, en hann átti þrjú börn með fyrri konu sinni, Dóru Guömundsdóttur, sem er lát- in, og er seinni kona hans Kristbjörg Sigurðardóttir; Karl HUdálf, iðnrek- andi í Hveragerði, kvæntur Svein- björgu Jónsdóttur og eiga þau þrjú böm; Sigríður Sólveig, sjúkrahúss- starfsmaður á EgUsstöðum, gift Björgvin Víði Guðmundssyni og eigaþautvöböm. Foreldrar Gunnars: Sigurður Guðnason, b. að Gagnstöð í Hjalta- staðaþinghá, f. 1909, d. 1961, og kona Gunnar Sigurðsson. hans Sólveig Gunnarsdóttir, f. 1916, nú búsett á EgUsstöðum. Foreldrar Sigurðar voru Guðni Sigmundsson og HaUdóra Gríms- dóttir. Sólveig er dóttir Gunnars, b. í Dölum, Magnússonar, b. á HroU- laugsstöðum, Einarssonar, b. og smiðs á Bóndastöðum, Rafnssonar. Móðir Magnúsar var Aðalborg Jónsdóttir, b. á Víkingsstöðum, Þórðarsonar, b. á Eyjólfsstöðum, Eyjólfssonar. Móðir Gunnars var Sólveig Sigfúsdóttir, b. á GUsár- vaUahjáleigu, Pálssonar. Móðir Sólveigar var Guðný, dóttir Rustikusar, b. á HroUlaugsstöðum, Jónssonar og Ingunnar Þorvalds- dóttur, b. í Dölum Stefánssonar, b. í HaUberuhúsum, Bóasonar, prests í Grímsey, Sigurðssonar. Móðir Bóa var María, dóttir Sörens Kristjáns- sonar, b. að Ljósavatni, og Guðrún- ar Þorvaldsdóttur, prests á Hofi í Vopnafirði, Stefánssonar, prófasts og skálds í Vallanesi, Ólafssonar, prófasts og skálds á Kirkjubæ í Tungu, Einarssonar, prófasts og skálds, í Heydölum. Til hamingju með daginn Sigríður Skarphéðinsdóttir, ______________________ Hlíðarfossi,Ytri-Torfustaðahreppi. ca ára ÞærhaldauppáafinæhðaðheimU- Ol o_________________ i Þunðar. 85 ára Eysteinn Einarsson, Nýbýlavegi 34, HvoUireppi. Eggert Magnússon, Túngötu 46, Tálknafiarðarhreppi. 80 ára Kristin Magnúsdóttir, Kárastíg 6, Reykjavík. Jónina Þórðardóttir, Brekastíg 10, Vestmannaeyjum. 75 ára Eyjólfur Vajgeirsson, Krossnesi, Ameshreppi. Sveinbjörn Jóhannsson, Aðalgötu 11, Árskógshreppi. 70 ára Tvíburasysturnar: Þuriður Skarp- héðinsdóttir, Fomhaga 11, Reykjavík, og Sigurveig Kristófersdóttir, Múlakoti 1, Hörgslandshreppi. Krístján Krisfiánsson, Sæbóh 40, Eyrarsveit. Jóninna Pálsdóttir, Húnabraut 24, Blönduósi Sigurgeir Angantýsson, Víöimýri 6, Sauðárkróki. Ingunn Erna Einarsdóttir, Baldursbrekku 18, Húsavík. 40 ára ViJborg Jóhannesdóttir, Sunnubraut 13, Keflavík. Jakobina B. Jónsdóttlr. HæðargÖtu 4, Njarðvikum. Pétur Árni Carisson, Óðinsgötu 14A, Reykjavík. Kristín Pálsdóttir, Miðholti 8, Akureyri. Sveininna Ásta Bjarkadóttir, Hólagötu 47, Vestmannaeyjum. Svava Guðmundsdóttir, Öldugötu 14, Seyðisfirði. Sveinn Georg Georgsson, Brekkubraut 5, Keflavík. Susan Jane Eddy, Fjarðargötu 8, Mngeyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.