Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1989, Síða 28
28
Andlát
Bjarni Daníelsson, Holtsgötu 13,
ReyKjavík, andaðist að heimili sínu
mánudaginn 10. apríl.
Bjartmar Þorbergur Magnússon lést
í Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað 10. apríl.
Hrafhkell Elíasson frá Hailgeirsstöö-
um, Jökulsárhlíð, Lagarási 23,
Fellabæ, andaðist í sjúkrahúsinu að
Egilsstöðum að kvöldi 9. apríl.
Sigurgeir Guðbrandsson, bóndi á
Heydalsá í Strandasýslu, andaðist í
Landspítalanum 10. apríl.
Jarðarfarir
Daníel Stefánsson múrari, Reykja-
hlíð 14, Reykjavík, verður jarðsettur
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 12. april kl. 13.30 (ath.
breyttan tíma).
Málfríður Sigurðardóttir, Kleppsvegi
52, er látin. Jarðarfórin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Valdís Þorgrímsdóttir lést 2. apríl.
Hún var fædd 5. nóvember 1922 í
Tjamarkoti í Biskupstungum, dóttir
hjónanna Þorgríms Grímssonar og
Guðrúnar Guðmundsdóttur. Eftirlif-
andi eiginmaður hennar er Jón
Mýrdal Jónsson. Þau hjónin eignuð-
ust einn son. Útför Valdísar verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Fundir
Skotreyn
Fræðslufundur verður í Veiðiseli,
Skemmuvegi 14, í kvöld, 12. apríl, kl.
20.30. Dr. Sturla Friðriksson: Hafls og ís-
bimir. Videomynd um ísbimi í Man-
itoba, Kanada. Veitingar.
Kvenfélag Kópavogs
heldur félagsfund á morgun, fimmtudag,
kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Gestur fund-
arins verður frú Kristín Gestsdóttir og
mun hún sýna smáveislurétti. Konur
mæti með hatta.
Opinn fundur ITC
Melkorku
verður haldinn í kvöld, 12. apríl kl. 20 í
Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í
Breiðholti. Stef fundarins er: Það þarf tvo
til að deila - tvo sem hafa rétt fyrir sér.
Á dagskrá eru m.a. pallborðsumræður,
rætt verður um hvort verkfallsrétturinn
sé úreltur. Heildarhæfhismat verður á
fundinum fi-amkvæmt af félaga frá ann-
arri deild innan ITC. Upplýsingar gefa
Guðrún s. 46751 og Herdís s. 72414. Fund-
urinn er öllum opinn. Mætið stundvís-
lega.
Digranesprestakall
Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu við Bjamhólastíg fimmtudag-
inn 13. aprfl kl. 20.30. Hermann Lund-
holm les sögu sem hann hefur þýtt úr
Esperanto. Jóhanna Bjömsdóttir sýnir
myndir. Kaffiveitingar. Helgistund.
Tónleikar
Tónleikar í Duushúsi
HUómsveitin Stiftamtmannsvalsinn
heldur tónleika í Duus húsi í Fisher-
sundi, í kvöld, 12. aprfl og hefjast þeir
um kl. 22.30. Einnig koma ffam tvær
gestahljómsveitir. Miðaverö 300 kr.
Tónlistfyrirhorn
Þrettándu áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands verða haldnir í Há-
skólabíói fimmtudaginn 13. aprfl og hefj-
ast kl. 20.30. Einleikari veröur breski
homleikarinn Ifor James og hljómsveit-
arstjóri Petri Sakari, aðalstjómandi Sin-
fóniuhljómsveitarinnar. Efnisskráin
verður óvenju fjölbreytt að þessu sinni,
en flutt verða verkin: Sinfónía nr. 35
„Haffher" eftir Mozart, Konsert fyrir
piccolohom eftir Neruda, Homkonsert
eftir Gordon Jacob og Bachianas Brasi-
leiras nr. 2 eftir Villa-Lobos. Það skiptast
þvi á klassísk verk Mozarts, nútímaverk
Nemda auk suður-amerískrar, stemm-
ingar Villa-Lobos og unnendur homleiks
verða vart sviknir í homkonsert Gordon
Jacobs.
Tilkyimingar
Flóamarkaður F.E.F.
Félag einstæðra foreldra heldur flóa-
markað í Skeljanesi 6, Skeijafirði, tvo
næstu laugardaga kl. 14-17. Komið og
gerið góð kaup.
Námsstefna
Fyrir milligöngu Emu Bryndísar Hall-
dórsdóttur, Endurskoðun og reikiússkil
hf., sem er aðili að Arthur Young Inter-
national, mun aðalhöfundur bókarinnar,
G. Steven Burrill, halda námsstefnu um
þetta efni og þróun mála í Bandaríkjun-
um. Efni bókarinnar verður kynnt og
skýrt og fyrirspumum svarað. A náms-
stefnunni mun G. Steven Burrill einnig
ræða um fjármögnun og þróun hátækni-
og liftækniiðnaðar í Bandaríkjunum en
hann sér um árlega útgáfu bókar um þau
þróunarmál. Námsstefnan verður haldin
17. aprfl nk.í húsnæði Stjómunarfélags-
ins í Ánanaustuum 15 og stendur ffá kl.
14-18. Þátttaka tilkynnist Stjómunarfé-
laginu í síma 621066.
Lj'ósmyndasýning á Mokka
Um síðustu helgi opnaði Eiríkur Guð-
jónsson Ijósmyndasýningu á Mokkakaffi
við Skólavörðustíg. Hann sýnir þar 25
svarthvítar ljósmyndir sem skiptast í
þijá meginflokka eftir viðfangsefnum:
myndir teknar í Hljómskálagarðinum
sumarið 1981 þar sem steinar og gróður
gefa tilefni tfl margvíslegra leikja með
form, myndir teknar á Homströndum
1987 og sýna mannvistarleifar í eyði-
byggð, og loks myndir frá Kúbu þar sem
viðfangsefnið er iðandi mannlíf. Eiríkur
fæddist í Reykjavik 1954 og hefur verið
áhugaljósmyndari frá unglingsárum.
Hann hefur m.a. tekið ljósmyndir fyrir
leikhús. Þetta er fyrsta sýning hans.
Mini-golfmót
Opna Coca Cola mótið í Mini-golfi verður
haldið í minigolfsalnum að Armúla 20,
nk. laugardag, 15. aprfl, kl. 11 f.h. Keppt
verður í tveggja manna liðum með tvö-
fóldu útsláttarfyrirkomulagi (það er að
lið þarf að tapa tveimur leikjum til að
detta úr keppni). Glæsileg verðlaun verða
veitt fyrir þijú fyrstu sætin, ásamt meiri-
háttar verölaunum fyrir að fara braut 11
holu á höggi. Öll verðlaun verða veitt af
Coca cola. Hægt verður að skrá sig fram
á síðasta dag eða til kl. 11 á laugardag.
Upplýsingar og skráning í síma 678120.
i uvjui i yuiuui lutjiiini oa ...
íslensk tónverkamiöstöð hefur í sam-
vinnu við Tónmenntakennarafélag ís-
lands gefið út hefti með íslenskum lögum
fýrir bamakór og ber það nafnið Fagurt
galaði fuglinn sá... Fjórtán lög eru í
heftinu og eru þau valin af Þórunni
Bjömsdóttur, tónmenntakennara og
stjómanda Bamakórs Kársnesskóla.
Auk íslenskra þjóðlaga í útsetningu fyrir
bamakór em í heftinu verk eftir þá Átla
Heimi Sveinsson, Emil Thoroddsen, Jón
Ásgeirsson, Jón Nordal, Þorkel Sigur-
bjömsson og Þorstein Valdimarsson.
Fagurt galaði fuglinn sá... er tfl sölu í
íslenskri Tónverkamiðstöð, Freyjugötu
1, Reykjavik.
ÞAKKARÁVARP
Hjartans bestu þakkir til ykkar allra er gerðuð mér
70 ára afmælisdaginn minn, 20. mars 1989, að
ógleymanlegum gleðidegi.
Lifið heil, vinir mínir!
ÁSGERÐUR GÍSLADÓTTIR
' » ' I ' \ I I J
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989.
Laxahafbeit
Tilefnið er athugasemd Össurar
Skarphéðinssonar um hafbeit, efni
sem ég hef ætíð haft og hef enn
mikinn áhuga fyrir. Ég birti raunar
15 bls. yfirlitsgrein um þetta efni í
11. tbl. Ægis 1983. Það sem fer hér
á eftir er fyrst og fremst ætlað sem
fróðlegt innlegg. Össur segir í fyrr-
nefiidu útvarpsviðtali: „Það hefúr
engin þjóð náö eins miWum ár-
angri í hafbeit og íslendingar. Við
stöndum þar framar en allar aðrar
þjóðir, en hafbeit er samt sem áður
í dag afskaplega lítUI hluti heildar-
framleiðslu í fiskeldi og verður það
áfram. En þetta er grein þar sem
við getum skarað fram úr og eigum
að leggja rækt við.“
Athugasemdir mínar
ísland hefur sérstöðu að því leyti
að það er eina landið á norðurslóð-
um þar sem laxveiði er bönnuð í
sjó. Því verða endurheimtur að
öðru jöfnu miklu betri á sleppistöð-
um við íslandsstrendur en í nokkru
öðru landi. Þetta þýðir þó ekki að
hafbeit sé ekki stunduð í öðrum
löndum, enda er svo gert í ríkum
mæh, eins og rakið verður hér á
efdr.
Þegar virkjanir í sænskum laxám
skerða hrygningarsvæði ánna er
viðkomandi rafmagnsfyrirtækjum
gert að bæta skeröingu sjógöngu-
seiða, sem virkjanimar valda, með
því að framleiða og sleppa í ámar
nægilegum íjölda hafbeitarseiða til
að bæta skaðann. Einhvers staðar
hef ég séð að áætlað sé að um 70%
af öllum laxi Eystrasalts eigi upp-
runa sem hafbeitarseiði framleidd
í Svíþjóð. Þessi sænska hafbeitar-
iðja hefur verið stunduð í meira en
hálfa öld og munu meðalendur-
heimtur seiðanna nálægt 15%,
stundum um 10%, stundum um
20%.
Endurheimtur íslenskra hafbeit-
arstöðva hafa alla jafha verið léleg-
ar, einkum í Kollafj arðarstöðinni
eða á vegum hennar, þegar undan
er skilinn árangur af tilraun dr.
Jónasar Bjamasonar, er hann
framkvæmdi fyrir um áratug, en
þá urðu endurheimtur 20%. Haf-
beitarstöðvar Vogalax á Vatns-
leysuströnd og Lárósstöðvarinnar
á norðanverðu Snæfehsnesi hafa
þó náð betri árangri en Kohafjarð-
arstöðin. Svíþjóð og ísland em einu
Atlantshafslöndin sem stunda haf-
beit að nokkm ráði.
Fá má meiri afrakstur
Áður en við víkjum að hinni stór-
fehdu hafbeit á Kyrrahafi skulum
við til viðmiðunar hafa í huga að
heildarlaxafjöldi, sem að jafnaði
veiðist árlega við ísland, er um
50.000 fiskar er vega samtals um 200
tonn og er þá ekki meðtalinn haf-
beitarlax.
Um hinar 5 laxategundir í Kyrra-
KjaUarinn
Björn Jóhannesson
verkfræðingur
hafi er það að segja að nær allur
lax, sem nýttur er til matar, er
veiddur í sjó en ekki í fersku vatni.
En að sjálfsögðu er nægilegum
fjölda hleypt í ámar tíl að hrygna
og viðhalda stofninum. En þjóðim-
ar sem búa við Kyrrahaf - Banda-
ríkjamenn, Kanadamenn, Japanir
og Rússar - hafa fyrir alhöngu
sannreynt að fá má miklu meiri
afrakstur af laxveiðum í sjó ef lax-
inn, sem er á leið í ámar, er nýttur
til framleiðslu hafbeitarseiða held-
ur en að hann fái að hrygna í ánum
og náttúran sé síöan látin sjá um
uppeldi seiðanna. Hér skulu nefnd
nokkur dæmi.
Haustið 1981 fór ég í kynnisferð
til Washingtonfylkis á vestur-
strönd Bandaríkjanna og til Al-
aska. í nágrenni Seattleborgar
heimsótti ég tvær mjög afkasta-
miklar seiðaeldisstöðvar sem fram-
leiddu aðahega silfurlaxseiði (coho
lax) til hafbeitar.
í Suðaustur-Alaska heimsótti ég
stöð sem tók þetta haust um 100
mihjónir laxahrogna í klak, aðal-
lega bleiklax en nokkuð af blálaxi
(chum laxi). Daginn sem ég dvald-
ist í stöðinni var 6 mihjónum
hrogna komið fyrir í klak. Vegna
hafbeitar í Alaska er áætlað að lax-
veiði í hafinu aukist um 1 milljón
laxa á ári.
Eftir nokkru aö slægjast
Japanir leggja mikla áherslu á
framleiðslu blálax sem er mjög
verðmætur þar í landi. Með því að
fara rétt með hafbeitarseiði þessar-
ar tegundar telja þeir að auka megi
endurheimtur frá um 1% fyrir
náttúrleg seiði í 4% fýrir hafbeitar-
seiði. Því reyna Japanir að ná sem
mestu af þeim laxi sem gengur í
ámar og kreista til klaks. Svo dæmi
sé nefnt þá veiddust árið 1975 16
milljónir blálaxa sem áttu uppruna
í hafbeitarseiðum. Japanir telja að
kostnaðurinn við að framleiða til
hafbeitar þróttmikil blálaxaseiði sé
um 4% af verðmæti þess fuhvaxna
lax er síðar skilar sér.
Dr. Donaldson, fyrrverandi próf-
essor við háskólann í Seattle,
heimskunnur vísindamaður og
lærifaðir fyrrverandi og núverandi
veiðimálastjóra okkar, fræddi mig
m.a. á því í umræddri kynnisför
að á eyjunni Sakhahn, sem hann
heimsótti í boði Sovétstjómarinnar
(Rússar hirtu eyjuna af Japönum í
lok síðari heimsstyxjaldarinnar),
væra sett í klak árlega um 1200
milljónir bleiklaxahrogna og væri
afraksturinn að jafnaöi um22 millj-
ónir laxa eða 44.000 tomi á ári. Þetta
er rúmlega 400 sinnum meiri laxa-
fiöldi en árleg hehdarveiði okkar.
Þegar dr. Donaldson heimsótti Sak-
halin stöðina vom þar 43 menn við
hrognatöku.
Fyrmefnd staðhæfing Össurar
um að engin þjóð hafi náð eins
miklum árangri í hafbeit og íslend-
ingar og að þar stöndum við framar
en ahar aðrar þjóðir er því fiar-
stæða!
Að lokum þetta: Yrðu úthafsveið-
ar Færeyinga og Grænlendinga
minnkaðar frekar frá því sem nú
er, og helst aflagðar með öhu, þá
er það trúa mín að með réttu og
vönduðu eldi og meðferð sjógöngu-
seiða mætti að meðaltah fá um 20%
endurheimtur hafbeitarseiða hér
við land.
Byggi ég þessa ályktun m.a. á
fyrmefndum árangri dr. Jónasar
Bjamasonar og hinum stórkostlega
árangri sem náðst hefur á Kyrra-
hafssvæöinu, að vísu með aðrar
tegundir en Atlantshafslax. Með
slíkum árangri myndu íslendingar
væntanlega standast fyllilega sam-
keppni við hvers konar framleiðslu
á Atlantshafslaxi, hvar svo sem
væri. Það er því eftir nokkm að
slægjast um vandaða hafbeitar-
starfsemi hér við land.
Bjöm Jóhannesson
. þá er það trúa mín að með réttu
og vönduðu eldi og meðferð sjógöngu-
seiða mætti að meðaltali fá um 20%
endurheimtur hafbeitarseiða hér við
land.“
Áskorun til skotveiðimanna
Tími farfuglanna er runninn upp. Nú eru
farfuglamir, stórir og smáir, á leið eða
komnir yfir hafið, tfl varpstaða og sumar-
heimkynna hér á landi eða með viðkomu
hér á leið enn lengra norður á bóginn.
Af gefnu tflefni vill Skotveiðifélag íslands
vinsamlegast hvetja alla skotveiðimenn
að virða óskráðar siðareglur og íslensk
lög, sem banna dráp gæsa á vorin. Sér-
stök athygli er vakin á helsingjum, sem
hafa hér viðkomu á leið sinni til Græn-
lands, en rannsóknir sýna að stofninn
má ekki við frekari afiöÚum en orðið er.
Veiðimenn - það er í okkar þágu að virða
lög og rétt.
Ljóðakvöld
{ kvöld, 12. apríl, kl. 20.30 verður haldið
ljóðakvöld í listasal Nýhafnar að Hafnar-
stræti 18 en þar stendur nú yfir sýning á
lágmyndum eftir Ingibjörgu Jónsdóttur.
Að venju koma fram bæði þekkt og
óþekkt skáld, sem sjaldan hafa kveðið sér
hljóðs, og einnig skáld sem hafa getið sér
góðan orðstír í gegnum tíðina. Þau sem
lesa úr verkum sínum eru Nína Björk
Ámadóttir, Þorgeir Þorgeirsson, Hans- f
ína Ingólfsdóttir, Einar Már Guðmunds-
son, Friðrik Guðni Þorleifsson, Gunnar
Kristinsson, Guðrún Guðlaugsdóttir,
Björg Einarsdóttir, sem flytur áður óbirt
ijóð eftir Oddnýju Kristjánsdóttur í
Feijunesi, og Elísabet Jökulsdóttir.
Kynnir er Ari Gísli Bragason. Kaffiveit-
ingar em í hléi.
Myndakvöld Ferða-
félags íslands
Miðvikudaginn 12. aprfl verður mynda-
kvöld á vegum F.í. í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50a, og hefát kl. 20.30 stundvíslega.
Á dagskrá verður: 1. Siguröur G. Tómas-
son útvarpsmaður sýnir myndir og kort
frá Reykjanesskaga og spjallar um fá-
famar slóðir. Ferðafélagið skipuleggur
dagsferðir um ReyKjanesskaga allt árið
um kring og ætti áhugafólk um göngu-
ferðir ekki að láta þessa sýningu og spjall
Sigurðar ffamhjá sér fara. 2. Þorvaldur
Öm Ámason og Jóhanna B. Magnús-
dóttir segja í máli og myndum frá skíða-
gönguferð Ferðafélagsins um síðustu
páska. Ferðinni var heitið til Land-
mannalauga en vegna ófærðar var snúið
við og haldið til Þórsmerkur á gönguskíð-
um. Þau segja frá þessari ævintýralegu
ferð. Kafiiveitingar í hléi. Aðgangur kr.
150. Allir velkomnir félagar og aðrir. Það
er þess virði að fræðast um eigið land og
um leið kynnast feröum Ferðafélagsins.
Gölluð neyðarskot
í haglabyssur
Komið hefur í ljós að hluti sendingar af
neyðarskotum í haglabyssur er gallaður.
Skotin em af gerðinni „Starlight" og ætl-
uð í haglabyssur nr. 12. Sendingin kom
tfl landsins í septembermánuöi sl. og
hafa skotin verið seld í sportvöm- og
skotfæraverslunum. Skothylkin em úr
plasti í skærum rauögulum lit. Þau vom
seld i fimm stykkja pökkum merktum
framleiðandanum F. Feistel GmbH & Co.
KG„ Þeir, sem hafa slík skot undir hönd-
um og hafa keypt þau í septembermánuði
sl. eða síðar, em beðnir að skila þeim til
söluaðila og munu þau þá veröa endur-
greidd. Tekið skal fram að gallinn er ekki
þess eðlis að skotin séu hættuleg, en þau
geta veitt falskt öryggi.
Tapaðfundið
Kolsvartur kettlingur, u.þ.b. mánaða,
sennilega högni, fannst í Skipholti. Hann
er mjög gæfur. Upplýsingar í síma 609230
eða 22067 á kvöldin (Rúna).