Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1989, Side 5
5 FÖSTUDAGÚR 30. JÚNÍ 1989. Ljósmyndar náttúruna v> ......... ii y Nafn: Hjálmar R. Bárðarson Aldur: 71 árs Starf: Lðggilt gamalmenni „Ljósmyndunin er eiginlega mín laxveiðisegir Hjálmar R. Bárð- arson, fýrrum siglingamálastjóri. „Áhuginn er meðfæddur og um fermingu var ég að mynda ailt milli himins og jarðar á æsku- stöðvunum á !saflröi.“ Hjálmar gaf nýlega út sína sjöttu bók ura náttúru íslands. í henni er þaö Hvítá, frá upptökum til ósa, sem er viðfangsefnið í máli og myndura. Tvær fyrstu bækur Hjálmars voru af ólíkum toga; hin fyrri hét Flugmál ís- lands og var Gullpehnaritgerð í MR og önnur var Ijósmynda- kennslubók sem gefin var út í Danraörku á stríðsárunum. Aö loknu stúdentsprófi sumar- ið 1939 fór Hjálraar 1 langferö, með Ijósmyndatækin á bakinu, frá Grunnavík, um Jökulfirði, Homstrandir og suður til Hólma- víkur. „í þá daga var enn byggð á þess- um slóðum og þessar vikur sem ég ferðaðist þama um var allt vinnufært fólk í heyskap. Klyfj- aður maöur á rölti um hábjarg- ræðistímann var áiitinn annaö- hvort trúboði eða bóksölumaður. Ég neyddist tfi að skilja tjaldið eftir því útbúnaðurinn var nógu þungur án þess. Svefhstaðimir vom ýmist undir beru lofti, með segldúk að skjóli, eða á heimil- um.“ Langargöngur með miklar byrðar Á þessum Ðmmtíu árum hefur öll aðstaöa Hjálmars breyst tál batnaðar. Hann á góðan jeppa sem hann getur auöveldlega sofiö í, hefUr bílasíma og öll tæki em fullkomnari. Samt verður hann oft að ganga langar vegalengdir í leit að myndefni og ljósmynda- tækin em um 25 kíió. Hjálmar iærði skipaverkfræði í Danmörku, sfarfaði sem skipa- verkfræöingur þar og síðar hér heima, og var siglingamálstjóri þegar hann iét af störfúm fyrir þremur árum. Hann er giftur danskri konu, Else, og þau ferð- uðust mikið saman fyrstu árin eftir heirakomuna. „Ég á henni mikið að þakka og hún hefur sýnt mér mikla þolin- mæði þegar mestur hluti fri- stundanna hefur farið í ritstörf og Ijósmyndun.“ En Hjálmar hefur ljósmyndað fleira en fegurð landsins. Fyrir nokkrum árum kom út bókin Fuglar íslands en í henni em Ijós- myndir Hjálmars af öllum ftigi- um landsins. Fáfarnir staöir og fjöifarnír Bókin um Hvítá var um fjögur ár í vinnsiu, hann athugaöi allt vatnasvæði Hvítár, myndaði, skráöi staöi og ritaði allan text- ann. „Gífurleg vinna liggur að baki þessari bók enda er vatnasvæði Hvítár alls 6.100 km2. Margir þeirra em þekktir cg ftölfamir eins og Gidlfoss, Þingvellir og Geysir. Aðrir em fáfamari og ekki hægt að feröast um þá nema fótgangandi. -JJ Fréttir Mikið magn af afLa hefur flust milli landshluta 1 kvótakerfinu: Norðlendingar auka afla sinn á kostnað annarra Sunnlendingar hafa misst mestan afla Aflatilfærsla innan Kvótakerfisins | Bolfiskur H ?lid, □ Skelfiskur loöna VESTFIRÐIR NORÐURLAND EYSTRA VESTURLAND -6.356 AUSTFIRÐIR -3.402 REYKJANES SUÐURLAND Frá því að kvótakerfið var tekið upp árið 1985 hefur hlutdeild Norður- lands eystra í þeim afla sem kemur á land hérlendis stóraukist. í fyrra var þar landað um 275 þús- und tonnum eða um 31 þúsund tonn- um meira en árið 1985. Þetta er um 12,5 prósent aukning á sama tíma og landahir hérlendis jukust ekki nema um rúm 2 prósent. Á sama tíma hefur oröið mikill samdráttur á Norðurlandi vestra. Þar var í fyrra landaö um 20 prósent minna magni en árið 1985. Afli jókst hins vegar í öllum öðrum landshlutum að Vesturlandi undan- skildu þar sem hefur orðið um 3,4 prósent samadráttur. Á þessu tímabili hafa landanir er- lendis stóraukist eða mn 37 prósent. Tæplega 20 þúsund meiri bolfiskur á Norðurlandi eystra Eins og fram hefur komið í DV eru Vestfirðingar mjög reiðir yfir minnk- andi hlutdeild sinni í heildarkvóta landsmanna. Þegar landanir í fyrra eru bomar saman við árið 1985 kem- ur í ljós að þeir koma mun betur út en til dæmis Sunnlendingar og Vest- lendingar. Ef gert er ráð fyrir að landshlutarn- ir hefðu haldið hlutdeild sinni í því aflamagni sem landað er hér má segja að frá 1985 hafi um 19.961 tonn af bolfiski flust til Norðurlands eystra. Á sama tíma hafa um 2.098 tonn flust til Reykjaness, um 1.957 tonn til Noðurlands vestra og um 246 tonn til Vestfjarða. Þessi afli kemur að stærstum hluta frá Suðurlandi. í fyrra vantaði um 15.691 tonn upp á bolfiskaflann á Suðurlandi til þess að sá landshluti héldi hlut sínum í heildaraflanum. Vestiendingar töpuðu um 6.356 tonn- um og Austfirðingar um 2.216 tonn- um. Vestfirðingar hafa misst þorsk en fengið ufsa Gagnrýni Vestfirðinga beinist einkum að þorsk- og grálúðukvóta. Þar virðast þeir hafa nokkuð til síns máls. Miðað við hlutdeild Vestfirð- inga í afla þessara fisktegunda árið 1985 má segja að í fyrra hafi vantað um 3.183 tonn af þorski og 3.247 tonn af grálúðu til þess að þeir héldu sín- um hlut í heildaraflanum. Hins vegar hættu Vestfirðingar sér þetta tap upp með því að auka hlutdeild sína í öðr- um bolfisktegundum og þá sérstak- lega ufsa og ýsu. Sunnlendingar koma einnig verr út þegar löndun á þorski og grálúðu er skoðuð. í fyrra vantaði þá um 9.620 tonn af þorski og 327 tonn áf grálúðu til að halda sínum hlut. Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson Vestlendinga vantaði í fyrra um 5.910 tonn af þorski til þess að halda sínum hlut en þeir veiddu hins vegar um 718 tonn af grálúðu umfram hlut- deild sína frá árinu 1985. Á sama tíma hafa Norðlendingar eystri aukið sinn hlut um hvorki meira né minna en 13.424 tonn af þorski. Þeir veiddu líka um 478 tonn- um meira af grálúðu í fyrra miðað hlutdeild þeirra frá 1985. Mest af grá- lúðuaflanum hefur flust til Reykja- ness eða um 6.780 tonn og þangað fóru líka um 1.229 tonn af þorski. Austfirðingar juku sinn hlut í þorski en töpuðu grálúöuafla til ann- arra. Norðlendingar eystri bæta við sig á öllum sviðum Ástæðan fyrir því að hlutdeild Norðurlands vestra hefur minnkað mest í heildaraflanum er að í fyrra kom tæplega 30 þúsund tonnum minna af. loðnu til löndunar þar. Heildaraflatap þeirra nemur þvi um 42,4 þúsund tonnum. Á sama tíma misstu Vestlendingar um 8,4 þúsund tonn og var það að langstærstum hluta bolfiskur. Á 1 heildina htið hafa Vestfirðingar einnig misst spón úr sínum aski en það skýrist fyrst og fremst af þvi að í fyrra var landað um 9,5 þúsund tonnum minna af loðnu fyrir vestan en hlutfallið frá 1985 segir til um. Norölendingar eystri hafa aukið sína hlutdeild á öllum sviðum. Þeir lönduðu eins og áður sagði tæplega 20 þúsund tonnum meira af bolfiski en sem nam hlutdeild þeirra frá 1985. Við það bættust síðan um 7,7 þúsund tonn af síld og loðnu sem landað var á Norðurlandi eystra umfram hlut- deild þeirra árið 1985. Fimm íslensk fyrirtæki á sýningu 1 Seoul: Sjávarafurðir og ull kynnt í Suður-Kóreu „Það er orðið ljóst að fimm íslensk fyrirtæki kynna framleiðslu sína á þessari sýningu í Seoul og að það verða sjávarafurðir og ullarvörur sem kynntar verða. Fyrst og fremst eru það sjávarafurðimar sem vonir em bundnar við því þó allar þessar vörur eigi möguleika er reiknaö með að útflutningur á sjávarafurðum geti orðið í mun meira magni en annað,“ sagði Ingjaldur Hannibalsson, fram- kvæmdastjóri útflutningsráðs, í við- tah við DV í morgun. Fyrirtækin, sem taka þátt í sýning- unni í Seoul, eru Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, SÍS, Marbakki, Sölu- stofnun lagmetis og Álafoss. Sýndar verða frystar, ferskar og niðursoðnar sjávarafurðir og ullarvörur. íslendingum var boðið að taka þátt í þessari sýningu og er þeim séð fyr- ir sýningarsvasði án endurgjalds. Kóreumenn leggja jafnframt til nauðsynlegustu húsgögn á sýningar- svæðið. Sýningarbás íslensku fyrirtækj- anna verður hannaður hér heima og efniviðurinn í hann fluttur út til sam- setningar á sýningunni sjálfri. „Við fluttum út vörur til Kóreu fyrir um sextíu milijónir króna á síð- asta ári,“ sagði Inggjaldur, „og ég tel að það geti aukist mikið. Það er mik- ill uppgangur í Kóreu og lifskjör batna þar hratt. Samhhða sýningunni ætlum við að reyna að koma Islandi að í fjölmiðl- um þama eins og hægt er. Haldin verða sérstök kynningamámskeið um ísland. Linda Pétursdóttir verður þama í einn dag og við reiknum með að við hana verði tekin sjónvarpsvið- töl. Þá munum við hafa móttöku fyr- ir væntanlega viðskiptavim og kynna þeim nánar íslenska fram- leiðslu.“ -HV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.