Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. Fréttir Akureyri: Mikill fjöldi á flugsýningu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Mjög mikill fjöldi fólks sótti flug- sýningu á flugdegj á Akureyrarflug- velli á laugardag. Fólkiö streymdi inn á flugvallarsvæðið og margir voru einnig í brekkunum fyrir ofan völlinn og létu sér líða vel í veður- blíöunni. Ómar Ragnarsson hefur ekki oft verið myndaður „uppi á Frúnni“. Hann „fór þó á bak“ á flugsýning- unni á Akureyri en ekki var farsim- inn góði skilinn eftir frekar en fyrri daginn. Flugklúbbur íslands, sem saman- stendur af fjórum félögum flug- áhugamanna á Akureyri, stóð fyrir Mikill mannfjöldi mætti á flugsýninguna og fylgdist með því sem þar var boðið upp á. DV-myndir gk sýningunni og voru mörg skemmti- leg atriði á dagskránni. Nefna má listflug og svifflug. Vélar Landhelgisgæslunnar og Land- græðslunnar sýndu lágflug, Ómar Ragnarsson mætti á „Frúnni“ og sýndi listir sínar, sýnt var fallhlífar- stökk, mótorsvifdrekaflug. Þá var útsýnisflug í þyrlu fyrir þá sem það vildu, sýningar innanhúss á ýmsum gömlum flugvélum og áfram mætti telja. Vamarliðið á Keflavíkurflugvelli sendi „Jofly Green Giant“ þyrlu sína norður, einnig Orion kaíbátaleitar- flugvél og „Top Gun“ orrustuþotur sýndu yfir svæðinu. Notum meira af róandi lyfjum Ekkert bendir til þess að læknir á svæðinu frá Hafnarfirði til Suður- nesja hafi ávísað meira en leyfilegt er af róandi og svefnlyfjum til sjúkl- inga sinna. Læknir þessi ávísaði fjórðungi allra lyfseðla á slík lyf á svæöinu fyrstu 15 dagana í apríl 1986. Að sögn landlæknis virðist hins veg- ar margt benda til þess að fólk leiti meira eftir að fá slík lyf nú en áður. „Við getum ekki séð á þeirri athug- un sem við höfum gert að hann hafi ávísað í óleyfilegum skömmtum. At: huguninni er ekki lokið en gangur- inn hjá embættinu er sá að óskað er eftir skýringum. Ef þær skýringar nægja ekki getur það endað með því að settar verða einhveijar takmark- anir á viðkomandi." Þetta sagði Ólafur Ólafsson land- læknir um mál læknisins. Á þeim tíma sem um ræðir var ávísað á 688 lyfseðla aNpandi eða svefnlyfjum og þar af ávísaði við- komandi læknir 172. Alls voru sextán læknar starfandi í Hafnarfirði og á Suðumesjum á þessum tíma. Útgefn- ir lyfseðlar á þessum tíma voru 6543 og voru því lyfseðlar upp á róandi og svefnlyf um 10,5% af heildarfjöld- anum. Upplýsingar þessar koma fram í grein eftir læknana Emil Sigurðsson, Guðjón Magnússon og Jóhann Ág. Sigurðsson í nýjasta hefti Lækna- blaðsins. Ólafur Ólafsson segir að í fljótu bragði sé óeðlilegt að einn maður ávísi jafnstórum hluta róandi og svefnlyfja og þess vegna sé verið að athuga málið. Hann segir það hms vegar trúlegt að skýringin felist í því að þeir sem þurfi á svona lyfjum að halda leiti frekar til þessa læknis en annarra. Ólafur bendir á að milli áranna 1976-1986 hafi neytendum lyfja af þessari gerð fækkað úr 24000 í 14000 miðað við sölutölur. íslend- ingar eru nú, ásamt Norðmönnum, hófsamastir neytendur róandi og svefnlyfja á öllum Norðurlönduniun. í greininni í Læknablaðinu kemur fram að 65% lyfjanna hafi verið ætl- uð konum en aðeins 35% körlum. í flokki róandi lyfja var mest ávísað á díazepam, eða 76%, en í flokki svefn- lyfja var tríazolam vinsælást, eða í 64% tilvika. Landlæknir segir að þeir sem noti þessi lyf séu yfirleitt á aldr- inum 40-70 ára. Á Stór-Reykjavikur- svæðinu munu um 0,2% þessa ald- urshóps taka meira af þeim en skyldi. Hreinir misnotendur munu vera 0,02% afheildarfjöldanum. -gb Akureyn: Gylfi Kristjátnsson, DV, Akureyit Þrátt fyrir troðfifllan bæ af ferðamönnum var helgin fremur róleg hjá lögreglunni á Akureyri. Fyrsta umferðaróhappið á nýja hringtorginu á Akureyri varð á föstudagskvöld og má rekja ástæður þess til ógætilegs akst- urs. Ökumaður ók þá allt of hratt á torginu með þeim afleiðingum að hann velti bíl sínum sem skemmdist mikið en enginn slas- aðist. Þá voru 9 ökumenn teknir fyrir of hraðanakstur. Sá sem ók hrað- ast innanbæjar var á 91 km hraða en sá sem flýtti sér mest utan bæjárins var á 113 km hraða. Blönduós: 40 teknir fyrir of hraðan aksfur Lögreglan á Blönduósi hafði í nógu að snúast um helgina viö radarmælingar en hvorki fleiri né færri en 40 bílstjórar voru teknir fyrir of hraðan akstur. Flestir voru teknlr á föstudegin- um eða 30 talsins. Sá sem mæld- ist á mestum hraða var á 130 km hraöa á klukkustund. Að sögn lögreglunnar var hér eingöngu um venjulegt eftirlit að ræða sem fólst í þvi að keyrt var fram og til baka á þeim 120 km vegarkafla þar sem þjóðvegur eitt liggur í gegn um sýsluna. -SMJ Húsavík: Hraðakstur með fjölskylduna Aö sögn lögreglunnar á Húsa- vik var mikil umferð í nágrenni s Húsavikur um helgina og gekk hún stórslysalaust Lögreglan var með radarmælingar og voru þrír teknir á ýfir 120 km hraöa. Sá sem átti hraðametið var á 127 km hraða og breytti engu þótt hann væri með íjölskylduna í bílnum og þar á meðal korna- bam. -SMJ í dag mælir Dagfari in memoriam Frá því er sagt í yfirlætislausum fréttum í síöustu viku að stóðhest- urinn Ljóri frá Kirkjubæ hafi fund- ist látinn í haganum. Fyrir þá sem þekkja til í hestamennsicunni hefur Ljóri verið einn glæsilegasti stóð- hestur landsins, átta vetra kyn- bótahestur og er hann mikill harm- dauði. í DV segir að menn viti afls ekki hvemig dauða hestsins hafi borið að og leiddar líkur að því að hann hafi orðiö bráðkvaddur. Eng- inn vegsummerki vora sjáanleg, engin sár á hestinum eða ytri ein- kermi um slys eða hrossasótt. Hins vegar er þess getið að Ljóri hafi verið í stóðhestagirðingu ásamt með 28 átta hryssum. I Morgun- blaðinu er sama leyndin yfir dauða hestsins og engar skýringar gefnar. Þar kemur einnig fram að hestur- inn hafi fundist í haganum, þar sem hann var ásamt 26 hryssum í girð- ingu. Nú er ljóst að hestar deyja ekki af sjálfu sér. Þeir era eins og aðrar skepnur sem þurfa annaðhvort að veikjast eða þá aö deyja af slys- förum ef þeir deyja þá ekki fyrir aldurs sakir. Ljóri var ungur hest- ur, hann var hraustur og á honum finnast engir áverkar. Ekki fara neinar sögur af álfum eða draugum Ljori - á þeim slóðum þar sem hann lést. Þess má að vísu geta aö Ljóri var ættaður frá Kirkjubæ og hafði alið aldur sinn í Skagafirði. Hann hafði verið lánaður til Suðurlands til undaneldis og hafði verið í Hraun- gerði í einn sólarhring þegar hann féfl frá. Vel getur því verið að heimþráin hafi reynst honrnn ofviða enda era hestar frægir fyrir að sækja í heimahaga og vilja hvergi annars staðar vera. Einnig er það mögulegt að Ljóri hafi dáið úr ástarsorg en þess er getið í frásögnum að hann hafi verið vinsæU með afbrigðum og eftirsóttur til kynbóta. Kannski hefur hann kynnst hryssu fyrir norðan sem hefur tekið hug lians allan og söknuðurinn borið hann ofurliði. Hvers vegna skyldu hestar ekki getaö dáið úr ástarsorg enda era þeir tilfinningaverur og næmir með afbrigðum? Þessi kenning um ástarsorgina er ekki vitlausari en hver önnur, nema ef vera skyldi fyrir þá sök að Ljóri haföi það fyrir atvinnu aö vera lauslátur í ástamálum og eins og fyrr segir vinsæll og eftirsóttur til kynbóta. Þess vegna er miklu flklegra að graðhesturinn hafi ein- faldlega ofkeyrt sig í vinsældunum. Dagfari biður lesendur að veita því athygli að þegar dauða hans bar að höndum var veslings hesturinn lokaður inni í girðingu með 26 eða 28 hryssum og átti enga undan- komuleið. Það er mikið lagt á venjulegan mann ef og þegar hann þarf að sinna þörfum og hvötum einnar eða tveggja kvenna meö reglubundnum hætti. Menn kallast góðir ef þeir ná að gera það tvisvar sinnum í viku. Hvað má þá Ljóri segja sem er settur í þaö verkefni að halda tuttugu og átta hryssum við efnið sem allar era glaðbeittar til ástamála? Graðhestur er graðhestur. Hann er ekki graðhestur fyrir ekki neitt. Góðan graðhest munar ekki um dagsverkið þegar hann fær að vera í friði fyrir öðrum hryssum á með- an. En þegar þær standa í biðröð, tuttugu og átta talsins og geta króað ástmögurinn af í girtum haga, þá er ekki von á góðu. Bæði menn og hestar geta verið sammála um það að kynflf sé Ijúft, ekki síst ef maður hefur það fyrir atvinnu. Það er lúx- us sem margur karlmaðurinn mundi kjósa sér ef hann væri hest- ur. Og jafnvel í mannflfinu flka. En þegar vinsældimar era slíkar að maður er lokaður af með nær þijátíu meram, hverri annarri áf- jáðari, þá hlýtur eitthvað undan að láta. Ljóri hefur hreinlega ekki mátt við margnum og dáið af ofreynslunni. Sennilega hefur hjartað gefið sig. Það þarf engan sérfræðing eða dýralækni til að sjá orsök þessa sviplega andláts. Kyn- getan getur verið mikil og greddan eftir því. En jafnvel landsfrægur graðhestur er ekki vandanum vax- inn þegar svo mikið er á hann lagt. Ljóri frá Kirkjubæ má þó eiga það að hann hefur dáið sönnum hetju- dauða. Það er ekki á hveijum degi sem menn eða skepnur falla í val- inn eftir að hafa gert það tuttugu og átta sinnum í röð. Geri aörir betur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.