Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Side 26
26 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. Iþróttir Stórlax á flörur golfáhugamaima á íslandi: Eina sem ég kvarta yfir er svefn tt - sagði John Jacobs, einn kunnasti golfkennari í heimi V John Jacobs leiöbelnlr hér einum lærlinga sinna. Það er vissara að vita hvernig sveiflan á að vera. í baksýn sjást Ólafur Skúlason (t.v.), einn af eigendum vallarins, og Hannes Guðmundsson, formaður GR. fyrir golfkennslu var ég fljótur aö slá til. Þiö eigiö stórkostlegar veiðiár og miðað við höfðatölu eig- ið þið marga golfvelli," sagði John Jacobs, hinn heimsfrægi, breski golfkennari, en hann dvaldi hér í síðustu viku í boði Ólafs Skúlason- ar í Laxalóni. Stærstur í faginu John Jacobs er kannski ekki mjög kunnur hjá íslenskum golfáhuga- mönnum en lífsstarf hans í fjörutíu ár hefur þó fyrst og fremst verið á golfveliinum. Hann leiðbeindi yfir tíu þúsund manns í golfi á síðasta ári og var með tæp tvö hundruð nám- skeið í Bandaríkjunum en þar rekur hann fjórtán golfskóla og er stærstur í greininni. Golfskóli John Jacobs er að færa út kvíarnar og nú skal ráðist á garðinn þar sem hann er hvað hæstur því Japan er næsti viðkomu- staður golfskólans. Fæddist með kylfuna í höndunum Hinn viðkunnanlegi Norður-Eng- lendingur fæddist með kylfuna í höndunum eins og hann segir sjálf- ur. Faðir hans var golíkennari og móðir hans lék golf. Það lá því bein- ast við að halda uppi merki fjölskyld- unnar. Hlé varð á golfleik Johns á unglingsárunum þegar stríðið skall á en að því loknu lagði hann land undir fót og fór til Kaíró í Egypta- landi, aöeins 23 ára að aldri, og kenndi þar og keppti í golfi í þrjú ár. Þá hélt hann aftur á heimaslóðir, gerðist golfkennari á Sandy Lodge golfvellinum á Norður-Englandi og hóf að keppa á stóru golfmótunum í Bretlandi. Þau voru þó einungis sex til sjö á hverju ári. í þá daga voru ekki atvinnumannamót í tugatali enda voru keppendumir flestir golf- kennarar á golfvöllum. Jacobs afrek- aði m.a. á keppnisferli sínum að komast í Ryder-sveit Evrópu sem „Það eina sem ég get kvartað yfrr hér á Is- landi er lítill svefn enda hálfskrýtið að fara að sofa um „hábjarta" nótt. Mig hefur lengi dreymt um að koma hingað í veiði og þegar ég fékk boð um að koma til Islands í veiði í skiptum • Þaö er betra að handtökin séu rétt áður en slegið er. • Það var mikið slegið á golfvellinum þennan dag. keppti við Bandaríkjamenn en hann vann að auki tvö stór golfmót. Á milli móta þurfti John að kenna sex daga vikunnar frá kl. 9-19. Þegar hann var oröinn 38 ára ákvað hann að fara aðrar leiðir. Hann sagði skil- ið við keppnisgolf og langaði að gera eitthvað meira en vera golfkennari hjá einhveijum klúbbi. John opnaði og setti á laggimar sjö golfmiðstöðv- ar og æfingasvæði víðs vegar um England og urðu þær geysivinsælar þarsem boðið var upp á góða æfinga- aðstöðu fyrir golf og hópkennslu. Þjálfaði sex landslið Samhliða því sem golfið var farið að skila John Jacobs meira í aðra hönd með rekstri golfmiðstöðvanna tók hann að sér þjálfun sex lands- liða, enska, skoska, sænska, franska, þýska og spænska landsliðsins, og enn þann dag í dag, tuttugu ámm síðar, hefur hann yfirumsjón með þjálfun spænska landsliðsins. Enn ein skrautfjöður bættist í hatt Jacobs þegar hann var beðinn um að taka aö sér umsjón atvinnumannamót- anna í Bretlandi. Jacobs hafði ákveðnar hugmyndir um atvinnu- mannamótin og vildi að þau færu fram í allri Evrópu (European Tour) sem hann og lét breyta strax. í sex ár sá hann um stjómun evrópsku mótaraðarinnar, frá 1971 til 1976. Eft- ir það lá leið hans til Bandaríkjanna þar sem hann hóf að vinna með út- gefendum staersta golfblaðs í heimi, Golf Digest. Síðan hefur vegur og viröing Jacobs aukist jafnt og þétt þannig að hann er orðinn stærstur í faginu. Vildi komast í veiði En hvaö varð til þess að svona frægur maður á sviði golfíþróttar- innar kom til íslands? „Kunningi minn, Peter Salmon, fór í kennslu til Jacobs og þá sagöi hann Peter að . hann hefði alltaf dreymt um að kom- ast í laxveiði til íslands sem hann hafði mikið heyrt talað um.- Peter hafði samband við mig og við buðum Jacobs að koma í lax í skiptum fyrir golf,“ sagði Ólafur Skúlason í Laxa- lóni. Hann sá sér strax leik á boröi og setti upp mót í Hvammsvík en þar er hann meö níu holu goífvöll og veiðiparadís. Sextán þeir bestu á golfmótinu unnu sér inn einka- kennslu hjá Jacobs sem auk þess hélt golfsýningu í Grafarholti. Kemur Jacobs aftur? Það var auðséð á sýningunni hjá Jacobs að þama var ekki bara vanur maður á ferð heldur hreint út sagt snillingur. Og þeir kylfingar, sem unnu sér rétt á einkakennslu, sem fram fór í Hvammsvík, höfðu greini- lega unnið til stærstu verðlauna sem nokkurn tíma hafa verið i boði á golfmóti hérlendis. Hannes Guð- mundsson, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur, var einn hinna sextán heppnu sem unnu sér inn kennslu hjá Jacobs. „Þetta er miklu meira tækifæri en maður gerir sér grein fyrir. Hann er nákvæmlega í lykilat- riðunum fyrir hvem og einn,“ sagði Hannes. Hinir fimmtán voru allir á sama máli. Nafni GR-formannsins, Hannes Ragnarsson úr Keflavík, sagði að hann hefði gjörbreytt sveifl- unni hjá sér. „Nú þarf ég bara að vera duglegur að æfa mig, þá hryn ég niður í forgjöf," sagði Hannes glaðbeittur og ánægður eftir vel heppnaðan dag í Hvammsvík. En mega íslenskir kylfingar eiga von á því aö fá svona tækifæri aftur, að komast í kennslu hjá John Jacobs? „Hann var mjög ánægður með ferð- ina. Heppnin var að vísu ekki með honum í laxveiðinni, þó náði hann í nokkra og var mjög hrifinn af bæði Norðurá og Laxá í Kjós. Hann lýsti yfir miklum áhuga á að koma aftur og hver veit nema svo verði," sagði Ólafur Skúlason í Laxalóni og „H vamms vikurbóndi' ‘. Texti: Páll Ketilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.