Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
Utlönd
Afrýjunardómstóll í Suöur-
Kóreu staöfesti um helgina dauða-
dóm yfir Kim Hyun-hui, tuttugu og
sjö ára kóreskri stúlku, vegna
sprengjutilræðis sem grandaöi
suður-kóreskri flugvél með 115
manns um borð í nóvember árið
1987. Búist er viö að Kim áfrýi til
hæstaréttar.
Embættismenn í Suður-Kóreu
telja liklegt aö stjómvöld breyti
dauðadómnum í lífstíöarfangelsi
vegna þess að þeir segja aö hún
hafi verið verkfæri í höndum yfir-
valda 1 Noröur-Kóreu. Þjóöimar
tvær hafa átt í deflum frá því aö
Kóreustríðinu lauk.
Kim var dæmd til dauöa eftir að
hún viöurkenndi aö hafa komið
fyrir sprengju um borð í Boeing 747
vél kóreska flugfélagsins. Vélin Kim Hyun-hui sem sökuð er um
hvarf undan ströndum Burma. hafa átt aðild að sprengingu sem
Engin l£k fundust Segir hún þaö grandaði suður-kóreskri flugvél í
hafa verið aö skipan yfirvalda í nóvember 1987.
Noröur-Kóreu. Norður-Kórea neit- símamynd Reuter
ar aðild að tilræðinu.
Viðræður um frið í Kambódíu
í París hófust í morgun viðræöur um friöarmöguleika i Kambódíu en
stríð8ástand hefur ríkt í landinu frá árinu 1970.
Sihanouk príns, leiðtogi samtaka þriggja skæruliöahópa, og Hun Sen,
leiötogi stjómar Kambódíu, sem nýtur stuönings Víetnams, munu ræða
saraan í París. Þetta er í fimmta skiptið sem þessir menn ræðast við. Á
morgun munu fulltrúar aUra aöiia deilnanna í Kambódíu koma saman
til viðræðna en þær viöræður þeirra munu undirbúa ráðstefiiu allt að
tuttugu þjóða um varanlegar friðarhoríur. Ráðstefnan hefst í næstu viku.
Aöalumræðuefiúö verður samsetniig ríkisstjórnar í Kambódíu eftir að
Víetnamar hafa Jokið brottílutningi herja sinna frá landinu.
Afram bardagar í
Hiö valta vopnahlé í Líbanon
virðist nú fallið en sprengjuárásir
héldu áfram um helgina. Taliö er
að saulján hafi látist í BeirúL höf-
uðborginni, síðustu fimm daga en
alls hafa 450 látist frá því í mars-
mánuði þegar síöustu róstumar
hófust Stjórnarerindrekar telja að
bardagamir muni aukast.
Um helgina létust sjö, þar af
nokkur börn, í bardögum miili her-
manna Sýrlendinga og kristinna
undir stjóm Aouns hershöfðingja.
Telja fréttaskýrendur aö atburðir
síðustu daga geri að engu vopnahlé Tvð ^ (rá borgarhluta múha-
það sem komst á fynr milligöngu meöshúarmanna rBeirú. yfirgefa
fulltrua Arababandalagsms. heimilisitt Simamynd Reuter
Mannskaðavedur í Kína
Ófsaregn, flóð og skriðuföll hafa oröið að minnsta kosti 141 manni að
fjörtjóni í norðaustur Kína. Þá hafa alls 1500 manns farist í flóðum í þess-
um mánuöi Búist er við að tala látinna eigi eftír að hækka.
Dagblaö í Kína segir að óveðrið hafi eyðiiagt 4000 heimili og stórt rækt-
arland og flóðin hafa einangraö 24 bæi í Fpjian ogZhejiang hémðum síð-
an á laugardag.
Bátar dreHa froðunni við ftalíu
Meira en 100 bátar sigldu meðfram strönd Adríahafsins á Ítalíu á sunnu-
dag tii að reyna að dreifa þörungagróðri sem þar hefur verið að drepa
flsk og hræða ferðamenn.
Um 40% færri ferðamenn hafa koraið að ströndum Adríahafsins vegna
þörunganna sem hafa myndað slimkennda froðu á yfirboröi sjávarins.
Konur látnar lausar
Simamynd Reuter
Tyrkneskur dómstóll á Kýpur lét sex grísk-kýpriskar konur lausar úr
haldi á sunnudag en þær vom handteknar ásamt 108 öðrum sem réðust
á grænu linuna sem skilur aö tyrkneska og gríska iúuta eyjarinnar.
Fólkið var handtekið á miðvikudag eftir að það hafði traökað á gadda-
vír og farið framhjá friðarsveitum Sameinuöu þjóðanna sem gæta hlut-
lausa svæðisins á eyjunni. Handtökumar fóra fram daginn fyrir 15 ára
afinæli tyrknesku innrásarinnar á Kýpur 1974 og ollu miklum mótmælum
ásuöurhlutaeyjarinnar. Keuter
Stjórnarandstæðingar
ganga af þingi
Nær allir fuUtrúar stjórnarand-
stöðunnar í neðri deild indverska
þingsins sögðu af sér þingmennsku
í morgun tíl að mótmæla meintri
spillingu í stjóm Rajiv Gandhi.
Stjórnarandstaðan er með þessu að
reyna að fá Gandhi til að segja af sér
embætti forsætisráðherra og boða
nýjar kosningar vegna meints mútu-
máls. Segja þeir að árið 1986 hafi
sænska vopnafyrirtækið Bofors
greitt embættismönnum indversku
stjórnarinnar mútur til að reyna að
tryggja sér 1,3 miUjarða doUara
vopnasamning.
Samkomulag náðist meðal stjórn-
arandstæðinga á sunnudag um að
segja af sér. AUs sögðu af sér eitt
hundrað og sex þingmenn frá tólf
stjómarandstöðuflokkum. Upplýs-
ingaráðherra Indlands, K.K. Tewary,
sakaði leiðtoga stjórnarandstæðinga
um að neyða þingmenn til að segja
af sér og fór fram á það við forseta
þingsins, Balram Jakhar, að umræð-
ur um máUð fæm þegar fram.
Þing kom saman í síðustu viku og
er hið síðasta þar til forsætisráð-
Indverskur lögreglumaður á í stimpingum við stuðningsmann stjórnarinnar
á Indlandi. Nær allir þingmenn stjórnarandstöðunnar gengu af þingi í morg-
un. Simamynd Reuter
herra verður að boða til kosninga á ólíklegt að Gandhi boði tU þingkosn-
ný. Verður það að gerast eigi síðar inga fyrr.
en í desember. Fréttaskýrendur telja - Reuter
Gyðingar mótmæla nunnu-
klaustri í Auschwitz
Ungir róttækir gyðingar efndu til
mótmæla um helgina gegn kaþólsku
klaustri í Auschwitz, fyrrum útrým-
ingarbúðum nasista, en pólskir íbúar
svæðisins eru andvígir því að það
verði lagt niður.
íbúar Oswiecim, sem er pólska
nafnið á Auschwitz, fjölmenntu á
sunnudag til að „vemda“ nunnu-
klaustur af Karmelítareglunni þegar
95 félagar úr námsmannasambandi
evrópskra gyðinga komu þangað til
að krefjast þess að það væri lagt nið-
ur. Námsmennirnir em að reyna að
þvinga kaþólsku kirkjuna til að efna
samkomulag um að flytja nunnurnar
17 úr klaustrinu við útrýmingarbúð-
imar en í klausturhúsinu var eitt
sinn geymt Cyklon B gas sem nas-
istar notuðu til að drepa fjórar millj-
ónir gyðinga. Kardínálinn í Krakow,
Franciszek Macharski, hét því 1986
að nunnurnar yrðu fluttar á brott en
þess í stað er nú verið að gera við
klausturbygginguna.
Ekki kom til átaka í gær eins og
fyrir tíu dögum þegar pólskir verka-
menn fóm hörðum höndum um sjö
bandaríska gyðinga sem höfðu klifr-
að yfir klausturvegginn í sams konar
mótmælum. En stúdentarnir mættu
fyrirlitningu og andstöðu um 200
Pólverja þegar þeir settust á veginn
nærri klausturhliðinu.
Leiötogi stúdentanna sakaði ka-
þólsku kirkjuna um svik og lygar á
þeim fjórum árum sem liðin eru frá
því að gyðingar fóru fyrst fram á að
klaustrið yrði aflagt. Reuter
Bandaríkin:
Embættismaður leystur frá
störfum vegna njósna
hann gerðist njósnari, en sagt er að
hann hafi verið vonsvikinn með
frama sinn þar sem hann hafi ekki
verið gerður að sendiherra. Reynist
hann sekur er hann hæst setti emb-
ættismaður bandarísku utanríkis-
þjónustunnar sem gerst hefur sekur
um njósnir.
Bloch var næstráðandi sendiráðs-
ins í Vínarborg frá 1980-1987. Banda-
ríska leyniþjónustan CIA hefur mik-
ið umleikis í sendiráðinu í Vín og
leikur grunur á að Bloch hafi þar
haft aðgang að mikilvægum upplýs-
ingum um njósnastarfsemi Banda-
ríkjamanna í Austur-Evrópu. Haft
var eftir Alois Mock, utanríkisráð-
herra Austurríkis, í blaðagrein í Vín
að granur hafi fyrst fallið á Bloch á
8. áratugnum.
Síðustu tvö ár hefur Bloch verið
skrifstofustjóri Evrópudeildar utan-
ríkisráðuneytisins þar sem hann
hafði aðgang að upplýsingum um
aðgerðir Bandaríkjamanna til að
koma í veg fyrir að Sovétmenn kom-
ist yfir vestræna tækniþekkingu.
Það hefur ekki fundist njósnari í
bandaríska utanríkisráðuneytinu
síðan 1950 þegar öldungadeildar-
þingmaðurinn alræmdi Joe
McCarthy sakaði íjölda starfsmanna
þar um aö vera á mála Kremlverja.
Enginn var dæmdur þá, en vaskleg
framganga Richards nokkurs Nixons.
á lúósnaraveiðunum lyfti honum í
embætti varaforseta.
Birgir Þóiissan, DV, New York:
Háttsettur embættismaður í
bandaríska utanríkisráðuneytinu
hefur verið leystur frá störfum vegna
grans um njósnir fyrir Sovétmenn.
Maðurinn, Felix Bloch, sást aíhenda
sovéskum njósnara skjalatösku í
París fyrir nokkrum mánuðum en
talið er að hann kunni að hafa njósn-
að fyrir Sovétríkin í allt að á annan
áratug. Hann hefur hvorki verið
handtekinn né kærður enn sem kom-
ið er en hann er undir eftirliti svo
hann strjúki ekki austur yfir.
Ekkert er ljóst um ástæður þess að
Felix Bloch, starfsmaður bandariska utanríkisráðuneytisins, hefur verið
leystur frá störfum, grunaður um njósnir fyrir Sovétrikin.
Símamynd Reuter