Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. Lesendur Arekstrarhætta í flugi: Umræðan annarlega Spumingin Hver er skemmtilegasti feröamátinn? Sæþór Þorláksson: Það er skemmti- legast að ferðast á hestum. Maður sér meira. Fjóla Einarsdóttir: Best er að ferðast í bíl ef maður fer ekki á hestbak, Brynjólfur Sigurðsson: Labba. Þú sérð allt sem þú vilt sjá og ferð hægt yfir. Martha Andrews: Að fljúga, annars fer það eftir því hvert maður er að fara. Unnur Halldórsdóttir: Það er skemmtilegast að skoða landið í fall- egu veðri í bíl eða flugvél. Elísabet Jónsdóttir: Það er þægileg- ast að feröast með flugvél. | Flugfarþegi skrifar: Ég get ekki látið hjá líða að tjá mig lítillega um fréttaflutning og fátæk- lega umræðu eftir að Sakadómur Reykjavíkur felldi dóm yfir flug- stjóra Boeing flugvélarinnar TF-FLI og flugumferðarstjóra einum vegna þess að þeir sýndu ekki nægilega aðgæslu við brottför flugvélarinnar Sverrir hringdi: Sífellt hefur verið talað um hag- kvæmni þess að sameina fyrirtæki. Tryggingafélög eru þar ekki undan- skilin. Og svo varö úr að sameining nokkurra þeirra varö að veruleika. Sjóvá og Almennar í eina sæng og Brunabót og Samvinnutryggingar í eitt félag. Allt var þetta gott og bless- að, enda héldu menn að hér sæti hagkvæmnin haldgóða í fyrirrúmi. Nú kemur hins vegar annaö í ljós. Fyrst er það kostnaðurinn við sam- Jón Ólafsson hringdi: Flestir landsmenn hafa fylgst með málefnum þeirra fyrirtækja sem hafa verið í sviösljósinu vegna meintra söluskattsskulda við ríkis- sjóð. Fáir munu mæla því í mót að ríkissjóður innheimti slíkar skuldir þar sem þær eru sannanlega fyrir i hendi. Það eru hins vegar áhöld um frá Keflavíkurflugvelli dag einn snemma í september 1984. Að vísu komu flestir fjölmiðlar með fréttina um dóminn sama kvöld eða daginn eftir. Þó ekki allir. Þannig rekur mig ekki minni til þess að dag- blaöið Tíminn eða Þjóöviljinn birtu neitt um málið daginn eftir þótt síðar hafl þau blöð eitthvað sagt frá dómin- eininguna. Þannig segir forstjóri hins nýja Vátryggingafélags íslands (fyrrum Samvinnutr. og Brunabót), að kostnaður við sameininguna sé verulegur. Engar tölur eru samt til- búnar ennþá. Hagræðingu segir hann þó verulega, og að hún veröi viðvarandi. Vonandi er að svo sé. Ég get þó trúað að kostnaðurinn sé verulegur - og margvíslegur - ef dæma má eftir þeim glæsilega bækl- ingi sem dreift er til hvers trygginga- taka. Mér fannst það vera einber of- örfá fyrirtæki sem ekki hafa einu sinni innheimt söluskatt af þeirri ástæðu einni að þau hafa taliö rétt- mætt og lögmætt að gera þaö ekki - og hafa getaö vitnað til reglugeröa þar að lútandi. Málefni Hagvirkis eru hvað mest í sviðsljósinu þar sem það ætlar að láta reyna á lögmæti innheimtuað- um. Það hvarflar að manni að svona atvik þurfi nú einnig að fara í gegn- um hreinsunareld pólitíkur, t.d. með tilliti til flokksskírteina hlutaðeig- andi. - Ljótt væri ef satt væri. í Morgunblaðinu var hins vegar, daginn eftir dómsúrskurðinn, sér- staklega birt greinargóð lýsing á at- burðarásinni ásamt frétt á innsíðu rausn og algjör óþarfi. í nýlegri könnun sem eitthvert fyr- irtæki í talnavísindum gerði fyrir skömmu um íslenska trygginga- markaöinn kemur svo fram aö alls óvíst sé að fækkun tryggingafélaga verði til þess að lækka iðgjöld að marki! - Ef hagræðingin er ekki fyrst og fremst fólgin í lækkuðum iðgjöld- um til viöskiptavina, þá finnst mér til lítils unnið. Það var þó ábyggilega hún sem stefna átti að, hélt maður. - Eða var það ekki? gerðanna fyrir dómstólum. Nú hefur enn verið hert á aðför gegn þessu umsvifamikla fyrirtæki og á að knýja það til greiöslu eða framvísunar bankaábyrgðar fyrir meintum sölu- skattsskuldum. Ég og margir fleiri erum komnir á þá skoðun, að þetta fyrirtæki, eins og mörg önnur, sem tekin hafa verið sérstaklega fyrir af ráðamönnum þjóöarinnar á undangengnum mán- uðum og allra síðustu árum, hafi verið búin þeim örlögum af vissum öflum í þjóðfélaginu að hætta starf- semi. - Ég vil nefna fyrirtæki eins og Olís, sem er sterkur keppinautur hinna olíufélaganna, Hafskip, sem margir vilja halda fram nú aö hafl verið knúið til uppgjafar - og jafnvel Arnarflug sem er sterkur samkeppn- isaðili í flugsamgöngum. Það eru nefnilega til í þessu landi, eins og í flestum öðrum, mjög sterk hagsmunasamtök sem ekki líða með nokkru móti að önnur fyrirtæki en örfá útvalin, þar sem sitja pólitískir flokkseigendur í stjórn, hafi hitann úr þeim framkvæmdum og umsvif- um sem bjóðast í þjóðfélaginu. - Og það merkileg er að þetta á við um alla pólitíska flokka hér, jafnt til vinstri sem hægri. (engin nöfn nefnd þar). Síðan hljóðn- aði umræðan. Svo var það í leiðara Morgunblaðsins sl. þriðjudag (18.7.) að þar var málið tekiö upp að nýju undir fyrirsögninni Öryggi og flug- umferð. Ágæt hugleiðing í sjálfu sér. - Nema að nú voru komin nöfn í umræðuna! - Ekki nöfn þeirra sem Sakadómur Reykjavíkur felldi dóm yfir heldur nöfn þeirra sem voru eins konar „þolendur" hinna sakfelldu! í leiðaranum var vitnað til um- mæla flugmanna DC-8 vélarinnar sem var í hvað mestri hættu vegna ákeyrslu hinnar vélarinnar sem var undir stjórn þess flugstjóra sem deildi hvað harðast við flugumferð- arstjóra á jörðu niðri meðan vél hans nálgaðist þá sem á undan fór. Hvergi minnst á nöfn þeirra sem sakfelldir voru! Það skal hins vegar tekið undir með leiðarahöfundi Mbl. að það var tvímælalaust rétt að vísa þessu máli í dóm til að fá úr því skorið hvað þarna gerðist í raun. Hugsanlegar tilraunir til að hindra rannsókn málsins og dómtöku hefðu verið óverjandi. - Öryggi í flugumferð hlýt- ur að sitja í fyrirrúmi. Pólitík eða smáborgaravangaveltur um per- sónustuðning eins og oft á sér stað hérlendis eru ekki þess virði að gaumgæfa. Að flagga með hræsninni Pétur Guðmundsson skrifar: Ég var aö enda við að glugga í tímaritið Úrval. Ég er ekki áskrif- andi að því og vil ekki vera það, fremur en að öörum tímaritum, en kaupi þaö næstum alltaf og les mér til ánægju, því ég tel að þetta næstum hálfrar aldar gamla tímarit flytji reglulegt „úrval“ greina um margs konar fróðleik og skemmtiefni. En það var nú eiginlega ekki þetta sem ég ætlaði aö tala um sérstaklega, heldur prýðilegan leiðara í nýjasta hefti Úrvals (júlí-hefti) ura mál, sem mér fannst vera fjallað um nýlega sem eitt mesta glæpamál síðari tíma. Ég á hér viö strákapör þriggja Ameríkana af Keflavíkurflugvelli er þeir skáru niður og tóku trau- stataki nokkra fána, íslenska og erlenda. Ég ætla ekki á neinn hátt að fegra framferði þeirra og þeir hafa fengið sína refsingu, sem er margfalt öflugri og harðari en nokkur íslenskur ríkisborgari hefði hlotið fyrir sama brot. Það er hins vegar þessi fádæma hræsni sem við Islendingar flögg- um ávallt með í fulla stöng sem ég á bágt að sætta mig við. Ekki síst þegar hún er studd af ekki lægra settum aðilum en ráðherra. í þessu tilviki, utanríkisráðherra, sem var þungorður um agaleysi, o.s.frv.... Þegar litið er til franrferðis okk- ar eigin þjóðar á hátíöis- og tylli- dögum, og ungmenni veltast um dauðadrukkin, troðandi á fánum lýðveldisins, jafnvel hrifsandi blómaskreytingar úr kransknýtt- um virðingarvotti við stall Jóns Sigurðssonar þegar líöa tekur á kvöld þjóðhátíöarrfags, þá höfum við ekki ýkja mlídl efni á aö flagga með hræsninni, bara af því að ósvinnan er framkvæmd af erlendum. - En leiðarinn í Úrvali er þess virði aö staldra við og gaumgæfa. Hagvirki hf. sér m.a. um byggingu veitingahússins á Öskjuhlíð. - „Nú hefur aðför verið hert að þessu umsvifamikla fyrirtæki,“ segir hér m.a. Boeing-flugvélin TF-FLI. Tryggingamarkaðurinn: Sameining en engin hagræðing Eru örlög Hagvirkis ráðin?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.