Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989. Kennarar! Kennara vantar að Grenivíkurskóla. Aðalkennslu- grein: Stærðfræði í 7. og 9. bekk. Uppl. gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 96-33131 eða 96-33118. HÁRNÝ Hárgreiðslu- og rakarastofa Nýbýlavegi 22 • Sími 46422 • 200 Kóp. KMS sjampó og næríng HÁRGREIÐSLU- 0G is RAKARASTOFAN KLAPPARSTÍG 29, RVÍK ^13010 • 12725 Fréttir Þórdís stóö sig vel í nýliðariðlinum, hlaut m.a. aðeins eina villu í umferðarspurningunum. Ökumælar Haldex VDO Almennar barkaviðgerðir Tökum notaöa mæla upp í nýja! *a®£*ÆkuR A BUffiK&DECKa garðáhöldum JÚLÍTILBOÐ 1 / GX 303 loftpúðavéi Kantskeri GL 120 - GL 220 TILBOÐ 1 GX 303 loftpúðavél kr. 13.821,- GL 120 kantskeri kr. 3.964,- A 6261 25m raftaug kr. 1.123,- 18.908,- TILBOÐSVERÐ KR. 15.882,- TILBOÐ 2 GX 303 loftpúðavél kr. 13.821,- GL 220 kantskeri sjálfvirkur kr. 5.333,- A 6261 25m raftaug kr. 1.123,- 20.276,- TILBOÐSVERÐ KR. 16.829,- Sölustaðir um land allt. SINDRA^STALHF BORGARTÚNI 31, SÍMI 627222 Vott á Hellu Bryndís Jónsdóttir, DV - Ökulefloii 89 Ökuleikni 89 fór fram á Hellu í hálfblautu veðri sunnudaginn 2. júlí. Þar, eins og svo oft áður, sigraði einn yngsti ökumaðurinn í karlariðli, Sig- urður Rúnar Sigurðsson. Það er greinilegt að þeir sem telja unga fólk- ið eitthvað verri ökumenn, þurfa að endurskoða það áht sitt. Sigurður stóð sig vel í öllum hlutum Ökuleikn- innar, fékk ágætan tíma og aðeins tvær villur í brautinni. í kvennariðli sigraði Sigríður Bergsdóttir eins og í fyrra, og í nýliðariðlinum var Þór- dís R. Guðmarsdóttir í 1. sæti með ágætan árangur. Þórarinn Hlynur Amarson sigraði yngri riðilinn í reiðhjólakeppninni með miklum yfirburðum. Hann hjól- aði hratt og örugglega og hlaut aðeins 58 refsistig en sá sem var í öðru sæti var með 85. í eldri riðlinum sigraði Magnús Torfi Ólafsson. Hann fór brautina á 30 sek., sem er það besta sem sést hefur í sumar. Hann gerði aðeins eina viUu, sem er ótrúiegur árangur, og fékk 40 refsistig. Ólafsvík: Lögregluþjónar í fullum skrúða Bryndís Jónsdóttir, DV - Ökuleikni 89. Óhætt er að segja að Ökuleiknin á Ólafsvík hafi verið með þeim skraut- legri á landinu. A.m.k. er þetta eini staðurinn þar sem lögregluþjónar hafa mætt til keppni, og það í fullum skrúða, á lögreglubílnum. Þeir sýndu þama skemmtilegt fordæmi sem gaman væri að sjá á fleiri stöðum. Eftir harða baráttu í karlariðli stóð Guðmundur Karl Snæbjömsson uppi sem sigurvegari með aldeilis frábæran árangur, 140 refsistig. Guð- mundur mun vera læknir og höfðu einhverjir á orði að það hlytu að vera mörg útköll í umdæmi hans. Lög- regluþjónarnir stóðu sig báðir vel, lentu í þriðja og sjöunda sæti. I kvennariðh sigraði Sigrún Drífa Ótt- arsdóttir, en nýbakaðir ökumenn á Ólafsvík létu ekki sjá sig í þetta skipt- ið. Reiðhjólakeppnin fór einnig vel fram þótt ekki sé hægt að segja ann- að en aö sum bömin hafi átt erfitt Sigurður Stefánsson og Sif Björnsdóttir sigruðu í sínum riðlum í reiðhjóla- keppninni. með að beisla orkuna innra með sér. Sigurður Stefánsson fór meö sigur af hólmi í eldri riðlinum, hlaut alls 56 refsistig, en í þeim yngri sigraði Sif Bjömsdóttir meö 101 refsistig. Gefendur verðlauna í Ökuleikni voru Gistiheimilið Snæfell og Vá- tryggingafélag íslands. Fálkinn gefur verðlaun í reiðhjólakeppninni um allt land. Nóaflóð í Grundarfirði Bryndis Jónsdóttir, DV, Ökuleflaii 89: Ekki er hægt aö segja anaað en að veðrið hafi sýnt á sér allar hliðar þriðjudagskvöldið 4. júlí þegar Öku- leikni 89 fór fram í Grundarfirði. Þegar keppni hófst gekk á með mikl- nm vindhviðum og milh þess sem dropaði úr lofti gægöist sólin niður á ntiUi skýjanna. Þegar leið á keppni fór rigningin hins vegar að ágerast og þótti mörg- um nóg um. Var ekki laust við að Nóaflóðið kæmi upp í hugann á stundum því að þaö var bókstaflega allt við að fara á flot og ekki þurr þráður á viðstöddum. Ekki var þó aUt búið enn þvi undir lok keppninn- ar kom haglél. Þá var flestum alveg lokið og vom töluverðar vangaveltur imi hvort flett hefði verið vitlaust á dagataUnu eða hvort önnur ísöld Veðurguðirnir létu ófriðlega þegar keppt var í Grundarfirði. væri í nánd. En eins og aUir vita eru íslending- ar, og þar með Grundfirðingar, með eindæmum harðgert fólk og cdlir sem skráðu sig til keppni luku henni með sóma. Og þótt ótrúlegt sé var þátt- taka betri en í meðallagi. í karlariðli sigraði Ólafur Hjálm- arsson með 180 refsistig, í nýliðariðh Guðmundur Jónsson með 238 refsi- stig og í kvennariðU Þóra Karlsdóttir með 212 refsistig og mega þau öU vel við una. Börnin létu ekki sitt eftir liggja og hjóluðu af miklum krafti þótt stein- steypt planið væri eins og besta skautasveU í rigningunni. Hlut- skarpastur í riðli 9-11 ára bama var Björn Kristján Ásgeirsson. í riðli 12 ára og eldri voru stúlkumar hins vegar allsráðandi. í 1. sæti varð El- ísabet Svava Kristjánsdóttir. Sæfang hf. og Guðmundur Runólfsson gáfu verðlaunin í Ökuleikninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.