Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
27
Kvdftiníld |
ausandi rigningu
w w
- á annairi stigakeppni íslandsmeistaramótsins
Önnur kvartmflukeppni sumars-
ins, sem gefur stíg til Islandsmeist-
ara, var haldin sunnudaginn 9. jólí.
Var þetta tímamótakeppni fyrir
klúbbinn þar sem ný timatökutæki
voru tekin í notkun.
Þessi nýju tæki eru sömu tegund-
ar og notuð eru á öllum stærstu
kvartmílubrautum Bandaríkj-
anna, þau eru öll tölvustýrð og eru
þau fulikomnustu sem völ er á.
Nýbúið er að setja upp þennan
búnað og haföi starfslið ekki fengið
mikla reynslu í notkun hans. Var
því ekki laust við smáfum þegar út
í keppnina kom. Varð keppnin hálf-
ruglingsleg af þeim sökum. En fall
er fararheill og verður þetta i mjög
góðu lagi næst.
Vontveðurog
fáir keppendur
Veörið þennan sunnudag var ekki
gott og gekk á með skúrum. Það
sem var eiginlega skrítnast viö
þetta allt saman var aö kvartmflu-
brautin var nánast þurrasti punkt-
urinn í nágrenni Reykjavíkur
þennan dag. Þetta kom náttúrlega
niður á aðsókn bæði keppenda og
áhorfenda því enginn bjóst við
keppni í þessu veðri. Samt mættu
um 200 áhorfendur og 16 keppend-
ur sem skiptust i tjóra flokka að
þessu sinnL
Fimm voru í „bracket" flokki,
fimm í Þ. flokki (13,90 Index), fjórir
1 mótorhjólaílokki og að lokum
tveir 1 „competítion“ flokki. Til
stóð aö keyra „standard" flokk og
voru fjórir mættir en eirra bilaði
strax í upphitun svo hinir skiptu
sér niöur á aðra flokka. Einnig stóð
til að keyra götubflaflokk en ekki
náðist næg þátttaka. Til að flokkur
sé keyrður þarf minnst íjóra bíia
með einni undantekningu þó og
það er „competition“ en þar þarf
aðeins tvo.
Mikið um bilanir
Alls biluðu í þessari keppni sex
bilar og voru bilanirnar allt frá
ónýtum vatnskassahosum til
sprunginna vélarblokka, fastra
mótora, ónýtra sjálfskiptinga og
kúplinga. Meira að segja tókst ein-
um keppanda að bijóta miðfjaðra-
bolta og var úr leik. Þrátt fyrir
þetta tókst að fá fram úrslit í öllum
flokkum og var keppni í þeirn mjög
jöfn og spennandi.
í „brackeþ, flokki sigraöi Sigur-
jón Georgsson á Dodge Dart 360cu
og í öðru sæti varð Gunnlaugur
Rögnvaldsson á Peugeot 1,9 GTi.
Tímamir voru 15,71 sek. hjá Sigur-
jóni en 15,72 hjá Gunnlaugi.
í mótorhjólaílokki sigraði Hjört-
ur Jónsson á Honda VFR 750 á tím-
anum 11,76 sek. og í öðru sætí varð
Benedikt Ragnarsson á Honda 750
með tímann 12,45 sek.
í Þ. flokki (13,90) sigraöi Sigurjón
Andersen á Plymouth Roadrunner
440cu með tímann 13,78 og í öðru
sæti varö Ólafúr Jónsson á Super
Bee með timahn 13,83 sek., bíll Ól-
afs er líka búinn 440cu vél.
í „Competition“ flokki sigraöi
Sigurjón Haraldsson á Ford Pinto
með 355cu Chevy vél á tímanum
11,36 sek. og í öðru sætí varð Valur
Vífllsson á Plymouth Valiant með
340cu Chrysler vél með tímann
12,22 sek. Vélin i Valiantinum gaf
sig fyrir úrslitaspyrnuna svo Sig-
uijón vann en áður haföi Valur
unnið fyrri spymuna. Vegna þess
að Valiantinn er þyngri og með
minni vél en Pintoinn fékk Valur
1,05 sek. í forskot.
Röðin ÖI
Islandsmeistara
er eftirfarandi:
I „compititíon" er efstur Siguijón
Haraldsson með 500 stig, annar er
Valur Vifilsson með 200 stig. I
„Bracket" er efstur Gunnlaugur
Rögnvaldsson með 1100 stig og ann-
ar er Siguijón Georgsson með 1050
stig.
I floktó mótorhjóla er efstur Guð-
jón Karlsson með 900 stig og annar
er újörtur Jónsson með 500. stig.
I Þ. flokknum er Siguijón And-
ersen efstur með 1000 stig og annar
er Ólafur Jónsson með 600 stig.
lngólfur Arnarson er efstur í flokki
götubíla með 700 stig og Agnar
Amarson er í öðra sæti með 300
stig.
Næsta keppni verður haldin á
morgun, 23. júlí, ef veður leyfir og
verður vafalaust spennandi því
baráttan um íslandsmeistaratitil-
inn er mjög jöfn í öllum flokkum.
Það eru þijár keppnir eftir í
kvartmflunni og er vitað um marga
nýja keppendur sem eiga eftír að
bætast við. Næsta keppni gætí því
ráðið úrslitum, mætum því öll.
Höfundur: Hálfdán Siguijónsson.
Kvartmíla? Er þaö ekkí að fara í stutt ferðalag og vera snöggur að þvi?
Tveir fótstigs-kvartmílingar horfa hér hugfangnir á dekkjaupphitun sem
f lýtir för vlðkomandi keppanda þegar græna Ijósið kviknar. DV-mynd ás
Sigurjón Haraldsson rennir hér Pintoinum til sigurs í „copetition" flokki
á tímanum 11,36 sektindum.
Hér etja tveir ökuþórar kappi saman á kvartmílubrautinni í Kapellu-
hraunl.
íþróttir
Þeir voru hressir norðanstrákarnir er þeir héldu utan til Gautaborgar.
DV-mynd Hson
Knattspyrna:
Strákar úr KA
halda í víking
- fara á mót í Svíþjóð
Knattspymustrákar úr 3. aldursflokki KA héldu utan á dög-
unum til þátttöku í gríðarlega sterku fjölþjóðlegu móti í Sví-
þjóð.
Mótið fer fram í Gautaborg sem er að margra áliti höfuð-
vígi knattspyrnunnar í Svíaríki.
Mótið sænska er afar vinsælt og munu um 800 lið taka þar þátt. Af
þessum 800 liðum munu um 250 þeirra keppa í sama aldursflokki og lið
KA-manna.
KA-piltar eru ekki þeir einu sem halda utan á þessu sumri til þátttöku
í fjölþjóðlegu móti því mitóð hefur borið á að unglingaflokkar úr öðrum
félögum haldi í víking af íslandi.
Veita slíkar utanferðir drengjunum og þjálfurum þeirra dýrmæta
reynslu í íþróttinni. Koma ferðirnar þessum aðilum í kynni við með
hvaða lagi knattspyma er ástunduð og leikin með öðrum þjóðum.
JÖG/-Hson
Bréf frá KSÍ og nefhd um átak 1 áfengisvömum:
Áfengi spillir
fyrir árangri
í íþróttum
- segir í bréfinu
KSÍ og nefnd um átak í áfengis-
vörnum hafa ákveðið að hafa með
sér samstarf um áfengisvarnir á yflr-
standandi ári.
Aðilarnir fara þess á leit við for-
ystumenn aðildarfélaga KSÍ að þeir,'
ásamt þjálfurum og leiðbeinendum í
knattspymu í öllum flokkum, flalli
um þessi mál og geri knattspyrnu-
iðkendum grein fyrir að neysla
áfengis og iðkun íþróttarinnar fari
aldrei saman.
- Það er löngu vitað að neysla
áfengis spillir fyrir árangri í íþrótt-
um, segir í bréfi frá KSÍ og nefndinni
sem barst ritstjórn DV á dögunum.
- Áfengi skerðir færni, þol, þrek
og nákvæmni sem er forsenda góðs
árangurs. Það er einnig vel þekkt að
íþróttamaður, sem neytir áfengis síð-
ustu daga fyrir keppni, stendur verr
að vígi en hann gerði annars, segir
ennfremur í bréfinu.
Þá segir að þess séu dæmi að áfeng-
isneysla leikmanna í keppnisferðum
setji ljótan svip á íþróttina. Segja
bréfritarar að mikflvægt sé að slíkt
komi ektó fyrir og hvetja þeir for-
ráðamenn félaga og þjálfara til að
koma algerlega í veg fyrir slíkt.
Þá er í bréfinu bent á aukna hættu
samfara tilkomu áfengs öls. Bent er
á aukna hættu á að áhorfendur komi
með áfengi með sér á leitó með til-
komu bjórsins.
I bréfinu segir: - Það eru því til-
mæli okkar að umsjónarmenn knatt-
spyrnuleikja komi þeim skilaboðum
tryggflega til áhorfenda aö áfengis-
neysla sé óheimil á áhorfendasvæö-
um, þar meö talin neysla bjórs, og
fylgi því eftir að þau fyrirmæli séu
virt.
-JÖG
Áfengi og knattspyrna fara ekki
saman, segir í bréfi frá KSÍ og nefnd
um átak i áfengisvörnum.